Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987. Utlönd Breytt fyrir hefðbundin vopn Yfirmaður flughers Bandaríkj- anna staðfesti í gær að B-52G sprengjuflugvélum yrði breytt, þannig að þær gætu borið hefö- bundin vopn, einkiun flugskeyti, til þesa að verða til vamar í kjamorku- vopnalausri Evrópu. Sagði heiforinginn að með hlið- sjón af því að útrýming meðaldrægra kjamorkuvopna virtist nú framund- an í Evrópu væri þegar hafin endurþjálfun flugmanjia á vélum þessum. Þjálfimin miðaði að því að þeir gætu farið inn yfir lönd Austur-Evrópu að næturlagi, í innan við sjötíu metra hæð yfir jörðu, og gert þar árásir raeð flugskeytum sem ekki verða búin kjamavopnum. TVeggja alda afmæli Meira en hálf milljón manna kom saman í borginni Philadelphia í Bandaríkjunum í gær til þess að minnast tvö hundruð ára afinælis stjómarskríir Bandaríkjanna en lok- ið var við samningu hennar sumarið 1787. Ronald Reagan, forseti Bandaríkj- anna, kom fram við hátíðarhöldin og sagði við það tækifæri aö stjóm- arskráin heföi orðið til á erfiðum tínium;þégár sambúð ríkjanna, sem síðar urðu íýrstu fylki Bandaríkj- anna, gekk fruniur stirðlega fyrir sig. Meðal hátíðargesta í gær var tölu- vert af fólki sem notaði tækifærið íil að mótmæla hinum ýmsu málum, allt fm fósturevðingum ti 1 stuðnings ■ Bandaríkjastjórnar við skæruliða kontrahreyfingarinnar í Niearagua. Afmæli fjöldamorða Palestínumenn í ísrael giýttu íaraelska hermenn, kveiktu í dekkjum og byggðu hindranir á götum í bæjum landsins í gær til þess að minnast þesa að þá voru fimm ár liðin frá fjöldamorðunum í Sabra og Shatila flóttamanna- búðunum í Beirút, höfuðborg Líbanon. Fjöldamorðin í flóttamannabúðunum 17. september 1982 vöktu óhug um allan heim. Hersveitum kristinna manna í Líbanon var þá hleypt inn í búð- irnar í skj óli nætur og myrtu þær, að því er talið er, hundruð Palestínumanna. Mótmælin í gær fóru frekar friðsamlega fram og leituðu fréttaBkýrendur ákaft orsaka þess að ekki kom til frekari átaka. Talið er hugsanlegt að til einhverra tíðinda kimni að draga á næstunni. Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á tali við Reagan Bandarikjaforseta í Hvíta húsinu i gær. Maraþonviðræður utanríkisráðherranna enduðu með því að bráðabirgðasamkomulag um eyðingu meðaldrægra eldflauga náðist. Símamynd Reuter Bráðabirgðasam- komulag eftir maraþonviðræður Ólafiir Amaisom, DV, New York: Reagan Bandaríkjaforseti mun í dag gefa út tilkynningu um að tekist hafi að mestu samkomulag milli Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna um eyð- ingu allra meðaldrægra eldtlauga. Endanlegt form á samkomulaginu mun vera hægt að gera á fjórum til átta vikum. í gærkvöldi áttu Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Sé- vardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hálftíma fund með for- setanum í Hvíta húsinu. Að loknum þeim fundi töldu menn ljóst að sögu- legt samkomulag heföi náðst. Er jafhvel talið að forsetinn tilkynni í dag um leiðtogafund síðari hluta nóvemb- ermánaðar í Washington. Ekki eru allir jathhrifnir af eyðingu meðaldrægra eldflauga. Yfirmenn bandaríska heraflans telja að með því sé Sovétmönnum gefið of mikið oln- bogarými í Evrópu og því verði að stórauka hefðbundinn herafla Banda- ríkjamanna í álfunni. Er talað um að fjölga þurfi mjög B52 sprengjuvélum. Þetta mun vera vegna þess að Pers- hing eldflaugamar meðaldrægu eru svo nákvæmar að þær eru einu eld- flaugar Nató sem geta hitt af mikilli nákvæmni stjómstöðvar sovéska her- aflans í Sovétríkunum. Páfi heimsækir indíána norðursins Gísli Guðmundsson, DV, Oniario: Jóhannes Páll páfi II heimsækir dene-indíana í Kanada á sunnudaginn. Búist er við að sex þúsund innfæddir mæti til að hlýða á messu hans sem haldin verður á fomum verslunarstað indíána í norðvesturhluta Kanada. Þó heimsókn páfa sé trúarlegs eðlis þá eiga hinir rómversk-kaþólsku dene-indíánar von á því að páfi gefi í ræðu sinni út stuðningsyfírlýsingu við baráttu indíána fyrir rétti þeirra til landsins. Dene-indíánar vilja með heimsókn páfa sýna heiminum að inn- fæddir séu af öðrum uppmna en aðrir íbúar Kanada. Höfnuðu samvinnu Leiðtogar aðskilnaðarsinna Kan- aka á Nýju Kaledóníu höfhuðu í gær hvatningu Jacques Chirac, forsætis- ráðherra Frakklands, um að stofhað yrði til nánari samvinnu milli þeirra og franskra innflytjenda í landinu um stjóm þess. Chirac flaug sérstaklega til Nýju Kaledóníu í gær til þessað leita sátta í deilum kanaka og franskra innflytj- enda. Mikil óánægja ríkir nú meðal kanalca sem tolja sig hafa verið Iicitto þvingunum í tengslum við þjóðaratkvæðagi-eiðslu sem fram fór í landinu um síðustu helgi. I þjóðaratkvæðagreiðslu þeasari var kosið um hvort landið skyldi fara fram á sjálfstæði eða vera áfram frönsk nýlenda. Þeir sem vildu vera áfram nýlenda unnu enda hundsuðu aðskilnaðarsinnar kanaka atkvæðagreiðsluna að mestu á þeim forsendum að hún væri sett upp á þann hátt að þeirra sjón- armið gætu ekki orðið ofan á. Náðu flugræningja Bandaríkjamenn skýrðu fró því í gær að löggæslumenn þeirra heföu handtekið flugræningja þann sem haföi yfirstjóm á ráninu á jór- danskri flugvél í Beirút og sprengdi hana síðar í loft upp. Maðurinn, sem heitir Fawaz Younis, var handtek- inn af alríkislögreglumönnum um borð í báti á Miðjarðarhafi og verð- ur dreginn fyrir rétt í Bandaríkjun- um. íbúi í Basra í írak við rústir heimilis síns en íranir hafa gert loftárásir þar síð- ustu daga. Alls hafa hundrað íbúar Basra fallið í loftárásum á þessu ári. Simamynd Reuter Hart barist á landi Háðir vom í gær bardagar á landi milli írana og Iraka, þeir hörðustu í tvo mónuði. íranir tilkynntu um árásir á efiia- hagsleg og hemaðarleg skotmörk í frak sem gerðar hafi verið í hefndar- skyni fyrir loftárásir íraka. Búist er við að Iranir ráðist á skip á Persaflóa á hverri stundu. írakar sögðust hafa hrint órás Irana eftir sextán tíma bardaga þar sem notast var við skriðdreka, stórskotalið og vopnaðar þyrlur. íranir greindu frá að þeir hafi komist í gegnum raðir íra- skra hermanna við borgina Mandali. írakar tilkynntu um loftárásir á tvær olíubirgðastöðvar og tvær verksmiðj- ur í fran. Einnig kváðust þeir hafa ráðist á skip á norðurhluta Persaflóa. Einungis Iranar hafa tilkynnt um mannfall, segja þeir verkamenn hafa fallið í loftárásum íraka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.