Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Page 8
30
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
h
V
DV-LISTINN
Hún Peggy Sue hans Coppola sat
ekki lengi í hásæti DV-hstans held-
ur varð hún þegar að víkja eftir
eina viku fyrir félögunum þrem
sem bjarga málum í Mexíkó. Annar
hástökkvari er í 2. sæti en það er
góður kunningi okkar íslendinga,
nefnilega Litla Hryllingsbúðin.
Hún ætlar greinilega að vekja
sömu hrifningu og þegar leikritið
var sett upp. Tvær aðrar myndir
eru nýjar inni á listanum en for-
vitnilegt er að Krókódíla-Dundee
og Top Gun virðast loksins vera á
útleið. Nú er jólahátíðin framund-
an og má búast við tilfæringum í
kjölfar þess enda líklegt að mynd-
bandafólk skarti sínu fegursta yfir
hátíðirnar.
sætin.
1 (6) Trees Amigos
2 (-) Little Shop of Horror
3 (1) Peggy Sue Got
Married
4(3) The Golden Child
5(2) The Color Of Money
6 (-) War Zone
7(5) Krókódíla-Dundee
8 (-) Gínan
9 (4) Heartbreak Ridge
10(7) Top Gun
Hryllings-
gaman
LITTLE SHOP OF HORRORS
Útgefandi: Tefli hf.
Leikstjóri: Frank Oz.
Aðalleikarar: Rlck Moranis, Ellen Gre-
ene og Steve Martin.
Bandarisk 1987 - sýningartími: 91 mín.
Litla hryllingsbúðin er éitthvert
vinsælasta leikhúsverk sem sett
hefur verið upp hér á landi. Kom
þar margt til. Söngleikurinn er
hinn skemmtilegasti, textar Megas-
ar virkilega góðir og öll uppfærsla
og leikstjórn vel heppnuð.
Kvikmyndunin eftir leikverkinu
er ekki jafn vel heppnuð. Mikil
áhersla er lögð á að gera blóma-
skrímshnu Audrey annarri góð
skil enda hefur tæknimönnum tek-
ist að skapa hina skemmtilegustu
skepnu en það er aftur á móti á
kostnað annars efnis úr sviðsverk-
inu.
Ef litið er fram hjá söngleiknum
og einblínt á kvikmyndina þá er
Litla hryllingsbúðin eða Little
Shop Of Horrors hinbesta skemmt-
un. Allir leikarar skiia sínum
hlutverkum ágætlega þótt Steve
Martin í hlutverki Tansa slái öllum
við og er atriði hans í tannlækna-
stofunni með betri grínatriðum
sem sést hafa á hvíta tjaldinu.
Það ætti engum að koma á óvart
að mikið sé gert úr hlut Audreyar
því leikstjóri er enginn annar en
Frank Oz en hann hefur verið
helsti aðstoðarmaður Jim Henson
við gerð allra fígúra í Prúðu leikur-
unum. Þetta er fyrsta kvikmyndin
er hann leikstýrir og tekst honum
þokkalega vel upp þótt ég telji að
það hafi verið hægt að gera betri
kvikmynd úr þessum ágæta efni-
viði.
HK
Hin fuUkomna bamfóstra
Steve Martin leikur bæði í Tres
Amigos og Little Shop Of Horrors,
þeim tveimur myndum er skipa efstu
MARRY POPPINS
Útgefandi Bergvik.
Leikstjóri: Robert Stevenson.
Aöalleikarar: Julie Andrews og Dick van
Dyke.
Bandarísk 1964 - sýningartimi 140 mín.
Mary Poppins er einhver allra besta
barnamynd sem gerð hefur verið og
þótt ævintýrið um bamfóstruna
fljúgandi sé skrifað fyrir börn er
kvikmyndin góð og hoh skemmtun
fuhorðnum einnig.
Söguþráðurinn er á þá léið að
systkin ein telpa og drengur eiga
mjög auðvelt með að fæla burt barn-
fóstrur. Þau setja saman óskahsta
um hvernig barnfóstru þau vhja.
Faöir þeirra hlustar ekki á þau en
óskalistinn kemst til Mary Poppins
og þeim verður að ósk sinni. Mary
Poppins birtist sem sending af himn-
um ofan og heillar brátt krakkana
sem aðra með skemmtilegri og líf-
Leigumorðingjaraunir
ÐUDDY.BUDDY
Útgefandl: JB-myndbönd
Leikstjóri: Billy Wilder. Framleiðandi:
Jay Weston. Handrit: Billy Wilder og I.
A.L. Dlamond. Aðalhlutverk: Jack
Lemmon, Walter Matthau, Paula Prent-
iss og Klaus Kinski.
Þeir félagar Lemmon, Matthau og
Whder slógu rækhega í gegn með
myndinni Front Page 1974 og síðan
hafa þeir með reglulegu mhlibih
reynt að endurtaka leikinn. Þó að
leikhæfileikar félaganna séu óum-
dehanlegir hafa handrit og leik-
stjórn sett þeim stóhnn fyrir
dyrnar og svo er einnig hér.
Myndin segir frá vonlausum eig-
inmanni (Lemmon) sem reynir
ítrekað að kála sjálfum sér. Við þær
framkvæmdir truflar hann ráða-
brugg leigumorðingja (Matthau)
sem afræður að hjálpa eiginmann-
inum yfir í ehífðina í von um
vinnufrið. Það gengur þó brösótt
þótt báðir leggi sitt af mörkum.
Þetta er alls ekki svo slæm mynd,
maður átti bara einfaldlega von á
meiru frá þeim félögum. -SMJ
Rómantík í Frakklandi
CLOUD WALTZER
Útgefanái: Háskólabió
Leikstjóri: Gordon Fleming
Aðalleikarar: Kathteen Beller og
Francois-Eric Gendron
Bandarísk 1987 - sýningartimi 90 min.
Cloud Waltzer fjallar um unga
bandaríska stúlku sem er að reyna
að vinna sér nafn í blaðaheiminum.
Th að svo geti orðið fær hún viðtal
við franskan mhljónamæring sem
hefur ekki veitt viðtal áöur. Ekki
gengur það átakalaus fyrir sig en
heppnin er með henni. Hún hittir
á mihjónamæringinn án þess þó
að vita hver hann er.
Úr þessu verður að sjálfsögðu
viðtahð sem þó er aukaatriði þegar
hður á myndina því unga stúlkan
og mihjónamæringurinn feha hugi
saman. Þó nokkur ljón séu í vegin-
um, meðal annars faðir stúlkunnar
sem er enn ríkari en sá franski,
yfirstígur ástin aha erfiðleika í lok-
in.
Cloud Waltzer er ekki merkheg
kvikmynd og sjálfsagt ekki ætlað
að vera það. Leikarar vinna starf
sitt með hangandi hendi í fógru
umhverfi í Frakklandi. Myndin má
þó eiga það að hún sinnir þörfum
rómantískra sem vhja aht slétt og
fagurt. Öðrum en þeim er er ráð-
lagt að láta myndina eiga sig.
-HK
legri framkomu. Mary Poppins sem
er göldrótt á ekki í vandræðum með
að heiha krakkana upp úr skónum
meö ýmsum uppátækjum sem venju-
legar bamfóstrur láta vera. Þá
kemur einnig mikið við sögu sótari
einn sem tekur þátt í ævintýri barn-
anna og Mary Poppins.
Á sínum tíma hlaut Mary Poppins
fimm óskarsverðlaun og gerði stjörn-
ur úr Julie Andrews og Dick van
Dyke sem svo sannarlega standa fyr-
ir sínu og er leikgleðin mikh hjá þeim
báðum.
Mary Poppins er dans- og söngva-
mynd og urðu nokkur lög klassísk,
lög sem krakkar á öhum aldri lærðu
og gleyma sjálfsagt aldrei.
Mary poppins hefur elst mjög vel
og er öruggt að krakkar nútímans
munu skemmta sér jafnvel og jafn-
aldrar þeirra gerðu þegar myndin
kom á markaðinn 1964. Mary Popp-
ins er kvikmynd sem öllum ætti að
líða vel yfir.
HK
Eastwood í formi
THE OUTLAW JOSEY WALES
Útgefandi: Tefli.
Leikstjóri: Clint Eastwood. Handrit: Phil
Kaufman og Sonia Chernus. Mynda-
taka: Bruce Surtees. Tónlist: Jerry
Fielding. Aðalhlutverk: Clint Eastwood,
Chief Dan George og Sondra Locke.
Bandarisk, 1976. 135 min.
Clint Eastwood hefur einum
manna tekist að halda lífi í vestran-
um á síðustu 10 árum. Honum
hefur lánast að færa þá ómennsku
ímynd, sem hann skapaði sér í
spagettivestrum Leones, yfir í þjóð-
legra umhverfi og birtist nú sem
nokkurs konar frelsisengih á am-
eríska vísu. Þetta sást glögglega í
Pah Raider og einnig þessari mynd
frá 1976 sem var gerð skömmu áður
en aðsókn á vestrana hrundi alger-
lega. Einmanaleg firring mannsins
í spagettivestrunum, sem minnti á
tómhyggju, er hjöðnuð og er það
vel.
Hér segir frá Jose Wales sem
missir fjölskyldu sína í borgara-
styijöldinni. Hann gengur í her
Suðurríkjamanna og neitar að gef-
ast upp þegar stríðinu lýkur. Þrátt
fyrir að her manns sé settur honum
til höfuðs tekst ekki að hafa hendur
í hári hans og þjóðsagan er fædd.
Það verður að segjast eins og er
að Eastwood hefur mjög næmt
kvikmyndaauga og eru myndir
hans með þeim fahegri. - Og þó að
persónusköpun sé fábreytt þá verð-
ur því ekki neitað að hann kann
að segja einfalda sögu á kraftmik-
inn hátt. Þetta er mynd sem vestra-
unnendur geta ekki látið framhjá
sér fara.
-SMJ
Sólbnmnar heilasellur
CLUB PARADISE
Utgefandi: Tefli
Leikstjóri: Harold Ramis. Handrit: H.
Ramis og Brian Doyle-Murray. Aðal-
hlutverk: Peter O'Toole, Robin Williams,
Rick Moranis og Twiggy.
Bandarisk 1986. 92 mín.
Baðstrandarmyndir hafa ávallt
skotið upp kohinum öðru hveiju
wm wí «ww. mm mwrx
ss w<m wm m< wí-ww-
MK&Mwtwea mi i m* sonf-MHfw .
' enda hefur kvikmyndaframleið-
endum þótt sýnt að í kringum það
myndefni mætti spinna laufléttan
söguþráð sem ætti einhveija mark-
aðsmöguleika. Það eru ekki háleit
málefni sem birtast í þessum
myndum sem eru að mestu leyti
byggðar í kringum berbrjósta
stúlkur og léttlynda gæja. í þessari
mynd er svo bætt við smáátökum
í einhveiju bananalýðveldinu í
Karabíska hafinu. Átökin ná þó
aldrei að verða annað en hálfaumk-
unarverð og gefa myndinni lítið.
í stórum dráttum má segja að
myndin segi frá slökkviliðsmanni
(Whliams) sem sest í helgan stein
á fagurri hitabeltiseyju. í sam-
vinnu við innfæddan félaga setur
hann upp hótel sem getur ekki stát-
að af mörgum stjömum. Fljótlega
ógna vondir pólitíkusar draumum
þeirra félaga.
Leikarahópurinn er fremur
skrautlegur kokteih og verður að
telja líklegt að þaö hafi verið góða
veðrið sem tældi leikarana í mynd-
ina fremur en handritið.
-SMJ