Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 14
14
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
Neytendur
Hvað kosta
Viö könnuðum verö á jólastjörn-
um og hýjasintura i vikunni.
Ætlunin var einnig að athuga með
verð á túlípönum á lauk, svokölluð-
um Brillant Star, en þeir reyndust
hvergi fást nema á tveimur stöðum.
Ekki er þó loku fyrir það skotið að
þeir berist íyrir jólin.
Jólastjömur em að verða upp-
seldar viöast hvar. Þær fengust því
á raun fjölbreyttara verði áður,
aöeins era tekin verð á þeira jóla-
stjömum sera eftir eru.
Hýjasintur eða goðaliþur fást
yflrleitt aðeins í tyrsta flokki. Þó
eru þær til í öðrum flokki og getur
verið að þær fáist stærri síðar.
í meðfýlgjandi súluriti má sjá
verð á hverri býjasintu í fyrsta
flokki. Þær fást sumstaðar í öðrum
flokki og eru þá að sjálfsögðu ódýr-
ari. Lægst var verðið á fyrsta flokks
hýjasintu í Grænu höndinni þar
sem hún kostar kr. 145. Hæsta
verðið var hins vegar í Blómaböll-
inni þar sem hýjasinta kostar kr.
195. -PLP
Verðáhýasintum
Hýasintur eða goðaliljur eru mjög
vinsælar í jólaskreytingar.
Blómahöllin
Blómogávextir
Hraun
Stefánsblóm
ígulkerið
Alaska
Blómast. Friðfi
Dögg
Garðshom
Vor
Blómaval
Græna höndin
Jt
Jólablómin fleiri en margur hugði
Við höfðum áhuga á að vita sitt-
hvað um jólablóm og snerum okkur
því til Kristjáns Inga Jónssonar hjá
Blómálfmum og hann veitti okkur
góðfúslega eftirfarandi upplýsingar.
Jólastjarna
„Til að halda jólastjörnu fallegri
þarf að geyma hana á björtum stað
og ekki of heitum. Það er mikilvægt
að halda henni rakri, án þess þó að
rennbleyta hana. Það er nær ómögu-
legt að fá hana til að blómstra á nýjan
leik, en hún er fjölær og þar sem hún
vex villt getur hún náð átta til tíu
metra hæð. Ef fólk vill eiga hana
áfram græna þarf að klippa hana
niður.“
Hýjasintur og túlípanar
„Hýjasintu þarf að velja sem lokað-
asta. Henni er yfirleitt plantað í mosa
og þarf að vökva hana vel, án þess
að bleyta hana um of. Hún er fljót
að þroskast og ganga yfir í hita þann-
ig að hún þyrfti aö vera á svölum
stað, t.d. viö opinn glugga.
Það er hægt að setja niður laukinn
úti í garði síðar. Þá er blómið skoriö
af, blöðin látin standa og vökvað vel.
Þaö er ágætt að vökva með veikri
áburðarupplausn þar til blöðin
visna. Þegar það gerist er laukurinn
tekinn upp og þurrkaður. Síðan er
hægt að planta lauknum út. Það þarf
að gerast á haustin, svona þremur
vikum áður en frost kemur í jörðu.
Túlípanar þurfa svipaða meðferð
og hýjasintur. Hitinn er banabiti fyr-
ir þessi blóm og þarf því að geyma
þau á köldum stað. ísskápurinn er
hins vegar fullkaldur þannig að yfir-
leitt verður að láta opinn glugga
nægja.“
Einir
„Eininum er best að halda sem
*
LAZERBYSSUR
Tvær í setti
Verð kr. 2.900,-
TÆKNILAND
Laugavegi 168 - sími18055
Blómálfurinn á Vesturgötu er í jólaskapi. DV-myndir BG
mest rökum, jafnvel að úða hann
einu sinni til tvisvar í viku. Hann er
útiplanta í Evrópu þannig að hann
þarf að geyma á svölum og rökum
stað. Það er mjög gott að geyma hann
í garð- eða glerhýsi. Hann kostar
400-2.500 kr. eftir stærð.“
Bergfléttur
„Bergfléttur eru að mörgu leyti þægi-
legustu jólablómin. Þegar jólin eru
hðin er bara að taka af þeim skreyt-
Flamengóblóm í pottum.
ingamar og þá er komin hin falleg-
asta stofuplanta. Þær kosta skreyttar
1.050 kr.“
Flamengóblóm
„Flestir eru famir að þekkja af-
skorin flamengóblóm. Nú fæst litli
bróðir þessara blóma í pottum. Þetta
er ágæt stofuplanta sem ber
skemmtileg, lítil, rauð flamengó-
blóm. Slíkt blóm kostar 1.650 kr.“
Alpafjólur og alparósir
„Alpaíjólur og alparósir eru að
verða mjög vinsælar sem jólablóm.
Fjólan kostar í kringum 500 kr. og
rósin kostar 600-850 kr. eftir stærð.
Þetta era ekta jólablóm.“
Jólabegónía
„Jólabegónía hefur lítiö verið not-
uð hér á landi sem jólablóm en hún
er mjög vinsæl í nágrannalöndunum.
Ég hef ekki getað fengið hana en hún
myndi kosta eitthvað í kringum 500
krónur."
-PLP
Einirinn virðist hafa verið þekktari
hér sem jólaplanta áður ef marka
má jólasöngva eins og „Göngum
við i kringum einiberjarunn... “