Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Síða 3
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987. 3 Fréttir Sorpmál hofuðborgarsvæðisins enn óleyst: Samlag um sorpið? Samstarfsnefnd sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um íramtíð sorp- eyðingar leggur til að stofnað verði byggðasamlag í stað hlutafélags og verði þar með sveitarfélagafyrirtæki sem losnaði undan sköttum til n'kis- ins. Nefhdin hefur lokió sér af og sent málið til sveitárstjómanna sem liggja nú undir feldi. Aður hafði nefhdin bent á helstu staði til þess að urða sorpið og komist Jón Pétur Þorsteinsson að koma úr göngum, sjötugasta árið í röð. DV-mynd Finnur Baldursson Gangnamaður i sjotiu ar Fírmur Baldmssan, DV, Mývatnssveit Fyrstu göngur á Austurafrétt vom um helgina. Fyrri daginn var ágætt veður en þegar líða tók á seinni göngu- daginn tók að hvessa og rigna og hrepptu göngumenn þá hið versta veð- ur. Þetta var í sjötugasta skiptið sem Jón Pétur Þorsteinsson, bóndi í Reykjahlíð, fór í göngur en hann verð- ur áttræður í október og er Jón Pétur enn á fullu í búskap þrátt fyrir aldur. Að kvöldi fyrri göngudags fór fram athöfn við Hrauntagl þar sem gangna- kofi Veggjagangna er og sagði Ey- steinn Sigurðsson gangnaforingi nokkur orð vegna þessa áfanga hjá Jóni Pétri og síðan afhentu gangnafé- lagar honum hlómakörfu og rósavíns- flösku. Humaraflinn: Svipaður og í fyrra Júlia Imsland, DV, Hofa; Humarvertíð hjá Homaflarðarbát- um lauk um síðustu mánaðamót. Þá höfðu borist á land 236 tonn og að auki 5,6 tonn af óslitnum humri og 242 kíló af humarklóm. Fimmtán bátar lögðu upp hjá fisk- iðju KASK i sumar. Aflahæst var Æskan SF með 24 tonn og þá Þinga- nes SF með 20,6 tonn. I fyrra var humarafli nánast sá sami og í ár en í fyrra vom 16 bátar um veiðina. Togarinn Þórhallur Daníelsson hef- ur veitt vel að undanfömu og í síðustu löndun var hann með 147,5 tonn eftir átta dága veiðifefð! að þeirri niðurstöðu að heppilegasti staðurinn væri í nánd við Krísuvík. Grindvíkingar hafa mótmælt slíkri ráðstöfun og áður höfðu Kjalnesingar mótmælt urðumarsvæði í sínu um- dæmi. Fá önnur svæði ef nokkur koma til greina nema með allt of miklum tilkostnaði. Þá hafði verkefhisstjómin látið taka út mögulega eyðingu sorpsins og jafn- vel vinnslu á eldsneyti úr því. Það reyndist óhagkvæmt eftir olíuverðs- lækkunina. Það er því sannkallað vandamál hvemig losna á við sorp höfuðborgarsvæðisins og líkt og sveit- arstjómarmenn veign sér við að taka á málinu. Hins vegar em haugamir i Gufunesi að fyllast og svæðið þar dug- ir ekki nema til 1990. Embættismaður, sem DV ræddi við, taldi líklegt að andúð Grindvíkinga og Kjalnesinga á urðun sorpsins í sínu nágrenni byggðist á þekkingarleysi. Ekki væri ætlunin að flytja sorpið laust á nýtt urðunarsvæði eins og nú er gert. Þvi yrði safnað í hús miðsvæð- is á höfuðborgarsvæðinu þar sem það yrði unnið í sérstaka, innbundna pakka og flutt þannig á urðunarstað. Þannig frá gengið gæti sorpið sem best litið út eins og skrautlegur farmur frá Harrods í London. -HERB Samstarfsnefndin vill stofna samlag um sorpið. NÚNA er veríð að selja milljónustu SÓLDÓSINA! TUNMRLAUN/ Á örfáum vikum hefur Sól sent frá sér 1.000.000 (eina milljón!) Sóldósir. Af því tilefni færum við öllum stuðnings- mönnum okkar þessi skilaboð: Bestu þakkir! Það er meira á leiðinni!!! Og ekki nóg með það. Við heitum fundarlaunum handa þeim sem finnur milljónustu Sóldósina!!! 100.000 kr. Peningarnir eru þínir ef þú finnur dósina og skilar henni á Sól- safnið. Svona ferð þú að því: Allar Sól- dósir eru merktar á botninum með tveim talnalínum. Ef í seinni línunni 10...þá ert þú 100.000 kr. ríkari. Aðeins ef þú skilar okkur dósinni! Og mundu: Við vitum ekki hvort milljónasta dósin er með Sól - Cola, Grape eða Límó—með eða án NutraSweet. En við erum vissir um að þú kemst að því! SÓL Þverholti 17-21, Reykjavik lÍ HÖLDUM LANDINU HREINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.