Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1987, Síða 31
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1987.
43
Fólk í fréttum
Helgi Kristbjamarson
Helgi Kristbjamarson geðlæknir,
talsmaður HvaJavinafélagsins, hefur
verið í fréttum DV en hann hugaði
að heilsu þeirra hvalavina sem mót-
mæltu í Hvalfirðinum á dögunum.
Helgi er fæddur í Reykjavík 25.
júní 1947 og lauk læknanámi frá
Háskóla íslands 1975 og starfaði síð-
an á sjúkrahúsum og héruðum um
landið. Hann stundaði rannsóknir í
taugalífeðlisfræði og varði doktors-
ritgerð við Nóbelsstofnunina í
Stokkhólmi 1983. Helgi hefur síðan
1983 stundað rannsóknir við geð-
deild Landspítalans, einkum á svefni
og svefnsjúkdómum, og heíur lokið
' sémámi í geðlækningum. Hann hef-
ur skrifað ýmsar greinar í erlend
læknatímarit og er einn af höfund-
um Islensku lyfjabókarinnar. Helgi
hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum
og er í stjóm læknaráðs Landspítal-
ans.
Kona Helga er Sigríður Sigurðar-
dóttir tölvukennari, BA. frá HÍ.
Foreldrar hennar era Sigurður
Gunnarsson, prentari í Rvík, sem
nú er látinn, og kona hans, Sigríður
Ólafsdóttir. Helgi og Sigríður eiga
fjögur böm, Bimu, f. 1969, mennta-
skólanema, Tryggva, f. 1971,
menntaskólanema, Höllu, f. 1977 og
Kristbjöm, f. 1979.
Systur Helga em Fanney, f. 1949,
meinatæknir á Akureyri, gift Gunn-
ari Rafni Einarssyni, skattstjóra í
Noröurlandi eystra, og Halla, f. 1951,
sérkennari í Rvík.
Foreldrar Helga em Kristbjöm
Tryggvason, prófessor og yfirlæknir
í Rvfk, og kona hans, Guðbjörg
Helgadóttir húsmæðrakennari. Föð-
ursystkini Helga era Þuríður, en
hún er látin, var gift Magnúsi Möll-
er, málara í Rvík. Fanney, bókavörð-
ur á Borgarbókasafninu, en hún er
látin, Aðalsteinn, rafviki í Rvík, gift-
ur Sigríöi Þorláksdóttur, og Geir, b.
á Steinum undir Eyjafiöllum, giftur
Þórönnu Finnbogadóttur. Faðir
Helga, Kristbjöm, var sonur
Tryggva, skipstjóra í Rvík, Bjöms-
sonar, tómthúsmanns á Litla Velh í
Rvík. Bjömssonar, b. á Stóra Velh í
Vesturhópi í Húnavatnssýslu Páls-
sonar. Móðir Tryggva var Kristjana
Guðlaugsdóttir, b. í Hvammi í Eyja-
firði Jónssonar. Bróðir Kristjönu var
Jón, sparisjóðsstjóri á Akureyri, afi
Bjama Arnasonar sjónvarpsþuls.
Móðursystkini Helga era Jón H.
Bergs, forstjóri Sláturfélags Suður-
lands, giftur Gyðu Thorsteinsson,
Helgi H. Bergs, bankastjóri Lands-
bankans, giftur Lis Eriksen, og Halla
sendiráðunautur. Faðir Guðbjargar
var Helgi Bergs, forstjóri Sláturfé-
lags Suðurlands, Helgasonar, b. á
Fossi á Síðu Bergssonar, b. á Fossi
Jónssonar, dótturdóttursonar Jóns
„eldprests" Steingrímssonar. Móðir
Guðbjargar var EUn Jónsdóttir
Thorstensen, prests á Þingvöllum,
bróður Elínar, ömmu Guðrúnar
Agnarsdóttur alþingismanns. Móðir
Elínar var Guðbjörg Hermaníus-
Helgi Kristbjamarson.
dóttir, sýslumanns á Velli í Hvol-
hreppi Jónssonar, systir Jóns
tollstjóra, afa Jóns Thors skrifstofu-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu.
Ivar H. Jónsson
ívar H. Jónsson skrifstofustjóri,
Frostaskjóh 9, Reykjavík, er sextug-
ur í dag.
ívar Haukur er fæddur í Reykjavík
og lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1947. Hann
lauk lögfræðiprófi frá Háskóla ís-
lands 1953 og var ráðinn blaðamaður
við dagblaðið Þjóðviljann 5. febrúar
1953 og fréttasijóri sama blaðs 24.
nóvember 1959. ívar var ritstjóri
Þjóðviljans frá 1. janúar 1963 - 8.
júlí 1971 og skrifstofustjóri Þjóðleik-
hússins frá 1. september 1971. Hann
var fiármálafulltrúi Þjóðleikhússins
frá 1. janúar 1979 og rak um skeið
1954 lögfræðiskrifstofu í Rvík. í félagi
með öðrum. ívar var formaður Fé-
lags róttækra stúdenta 1950-1951 og
í stjóm Blaðamannafélags íslands
1963-1971, þar af formaður 1963-1964
og 1969-1970. Hann sótti á þessum
árum sem fulltrúi BÍ allmarga fundi
sem haldnir vora erlendis á vegum
Blaðamannasambands Norður-
landa. ívar var fulltrúi BÍ frá 1969 í
norrænni samstarfsnefnd um höf-
undarréttarmál blaðamanna og
síðar laganefnd norræna blaða-
manna. Hann var fulltrúi BÍ í ráði
Norræna hússins frá stofnun þess
1968-1972 og skipulagði og sfiómaði
fyrsta almenna námskeiöinu í blaða-
mennsku sem haldið hefur verið hér
vegum BÍ febrúar-apríl 1969 svo og
námskeiðum fyrir starfandi blaða-
menn 1970 og 1971. ívar var í nefnd
er samdi reglugerð fyrir Lífeyrissjóð
blaðamanna 1958 og í nefnd er samdi
siðareglur blaðamanna 1965. Hann
var kosinn í aðalsfióm MÍR, Menn-
ingartengsla íslands og Ráösfiómar-
ríkjanna 1972 og var formaður þess
frá því apríl 1974.
Kona Ivars er Ragnhildur Rósa
Þórarinsdóttir kennari. Foreldrar
hennar era Þórarinn Vigfússon,
verkamaður í Rvík, og kona hans,
Klara Hallgrímsdóttir, og eiga þau
tvö böm, Jón og Þórdísi. Systkini
ívars vora sjö og era fimm þeirra á
lífi, þau vora Margrét, sem er látin,
Ragnheiður, býr í Reykjavík, Guð-
munda Rósa, býr í Reykjavík, Ólafía,
býr á Akranesi, Sigurpáll, starfs-
maður ísafoldar, býr í Reykjavík, og
Ragnar, lagersfióri hjá ísafold, sem
er látinn.
Foreldrar ívars era, Jón ívarsson,
b. í á Hálsi í Grafningi síðar verka-
maður í Rvík, og kona hans, Aðal-
heiður Ólafsdóttir. Faðir ívars, Jón,
Ólöf Ingimundardóttir
Ólöf Ingimundardóttir, Brekku-
götu 25, Ólafsfirði, er áttræð í dag.
Ólöf er fædd á Háagerði í Ólafs-
firði og fór tveggja ára í fóstur til
Halldórs Guðmundssonar og Ingi-
bjargar Gísladóttur á Bursta-
brekku í Ólafsfirði og ólst upp hjá
þeim og var þar þangað til hún
giftist. Olöf fór til Vestmannaeyja
þegar hún var áfián ára og var þar
í tvo vetur. Hún giftist 1929 Guð-
mundi Guðmundssyni, útgeröar-
manni og skipsfióra. Foreldrar
hans vora Guðmundur Ólafsson
og Freydís Guðmundsdóttir. Synir
Ólafar og Guðmundar era Garðar,
fæddur 1930, útgeröarmaður í Ól-
afsfirði, giftur Sigríði Hannesdótt-
ur, og eiga þau fiögur böm, Halldór
Ingvar, útgerðarmaður í Ólafsfirði.
Ólöf og Guðmundur ólu auk þess
upp tvö böm, Olgu Albertsdóttur,
fædda 1936, deildarsfióra hjá
Kaupfélagi Ólafsfiarðar, en hún er
bróðurdóttir Guðmundar, gift
Ágústi Sigurlaugssyni, starfs-
manni Verkalýösfélagsins Eining-
arinnar, og eiga þau átta böm.
Einnig Guðbrand Þorvaldsson,
fæddan 1945, verksfióra hjá Vega-
gerð ríkisins á Akranesi, en hann
er bróðursonur Ólafar, giftur Þu-
ríði Óskarsdóttur og eignuðust þau
fimm böm en misstu eitt þeirra.
Systkini Ólafar vora níu og eru
sex á p, þau era Ingibjörg, fædd
1901, er látin, gift Sigurði, sjómanni
á Hofsósi, sem drukknaði á bátn-
um Þvengli milh Hofsóss og
Siglufiarðar, Ólöf, fædd 1902, dó
þriggja ára, Jakob, fæddur 1905,
sjómaður og netagerðarmaður í
Olafsfirði, giftur Sigríði Pálmadótt-
ur, Gísli, fæddur 1909, sjómaður í
Ólafsfirði, giftur Sigríði Sæmunds-
dóttir, Sigurður, fæddur 1912,
bifreiðarsfióri í Ólafsfirði, fyrri
kona hans var Guðný Jakobsen,
seinni kona hans var Rósa Sigurð-
ardóttfr, Sigríöur, fædd 1913, gift
Helga ísleifssyni, sjómanni á Ólafs-
firði, Halldóra, fædd 1914, gift
Guðvarði Þorkelssyni, sjómanni í
Grímsey, sem er látinn, og Þor-
valdur, fæddur 1918, bjó í Ólafs-
ffrði, er látinn, fyrri kona hans var
Lára Guðbrandsdóttir, ættuð frá
Akureyri, seinni kona hans var
Sigurbjörg Stefánsdóttir, ættuð úr
Fljótum og Siglufirði.
Foreldrar Ólafar vora Ingi-
mundur Jónsson, b. á Hombrekku
í Ólafsfirði, og kona hans, Guðrún
Stefanía Guðmundsdóttfr. Faöir
Ingimundar, var Jón, b. á Ver-
mundarstöðum í Ólafsfiröi, Gísla-
sonar, b. á Óslandi í Skagafirði,
Gíslasonar. Móðir Ingimundar var
Ingibjörg Ingjmundardóttir, ættuð
úr Skagafirði. Móðir Ólafar, Guðr-
ún, var dóttir Guömundar, b. á Lái
í Ólafsfirði, Guömundsspnar. Móð-
ir Guðrúnar var Ólöf Ámadóttir,
b. á Auönudal í Skagafirði.
Afmæli
Ása Ólafsdóttir
ívar H. Jónsson.
var sonur ívars, b. á Króki í Ölfusi
Halldórssonar. Móðir Jóns var
Margrét Steindórsdóttir, b. í Sölv-
holti í Flóa Sæmundssonar.
Móðir ívars, Aðalheiður, var dóttir
Ólafs, b. og formanns í Sogni í Ölf-
usi Guðmundssonar, tómthúsmanns
íHLiði á Álftanesi Ólafssonar. Móðir
Ólafs var Þóranna Rósa, dóttir Nat-
ans Ketilssonar, b. og skálds á
Dlugastöðum á Vatnsnesi, og Rósu
Guðmundsdóttur skáldkonu, Vatns-
enda-Rósu. Móðir Aðalheiðar var
Ragnheiður Símonardóttfr, b. í
Hallstúni í Holtum, Eyjólfssonar.
70 ára
Haukur Sveinsson bifreiðarstjóri,
Langholtsvegi 154, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Asa Ólafsdóttfr, Vesturgötu 163,
Ata-anesi, er fimmtug í dag.
Ása Sigríður fæddist í Ynnsta-Vogi
fyrir innan Ataanesbæ en fluttist
með móður sinni til Akraness fiög-
urra til fimm ára og ólst þar upp.
Hún var í námi í Gagnfræðaskólan-
um á Akranesi í tvo vetur og vann
síðan í versluninni Staðarfelli á
Ataanesi í þrjú og hálft ár. Ása vann
nokkur ár í Dairy-Queen ísbúðinni
í Reykjavík og hjá Coca Cola en flutt-
ist aftur til Ataaness 1964 og hefur
búið þar síöan.
Ása giftist 23. október 1965 Val
Gunnarssyni, f. 20. ágúst 1939, hrein-
geminga- og teppahreinsunarmanni
á Akranesi. Foreldrar hans era
Gunnar Gíslason sjómaöur í Reykja-
vík, sem dvelst nú á Hrafnistu, og
kona hans, Auður Guðmundsdóttir,
sem lést 1981. Böm hennar era Jó-
hanna Margrét, fædd 1959, hár-
greiðslukona, gift Stefáni Snorra
Stefánssyni, raftæknifræðingi í
Reykjavík, og eiga þau tvo syni,
Auðunn Sólberg, fæddur 1964, mat-
sveinn á Hótel Sögu, giftur Þórdisi
Sigurðardóttur og eiga þau einn son,
Saga, fædd 1966, gift Jóni Bergmann
Arsælssyni, bakara á Seyðisfirði, og
eiga þau eina dóttur, Hekla, fædd
1968, verslunarmaður á Ataanesi,
sambýlismaður hennar er Jón Þór
Helgason, viðskiptafræðinemi í HÍ,
og eiga þau eina dóttur, og Valur
Ásberg, fæddur 1971, námsmaður í
foreldrahúsum.
Systkini Ásu voru tíu, þar af tvö
hálfsystkini og era átta á lífi. Þau
era Jóhann Hinriksson, býr í Sví-
þjóð, gjftur Þuríði Júlíusdóttur,
Hörður, b. í Lyngholti í Melasveit,
giftur Iillý Einarsdóttur, Ólafur, bif-
reiðarstjóri hjá Olíufélagjnu á
Akranesi, gjftur Lilju Halldórsdótt-
ur, DOjá, gift Pétri Torfasyni, b. á
Höfri í Melasveit, Margrét, gift Jó-
hanni Vilhjálmssyni, prentara í
Rvik. Ingjbjörg, gjft Vilhjálmi Þor-
steinssyni, b. á Kambshóli í Svínad-
al, Heiðar, b. í Melkoti í Melasveit,
er látinn, giftur Öldu Guðmunds-
dóttur, Sigurður, sjómaður í Rvík,
Kolbrún, gift Gunnari Sigmarssyni,
sjómanni á Seyðisfirði, og Ólafina,
gift Birgi Guðnasyni, rafvirkja á
Ataanesi.
Foreldrar Ásu vora Ólafur Sig-
urðsson, sjómaður á Akranesi, og
kona hans, Ólafina Ólafsdóttir. Faðir
Ólafs var Sigurður, b. á Fiskilæk í
Melasveit, Sigurðssonar. Móðir Ól-
afs, var Guðrún Diljá Ólafsdóttir, b.
og hreppstjóra í Mýrarhúsum á Sel-
tjamamesi, Guðmundssonar. Meðal
systkina Guðrúnar Diljár vora Hall-
dóra, amma Sigrúnar, konu Matthi-
asar Á. Mathiesen ráðherra, og
Þórunn, amma Örlygs og Steingríms
Sigurðssona listmálara. Móðir Guð-
rúnar Diljár var Karítas Runólfs-
dóttir, b. í Saurbæ á Kjalamesi
Þóröarsonar. Meðal systkina Karít-
asar vora Guðrún, kona Matthíasar
skálds Jochumssonar, og Þórður á
Móum á Kjalamesi, afi Þórðar
Bjömssonar fyrrv. ríkissaksóknara.
Móðir Ásu, Ólafína, er dóttfr Ólafs,
vélsmiðs á Atoanesi Ólafssonar og
konu hans, Sigríðar Jóhannesdótt-
ur.
Andlát
Gunnar Bjamason
Gunnar Bjamason, fyrrverandi
skólasfióri Vélskólans, lést 24. sept-
ember.
Gunnar fæddist 12. febrúar 1901
og lauk stúdentsprófi úr máladeild
1921 og úr stærðfræðideild Mennta-
skólans í Reykjavík 1922 og hóf nám
viö Verkfræðiskólann í Kaup-
mannahöfii en hætti námi vegna
veikinda. Hann lauk verklegri þjálf-
un hjá Burmeister og Wein 1923-1924
og véltækniprófi frá Tækniskólaum
í Mittweida í Þýskalandi 1931. Gunn-
ar hannaði nýja gerð fiskþurrkunar-
húsa, hið fyrsta sinnar tegundar í
Kothúsum í Garði 1949 og sfiómaði
verki við gerð undiretöðu raflínum-
astra frá Olfusi til Irafossvirkjunar
fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur
1953. Hann var kennari viö Vélskól-
ann 1945 og skólasfióri þar 1955-1971.
Gunnar beitti sér fyrir stofriun
Tæknifræðiskóla á íslandi. Hann hóf
1971 rannsóknir og tilraunir á mögu-
leikum á að brenna svartolíu í
íslenskum fiskiskipum.
Kona Gunnars var Anna Guðrún
Jónsdóttir, f. 8. nóvember 1900, d.
1982. Foreldrar hennar vora Jón
Ámason, prestur á Bíldudal, og kona
hans, Jóhanna Pálsdóttfr. Böm
Gunnars og Önnu era Anna Guð-
björg blaðamaður, gift Atla Steinars-
syni blaðamanni og eiga þau fiögur
böm, Jón Páll gítarleikari, búsettur
í Los Angeles, giftur Roberta Ost-
roff, og á hann eina dóttur.
Systkini Gunnars era Þorsteinn,
bókari og Verslunarskólakennari,
fyrri' kona hans var Steinunn Pét-
ursdóttir, seinni kona hans var
Klara Sigurðardóttir, Jóhanna, gift
Steindóri Gunnarssyni prensmiöju-
eiganda og Hjálmar, bankaritari í
Útvegsbankanum, fyrri kona hans
var Elísabet Jónsdóttir, seinni kona
hans var Sóley Steingrímsdóttir.
Foreldrar Gunnars vora Nicolai
Carl Friðrik Bjamason, kaupmaður
og skipaafgreiðslumaður í Rvík, og
kona hans, Anna Emilía Þorsteins-
dóttir. Faðir Nicolai, var Jóhann
Pétur Bjamesen, verslúnarsfióri í
Vestmannaeyjum. Móðir Nicolai var
Johanne, faedd Rasmussen. Móöir
Gunnars, Anna, var dóttir Þorsteins
Thorsteinsson yngraj kaupmanns og
alþingismanns á Isafiröi. Móðir
Önnu var Amalie, fædd Löwe.
Reynir Viggósson andaöist 25. sept-
ember að heimili sínu í New York.
Anna Sigurjónsdóttir, Borðeyri,
lést í Sjúkrahúsinu á Akranesi
fimmtudaginn 24. september.
Siggeir Ólafsson, Digranesvegi 121,
Kópavogi, lést á gjörgæsludeild
Borgarspítalans 25. september.
Guðmundur Úlfar Sigurjónsson,
Nökkvavogi 5, andaðist á gjör-
gæsludeild Borgarspítalans laug-
ardaginn 26. september.
Sveinbjörg Pálsdóttir, Sólvöllum 5,
Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri aö kvöldi
fóstudagsins 25. september.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
q§2°iv
l^)ugaregi 5J. simi 20266
Sendum unx lund allL