Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 1
ABRACADABRA
Laugavegi 116
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
ÁRTÚN
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-03. Danssporið ásamt söngvurunum
Ömu Karis og Grétari. Á laugardags-
kvöldið verða nýju og gömlu dansarnir,
hljómsveitin Danssporið ásamt Örnu
Karls og Grétari.
BROADWAY
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
„Tökum lagið" með Skúla rafvirkja, Ei-
ríki Fjalari, Hallgrími ormi og Gulia litla
á fóstudagskvöld. Stórsýningin Allt vit-
laust á laugardagskvöld.
CASABLANCA
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
DUUS-HÚS
Fichersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
í Heita pottinum verður síðdegisdjass kl.
17 á laugardag. Á sunnudagskvöld leikur
Þór-Rún, landsins fremsta saxófón-dúó.
EVRÓPA
v/Borgartún
Hljómsveitin Greifamir leikur fóstudags-
og laugardagskvöld. Þetta verður í allra
síðasta skipti um óákveðinn tíma sem
Greifamir koma fram.
GLÆSIBÆR
Álfheimum
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi á
fóstudags- og laugardagskvöld. Opið kl.
22.-3.
HOLLYWOOD
Ármúla 5, Reykjavík
„Týnda kynslóðin" fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
HÓTELBORG
Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi 11440
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell
Suðurlandsbraut 2 Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fostudags- og laugardags-
kvöld. Kaskó leikur. Tískusýningar öll
fimmtudagskvöld.
HÓTEL ÍSLAND
Dansleikur á fóstudagskvöld. GuOárin
með KK laugardagskvöld. KK-sextett
leikur fyrir dansi.
HÓTEL SAGA, SÚLNASALUR
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Súlnasalur lokaður fóstudagskvöld. Á
laugardagskvöld verður í síðasta sinn
sýningin „Tekið á loft í Súlnasal til dæg-
urlanda". Ýmsar helstu stórstjömur
íslenskrar poppsögu síðustu tveggja ára-
tuga verða um borð og bera fram hugljúf-
ar og bráðfjörugar tónlistarkræsingar.
LEIKHÚSKJALLARINN
Hverfisgötu
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
LÆKJARTUNGL
Lækjargötu 2, sími 621625
Á fóstudags- og laugardagskvöld verður
leikin „tónlist Tunglsins". Bandaríski
látbragðs- og djassdansarinn Christian
Polos mun dansa þætti úr frumsamdri
sýningu, „Moving men“. Á sunnudags-
kvöld verður frumsýnd djass-danssýn-
ingin „Moving men“. Á undan og eftir
sýningunni munu Bjöm Thoroddsen og
Wjómsveit leika djasstónlist ásamt söng-
konunni Andreu Gylfadóttur.
ÚTÓPÍA
Suðurlandbraut
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholti, s. 23333
Þórskabarettinn Svart og hvítt á tjá og
tundri bæði fóstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Burgeisar leikur
fyrir dansi að lokinni sýningu.
ÖLVER
Álfheimum 74, s. 686220
Opið kl. 18-3 fóstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Program spilar frá
kl. 22 fimmtudaga til sunnudaga.
Kvikmyndasýning MÍR:
Ókunnugur með-
al okkar
Á sunnudag kl. 16.00 veröur sýnd
í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, sovésk
kvikmynd sem heitir því langa
nafni Einn af okkur meðal ókunn-
ugra, ókunnugur okkar á meöal.
Leikstjóri er hinn kunni kvik-
myndagerðarmaöur Nikita Mik-
halkov en með aðalhlutverkin fara
auk hans þeir Júrí Bogatyrév og
Anatólí Solonitsin.
Myndin gerist á tímum borgara-
stríðsins í Rússlandi eftir október-
byltinguna þegar matarskortur er
mikill og komvörur fást ekki
keyptar frá útlöndum nema gegn
skíragulli. Segir frá því er héraös-
stjórn ein sendir vænan sjóð af
gulli með lest til Moskvu vegna
kornkaupa en á leiðinni sitja hvít-
liðar fyrir lestinni og ræna gullinu.
Einn þeirra félaga, sem sendir voru
til að gæta gullsins á leiðinni, er
grunaöur um svik en hann ákveður
að sanna tryggð sína við málstað
byltingarinnar meö því að hafa
einn uppi á gullinu.
Skýringar með myndinni eru á
ensku.
Heiti potturinn:
Olver breytir
um svip
í kvöld og annað kvöld mun
hijómsveitin Program leika fyrir
dansi í Ölveri í Glæsibæ. Nú er
búið að setja upp tíu feta biljarð-
borð á staðnum og koma upp
aðstööu fyrir pílukast, auk þess
sem töfl hafa verið keypt á staðinn.
Þeir sem hafa gaman af þessum
leikjum geta því brugðiö undir sig
betri fætinum og skroppið í Ölver.
Saxó-
fóndjass í
Duus
Á sunnudagskvöld verða að
venju djasstónleikar í Heita pottin-
um í Duus-húsi. Þar koma fram
tveir kunnir saxófónleikarar, þeir
Rúnar Georgsson og Þorleifur
Gíslason, ásamt tríói Kristjáns
Magnússonar.
Rúnar hefur um þriggja áratuga
skeið verið einn kunnasti saxófón-
leikari landsins. Hann hefur sþilað
með aragrúa hljómsveita, leikið
inn á fjölda hljómplatna og komið
fram með ýmsum þekktum erlend-
um djassleikurum.
Þorleifur varð ekki verulega
Christian Polos ásamt þeim Jaoa Silva, Björgvin Friðrikssyni, Sigurði
Gunnarssyni, Arnóri Diegó og Viðari Maggasyni.
Lækjartungl:
Frumsýiiing á jass-danssýning-
unni „Mooving Man“
Sunnudagskvöldið 31. janúar kl.
22-01 verður jasskvöld í Lækjar-
tungli, Lækjargötu 2. Frumsýnd
verður jass-danssýningin „Moving
Man“, flytjendur eru sex karl-jass-
dansarar undir stjóm Bandaríkja-
mannsins Christian Polos.
Sýningin er í þremur þáttum og
tekur um 35 mínútur í flutningi. Á
undan sýningunni munu Bjöm
Thoroddsen og hljómsveit leika
jasstónlist ásamt söngkonunni
Andreu Gylfadóttur. Grínistinn
Diddi mun einnig troða upp með
óvænt atriði.
Bandaríkjamaðurinn Christian
Polos kemur til íslands á vegum
Kramhússins en hann mun kenna
þar um nokkurra vikna skeið. Pol-
os hefur á undanfómum ámm
kennt dans víða um Bandaríkin og
undanfarin sjö ár hefur hann starf-
að og dansað hjá Inpols Dance
Company í Boston.
Evrópa:
Greifamir í allra
síðasta sinn
Þorleifur.
Rúnar.
þekktur meðal djassáhugamanna
fyrr en seint á áttunda áratugnum
en vakti fljótt athygli fyrir vald sitt
á hljóðfærinu. Hann hefur í mörg
ár spilað með kvartett Kristjáns
Magnússonar píanóleikara og síð-
astliöin ár hefur hann verið einn
af aðalsólóistum Stórsveitar Rikis-
útvarpsins.
Með Rúnari og Þorleifi spila þeir
Kristján Magnússon á píanó, Tóm-
as R. Einarsson á kontrabassa og
Guðmundur R. Einarsson á
trommur.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
Greifarnir skemmtu á veitinga-
staðnum Evrópu um síðustu helgi.
Þá stóð til að það yrði í síðasta
skiptið sem þeir kæmu fram áður
en þeir færu í frí en vegna fjölda
áskorana ákvaö hljómsveitin að
skemmta gestum Evrópu um þessa
helgi og seinka þar með fríinu um
viku. Þetta verður því í allra síð-
asta skiptið sem þeir koma fram á
höfuðborgarsvæðinu í bili.
Þrálátur orðrómur hefur verið á
sveimi í höfuðborginni um að
Greifamir séu að leggja upp laup-
ana. Þegar þeir voru spurðir
þessarar spumingar kváðu þeir nei
við, sögðust einungis vera á leið-
inni í langt frí.
Greifarnir á svióinu í Evrópu.