Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Side 36
62 • 25 • 25
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
-hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Oreifing: Sími 27022
Gullkortastríðið:
Euro-menn
sjái að sér
„Það hafa engar ákvarðanir verið
teknar um framhald þessa máls en ég
geri fastlega ráð fyrir að Kreditkort
hf. hætti að nota vörumerkið gull-
kort,“ sagði Leifur Steinn Elísson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Visa Is-
lands.
Síðastliðinn miðvikudag sendi Visa
ísland Kreditkortum hf. hréf þar sem
þess var krafist að Kreditkort létu
þegar í stað af notkun vöruheitisins
gullkort. Leifur Steinn var spurður
hvort Visa ísland hefði hótað Kredit-
kortum hf. kæru eða lögbanni i þessu
bréfi. Hann kvaðst ekki vilja svara því.
„Við teljum okkur eiga vörumerkið
gullkort þar sem við létum lögvemda
^að og skrásetja sem sérstakt vöru-
heiti í ágúst síðastliðnum. Ég geri því
fastlega ráð fyrir að þeir sjái að sér
og hætti að nota vörumerkið gull-
kort,“ sagði Leifur Steinn að lokum.
-jme
Mjólkurfræðingar:
Hafa setið
,á fundi síðan
á miðvikudag
Mjólkurfræðingar og viðsemjendur
þeirra hafa setið á samningafundi hjá
ríkissáttasemjara síðan á miðvikudag.
Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar rík-
issáttasemjara þokaðist nokkuð áleið-
is í nótt. Hann sagði þó ekki farið að
sjá fyrir endann á málinu en ef svo
héldi fram sem horfði ættu samningar
að geta tekist í dag eða nótt. Þetta er
þó sagt með hinum venjulega fyrirvara
um að snurða hlaupi ekki á þráðinn.
Starfsfólk í húsgagnaiðnaði sat á
fundi hjá sáttasemjara fram að mið-
nætti í gær og hefur annar sáttafundur
^ .J/kjaradeilu þess verið boðaður klukk-
an 17.00 í dag. Guðlaugur Þorvaldsson
sagði að þar væm málin líka farin að'
þokast áfram, alla vega væm deiluað-
ilar famir að talast við aftur.
-S.dór
llar
gerðir
sendibíla
25050
SSJlDIBiLHSTÖÐM
Borgartúni 21
LOKI
Skyldi mjólkin ekki
vera farin að súrna?
Frjálst,óháð dagblað
FOSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987.
fúndist í
Þegar ríkisstjórnin kom saman í
morgunsárið virtust sættir um
meginatriði ijárlaga ríkisins fyrir
næsta ár vera í sjónmáli. Búið er
að skera af niðurgreiðslum á bú-
vörur og fé til húsnæðislánakerfis-
ins, líklega alls 500-600 milljónir
af báðum liðum. Ljóst þótti að
álagning tekjuskatts mundi skila
500-600 milljónum meirn 1988 en
áður var reiknað með án hækkunar
skattprósentu. Loks leit út fyrir að
jöfhun söluskatts og nokkur hækk-
un tekjuskatts og iaunaskatts á
atvinnurekstur myndi brúa að
mestu bilið upp í 1.800 miUjóna
króna markið.
Markmiðið er að loka fjárlögun-
um þannig að áætlaður halli verði
ekki yfir 1.300 milljónum króna,
5 % af landsframleiðslu. Á þriðj-
dagsmorgun var allt gatið 3.700
milljónir en með breyttum verð-
lagsforsendum, lækkun launaliða,
var það minnkað í 3.100 milljónir.
Glíman í dag og á morgun stendur
því um 1.800 milljónir króna.
Samkvæmt heimildum DV hefúr
áætlun um niðurgreiðslur á búvör-
ur reynst 200 milljónum króna of
há og lækkar í 1.360 milljónir. Jafh-
framt er nú talið víst að álagning
tekjuskatts á einstaklinga eftir
nýjum lögum skili miklu meiru en
áætlað var og óhætt sé að hækka
þá áætlun um jafnvel 600 milljónir
króna eða meira. Heimildum ber
ekki saman um, hvort þama hafi
verið rangt reiknað eða hvort fjár-
málaráðherra hafi þama búið sér
til varasjóð í fyrstu umferð.
Á þessum tveim liðum sýnist því
að fundist hafi 800 milljónir króna.
Þá er talað um að lækka húsnæðis-
féð um 300 milljónir króna eða
jafhvel 400 milljónir og að það komi
niður á þeim lánbeiðendum sem
talið er að þurfi ekki á lánum að
halda. Loks koma svo til skatta-
hækkanimar, í söluskatti og
sköttura á fyrirtæki. Ekki er talið
líklegt að vegafé eða annað sam-
göngufé verði skert.
Ríkisstjómin verður meira eða
minna á fundum í dag og á morgun
og ætlunin er að ljúka gerð frum-
varpa að fjárlögum og lánsfjárlög-
-HERB
Ríkisrekin þjónusta:
Ráðunautar
slegnir af?
Viðleitni til þess að færa þjónustu
ríkisins við atvinnuvegina eða kostn-
að af henni virðist ekki ætla að bera
mikinn árangur við afgreiðslu fjár-
lagafrumvarpsins nú. Helst er talað
um að ríkið hætti að kosta iðnráð-
gjafa og einhvem hluta ráðunauta í
landbúnaði og felli niður einhvem
sambærilegan kostnað vegna sjávar-
útvegsins.
Nokkur vilji er til þess að stíga skref
í þessa átt en jafhljóst að það verður
ekki gert nema skorið verði af öllum
stóru atvinnuvegunum nokkum veg-
inn jafnt. Tæpast verður gert mikið
veður út af þessu að sinni, enda fyrir-
sjáanlegt að samstaða er ekki um að
ganga í þetta þjónustumál þannig að
mikið muni um það fyrir ríkissjóð á
næsta ári.
-HERB
Bjöm Borg
til íslands
„Ætli ég byrji ekki á því að leggj’ann á,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra þegar
Verslunarráð íslands færði honum „niðurskurðarhníf" að gjöf i gær. Ekkert sá á skeggi ráðherra
eftir „niðurskurðinn," en það þarf ekki að þýða að hnífurinn bíti ekki. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Hæg norð-
austanátt
um allt land
Það verður fremur hæg norðaust-
anátt á landinu. Sums staðar létt-
skýjað vestanlands, annars skýjað
og skúrir eða él á Norðaustur- og
Austurlandi. Hiti verður á bilinu 3
til 7 stig.
Hinn heimsfrægi tennisleikari Bjöm
Borg er væntanlegur til íslands nú í
nóvember og mun standa hér við í tvo
daga. Bjöm Borg kemur hingað á veg-
um Margrétar Jónsdóttur, eiganda
verslunarinnar Sonju. Tilefhið er að í
nóvember er fyrirhugað að hefja sölu
á Bjöm Borg vörum og ætlar Bjöm
að kynna vörur sínar hér á landi.
-jme
Réðst inn
á konu og
var bitinn
Maður réðst inn í íbúðarhús við
Baldursgötu snemma í morgun. Kona,
sem bjó í íbúðinni, snerist til vamar
og tókst henni að bíta manninn í hönd-
ina. Eftir að hafa verið bitinn lagði
maðurinn á flótta.
Ekki er vitað hvað manninum gekk
til en hans er leitað. Lögreglan hefur
góða lýsingu á manninum.
•sme