Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1987, Page 5
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1987. 23 íþróttir 3 $$*$££$ ■ :■ •:. :■ ■ isstgis: l'l í'L-v': •:•■ ■:■■■■ •:■■:■■ •: •: ís«*l ásssí»í«*íiö: œsaiaáaÉ pliiíii!! i 4;gj_ 5 í | J$j£xt3 (yngst4ára) Mosfellsbærfrákl. 13-191 |||Keflavík, Njarðvík, Grindavik, Garður, Sand ■ •••.• v 5 s :• ■:• •: ■:■ •:•..:• • Stephen Engels, FC Köln, fagnar hér með miklum látum marki sinu gegn Bayern Munchen á laugardag. Til vinstri er félagi hans, Armin Görtz. Símamynd Reuter Fyrirliðinn rekinn af leikvelli og Bayem tapaði illa - Jafnt hjá Stuttgart. Atía skipt út af og Lárus lék ekki Sgurður Bjömsson, DV, Þýskalandú Köln sigraði Bayem Munchen, 3-1, í stórleik helgarinnar í vestur-þýsku knattspymunni. Við sigurinn skaust Köln í annað sætið í deildinni. Andre- as Brehme kom Bayem Miinchen yfir eftir aðeins tólf mínútna leik. Thomas Allof jafnaði fyrir Köln þremur mínút- um síðar. Það voru síðan Stephan Engels og Daninn Flemming Poulsen sem gulltryggðu sigur Köln rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Augenthaler rekinn af leikvelii I seinni hálfleik sótti Köln öllu meira án þess þó að bæta við fleiri mörkum. Bayem Munchen varð fyrir áfalli um miðjan seinni hálfleik þegar fyrirliði liðsins, Klaus Augenthaler, var rekinn af leikvelli eftir að hafa brotið á Flemming Poulsen. Fyrr í leiknum var honum sýnt gula spjaldið. 57 þúsund áhorfendur fögnuðu innilega sigri Kölnar í leikslok. Sigur Kölnar var persónulegur sigur fyrir Udo Lattek sem sér nú um ráð- gjöf hjá félaginu. Hann var áður í nokkur ár þjálfari hjá Bayem Múnchen. í sjónvarpsviðtali eftir leik- inn sagði Lattek að Köln yrði örugg- lega í baráttunni um meistaratitlinn ásamt Bayem Múnchen, Werder Bremen og Stuttgart ef Ásgeir Sigur- vinsson færi að lagast af þeim meiðsl- um sem hann hefur átt við að stríða. Ásgeir væri burðarás liðsins og liðið mætti alls ekki vera án hans. Werder Bremen vann öruggan sigur og er í efsta sætinu • Werder Bremen, sem er í efsta sæti deildarinnar, vann stórsigur, 4-0, yfir Borussia Dortmund. Hinn 37 ára gamli Manfred Burgsmúller skoraði tvö af mörkum Bremen. Sigur Bremen var síst of stór því leikurinn var ein- stefna af þess hálfu allan leikinn. Sex mörk í Hannover • Stuttgart gerði 3-3 jafntefli á úti- velli gegn Hannover. Stuttgart er í fjórða sæti ásamt Bayem Múnchen. Bæði liðin hafa hlotið 10 stig. í hálf- leik var staðan 2-0 fyrir Hannover. Lið Stuttgart kom mjög ákveðið til leiks í seinni hálfleik og náði að jafna leikinn. Schutterle og Schröder skor- uðu mörkin en eitt markanna var sjálfsmark. Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með Stuttgart vegna meiðsla en er á batavegi. Atla var skipt út af • Atli Eðvaldsson og félagar hans í Bayer Uerdingen töpuðu 0-1 á úti- velli gegn Karlsmhe. Atli lék með Uerdingen en var tekinn út af í seinni hálfleik. Þjálfari Uerdingen vildi skerpa sóknina og í stað Atla kom sóknarmaður. Við skiptinguna sótti Uerdingen mikið en tókst ekki að skora. Atli bjargaði í fyrri hálfleik á marklínu. Lárus lék ekki með Kaisers- lautern • Lárus Guðmundsson lék ekki með Kaiserslautem í 4-2 sigri liðsins gegn Bochum á heimavelli. Kaiserslautem hefur ekki staðið undir þeim vonum sem bundar vom við liðið fyrir keppn- istímabilið. Fyrir leikinn efhdi stjóm félagsins til fúndar með leikmönnum og virðist sá fundar hafa skilað ár- angri. Góður sigur fylgdi í kjölfarið. • Gladbach, sem er í þriðja sæti, vann FC Homburg, 2-0, með mörkum frá Dirk Bakalorz og Hochstaetter. Úrslit leikjanna um helgina urðu annars þessi: Gladbach - Homburg............2-0 Hannover - Stuttgart.........„3-3 Köln - Bayem..................3-1 Karlsmhe - Uerdingen..........1-0 Numberg - Hamburg.............2-2 Schalke - Leverkusen..........2-2 Frankfurt - Mannheim..........5-1 Kaiserslautem - Bochum........4-2 Bremen - Dortmund.............4-0 • Staðan í 1. deildinni er nú þannig að Werder Bremen er efet með 14 stig þegar átta umferðum er lokið. Köln er í öðm sæti með 13 stig, Bomssia Mönchengladbach 13, Stuttgart er í fjórða sæti með 10 stig og Bayem Munchen sömuleiðis. Á botnmum em FC Homburg og Bayer Uerdingen með 4 stig og Mannheim og Dortmund með 5 stig. -JKS • Morten Olsen, FC Köln, (hvitklæddur) reynir hér að leika á Hans Pfliigler, Bayem Munchen, í leik liðanna á laugardag. Köln sigraði 3-1. Símamynd/Reuter TILVIÐSKIPTAVINA Vinsamlega athugið að frá og með 15. september eru aðalskrifstofur okkar að Ármúla 3 opnar á virkum dögum frá kl. 9-17. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.