Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Side 17
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
17
Lesó
Subaru- og
Mitsubishi-
bílamir
B.Ó. skrifar:
Gamalt máltæki segir: Ekki er
sama Jón og séra Jón. Þaö segir sína
sögu þegar forstjórar FÍB og Bif-
reiðaeftirlitsins hrópa á torgum, eftir
aö hafa kokgleypt skeyti umboðs-
manns Subarubílanna í Noregi, aö
bílamir séu ónýtir. Þeir hafa greini-
lega gleymt fréttum sjónvarpsins frá
Noregi (Norömenn virðast vafasamir
í meira lagi í fréttaflutningi) um heið-
ursmanninn Stefán J. Stefánsson.
Sjónvarpiö baöst afsökunar þegar
hið sanna kom í ljós og eru meiri
menn fyrir.
Þaö skal tekiö fram að hér er um
heiðvirt fólk aö ræða. Hekla, viröu-
legt fyrirtæki, og hins vegar fjórir
aðilar, læröir bílvirkjar, báðir hafa
þeir atvinnu af aö flytja inn og selja
bíla og önnur farartæki og veita auð-
vitað forstjórum FÍB og Bifreiðaeftir-
litsins atvinnu.
Dettur þeim eða nokkrum í hug að
þessir aðilar leggi tugi miUjóna eða
aleiguna í að kaupa ónýta bíla? Sem
fagmenn eru þeir búnir að grand-
skoða hvem bíl. Mér finnst það jaðra
við atvinnuróg hjá forstjórunum að
gefa yfirlýsingar um bíla sem þeir
hafa aldrei séð, en fara eftir bréfi
umboðsmanns bílanna í Noregi. Það
finnst mér vægast sagt vafasamt.
Hvar eru eftirlitsmennimir með
hugann þegar litið er til tryggingafé-
laganna sem selja alla sína tjónabíla
til ýmissa „laghentra" manna, sem
rétta og laga þá og selja síðan á göt-
una á ný? Má segja að þar séu
háskagripir á ferð? Eða þau hundruð
notaöra bíla er keypt hafa verið til
landsins frá ýmsum löndum. Veit
nokkur í hvemig ástandi þeir era?
Við vitum að þeir efnuðu kaupa
nýju bílana. Tveimur eða þremur
árum seinna kaupa þeir efnaminni
notuðu bílana svo að þeir fyrmefndu
geti keypt sér nýjan bíl. Nú, þegar
þeir efnaminni fá tækifæri til að
kaupa einnig nýjan bíl, fyrir sann-
gjarnt verð, þá hrópa þessir forstjór-
ar: „Nei! Þið skuluð áfram kaupa
saltmenguðu bílana.“
Að lokum: Fjölmiðlar, vandið ykk-
ur í fréttaflutningi og kynnið ykkur
málin frá báöum hliðum, sérstaklega
Stöð 2, sem staðfesti að Subaru bíl-
amir yrðu settir í lögbann. Hvaðan
er sú frétt komin?
P.S. Góðir blaðamenn eru næmir fyr-
ir réttlætinu en hinir setja kíkinn
fyrir biinda augað.
Stjaman
bregst
ekki
Rannveig skrifar:
Hvað er betra en góð tónlist og
skemmtilegt spjall þegar jólaundir-
búningurinn er hafinn? Útvarpsstöð-
in Stjaman bregst ekki í þessu frekar
en fyrri daginn.
Síðastliðinn laugardag (5. des.) stóð
ég í miklum framkvæmdum í nýju
búðinni minni í Breiðholtinu og
hlustaði ég samfleytt á Stjömuna frá
klukkan 13.30 til kl. 18.30 þann dag.
Ég get ekki annað en þakkað þeim
Jóni Axeli og þeim nöfnun, Bjama
Hauki og Degi fyrir frábæran laugar-
dag.
Þessir frekar leiðinlegu hlutir, sem
ég var að vinna við í búð minni þenn-
an dag, urðu bara skemmtilegir fyrir
vikið. Svo vil ég þakka fréttastofu
Stjömunnar fyrir skemmtilegar
fréttir undanfarið.
Ég vona svo sannarlega aö stöðin
eigi eftir að festa sig vel í sessi og enn
betur en hún hefur nú gert. - Afram
Stjömufólk, áfram Stjama!
Hundruð bila eru keypt árlega (rá ýmsum löndum
HANN VEIT
HVAÐ HANN
SYNGUR
H KfS
Úrval
HANDHÆGT OG GÖIT
Sanitas
Gleðfleg jól