Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987. LUKKUDAGAR FYRIR NÓVEMBER 1987 ‘1.76416 2.27256 3.65509 4.30551 5.32473 6.40033 7.20816 8.32469 9.58082 10.32474 11.21907 12.27255 13. 2563 14.5815 15.52582 16.76076 17.75882 18.44590 19.65586 20.9307 21.18736 22.32752 23.32365 24.23351 25.28399 26.60245 27.3581 28.49340 29.20049 30.17658 TIL AFGREIÐSLU STRAX ÆÐISLEGIRINNISKÓR Mjúkir og þægilegir. Litir: brúnn, grár, rauður og blár. Þetta eru Papuffi afaskórnir og kosta aðeins 695,- Þeir eru fin jólagjöf fyrir barnabarnið. Sendum í póstkröfu FLEX Laugavegi 48, sími 13930 Flatahrauni 29, 220 Hafnarfjörður. sími 91-651800 Menning „Eg er a leið til landamæra“ Heiörekur Guömundsson: Landamæri. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987. í fáeinum eftirmálsoröum meö þeim kvæðum sem nú birtast segir Heiðrekur: „Fyrsta ljóðabók mín, Arfur öreiganna, kom út 1947 og þar var elsta kvæðið 10 ára gam- alt. Ég er því búinn að fondra við ljóðagerð í háifa öld og er nú mál að linni.“ Af þesum orðum má ráða að skáldið hugsi sér að láta nú staðar numið - hætta að yrkja. Þessi nýja bók ber þess samt lítil merki að það sé knýjandi þörf - það er nú síður en svo. Heiðrekur kaUar hana Landamæri. Með því vísar hann til þess að ævi hans hallar nú að átt- ræðu og auðvitað er það hár aldur manni sem ekki hefur gengið heill til skógar síðustu áratugina. En menn eldast nú ekki allir með sama hætti og ég get ekki betur séð en þeir líkamspartar sem helst nýtast mönnum til ljóðagerða haldi vel sínu hjá Heiðreki Guðmundssyni í þessum síðustu ljóöum. Ég er hreint ekki viss um að hann hafl ort öllu betur í annan tíma. Auðvit- aö breytast ljóðin með aldrinum svo að þau verða lítt sambærileg þegar hálfa öld ber á milli, og hvað eina á sitt markaða skeið á manns- ævinni - líka ljóðin. Manni kemur í hug vísa annars skálds: Láttu hug þinn aldrei eldast - eða hjartað Vinur aftansólar sértu sonur morgunroðans vertu. Heiðrekur Guðmundsson heldur þessi boðorð af fullum trúnaði og reisn í þessari bók, svo aðdáun hlýtur að vekja, einkum jafnaldra hans. Hér er Heiðrekur „vinur aft- ansólar" en þó enn dyggur sonur morgunroðans. Hugur hans er enn ÁHEIT TIL HJÁLPAR GfRÓNflMERtÐ 62 • 10 • 05 KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVÍK © 62 10 05 OG 62 35 50 Verum viðbúin Heiðrekur Guðmundsson. Bókmenntir Andrés Kristjánsson frjór og hvass, hver ályktun skýr og markvís, fegurðarskynið sár- næmt og samleikur máls og skáld- sýnar nánari en nokkru sinni fyrr. Snorri Hjartarson kallaði kvöldljóð sín Hauströkkrið yfir mér, Heið- rekur nefnii* sín Landamæri og segir: Ég er á leið til landamæra aldraður maður og einn á ferð. Það er mistur framundan og fátt um kennileiti, að baki mér bjarmar enn af degi. Þar hverfa þeir einn af öðrum áningarstaðir mínir síðast við sjóndeildarhring. Þessi ljóð Heiðreks eru mörg hver brot úr ferðasögunni til landamær- anna. Hann segir í einu þeirra. Skáld sem óttast bilið breiða brúar það í ljóðagerð. Það er gömul og ný saga skálda. En þrátt fyrir þessi einlægniorð er óttinn ekki það sem setur mestan svip sinn á þessi kvöldljóð heldur rósemi, yfirvegun og skörp skáld- sýn. Skáldið er ekki að fárast að leiðarlokum, ekki að forðast það sem að sækir heldur gengur til móts viö það og nýtur þess sem þetta æviskeið hefur að bjóða, fundvís á töfra þess og sáttmála við liðnar stundir. Hann uppgötvar að þetta æviskeið á líka sína töfra, jafnvel nýtt fegurðarskyn svo að margt blasir við í nýju og skýrara ljósi: Ég dró mig í hlé þegar heilsan varð tæp. Og brugðið getur enn til beggja vona. - Nú bíö ég og horfi á himin og jörð í hljóðri spum: Var öll þessi fegurð hér áður? Þrátt fyrir allt á þessi tíð fagnað- argjafir að færa skáldi sínu. Þótt atburður sá sem gerðist í gær sé gleymdur á næsta degi glitra æskuminningarnar viða í þessum Ijóðum í nýjum og mildum Ijóma, eins og eðlilegt er öldnu skáldi og það er jafnvel hægt að hlakka til andvökunætur: Ég ætla að vera einn á ferð í nótt og endurlifa það sem hefur skeð: Og þótt mig beri lítið eitt af leið, þá hggja allir vegir heim til þín. Það er líka hægt að bera saman tímana tvenna og sýna aldir og augnablik í sjónauka örfárra visu- orða. Það hefur verið skipt um fjölmiðil í stofuhominu: Þar átti sér afdrep forðum elsta konan á bænum, sat með prjóna og sagði þér sögur og ævintýri. En farin.er hún að heiman í húsið tíi jafnaldra sinna. Þá sóttir þú sjónvarpstæki og settír í stofuhornið. Ekki mqira um það en brosglett- an í þessum línum er hörð og nokkuð nærgöngul. Þessi mjúku og sterku ljóö höfða flest mjögtil þeirra sem komnir em nokkuð til ára sinna og dijúgan spöl áleiðis til landamæranna - en hver er ekki á þeirri leið þegar alls er gáð, hver sem aldurinn er? Skáldið Heiðrekur Guömundsson hefur með þessari síðustu bók sinni tekið landróðurinn fagurlega og honum bregðast hvergi áratökin. Hugur hans skýrir og hann skynjar það ljóst sem fyrir ber, nýtur þess með rósemi og jafnvægi og leiðir hugsanir sínar og lífsmyndir úr hlaði í fagurbúnum skáldskap. Hann er enn þá ungur í máli, leyfir sér meira að segja að sveigja ofur- lítíð í átt tíl nýrrar Ijóðatísku og lætur endarímið laust, en gætir vei stuðla og hrynjandi. Og ljóðmál hans á allar sínar fegurstu tíðir til í þessum kvæðum. Með þessari Ijóðabók hefur Heiðrekur Guð- mundsson aukið nýjum og sterkum þætti í skáldskap sinn. A.K.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.