Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 10
10
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
Útlönd
Enn ráðist á
flutningaskip
árása íraka á írönsk skip. Þar sem,
írakar flytja sína olíu eftir leiðslum
um Tyrkland og Saudi-Arabíu geta
íranar ekki ráðist á írösk olíuflutn-
ingaskip. Hefna þeir sín þess vegna
á annarra þjóða skipum og sérstak-
lega þeirra sem styðja íraka.
Iranar skutu í gær flugskeytum að
skipinu frá Maldíveyjum og kom eld-
ur upp í skipinu. Sneru íranar síðan
aftur til baka til skipsins og skutu
að því úr fallbyssum.
Bandarískt herskip var nálægt en
samkvæmt lögum mátti það ekkert
aðhafast þar sem skipið sigldi ekki
undir bandarískum fána. Sætir nú
þetta ástand talsverðri gagnrýni.
Skipaumferð flýtur nú eðlilega um
Hormuzsund en á miðvikudag og
fimmtudag stöðvuðu íranar skip í
sundinu og kröfðust skýringa á ferð-
um þeirra og vildu fá upplýsingar
um farm skipanna. Er það gert til
þess að koma í veg fyrir að hergögn
verði flutt tii íraka. Skip sem sigla
undir vernd franskra og sovéskra
herskipa fá hins vegar að fara óá-
reitt leiðar sinnar. Það eru aðallega
Frakkar og Sovétmenn sem sjá írök-
um fyrir vopnum.
Samt sem áöur beinist reiði írana
aðallega að nærveru Bandaríkja-
manna á svæðinu og í gær sökuðu
íranar Bandaríkjamenn um að trufla
radar írana til að írakar geti óhindr-
að gert flugárásir á skip undan
ströndun írans.
íranskir hraðbátar réðust í morgun
á olíuflutningaskip frá Saudi-Arabíu
á Persaflóa skammt undan ströndum
Dubai. Ekki urðu nein meiðsl á
mönnum og skemmdir urðu litlar.
Gat skipið haldið áfram ferð sinni til
Dubai.
Árásin í gær á skip frá Maldíveyj-
um, sem var með farm af brenni-
steini til Indlands, fylgdi í kjölfar
Baríst við eldinn um borð i flutningaskipi frá Maldíveyjum. Skipið varð fyr-
ir árás írana á Persaflóa í gær. Simamynd Reuter
Lík eins lögreglumannanna er urðu fyrir skotárás í San Salvador i gær.
Símamynd Reuter
Lögreglumorð í El Salvador
Þrír lögreglumenn voru skotnir til
bana í höfuðborg E1 Salvador í gær.
Lögreglumennirnir, sem voru borg-
aralega klæddir, voru á ferð í bíl
þegar byssumenn létu skothríð dynja
á þeim. Lögreglukona, sem einnig
var í bílnum, slasaðist alvarlega.
Árásarmennirnir komust undan.
Árásin átti sér stað skammt frá
sendiráði Bandaríkjanna í San
Salvador og er talið aö vinstrisinnað-
ir skæruliðar hafi verið að verki.
Árásir á lögregluna í E1 Salvador
hafa verið margar á þessu ári og
hafa skæruliðar hótað að fjölga þeim
enn.
Rússi tekinn fyrir njósnir
Meðlimur sovésku sendinefndar-
innar hjá Sameinuðu þjóöunum var
í gær handtekinn af bandarískum
yfirvöldum sakaður um njósnir.
Honum var sleppt þar sem hann
kvaðst njóta friðhelgi sendiráðs-
starfsmanna, að því er Perez de
Cuellar, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, greindi frá í gær.
Aðalritarinn gat ekki um nafn þess
sem handtekinn var. Aðspurður um
hvort maðurinn hefði verið hand-
tekinn vegna meintra njósna sagðist
Perez de Cuellar hafa heyrt þá
ástæðu nefnda. Hann gat ekki stað-
fest þá fregn að Sovétmanninum
hefði verið vísað úr landi.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins
vildi ekki staðfesta fréttina en sagði
að málið væri í rannsókn. Sendi-
herra Sovétríkjanna vildi ekki tjá sig
um málið.
í ágúst í fyrra var sovéskur starfs-
maður Sameinuðu þjóðanna hand-
tekinn í New York og hann sakaður
um að hcifa tekið við leynilegum
skjölum. Viku seinna var bandaríski
blaðamaðurinn Daniloff handtekinn
í Moskvu. Þeir voru báðir látnir laus-
ir.
SÍRTTHXU Jólagjöfin sem gleður
*■■■**" alla á aldrinum 5-105 ára
Hér er
lausnin á
jolagjofinni!
Sex tölublöð
Sígildra sagna
saman í möppu.
HEIMSINS BESTU
BÓKMENNTIR
TÁKN HF.
Fjölmiðlunar- og kynningarþjónusta
Bókaútgáfa
Klapparstíg 25-27, Reykjavík. Sími 621720