Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987. Námskeið Námskeið eru haldin í stjörnukortagerð (Esoteric Astrology), þróunarheim- speki og sálarheimspeki. Stjörnukortarannsóknir, sími 79763. DAGHEIMILIÐ EFRIHLÍÐ V/STIGAHLÍÐ óskar að ráða fóstrur til starfa nú þegar, einnig vantar starfsmann til afleysinga í 50% starf. Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 83560. BILEIGENDUR BODDÍHLUTIR! Ódýr trefjaplastbretti, brettakantar o.fl. á flestar gerðir bíla, ásetning fæst á staðn- um. svo sem á Bronco, Galant, Lancer, Daihatsu, Subaru, Willys, Volvo, Polonez, Concord, Escort, Range Rover, Isuzu Trooper, Mazda, Toyota, Scania, Dodge og m.fl. Einnig brettakantar og skyggni á Blazer, Dodge Van, Patrol, Bronco, Lada Sport, Rocky, Pajero, Hi-Lux, Ch. Van og Toyota Landcruiser og margt fleira. BÍLPLAST Tpl (^JS^Tökum að okkur trefjaplastvinnu. Vagnhöföa 19, sími 688233. l/JsB-j j Weliiö 'slenskt. Póstsendum. | Veljið islenskt. Opið laugard. frá 9-12 DODGE RAMCHARGER árg. 1983, 8 cyl., 318 cub., sjálfsk., Cruise control, vökvastýri, rafm. í rúðum, álfelgur, ný dekk o.fl. o.fl. ANKINN SF Hamarshöfða, sími 67-32-32. æ BÍLASALAN BUK SkoifunniS Simi68-64-77. HONDA PRELUDE Honda Prelude 2.0i -16 ventla árg. 1986, ekinn 20.000 km, svartur, með öllum hugsanlegum útbúnaði. Verð kr. 880.000,- Honda Prelude EX árg. 1987, ekinn 10.000 km., hvítur, 5 gíra, topplúga o.fl. Útlönd Tök Aquino á sljóm Filippseyja að minnka? Jón Omuir Halldórsson, DV, Landon; Erfiðleikar Corazon Aquino við að koma saman nýrri ríkisstjóm á Filippseyjum eru aðeins ein vís- bending af mörgum um ört vaxandi erfíðleika forsetans við að halda í valdataumana á Filippseyjum. Þótt tök forsetans á þjóðinni virð- ist enn sterk, einu og hálfu ári eftir að milljónir manna tóku þátt í hinni sérstæðu byltingu gegn stjóm Marc- osar forseta, þá hafa atburðir síðustu vikna veikt taumhald Aquinos for- seta á stjómmálakerfi Filippseyja svo mjög að allra veðra kann að vera þar von. Síðustu daga hafa borist fréttir af vaxandi bardögum við skæruliða kommúnista þar sem í það minnsta sextíu hermenn stjómarinnar hafa fallið en um leið gætir vaxandi ólgu í hemum. Á sama tíma hefur óá- nægja með stjóm forsetans vaxið meðal fátæklinga í Manila og meðal smábænda á landsbyggðinni sem krefjast umbóta í jarðnæðismálum. Hrein örbirgð er hlutskipti mikils meirihluta íbúa landsins og milljónir þjást af næringarskorti. Mikill vafi á hollustu Þó að byltingartilraun Gregorio Honasans fyrir tveimur vikum hafi mistekist og þjóðin hafi yfirleitt haft litla samúð með þessari uppreisn, sem kostaði meir en sextíu manns- líf, þá tókst uppreisnarmönnum að vekja athygli á þeirri ólgu sem ríkir innan hersins á Filippseyjum. Þó að þátttaka í uppreisninni hafi ein- skorðast við fáeinar deildir innan hersins og margir þeirra tæplega fjögur þúsund hermanna, sem tóku þátt í uppreisninni, hafi einfaldlega verið að hlýða kalli yfirboðara sinna þá verður nú að telja mikinn vafa á hollustu hersins við stjómina. Um leið hafa menn í viðskiptalífi Filipps- eyja í auknum mæli krafist breyt- inga á stjóm landsins. Það vom þessi tvö öfl, herinn og sá hluti viðskiptalífsins sem ekki var í höndum klíku Marcosar forseta, sem ásamt kaþólsku kirkjunni hrundu Marcosi frá völdum og settu Aquino í embætti forseta. Þó að tug- ir milljóna fátæklinga héldu hollustu sinni við forsetann myndi það litlu máli skipta ef hún glatar hollustu hersins og fjármálamanna í Manilla. Óttast stuðning við skæruliða Eitt af því sem kom á óvart eftir byltingartilraun Honasans var hversu lítið kaþólska kirkjan gerði til þess að aðstoða forsetann. Margir á Filippseyjum hafa því bent á það síðustu dagana að stoðimar undir stjóm Aquinos hafi gliðnað svo mjög að henni sé nauðugur sá kostur að grípa til aðgerða sem þóknanlegar þykja hemum, fjármálarnönnum og íhaldssamari öflum innan kirkjunn- ar. Það sem þessi öfl eiga helst sameiginlegt er ótti við vaxandi stuðning almennings á landsbyggð- inni við skæruhemað kommúnista. En kröfur hersins og fjármálamanna um aukna hörku í baráttunni við skæmliða ásamt þeim kröfum fjár- málamanna um stefnu í efnahags- málum, sem leitt geta til enn frekari erfiðleika meirihluta íbúanna á að tryggja sér næstu máltíð, munu hins vegar án efa leiða til aukins stuðn- ings við skæmliða. Aquino hefur þegar gengið gegn helstu kröfum verkalýðshreyfingar- innar í Manila og gegn kröfum smábænda úti á landi þannig að búast má við minnkandi stuðningi þessara afla við forsetann ef hún fellst nú á kröfur hægri aflanna um að hreinsa í burtu síðustu vinstri mennina úr ríkisstjóm sinni. Forset- inn virðist hins vegar varla eiga annars úrkosti því möguleikar henn- ar á að lifa af byltingartilraun hægri manna í hemum hafa minnkað. Byltingarforingi á faraldsfæti Það er til marks um hversu lítil tök stjómin hefur víða í landinu að Honasan liðsforingi ferðast þessa dagana eins og honum sýnist með þrjú hundmð manna herflokk í næsta nágrenni við Manila þar sem hann hélt blaðamannafúnd nú um helgina. Þar rétt hjá hafa skæruliðar kommúnista sömuleiðis athafnað sig síðustu daga. Um leið hafa herflokk- ar hliðhollir stjóminni tekið sér stöðu rétt innan borgarmarkanna þar sem vegatálmanir em nú tíðar. Stuðningsmennstjómarinnarhafa ákveðið að boða til fjöldafúndar í Manila í næstu viku til að sýna holl- ustu almennings við forsetann. Almenningur verður hins vegar lík- lega ekki frekar spurður nú en fyrri daginn þegar stjómmál og efnahags- mál Filippseyja verða ráðin. Þeir sem þessu ráða em að stokka upp spil sín þessa dagana. Þó að uppreisnin á Filippseyjum í ágústlok hafi mistekist tókst uppreisnarmönnum að vekja athyglí á þeirri ólgu sem ríkir innan hersins á Filippseyjum. Fjármálamenn í Manila hafa einnig í auknum mæli krafist breytinga á Stjóm landsins. Simamynd Rcuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.