Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 44
56
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
Jarðarfarir
Carla Codling, fædd Morthens, lést
7. desember á sjúkrahúsi í Asker í
Noregi. Jaröarförin hefur fariö fram.
Tryggvi Jónsson, forstjóri, Einimel
__11, sem andaðist 11. desember, verö-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 21. desember
kl. 13.30.
Bjartmar Harry andaöist 10. des-
ember. Jarðarförin hefur farið fram.
Emil Jónasson lést 11. desember.
Hann var fæddur á Eiðum í Eiða-
þinghá þann 17. maí 1898, sonur
hjónanna Jónasar Eiríkssonar og
Guðlaugar M. Jónsdóttur. Eftir nám
í Eiðaskóla fór Emil til Seyðisíjarðar
í símritaranám á árunum 1923-24, en
réðst að því loknu til starfa hjá
Landssímanum á Seyðisfirði sem
— símritari og vann eftir það sleitu-
laust hjá þeirri stofnun til ársins 1967
aö hann sagði starfi sínu lausu fyrir
aldurs sakir. Hann giftist Brynhildi
Haraldsdóttur en hún lést árið 1969.
Þau hjónin eignuöust eina dóttur og
ólu einnig upp systurdóttur Bryn-
hildar. Útför Emils verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Tilkyrmingar
Eiðfaxi
Jólablað er kominn út. Þar er að finna
margar góðar greinar um hesta og hesta-
mennsku. Sigurður Sigmundsson skrifar
ritstjómarpistil um notkun Reiðhallar-
innar, Helgi Sigurðsson dýralæknir
skrifar um ormalyfsgjafir, athugasemdir
Volker Ledermans forseta FEIF um aðal-
fund FEIF birtar, Þórdís Iljálmarsdóttir
skrifar um ferð á HM í Austurríki í sum-
ar, og birt er grein um tamningar hesta
sem birtist fyrst áriö 1894. Fjallað er um
stofnun sérsambands hestamanna og
Hulda Brynjólfsdóttir skrifar grein um
íslenska hesta í Frakklandi. Rætt er við
Ólaf Sveinsson, Óla punkt sem er álitinn
vera töframaður og náttúrulæknir. Rætt
er við Jakobínu Sigurvinsdóttur á Akur-
eyri og Þorgeir Ingvason framkvæmdar-
stjóra Fáks og birt er framhaldssaga
Sigrúnar Björgvinsdóttur um Perlu.
; Einnig er birt ritgerð Ólafs Stephensen
amtmanns um hesta svo og leiðbeiningar
þeirra Guðmundar Guðmundssonar og
Carolinu van Hulst um varðveislu reið-
tygja. Aukin heldur eru í blaðinu ýmsar
smærri greinar og frásagnir.
Skák dv
-------------------------—------------------------------4_
Grfurleg spenna í heimsmeistaraeiirvíginu í Sevilla:
Karpov vann biðskákina
og endurheimti foiystuna
- Kasparov verður að vinna lokaskákina ídagtíl að halda heimsmeistaratitlinum
Karpov nægir jafntefli i dag til að endurheimta heimsmeistaratitilinn.
Askorandanum Anatoly Karpov
tókst að snúa á heimsmeistarann
Garrí Kasparov í 23. og næstsíðustu
einvígisskákinni í Sevilla sem tefld
var áfram í gær eftir að hún haföi
farið í bið. Eftir kynngimagnaða
spennu og mikið tímahrak á báða
bóga sat Kasparov uppi með
gjörtapaða stöðu. Þá höföu veriö
leiknir 57 leikir. Er Kasparov hafði
áttað sig á stöðunni eftir tíma-
hraksdansinn gafst hann upp með
beiskjublandið bros á vör. Þar með
náði Karpov forystu í einvíginu,
hefur 12 vinninga gegn 11 vinning-
um Kasparovs.
Tuttugasta og fjórða og síðasta
skák einvígisins verður tefld í dag.
Báðir hafa fengið þremur skákum
frestað eins og reglur keppninnar
heimila. Vopnin hafa nú snúist í
höndum Kasparovs. Hann hefur
hvítt í skákinni og verður aö leggja
allt í sölurnar til að ná frám sigri.
í raun stendur hann í sömu sporum
og Karpov fyrir skákina í gær. Það
verður áreiðanlega erfitt hlutskipti
fyrir hann að þurfa að leggja allt á
eitt peð eftir að hafa haft undirtök-
in í einvíginu svo lengi.
Fram .aö þessu hefur engum te-
kist að vinna lokaskákina í heims-
meistaraeinvígi og bjarga þar með
titlinum en einu sinni verður allt
fyrst. Stórmeistarar í Sevilla voru
þó ekki bjartsýnir fyrir Kasparovs
hönd. Enski stórmeistarinn Kenne
tók dýpst í árinni er hann sagði
möguleika Kasparovs á sigri ná-
kvæmlega enga.
Skákin í dag verður 120. einvigis-
skák þeirra félaganna. Staðan er til
marks um það hve mikið jafnræði
ríkir meö þeim: Tölurnar 59 'A-59 'A
benda a.m.k. ekki til þess að annar
sé verulega sterkari en hinn.
•En víkjum aftur að 23. skákinni.
Er hún fór í bið voru skiptar skoð-
anir meðal spekinga um það hvor
ætti betra taíl. Ljóst var aö staða
Karpovs var heilbrigðari og sterk-
ari til lengri tíma litið en Kasparov
haföi á hinn bóginn möguleika til
skyndisókna á kóngsvæng.
Biðleikur Karpovs var sá besti
og um leið eini leikurinn til að
treysta varnir kóngsins. Eftir hann
virtist Karfpov hafa betri færi en
staöan var engu að síður ákaflega
spennandi og vandtefld á báða
bóga. Þeir eyddu miklum tíma á
leiki sína og voru von bráðar lentir
í tímaþröng. Þá gerðist undrið:
Kasparov gat ekki á sér setið og
fórnaði hrók til að opna kóngsstöðu
Karpovs. Honum yfirsást bersýni-
lega baneitraður biskupsleikur og
skyndilega var staða hans ein rjúk-
andi rúst. Er hann gafst upp glumdi
lófatakið í Lope de Vega leikhús-
inu. Skákin var æsispennandi frá
upphafi tii enda og skákunnendur
mega áreiðanlega búast við svipuð-
um darraðardansi í dag.
Er 23. skákin fór í biö á miðviku-
dagskvöld var staðan þannig:
Kasparov hótar 41. - Dh4 og síðan
42. - H8f3! með alvarlegum afleið-
ingum. Karpov tekst að hindra
þetta með snjöllum biðleik.
41. Hgl! h5
Hróksleikur Karpovs rýmdi til
fyrir biskupnum og svarið við 41.
- Dh4? hefði því verið 42. Bel og
vinnur skiptamun. Kasparov
hyggst koma jaðarpeði sínu til h4
Skák
Jón L. Árnason
og taka g3 reitinn af hvíta biskupn-
um eöa drottningunni.
42. Ha5 De7 43. Hbl
Vitaskuld er hrókur hvíts óvirk-
ur á gl en þar ver hann engu að
síður kóngsstöðuna. Von bráðar
verður Karpov að snúa hróknum
heim. Engu er líkara en aö báðir
þreifi fyrir sér í næstu leikjum.
Þrátt fyrir andvökunótt er eins og
þeir hafi enn ekki komist að sann-
leikanum í stöðunni og þeir eyddu
miklum tíma á leiki sína.
43. - h4 44. Ha6 H8f7 45. Hc6 Df8 46.
Hgl
Kasparov hefur náð að þrefalda
á f-línunni og nú með drottninguna
aftast í röðinni. Aljekín, fyrrver-
andi heimsmeistari, kenndi þessa
aðferð en hann er einn af fyrir-
myndarskákmönnum Kasparovs.
46. - Be7 47. He6 Kh7 48. Bel
Auðvitað ekki 48. Hxe5? Bd6 49.
He6 H7f3! 50. gxf3 Hh2 mát. Hér
féll niður leikur í fréttaskeytum og
ég stóð í þeirri trú að hvítur hefði
leikið 49. Bcl. Þetta breytir engu
um framhald skákarinnar.
48. - Hfl 49. Bd2 Bc5 50. Hc6
Vendipunkturinn í skákinni. í
stað þess að bíða átekta og verja
lakari stöðu afræður Kasparov að
hleypa taflinu upp í tímahrakinu.
Máltækið „fórna fyrst og hugsa
svo“ getur stundum glapið menn
af leið.
50. - H7f3?? 51. gxf3 Hxf3 52. Hc7+
Reiknaði Kasparov aðeins með
52. De2 Hxh3 + 53. Kg2 d3! og svart-
ur vinnur? Karpov hefur aðra leið
í huga. Svartur getur nú hvorki
leikið 52. - Be7 vegna 53. Hxe7 +
Dxe7 54. Dxf3, né 52. - Kg8 vegna
53. Hxg6+ o.s.frv.
52. - Kh8
53. Bh6!
Þessi þrumuleikur gerir út um
sókn svarts. Eftir 53. - Dxh6 54.
Dxf3 yrði öllu lokið.
53. - Hxd3 54. Bxf8 Hxh3+ 55. Kg2
Hg3+ 56. Kh2 Hxgl t
Skömminni skárra var 56. - BxfB
en hvítur vinnur endataflið létt
með skiptamun yfir. Nú tapar
svartur manni.
57. Bxc5 d3
Og Kasparov gafst upp um leið.
Hrókinn má hvítur reyndar ekki
taka en eftir 58. Bb4 Hbl 59. d6! d2
60. Bxd2 Hb2 61. d7 Hxd2+ 62. Kh3
er svartur varnarlaus.
-JLÁ
Ekta danskt
jólaborð
O útbúið af Sigurgeiri Óskarssyni yfirmatreiðslu-
meistara sem við höfum fengið sérstaklega frá
Kaupmannahöfn til að laga jólamatinn fyrir okkui
í desember.
Hlaðborðið er alla virka daga frá kl. 12 til 14.30
og föstudag og laugardag frá 12 til 20.
Þorláksmessu frá 12 til 22.
Veitingahúsið
UXINN
Glæsibæ Sími 685660
ígærkvöldi____________________pv
Grethe Iversen afgreiðslumaður:
Auglýsingaflóðið yfirþyrmandi
Ég verð aö segja það að flest sem
ég sá af dagskrá gærkvöldsins var
af betra taginu. í gærkvöldi var dag-
skráin ótrufluð á Stöð 2 en það skipti
ekki máli fyrir mig þar sem afruglari
var því miður keyptur á mitt heimili
í fyrradag.
Ég kom það seint úr vinnu að ég
náði ekki nema restinni af fréttun-
um. Þar á eftir kom Kastljós í Ríkis-
sjónvarpinu, um doktorsritgerð
Sigrúnar Stefánsdóttur um hlut
kvenna í þjóðfélaginu. Sá þáttur var
alveg sérstaklega fróðlegur og góður.
Matlock horfi ég stundum á en að
þessu sinni fékk hann að víkja fyrir
viötalsþætti Bryndísar. Hún ræddi
við útlendinga sem búsettir eru hér
á landi, japanska konu og egypskan
karl, og hafði ég alveg sérstaklega
gaman af honum.
Auglýsingaflóðið, sem kom á milli
dagskrárhða, fór mikið í taugarnar á
mér og virðist sem dagskránni hafi
seinkað um heilan hálftíma á Ríkis-
sjónvarpinu vegna þess. Ég er alveg
handviss um aö svona mikið af aug-
lýsingum nær ekki til fólksins heldur
hefur öfug áhrif. Næst á eftir Bryn-
dísi náði ég restinni af Nýjustu tækni
og vísindum.
Þátturinn Leiftur frá Líbanon var
alveg sérstaklega góður og lærdóms-
ríkur og náðist alveg sérstök stemn-
ing upp í honum um ástandið í þessu
stríðshrjáða landi. Verst hvað hann
var seint á dagskránni svo ungt fólk
missti af honum.