Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987. -+ I I- I--I -V.... liíiliof SÉRVERSLUN MEÐ ELDHÚS- OG BORÐBÚNAÐ NYBYLAVEGI24-SIMI41400 t—h-+H -I.r-1—1-4- LAUGAVEGI 80-SÍMI17290 -L J I I I L 1.................1...................1 J.................................. Notaðu yv endurskinsmerki og komdu heil/l heim. uiar ÍKVÖLO: díbco/r. magalluf damon nienday ^iSEíSS^--- Rikshaw á ef stu hæðinni Aldurstakmark 20 ára Aðgöngumiðaverð kr. 500,- I ▼ >▲ Fréttir Egilsstaðaflugvöllur: Biðleikur í ráðuneytinu „Þetta hefur verið okkar kaleikur og mungát og með ýmsum möguleik- ’rm og streitu, við höfum verið að meta stöðuna og nú er að hrökkva eða stökiíva," sagði Birgir Guðjónsson, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, um ráðstöfun á undirbyggingu nýs Egilsstaðaflugvallar. Ákvörðun bíður vegna veikinda ráðherra og Ijarveru flugmálastjóra erlendis. Eins og DV hefur greint frá áður ákvað Matthías Bjamason rétt áður en hann lét af ráðherradómi að ekki færi fram útboð á þessu 60 milljóna króna verkefni, heldur skyldi leitað samninga við til þess stofnað Félag tækjaeigenda á Héraði. Það fékk eitt að bjóða í verkið og hafa viðræður átt sér stað í framhaldi af því. „Málið er nú til ákvörðunar hér og bíður fram yfir helgi, en það sem fyrir liggur er að taka afstöðu til samnings við heimamenn eða hvort efnt verði til opins útboðs," sagði Hreinn Lofts- son, aðstoðarmaður samgönguráð- herra. -HERB DV-mynd Sigurjón Gunnarsson Parhús fyrir aldraða, fullgert að utan sem innan og annað á lokastigi. Eignaríbúðir fyrir aldraða í Borgamesi: Fyrstu íbúðimar afhentar Sguijón Gunnaissan, DV, Borgamest Tvær eignaríbúðir aldraðra von’ afhentar í Borgamesi nýlega. Borgar- neshreppur átti frumkvæðið að byggingu þessara íbúða en þær eru í parhúsi. Eftir er að ljúka við sams konar hús við hliðina og verða íbúð- imar tvær í því húsi leiguíbúðir. Það var hafist handa við jarðvegs- framkvæmdir síðastliðið sumar og nú, rúmu ári síðar, vom íbúðimar tvær tilbúnar til afhendingar. Það var Loftorka hf. í Borgamesi sem sá um byggingarframkvæmdir og hafa heimamenn unnið allt handverk og em hús þessi hin veglegustu, um 70 fermetrar hver íbúð og þannig geng- ið frá innandyra að fólk í hjólastólum á þar greiðan aðgang. Húsin em við Anahlíð og er það ný gata er liggur meðframjlvalarheimili aldraðra í Borgamesi. íbúar húsanna njóta allrar þeirrar þjónustu sem DAB veitir sínu fólki og í húsunum verður bjöllukerfi er auðveldar íbúunum að hafa samband við starfsfólk DAB. Við afhendingu íbúðanna fluttu tölu þeir Gísli Karlsson sveitarstjóri, Konr- áð Andrésson, Loftorku, og Eyjólfúr Torfi Geirsson oddviti. Eyjólfúr Torfi afhenti síðan nýjum eigendum lykla að íbúðunum en það em hjónin Elín Guðmundsdóttir og Finnur Einarsson og Hermann Búa- son. Áætlað er að leiguíbúðimar verði afhentar að tveimur mánuðum liðnum. Sækir um einkaleyfi á álbobbingum Islenska álfélagið kynnir nýja ál- bobbinga á sjávarútvegssýningunni í Laugardal og er fyrirtækið að fara að hefja fjöldaframleiðslu á þessum bobbingum. Álbobbingamir em upp- finning Pálma Stefánssonar, verk- fræðings hjá ÍSAL, en Pálmi og nokkrir aðrir starísmenn tækniþró- unardeildar fyrirtækisins hafa unnið að þróun nokkurra gerða álbobbinga frá síðari hluta ársins 1986, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Á blaðamannafúndi, sem haldinn var í gær, þar sem þessi nýjung var kynnt, kom fram að ISAL hefúr sótt um einkaleyfi á þessari uppfinningu en í raun er um þrjár tegundir bobb- inga að ræða; miðjubobbingar með stálnafi, hálfkúlulaga vængbobbing- ar og millibobbingar. Meðal kosta álbobbinganna er nefnt að þeir séu léttir á dekki og skemmi það lítið en aftur á móti séu bobbingamir þungir í sjó en þeir em massívir. Þá em álbobbingamir end- urvinnanlegir og mun ÍSAL kaupa bobbinga, sem orðnir em of slitnir til notkunar, á hráefnisverði. Vegna þyngdarinnar í sjó em álbobbingar þessir sagðir haldast nær botni en safha jafnframt minna grjóti í sig en hinir hefðbundnu bobbingar. Enn- fremur em þeir, vegna áðumefndra eiginleika, taldir veiðnari en gömlu bobbingamir. Á fundinum kom það ennfremur fram að þeir yrðu sam- keppnishæfir við bobbinga af eldri • gerðum hvað verð áhrærir. Búist er við að fjöldaframleiðsla á álbobbingum ÍSAL hefiist næsta vor. ...... ^ -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.