Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 7
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987. 7 Viðtalið Sigurður Sverrir Pálsson, kvikmyndagerðarmaður og formaður undirbún- ingsnefndar Kvikmyndahátíðar. Kvikmyndahátíð: SAAB SÝNUM OG SELJUM í DAG OG NÆSTU Hrikalega mikið að gera - segir Sigurður Sverrir Pálsson DAGA SÍÐUSTU BÍLANA „Það hefur verið alveg hrikalega mikið að gera í sambandi við Kvik- mjmdahátíðina að undanfömu en um leið hefur þetta verið skemmtilegt enda em kvikmyndir bæði atvinna mín og áhugamál," sagði Sigurður Sverrir Pálsson, formaður undirbún- ingsnefhdar Kvikmyndahátíðar, en hátíðin verður haldin í Laugarásbíói 19.-27. september. „Á hátíðinni sýnum við 30 kvik- myndir, allt erlendar myndir, en ein þeirra er eftir íslenskan leikstjóra. Það er sænska kvikmyndin „Frosni hlé- barðinn" eftir Láms Ými Óskarsson. Sérstakir gestir hátíðarinnar verða sex erlendir leikstjórar og þar skal fremstan telja Roman Polanski. Við sýnum tvær myndir eftir hann á hátíð- inni, „Tess“ og „Hnífur í vatnið". Aðrir gestir verða ítalski leikstjórinn Ettore Scola, Pólverjinn Krzyztof Zanussi, finnsku bræðumir Aki og Mika Ka- aurismaki og franski rithöfundurinn og leikstjórinn Alain Robbe-Grillet, sem er staddur hér á bókmenntahátíð- inni.“ Kvikmyndahátíð var fyrst haldin í Reykjavík árið 1978 og síðan 1980. Svo var kvikmyndahátíð haldin á hveiju ári til 1985 þegar ákveðið var að halda hana annað hvert ár á móti Listahá- tíð. Sigurður Sverrir er sem fyrr sagði formaður undirbúningsnefiidar Kvik- myndahátíðar sem heyrir undir framkvæmdastjóm Listahátíðar þar sem Jón Þórarinsson er formaður. „Á Kvikmyndahátíð verður að þessu sinni bryddað upp á ýmsum nýjungum. Við verðum til að mynda með forsölu á sýningar í upplýsingatuminum á Lækjartorgi og við höfum ákveðið að hafa miðaverðið lægra á sýningum klukkan 15 og 19. Þá efhdi Listahátíð til kvikmynda- handritasamkeppni sem segja má að sé framlag Kvikmyndahátíðarinnar til íslenskrar kvikmyndagerðar. Á laug- ardaginn verður svo tilkynnt valið á þremur bestu kvikmyndahandritunum sem bárust í samkeppnina." Sigurður Sverrir Pálsson rekur fyrir- tækið Lifandi myndir sem hefur sérhæft sig í gerð heimildakvikmynda og em að hans sögn mörg jám í eldin- um hjá fyrirtækinu. Þá vann hann í vor að gerð sex þátta náttúrufræði- myndaflokks ásamt þeim Jóni Hermannssyni og Guðmundi Sig- valdasyni. Þessir þættir em teknir upp víðs vegar um heiminn og em gerðir fyrir íslenska sjónvarpið og er gert ráð fyrir að þeir verði seldir út um allar jarðir. „Ég geri ráð fyrir að við höldum áfram vinnslu þessara þátta í haust og í vetur svo ég geri ekki ráð fyrir að ég þurfi að láta mér leiðast eftir að Kvikmyndahátíðinni lýkur.“ , Sigurður Sverrir er 42 ára gamall, kvæntur Unni Kristjánsdóttur og eiga þau þrjú böm, tvær stúlkur, 22 ára og 16 ára, og 14 ára gamlan son. „Ég hef oft verið að velta því fyrir mér hveiju ég ætti að svara ef ég yrði spurður um það hver áhugamál mín eða hobbí væm. Ég get eiginlega engu svarað. Kvikmyndaheimurinn tekur upp svo mikið af tíma mínum, bæði í vinnu og frístundum. Og ef ég á ein- hvem lausan tíma vil ég helst vera heima hjá fjölskyldunni og ég hef gam- an af því að dútla eitthvað með höndunum, smíða eða lagfæra í íbúð- inni,“ sagði Sigurður Sverrir Pálsson. -ATA AF ’87 GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR Globusa Lágmúli 5, Reykjavík Sími 91-681555 INNRITUN OG UPPLYSINGAR I SIMA 656522 FRA KL. 13-19 DAGLEGA. AFHENDING SKÍRTEINA KR-HEIMILID V/FROSTASKJÓL LAUGARDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 13-18 í SKEIFUNN117. GERÐUBERG, BREIÐHOLTI LAUGARDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 13-18 í SKEIFUNN117. SKEIFAN 17, (FORD-HÚSIÐ) LAUGARDAGINN 19. SEPTEMBER KL. 13-18. ÍÞRÓTTAHÚS HAFNFIRÐINGA V/STRANDGÓTU í DAG, FÖSTUDAGINN 18. SEPTEMBER, KL. 16-19. í ÍÞRÓHAHÚSINU V/STRANDGÖTU. KEFLAVIK í DAG, FÖSTUDAGINN18. SEPTEMBER, KL. 15-20 AÐ HAFNARGÖTU 31 (SAMA HÚSIOG GUNNARSBAKARÍ). :i Vt- -SSrMtJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.