Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987.
íþróttir
Hvar verð-
ur NM-mótið
ígolfi
haldið?
Gyffi Krialjáiissan, DV, Akmeyri:
Næsta Norðurlandamót í golfi
verður haldið a íslandi næsta sum-
ar. Til stóð að mótið yrði hér á
landi 1989 en ákveðið hefur verið
að flýta því um eitt ár. Golfsam-
band íslands tekur mótið að sér
en ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvar á landinu mótið fer fram.
Þrír staðir hafa sótt um að halda
mótið en það eru Reykjavík, Akur-
eyri og Suðumes. Sækja allir
þessir staðir fast að halda þetta
Norðurlandamót. Björgvin Þor-
steinsson, Hannes Þorsteinsson og
Gunnar Þórðarson voru fengnir til
aö skoða velli umsækjenda. Þeir
hafa lokið yfirferð sinni á vellina
og skilað áliti.
Golfsamband íslands hefur hald-
ið tvo fundi síðan þeir félagar
skiluðu umsögn sinni. Golfsam-
bandið hefur hins vegar enga
ákvörðum tekið í málinu.
„Ákvörðun um hvar Norður-
landamótið verður haldið verður
tekin á fundi Golfsambands Islands
á miðvikudag í næstu viku,“ sagði
Konráð Bjamason, forseti Golf-
sambands fslands, í samtali við
DV. -JKS
4-liða mót
á Akureyri
Gylfi Knatjártaon, DV, Akureyri:
Um helgina verður haldið á Ak-
ureyri 4-liða mót í handknattleik.
Akureyraliðin Þór og KA auk KR
og HK taka þátt í mótinu sem
hefst í kvöld kl. 20.00 í íþróttahöll-
inni. Mótið hefst með leik Þór og
KR og strax á eftir leikur KA gegn
HK. Mótinu lýkur á laugardag.
• Á sunnudag taka þessi lið
þátt í öðm móti. Dregið verður um
hvaða lið keppa saman og síðan
mætast sigurvegarar í úrslitaleik.
Tapliðin leika um 3.-4. sætið.
-JKS
Léku átta
leiki á
sjö dögum
GyHi Kristjánæcm, DV, Akureyii
„Þetta var fyrst og fremst æf-
ingaferð. Við lékum 7 leiki á 8
dögum og samhliða vom haldnar
11 æfingar. Þessi ferð kemur til
með að skila sér,“ sagði Erlendur
Hermannsson, þjálfari Þórs í
handknattleik, í samtali við DV.
Eins og áður sagði lék liðið 7
leiki og sigraði í þremur. Meðal
annars var leikið gegn Dankersen
og tapaðist sá leikur með 10 mörk-
um. Einnig var leikið gegn sterku
pólsku hði, Korona Kilce, sem fór
með sigur eflir jafiian fyrri hálf-
leik.
- Hvaða möguleika telur þú á
að Þór haldi sér í 1. deild?
„Það er erfitt að segja til um
það. Rétt hugarfar spilar stórt
hlutverk, einnig að leikmenn hafi
trú á sjálfúm sér. Ef leikmenn
leggja jafhhart að sér og í keppnis-
ferðinni þá er ég þess fullviss að
við komum til með að spjara okkur
vel í 1. deildinni í vetur,“ sagði
Erlendur Hermannsson að lokura.
-JKS
Fjöguira þjóða keppni á Akureyri?
Portúgal, Pól-
landi og ísra-
el er boðið
• Það var ekki margt um manninn þegar Real Madrid og Napoli léku á hinum fræga
Madrid. Áhorfendabekkirnir voru tómir á þessum glæsilega velli sem tekur yfir 100 þús
Mögulegt er að fjögurra þjóða mót í
handknattleik verði haldið á Akureyri
í lok nóvember, nánar tiltekið frá
20.-22. þessa mánaðar.
„Það er verið að vinna að þessum
málum en ekkert verður í raun ljóst
hvað þetta mót varðar fyrr en eftir
helgi,“ sagði Guðni Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, í spjalli við DV.
Gert er ráð fyrir að auk Islands
mæti ísrael, Pólland og Portúgal til
leiks.
Ef mótið nær liam að ganga mun
það rísa hæst með viðureign íslands
og Póllands. Þar fara tvær af sterk-
ustu þjóðum heims í handknattleik.
ísraelsmenn eru í hópi b-þjóða. Hafa
þeir gert okkur íslendingum marga
skráveifuna á síðustu árum þrátt fyrir
legu sína á landabréfi handknattleiks-
ins. Það skyldi því enginn ætla þá
auðfengna veiði.
Portúgalir heyra hins vegar til hópi
c-þjóða en lið þeirra hefúr vaxið nokk-
uð að styrk á síðustu árum.
-JÖG/GK
OL-liðið til Frakklands:
Hörður stjómar
í Bordeaux
Hörður Helgason, þjálfari KA á
Akureyri, mun stjóma ólympíu-
landsliði Islands sem leikur vin-
áttuleik gegn franska 1. deildar
liðinu Bordeaux í Frakklandi á
miðvikudaginn.
Búið er að velja landsliðshópinn
sem heldur til Frakklands. Hann
er skipaður þessum leikmönnum:
• Markverðir: Birkir Kristins-
son, Akranesi, og Guðmundur
Hreiðarsson, Val.
• Aðrir leikmenn: Erlingur
Kristjánsson, KA, Halldór Áskels-
son, Þór, Heimir Guðmundsson,
Akranesi, Kristján Jónsson, Fram,
Guðmundur Steinsson, Fram,
Ormarr Örlygsson, Fram, Siguijón
Kristjánsson, Val, Siguróli Krist-
jánsson, Þór, Sveinbjöm Hákon-
arsson, Akranesi, Þorsteinn
Guðjónsson, KR, Þorsteinn Hall-
dórsson, KR, Þorsteinn Þorsteins-
son, Fram, Þorvaldur Örlygsson,
KA, og Valur Valsson, Val.
• Njáll Eiðsson, Val, gaf ekki
kost á sér í landsliðshópinn. Ef
Guðmundur Steinsson fer með A-
landsliðinu til Noregs tekur Jón
Grétar Jónsson, Val, sæti hans í
OL-liðinu.
-sos
Maradona óhre<
að vera kalh
mafíuskúrk
- segir að dómarinn hafi skemmt leik Napoli oj
Goðið Maradona stjómaði kór Nap-
olidrengja eftir leik þeirra við Real
Madrid nú í vikunni. Þótti honum
dómarinn afspymuslakur og fram-
ganga Spánverjanna með grófasta
móti.
„Dómarinn missti leikinn einfald-
lega úr höndum sér,“ sagði hann
foxillur í spjalli við blaðamenn.
„Sjálfsagt ætla margir að ég vilji
afsaka ófarir okkar en því fer fjarri.
Það er mín trú að dómarinn hafi ráð-
ið úrslitum."
Þá kvaðst Maradona hafa heyrt Leo
Beenhakker, þjálfara Real, segja Na-
poliliðið safti mafíuskúrka. Var
kempan afar ósátt við þá fullyrðingu
móthetjans.
Fyrri leikur liðanna tveggja er nú
að baki og orð Maradona fá ekki
breytt sögunni. Framundan er sá
seinni og verður hann spilaður fyrir
opnum tjöldum á Ítalíu. Þótt róðurinn
sé óneitardega þungur hjá Napolipilt-
um em þeir til alls vísir. Lið þeirra
er að margra dómi eitt hið sterkasta
í veröldinni.
-JÖG
Maradona-bræður berjast á Ítalíu
Bræðumir Hugo og Diego Maradona munu glíma í fyrsta sinn innbyrðis í
ítölsku deildinni um helgina. Diego Armando, knattspymugoðsögnin, leikur
með landsmeisturunum í Napoli en Hugo bróðir hans er einn lykilmanna í
Ascoli-liðinu.
Napoli beið lægri hlut í Evrópukeppni fyrir Real Madrid.
Það er því ljóst að leikmenn Napoli munu mæta grimmari til leiks á sunnu-
dag en oft áður. Þá þyrstir í sigur í kjölfar ófaranna og gildir einu þótt bræður
muni berjast. -JÖG
• Die<
Nogue
... '
• Fyrirliði Fylkis hampaði bikarnum fyrir sigurinn í 3. deildar keppninni.
DV-mynd Brynjar Gauti
3. D
Fylkii
meii
- sigraði Tindastól
Fylkir tryggði sér í gærkvöldi Islands-
meistaratitilinn í 3. deild eftir sigur
gegn Tindastóli á Valbjamarvelli.
Úrslitaleikur liðanna var sannkölluð
maraþonviðureign því úrslit fengust
ekki í fyrsta leik liðanna og því var
leikið aftur í gærkvöldi. Jafút var eft-
ir venjulegan leiktíma og framleng-
ingu , 3-3, en í vítaspymukeppninni
náðu Fylkismenn að sigra. Þeir skor-
uðu úr sex vítaspymum en Sauðkræk-
ingar úr fimm.
„Ég er ekki ánægður með leikinn
sjálfan og leikmenn mínir gerðu mikið
af mistökum. En árangurinn í sumar
hefur verið mjög góður og farið fram
úr öllum vonum því að 3. deildin var
sterk og hver leikur nánast úrslitaleik-
ur. Ég hef trú á að Fylkir eigi eftir
að standa sig vel í 2. deildinni næsta
sumar þó að þar verði auðvitað mun
erfiðari leikir. Mannskapurinn er góð-
ur en við megum samt ekki hugsa of
hátt og takmarkið verður fyrst og
fremst að halda sætinu í deildinni,"
sagði Marteinn Geirsson, þjálfari