Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987. Fréttir i>v ATVR á Akureyri: Hörkudeilur um stöðuveitingu Gj* Kristjánssan, DV, Akureyri; „Það er óhætt að segja að hér rík- ir geysileg óánægja, svo ekki sé meira sagt, og það kann að fara svo að nýtt „fræðslustjóramál" sé í upp- siglingu," sagði Hjörtur Herberts- son, starfsmaður hjá áfengisútsölu ÁTVR á Akureyri, við DV . Óánægja starfsmannanna er til- komin vegna þess að Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra hef- ur skipað Hauk Torfason útsölu- stjóra ÁTVR á Akureyri en Haukur, sem er alþýðuflokksmaður, hefur undanfarin ár veitt forstöðu vinnu- miðlunarskrifstofu Akureyrar. Alls sóttu 21 um stöðuna. Þar af voru þrír starfsmenn ÁTVR á Akur- eyri og einn þeirra hefur 15 ára starfsaldur að baki. Þá var einn umsækjenda fulltrúi hjá ÁTVR sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í 20 ár. „Við erum ekki neitt persónulega á móti Hauki Torfasyni, það vil ég taka fram,“ sagði Hjörtur Herberts- son. „En hefur Jón Baldvin fjármála- ráðherra ekki sífellt hamrað á því að hann væri andvígur pólitískum stöðuveitingum? Svo notar hann fyrsta tækifæri til að koma flokks- bróður sínum að en menn, sem hafa starfað lengi hjá fyrirtækinu, eru hundsaðir. Það er alveg óhætt að segja að það ríkir mikil gremja hjá okkur og það er ekki séð fyrir end- ann á þessu máli,“ sagði Hjörtur. Hart er nú deilt i áfenginu á Akureyri. Skáldkonan Isabell Allende áritaði bók sína, Hús andanna, í bókaverslun Máls og menningar á Laugaveginum i gær. Eins og myndin ber með sér beið fólk i röðum eftir að komast að skáldinu og fá eintak af bókinni áritað. DV-mynd GVA Álbobbingamir ÍSAL á ekkert í Grænfríðungar: Ákvörðun um aðgerðir - á allra næstu dögum Ólafiir Amaisom, DV, New York Dean Wilkinson, talsmaður græn- fríðunga í hvalamálum, sagði í samtali við DV í gær að grænfríðungar væru óánægðir með samkomulag íslands og Bandaríkjanna í hvaladeilunni. Wilkinson sagði að græðgi fárra Is- lendinga hefði sett alla þjóðina í neikvætt ljós á alþjóðavettvangi og að íslenska ríkisstjómin hefði valdið miklum vonbrigðum með því að standa að þessu samkomulagi. Aðspurður sagðist Wilkinson ekki vilja áfella bandarísk stjómvöld fyrir að gera þetta samkomulag og að bandaríska viðskiptaráðuneytið hefði unnið mjög mikið og fómfúst starf í þessu máli. DV hefur óyggjandi heimildir fyrir því að viðskiptaráðuneytið hafi átt mjög náið samstarf við grænfríðunga varðandi alla stefnumörkun gagnvart íslandi í hvalamálinu. Aðspurður játti Wilkinson því að samtökin ættu full- trúa í ráðgjafanefnd viðskiptaráðu- neytisins varðandi stefhumörkun í hvalveiðimálum. Einnig sagðist Wilk- inson nokkrum sinnum hafa rætt við Anthony Callio, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra, og Dan McGovem, einn aðalsérfræðing ráðuneytisins í hval- veiðimálum. DV hefur það eftir heimildum að viðskiptaráðuneytið hafi verið í nær daglegu sambandi við samtök græn- fríðunga allt frá þvi að hvalveiðideilan magnaðist aftur upp nú í sumar. Það þarf því engan að undra þótt afstaða ráðuneytisins í málinu hafi verið ein- strengingsleg. Að lokum þurfti þó viðskiptaráðuneytið að beygja sig fyrir vilja annarra ráðuneyta. Samtök grænfríðunga hafa enn ekki ákveðið til hvaða aðgerða verður grip- ið gegn íslandi og íslenskum fyrirtækj- um í Bandaríkjunum vegna áframhaldandi veiða. Ákvörðunar er þó að vænta á allra næstu dögum. þessari hugmynd - segir Guðbjartur Einarsson „Ég mun tala við lögfræðing minn frá Noregi í gær þar sem hann vinn- Guðbjartur. á eílir en það verður erfitt mál fyrir ur að þróun álbobbinga. „Það er Ijóst að ÍSAL á ekkert í mig að berjast við það stórveldi sem „Ég mun ræða það við lögfræðing þessari hugmynd og það er engum ÍSAL er,“ sagði Guðbjartur Einars- minn í dag um það hvaða atefhu ég blöðum um það að fletta að þetta son, framkvæmdastjóri Véltaks hf„ á að taka í þeseu máli. Ég hef kostað er mín hugmynd sem þeir eru þama í samtali við DV. þessar tilraunir vegna álbobbíng- með,“ sagði Guðbjartur Einarsson. Guðbjartur telur sig hafa fundið anna að öllu leyti og ÍSAL hefur -ój upp álbobbinga þá sem ÍSAL er að kostað mig mikið fé vegna mistaka - sjá einnig bls. 4 hefja framleiðslu á. Guðbjartur kom sem fyrirtækið hefur gert,“ sagði Reykjavík: Rýmri opnunartími verslana Álverið: Engin yfirvinna „Starísmenn héldu fund í gær eftir að ljóst varð að bónusgreiðslumar okkar höfðu verið skertar og menn voru mjög sárir út í forráðamenn fyrir- tækisins. I lok fundarins samþykktu allir starfsmennimir að neita að vinna yfirvinnu," sagði Baldur Baldursson, trúnaðarmaður starfsmanna í Álver- inu í Straumsvík. Baldur sagði að bónusinn hefði verið lækkaður úr 7 % niður í 5,3 % og að hann myndi halda áfram að lækka á næstu 2-3 mánuðum ef forráðamenn fyrirtækisins sæju ekki að sér, jafnvel allt niður í 2 %. „Það ríkti mikill einhugur á fundi starfsmannanna í gær og nánast hver einasti starfemaður tók þátt í fundin- um og þögulli mótmælagöngu sem við forum í eftir fundinn. Við gengum um vinnusvæðið og í gegnum skrifstofu- bygginguna til að láta óánægju okkar í ljós,“ sagði Baldur Baldursson. -ATA Skákþing íslands: Meistaramir friðsamir Borgarstjóm Reykjavíkur sam- þykkti í gærkvöldi með 12 atkvæðum gegnum 3 að frá og með 1. nóvember verði heimilt að hafa verslanir opnar til klukkan tíu á kvöldin alla daga nema sunnudaga. Þeir kaupmenn sem vilja hafa opið á sunnudögum geta leitað til borgarráðs um það. „Ég hefði gjaman kosið að heimildin væri rýmri en ég er sáttur við þessa niðurstöðu," sagði Ámi Sigfússon borgarfulltrúi en hann flutti tillögu um að kaupmenn gætu haft opið til klukkan 23.30 alla daga, sunnudaga líka. Davíð Oddsson borgarstjóri kom með breytingartillögu um að opið yrði til 22.00 og sunnudagar væru undan- skildir. Það var sú tillaga sem var samþykkt. Athygli vekur að fjögur þeirra sem fluttu aðaltillöguna með Áma, þau Katrín Fjeldsted, Jóna Gróa Sigurðar- dóttir, Júlíus Hafstein og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sátu ekki fundinn í gærkvöldi. Ámi sagði í morgun að þau væm erlendis. Þá sat Hilmar Guð- laugsson ekki fundinn. Magnús L. Sveinsson, forseti borgar- stjómar og sjálfetæðismaður, greiddi atkvæði á móti rýmri verslunartíma ásamt þeim Guðrúnu Ágústsdóttur, Alþýðubandalagi, og Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, Kvennalista. -JGH Gjífi Kristjánæan, DV, Akureyii Stórmeistaramir Helgi Ólafeson og Margeir Pétursson vom ekki í neinum bardagaham og gerðu jafhtefli í 16 leikjum í fyrstu umferð í landshðs- flokki á Skákþingi Islands sem hófet á Akureyri í gær. Óvæntustu úrshtin í gær urðu í skák Jóns G. Viðarssonar, ungs skákmanns frá Akureyri, og alþjóðlega meistarans Sævars Bjamasonar, en Jón gerði sér lítið fyrir og sigraði í 59 leikjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.