Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Page 6
28 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. Frumsýning í Þjódleikhúsinu: Flaksandi faldar - Islenski dansflokkurinn á fljúgandi ferð íslenski dansflokkurinn frumsýnir á sunnudagskvöld í Þjóðleikhúsinu nýjasta verkefni sitt sem hlotið hefur heitið Flaksandi faldar. Naf- nið á vel við þar seir síöpilsin sviptast og faidarnir lyftast í þess- um tveimur nýju dansverkum eftir Hlíf Svavarsdóttur, nýjan listdans- stjóra Þjóðleikhússins, og hol- lenska danshöfundinn Angelu Linsen. Verk Hlífar heitir Á milli þagna og er samið við valsastef úr ýmsum áttum en verk Angelu heit- ir Kvennahjal og er allnýstárlegt. Þar er dansað eftir ítalskri alþýðu- tónlist, söngli, ljóðafíutningi og þögnum. Ljóð eftir Jón úr Vör er fellt að þessu verki. Búningarnir í sýningunni eru eftir Sigrúnu Úlf- arsdóttur en Sveinn Benediktsson annast lýsingu. Það eru að sjálfsögðu dansarar íslenska dansflokksins sem dansa á sýningunni en flokkurinn er að þessu sinni eingöngu skipaður kvenfólki. Auk meðlima dans- flokksins dansar María Gísladóttir í sýningunni og er þetta-í fyrsta skipti sem hún æfir fyrir uppfærslu með flokknum. María dansaði síð- ast hér á landi sem gestur er hún var nokkrum sinnum i hlutverki Giselle í rómaðri uppfærslu Antons Dolin árið 1982. Sem kunnugt er hefur María gert garðinn frægan sem sólódansmær í Þýskalandi og íslenski dansflokkurinn æfir fyrir Flaksandi falda. Bandaríkjunum. Hún hverfur aft- ur til Bandaríkjanna þegar í næsta mánuði. Dansarar dansflokksins eru að þessu sinni: Ásta Henriks- dóttir, Birgitte Heide, Guðrún Pálsdóttir, Helena Jóhannsdóttir, Helga Bernhard, Guðmunda Jó- hannesdóttir, Katrín Háll, Lára Stefánsdóttir, Ólafía Bjamleifs- dóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Frumsýningin veröur að kvöldi sunnudagsins 22. nóvember. Ein- ungis verða þrjár sýningar. Seinni sýningarnar tvær verða fimmtu- daginn 26. nóvember og laugardag- inn 28. nóvember. Allar sýningarn- ar hefjast kl. 20 og er miðasala hafin. Kvikmyndahús - Kvikmyndahús Stjörnubíó Ritchie Valen var ungur og efni- legur söngvari þegar hann lést í flugslysi 1958. Hann var aðeins sautján ára. Samt hafði honum tek- ist á nokkrum mánuðum að eiga þrjú vinsæl lög, meðal þeirra La Bamba, lag sem er titill kvikmynd- ar um ævi piltsins. Fjallar myndin um stutta ævi piltsins sem var af mexíkönsku bergi brotinn. Mynd þessi hefur vakið nokkra athygli og hafa lög Ritchie Valen öðlast líf í meðförum hljómsveitarinnar Los Lobos. Þá hefur Stjömubió hafið sýningar á 84 Charing Cross Road sem fjallar um samband rithöfund- ar og útgefanda, samband sem fer að mestu fram bréfleiðis. Það eru úrvalsleikararnir Anne Bancroft og Anthony Hopkins er leika aðal- hlutverkin. Bíóborgin Laganeminn (From the Hip) er um ungan laganema, Robin Weath- ers, er tekur að sér að verja Benoit sem ákærður er fyrir morð. Þetta er gamanmynd með alvarlegu ívafi og gerist að nokkru leyti í réttar- sal. Judd Nelson leikur laganem- ann og John Hurt hinn ákærða. Þá er óhætt að mæla með Nornunum frá Eastwick (The Witches of East- wick) þar sem Jack Nicholson fer á kostum í hlutverki sjálfs kölska sem þrjár ungar og fallegar galdra- konur særa til sín. Og þá er ekki síðri hin dulúðuga sakamálamynd, Svörtu ekkjurnar (Black Widows) þar sem þær Theresa Russell og Debra Winger fara á kostum. Háskólabíó Framtíðarmyndin Riddari göt- unnar (Robo Cop) er gerð af Hol- lendingnum Paul Verhoven og hefur fengið góðar viðtökur vestan- hafs. Þetta er sakamálamynd er gerist í náinni framtíð þegar glæpir eru orðnir þjóðarvandamál. Nýj- asta vopnið í baráttu við glæpalýð- inn er vélmennið Robo Cop sem er að hluta mannleg vera en að hluta til er efnið í róbótnum lögregla sem hafði verið skotin í tætlur. Þykir Verhoven hafa gert góða spennu- mynd. Laugarásbíó Furðusögur (Amazing Stories) eru þrjár stuttar kvikmyndir sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla um dularfulla atburði. Yfirumsjón með myndum þessum hefur sjálfur Steven Spielberg og leikstýrir hann fyrsta hlutanum, Ferðinni. Annar Regnboginn í djörfum dansi Bandaríkjamenn eru iðnir við að gera táningamyndir sem eiga að gerast á sjöunda áratugnum fyrir daga Víetnamstríðsins. Sú síðasta í röðinni er í djörfum dansi (Dirty Dancing) sem notið hefur tölu- verðra vinsælda vestanhafs að undanfórnu og mun sjálfsagt fá hjartað til að slá hraðar í ungum rómantískum íslendingum, þá kannski aðallega vegna góöra dansatriða. Efni myndarinnar er í þynnra lagi en lífleg tónlist ásamt dansin- um lyftir myndinni nokkuð upp. Aðalhlutverkin eru tvö og leikin af Patrick Swayze sem hefur leikið í nokkrum unglingamyndum og þá helst töffara. Hann sýnir hér nýja hlið á sér og er hinn ágætasti dans- ari. Hitt aðalhlutverkið leikur Jennifer Gray. Þótt í djörfum dansi eigi meira erindi til unglinga þá hafa allir, sém á annað borð hafa gaman að dansi, ábyggilega gaman af. Fyrir þá sem vilja bitastæðari kvikmyndir er óhætt að benda á nýjustu kvikmynd Woody Allen Útvarpsdagar (Radio Days), skemmtileg kvikmynd um árdaga útvarpsins og þá hefur Regnboginn tekið til sýningar Skytturnar sem alltof fáir sáu fyrr á árinu og hvet ég alla til að sjá mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar sem hefur vak- ið hrifningu hvar sem hún hefur verið sýnd.-HK Kvikmyndahús hlutinn nefnist Múmíufaðir og er leikstýrður af Wflliam Dear. Þriðja hlutanum, Höfði bekkjarins, leik- stýrir Robert Zemckis sem á á baki Aftur til framtíðar. Af öðrum myndum Laugarásbíós er vert að nefna Vitni á vígvellinum (War Zone), þar sem Christopher Walk- en leikur fréttamann í leit að æsifréttum, og gamanmyndina Fjör á framabraut með táningagoð- inu Michael J. Fox. Bíóhöllin Hin magnaða mynd Stanleys Kubrick, Skothylkið (FuR Metal Jacket), fjallar um unga drengi sem kallaðir eru í herinn þegar Víet- namstríðið stóð yfir, þjálfun þeirra, sem lýst er á eftirminnilegan hátt í upphafsatriði, og svo reynslu þeirra á vígvellinum sjálfum. í heild er Skothylkið vel gerð drama- tísk kvikmynd. í aðalsali Bióhallar- innar er sýnd myndin Týndir drengir (The Lost Boys) sem er rokkuð unglingahrollvekja með gamansömu ívafi. Fjallar hún um blóðsugugengi sem að sjálfsögðu hreyfir sig aðeins á nóttunni og baráttu nokkurra unglinga við það. Af öðrum myndum má nefna Blátt flauel (Blue Velvet), umdeilda en sterka kvikmynd ér lætur engan ósnortinn. Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn Gallerí Langbrók, Bókhlöðustíg 2, textílgallerí. Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11 14. Kjarvalsstaðir við Miklatún Rúna Gísladóttir sýnir málverk og collage myndir sem hún hefur unnið á undanförn- um 3-4 árum. Þetta er fyrsta einkasýning Rúnu en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum á undanfömum árum. Sýn- ingin er opin daglega kl. 14-22 og stendur til 22. nóvember. Þá sýnir einnig Björn Birnir málverk. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 11-17. Listasafn Háskóla íslands 1 Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgan'Tur að safn- inu er ókeypis. Mokka, Skólavörðustíg Gunnar I. Guðjónsson sýnir vatnslita- myndir, málaðar í Svíðþjóð. Mokka er opið daglega kl. 9-23.30. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Einholti 4 Opið á sunnudögum kl. 14-16. Norræna húsið v/Hringbraut A morgun kl. 15 verður opnuð sýning í Norræna húsinu á 80 grafíkmyndum eftir 12 listamenn. Sýningin er hingað komin á vegum „Grafiska sállskapet" sem er félag grafíklistamanna þar í landi og er það elsta hreina grafíkfélag í heiminum. Sýn- ingin verður opin daglega kl. 14-19 fram til 15. desember. Nýlistasafnið v/Vatnsstíg Grétar Reynisson og Þórunn S. Þorgríms- dóttir sýna verk sín. Sýningin stendur til 29. nóvember. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Áma Magnússonar er í Arnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16 Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði Opnunartími í vetur er laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar geta pantað tíma í síma 52502 alla daga vikunnar. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Sýning í Landsbókasafni ís- lands Landsbókasafn efnir til sýningar í minn- ingu tveggja alda afmælis Rasmusar Rasks og er þar lögð aðaláhersla á þann þátt ævi hans og verka er snýr að Islandi og íslenskum fræðum. Sýningin verður opnuð 23. nóvember og mun standa til áramóta á opnunartíma safnsins, mánudaga til föstudaga kl. 9-19 og laugardaga kl. 9-12. Listsýning frá Hvíta-Rússlandi I húsakynnum MlR, Vatnsstíg 10, stendur nú yfir sýning á myndlist og listmunum frá Sovétlýðveldinu Hvíta-Rússlandi. Á sýningunni eru 73 grafíkmyndir, nær 200 munir úr tré og basti auk vefnaðar, 40 myndir eftir böm og um 100 bækur og bæklingar. Sýningin er opin virka daga kl. 17-18.30 og um helgar kl. 14-18. Að- gangur er ókeypis. Myndlistarsýning í Mosfellsbæ Nú stendur yfir í héraðsbókasafni Kjósar- sýslu sýning á verkum Kristínar Magnús- dóttur. Þetta er fyrsta einkasýning hennar en hún hefur tekið þátt í samsýningum. Bókasafnið er opið virka daga kl. 13-20 og stendur sýningin út nóvember. Sýning í Gerðubergi Sunnudaginn 15. nóv sl. opnaði Ásta Erl- ingsdóttir grasalæknir sýningu á um 40 vatnslitamyndum. Flesta liti, sem Ásta notar, hefur hún sjálf blandað úr íslensk- um jurtum. Sýningin er opin kl. 13-22 frá mánudegi til fimmtudags og fra kl. 13-18 frá föstudegi til sunnudags. Myndimar á sýningunni era til sölu og er aðgangur að henni ókeypis. Sýningin stendur til sunnu- dags 6. desember. Listkynning Alþýðubankans á Akureyri Menningarsamtök Norðlendinga og Al- þýðubankinn hf. kynna að þessu sinni listakonuna Soffíu Árnadóttur. Á list- kynningunni era 6 verk, 5 unnin með biýanti og bleki á pappír og 1 dúkrista. Sýningin stendur til 28. desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.