Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Page 4
22
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
27
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi sunnudag 31. jan. 1988.
Árbæjarprestakall: Barnasamkoma í
Foldaskóla í Grafarvogshverfi laug-
ardag kl. 11 árdegis. Bamasamkoma
í Árbæjarkirkju sunnudag kl. 10.30
árdegis. Guðsþjónusta í Árbæjar-
kirkju kl. 14. Áltarisganga. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Borgarspítalinn: Guðsþjónusta kl.
10.30. Sr. Tómas Sveinsson.
Breiðholtsprestakall: Barnasam-
koma kl. 11 í Breiöholtsskóla.
Guðsþjónusta kl. 14 í Breiðholts-
skóla. Organisti Daníel Jónasson. Sr.
Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnasamkoma kl.
11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Elín
Anna Antonsdóttir. Guðsþjónusta kl.
14, Organisti Guðni Þ. Guömunds-
son. Æskulýðsfélagsfundur þriðju-
dagskvöld. Félagsstarf aldraðra
miðvikudagseftirmiödag. Sr. Ólafur
Skúlason.
Digranesprestakall: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu við Bjarnhóla-
stíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Dómkirkjan: Laugardagur: Bama-
samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Egill
Hallgrímsson. Sunnudagur: Messa
kl. 11. Orgelleikur í 20 mín. fyrir
messuna. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Messa kl. 14. Sr. Þórsteinn Ragnars-
son prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Þóri Stephensen. Leik-
menn flytja bænir og ritningarlestra.
Sr. Þórir Stephensen. Dómkórinn
syngur við báðar messurnar. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónustur
falla niður vegna framkvæmda við
kirkjuna. Sóknarprestar.
Fríkirkjan í Reykjavík: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðspjallið í
myndum. Barnasálmar og smá-
barnasöngvar. Afmælisbörn boðin
sérstaklega velkomin. Framhalds-
saga. Við píanóið Pavel Smid. Sr.
Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
11. Messa með altarisgöngu kl. 14.
Organisti Árni Arinbjamarson. Sr.
Guðmundur Öm Ragnarsson.
Hallgrímskirkja: Laugardagur: Sam-
vera fermingarbarna kl. 10. Barna-
samkoma og messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Kvöldmessa kl. 17.
Sr. Ragnar Fjalar Lámsson. Þriðju-
dagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum. Fimmtu-
dagur: Fundur Kvenfélags Hall-
grímskirkju kl. 20.30.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjömsson.
Háteigskirkja: Messa kl. 10. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Arngrímur
Jónsson. Messa kl.. 14. Sr. Tómas
Sveinsson.
Hjallaprestakall i Kópavogi: Barna-
samkoma kl. 11 í messusal Hjalla-
sóknar í Digranesskóla. Foreldrar
eru hvattir til að fylgja börnunum.
Almenn guðsþjónusta kl. 14. í messu-
salnum. Sóknarfólk er hvatt til
þátttöku. Kirkjukór Hjallasóknar
syngur. Organleikari og kórstjóri
Friðrik V. Stefánsson. Sr. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KársnesprestakalhBarnasamkoma í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11 ár-
degis. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14. Opið hús í safnaðar-
heimilinu Borgum miðvikudag 3.
febrúar kl. 20.30. Sr. Ámi Pálsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund bamanna kl. 11.
Söngur - sögur - myndir. Þórhallur
Heimisson guðfræöinemi og Jón
Stefánsson sjá um stundina. Guðs-
Nýlistasa&iið:
Samsýning fjögurra
þekktra listamanna
Fjórmenningarnir, sem um ræð-
ir, eru þeir Alan Johnson, sem býr
í Edinborg en sýnir reglulega í
Köln, Tokýo og New York en var
síðast með sýningu á Orkneyjum,
Franz Graf en hann hefur verið
meðal mest áberandi ungra lista-
manna frá Austurríki og sýnt víða,
heima og erlendis, Jussi Kivi, sem
sýnt hefur víða fyrir Finnland,
meðal annars á finnskri samsýn-
ingu á Kjarvalsstöðum árið 1986,
og Austurríkismaðurinn Wolfgang
Stengl sem er vel þekktur fyrir
rýmismálverk.
Fjórmenningamir sýndu þessar
myndir í Ganginum, Rekagranda
8, á síðasta ári. Tvær þeirra voru
sérstaklega unnar fyrir Ganginn
en hinar trúlega hugsaðar fyrir
hann og verkin valin í samræmi
við það.
Nú hefur verið ákveðiö að setja
þessar sýningar upp í Nýlistasafn-
inu til að fleiri fái að njóta þeirra
og búa til úr þeim eina sýnirigu.
Sýningin er opin til 14. febrúar,
virka daga frá kl. 16-20 og um helg-
ar frá kl. 14-20.
Eitt af þeim verkum sem Franz Graf sýnir í Nýlístasafninu.
Bjami Þór með sýningu á Skaganum
Bjarni Þór Bjarnason opnar mál-
verkasýningu að Skólabraut 27,
Akranesi, á morgun, 30. janúar, kl.
16.00. Á sýningunni verða um 20
myndir, teikningar, olíukrít- og ol-
íumálverk.
Bjami Þór stundaði nám í kenn-
aradeild Myndhsta- og handíða-
skóla Islands og Myndhstaskólan-
um í Reykjavík. Hann hefur áður
haldið tvær einkasýningar og tekið
þátt í tveimur samsýningum.
Glugginn:
Ragna Róbertsdóttir sýnir
í kvöld klukkan 21.00 opnar
Ragna Róbertsdóttir sýningu í
Glugganum, Glerárgötu 31, Akur-
eyri. Ragna fæddist í Reykjavík
1945 og útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1970 og
stundaði framhaldsnám við Konst-
fac í Stokkhólmi 1970-1971.
Ragna hefur alla tíð fengist við
textíl, í fyrstu á hefðbundinn hátt
en nú í seinni tíð hefur hún getið
sér gótt orð fyrir nýstárlega skúlp-
túra sem em á þessari sýn-
ingu.
Ragna hefur sýnt reglulega frá
1974 bæði hér heima og erlendis.
Borgarlistamaður Reykjavikurborgar, Ragna Róbertsdóttir, sýnir á Akur-
eyri.
Hún var valin borgarlistamaður
Reykjavíkurborgar 1987.
Sýning Rögnu er opin daglega
nema á mánudögum frá kl. 14.00-
18.00. Henni lýkur sunnudaginn 7.
febrúar.
Listasafn lslands.
Listasafn íslands:
Opnunarhátíð
Laugardaginn 30. janúar verður safna-
bygging Listasafns íslands að Fríkirkjuvegi
7 vígð við hátíðlega athöfn. Við þetta tæki--
færi flytja ávörp Guðmundur G. Þórarins-
son, formaður byggingarnefndar safnsins,
Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráð-
herra og Bera Nordal, forstöðumaður safns-
ins. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, mun því - næst opna sýninguna
Aldarspegih - íslensk myndlist í eigu safns-
ins 1900-1987.
Safnið verður opnað formlega fyrir al-
menning sunnudaginn 31. janúar kl. 11.30 og
verður opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 11.30-16.30.
Kjarvalsstaðir:
Sj álfsmyndir
íslenskra listamaima
Flestalhr hstamenn hafa einhvern tímann
á ferlinum htið í spegil og fest eigin ásjónu
á mynd. Margir hafa þó gert það sem æfingu
eða með þeim ásetningi einum að ná andhts-
svipnum. Aðrir, og þeir eru mun færri, hafa
unnið markvisst og gert með reglulegu milli-
bih raunverulegar sjálfsmyndir sem eru
afgerandi hluti af sköpun og frumleika við-
komandi listamanna.
Sunnudaginn 31. þessa mánaðar verður
opnuð að Kjarvalsstöðum sýning sem ber
yfirskriftina Sjálfsmyndir og er henni ætlaö
að sýna úrval sjálfsmynda eftir íslenska
myndlistarmenn frá 19. öld fram th vorra
tíma. Hér er ekki um sögulegt yfirht eða
fræðilega úttekt að ræða heldur er stiklað í
gegnum íslenska listasögu og reynt eftir
mætti að velja margbreytUeg og góð verk hs-
tunnendum til skemmtunar og yndisauka.
Norræna Húsiö:
Tumi
sýnir
mál-
verk
Á morgun, laugardag, kl. 16.00
verður opnuð í kjaUara Norræna
hússins sýning á málverkum eftir
Tuma Magnússon. Myndirnar eru
málaðar á síðustu 18 mánuðum.
Tumi hefur haldið margar einka-
sýningar og tekið þátt í samsýning-
um á íslandi og erlendis frá því
1978. Sýningin stendur tíl 14. febrú-
ar og er opin daglega frá kl. 14-19.
Málverk eftir Tuma Magnússon.
Næstkomandi sunnudag mun
Guðni Franzson klarinettuleikari
halda einleikstónleika á sal Norr-
æna hússins. Þar mun hann leika
verk samin fyrir einleiksklari-
nettu, flest samin á síðustu árum,
Norræna húsið:
Bagatellur
ýmist með eða án aðstoðar segul-
banda.
Þeir höfundar sem eiga verk á
efnisskránni eru Þórólfur Eiríks-
son, Ath Ingólfsson, Z. Karkowski,
Hákon Leifsson, Ingvar Lindholm,
Luciano Berio og Igor Stravinsky.
Aðrir þátttakendur í tónleikunum
verða spendýr hafsins sem mörg-
um hefur orðið svo tíðrætt um að
undanfornu.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.00.
Nýlistasafrúð:
Ingólfur Amarson sýnir lágmyndir
og teikningar
Þann 30. janúar opnar Ingólfur
Arnarson sýningu í Nýhstasafninu
við Vatnsstíg. Ingólfur nam við
hstaskólana í Reykjavík og stund-
aði framhaldsnám í Hollandi.
Síðustu ár hefur hann lagt stund á
myndlist, sýnt hérlendis og erlend-
is, auk þess sem hann er kennari
við Myndhsta- og handíðaskóla ís-
lands.
Verkin á sýningunni í Nýhsta-
safninu eru unnin á síðastliðnum
tveimur árum, bæði lágmyndir og
teikningar. Einnig veröur til sýnis
bókin Tvær bækur sem gerð er í
samvinnu við Eggert Pétursson og
gefin út af Hong Kong Press í
Gautaborg.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 16-20 en um helgar frá kl. 14-20.
Henni lýkur 20. febrúar.
þjónusta kl. 14. Einsöngur Ragn-
heiður Hah. Organisti Oddný
Þorsteinsdóttir. Prestur sr. Sig.
Haukur Guðjónsson. Sóknarnefndin.
Laugarnesprestakall: Laugardagur
30. jan.: Guðsþjónusta í Hátúni lOb,
9. hæð kl. 11. Umræðudagur um
málefni fjölskyldunnar verður í safn-
áðarheimili kirkjunnar kl. 13. Sig-
urður Pálsson, deildarstjóri í
Námsgagnastofnun, flytur erindi um
uppeldismál en hann mun einnig
stýra umræðum. Umræðudeginum
lýkur með kaffisopa kl. 15.30. Sunnu-
dagur: Guðsþjónusta fyrir alla fjöl-
skylduna kl. 11. Börnin fá sérstaka
fræðslu. Kór Öldutúnsskólans í
Hafnarfirði syngur. Mánudagur 1.
febrúar: Aðalfundur Kvenfélags
Laugarnessóknar verður kl. 20.00 í
Safnaðarheimili kirkjunnar. Sóknar-
prestur.
Neskirkja: Laugardagur: Æskulýðs-
fundur fyrir 11-12 ára kl. 13. Sam-
verustund aldraðra kl. 15. Mjöll
Snæsdóttir fornleifafræðingur segir
frá uppgreftri að Stóru-Borg. Sunnu-
dagur: Bamasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubflinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Orgel- og kórstjóm Reynir Jónasson.
Guðmundur Óskar Ólafsson. Mánu-
dagur: Æskulýðsfélagsfundur kl.
19.30. Þriðjudag og fimmtudag: Opið
hús fyrir aldraða kl. 13-17. Miðviku-
dagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20.
Guðm. Óskar Ólafsson.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Altaris-
ganga. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Eirný og Solveig Lára.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Sig-
hvatur Jónasson. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Kaffisopi á
eftir. Æskulýðsfélagsfundur mánu-
dagskvöld kl. 20.30. Opið hús fyrir
10-12 ára þriöjudag kl. 17.30. Sóknar-
prestur.
Kirkja óháða safnaðarins: Guðsþjón-
usta kl. 11. (Ath. breyttan messu-
tíma). Skírð verða 2 börn. Organisti
Heiðmar Jónsson. Þórsteinn Ragn-
arsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Barna- og
fjölskyldusamkoma kl. 11. Guðs-
þjónusta í kirkjunni kl. 14. Guðs-
þjónusta að Sólvangi kl. 15.15. Orgel-
og kórstjórn Öm Falkner. Einar Ey-
jólfsson.
Hafnaríjarðarkirkja: Sunnudaga-
skóli kl. 10.30 í Fjaröarseli, munið
skólabílinn. Guðsþjónusta fellur nið-
ur vegna viðgerða á kirkju. Sr.
Gunnþór Ingason.
Stokkseyrarkirkja: Barnamessa kl.
11. Sóknarprestur.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
Tilkyiiningar
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga frísrimdahóps-
ins Hana nú i Kópavogi verður á morgun,
laugardaginn 30. janúar. Lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Samvera, súrefni
og hreyfmg. Reynið einfalt frístundagam-
an í góðum félagsskap á þorranum.
Nýlagað molakaffi.
Húnvetningafélagið
Spiluð veröur félagsvist laugardaginn 30.
janúar kl. 14 í félagsheimilinu, Skeifunni
17. Parakeppni. Allir velkomnir.
Neskirkja
-félagsstarf aldraðra
Samverustund á morgrm, laugardag, kl.
15 í safnaðarheimili kirkjunnar. Mjöll
Snæsdóttir fomleifafræðingur segir frá
fomleifauppgrefti að Stómborg.
Bandalag kvenna í Hafnarfirði
heldur ráðstefnu um umferðarmál og
öryggi í umferðinni laugardaginn 30. jan-
úar kl. 10-15 í félagsálmu íþróttahússins
við Strandgötu í Hafnaríirði. Ráðstefnan
er öllum opin og er fólk beöið að tilkynna
þátttöku í síma 53510 (Hjördís Þorsteins-
dóttir) og 50919 (Sjöfn Magnúsdóttir)
vegna þess að áríðandi er að vita nokk-
um veginn hve ráðstefnugestir verða
vegna máltíðar í hádegi.
Barn sem fleygir sér á gólfið
í kjörbúð og æpir þarf ekki
að vera illa upp alið. Það
gæti verið einhverft
Markmið Umsjónarfélags einhverfra
barna er að kynna málefni þessara bama
með útgáfu bæklingsins í tilefni 10 ára
afmæhs félagsins, og mun honum vera
dreift sem viðast.
Foreldrar nokkurra einhverfra barna
og starfsfólk, sem fékkst við að leysa
þeirra mál, stofnuðu félagið 1977.
Það hefur sýnt sig að með skipulagðri
þjálfun og kennslu er hægt að ná ótrúleg-
um árangri.
Með vaxandi skilningi á mnhverfi sínu
líður einhverfum bömum betur. Þau
bregðast við á jákvæðari hátt og auka
möguleika sína á tengslum við annað
fólk.
UMSJÓNARFÉIAG
EINHVERFRA
BARNA1987
Einh verf börn hafa takmarkaö mál eða
tala alls ekki.
Einhverf börn leika sér ekki eins og
önnur börn, en endurtaka sífellt ein-
hæfar athafnir.
Einhverf börn skynja ekki hættur og
þurfa þvi stöðuga umsjón.
Einhverf börn þola afar illa breytingar
á umhverfi og daglegu lífi.
Gjaldheimta Suðurnesja tekin
til starfa
Gjaldheimta Suðurnesja tók til starfa 21.
janúar sl. Gjaldheimtan var stöfnuð 2.
desember 1987 og er sameignarfyrirtæki
ríkissjóðs og sjö sveitarfélaga á Suður-
nesjum, þ.e, Keflavíkur, Njarðvíkur,
Grindavíkur, Sandgerðis ,Garðs, Vatns-
leysustrandarhrepps og Hafna. Inn-
heimtudæmi gjaldheimtunnar nær
einnig til Keflavíkurflugvallar. Til að
byrja með sér gjaldheimta Suðurnesja
aðeins um móttöku og innheimtu á stað- ,
greiðslu opinberra gjalda skv. lögum nr.
45/1987. Gjaldheimtan mun einnig inn-
heimta fasteignagjöld fyrir hlutaðeigandi
sveitarfélög sem þess óska. Heimilt er að
fela gjaldheimtunni innheimtu annara
gjalda skv. nánari samkomulagi stjórnar
gjaldheimtunnar. Ásgeir Jónsson lög-
fræðingur hefur verið ráðinn gjald-
heimtustjóri frá og með 1. jan. 1988. Fyrst
um sinn hafa veriö ráðnir tveir starfs-
menn, þær Guðbjörg Jónasdóttir og
María Hauksdóttir. Aðsetur gjaldheim-
tunnar er að Grundarvegi 23, Njarðvík,
í sama húsi og Sparisjóðurinn í Njarðvík.
Fyrst um sinn verður afgreiðsla gjald-
heimtunnar opin alla virka daga frá kl.
9.15-12 og 13-16. Síminn er (92) 15055.
Viðurkenning
Forseti Finnlands hefur sæmt Barbro
Skogberg Þórðarson riddarakrossorð-
unni með hinni Hvítu rós Finnlands sem
viðurkenningu fyrir vel unnin og dríf-
andi störf sem formaður Suomi-félagsins
á íslandi. í Suomi-félaginu eru um það
bil 400 félagar og er það bæði fyrir Finna
búsetta á Islandi og, íslenska Finnland-
svini. Barbro hefur í ellefu ár verið
formaður og á þessum árum gert mikið
til að auka samstöðu meðal Finna á ís-
landi og sömuleiðis aukið þekkingu
íslendinga á Finnlandi. Anders Huldén
sendiherra afhenti Barbro riddarakross-
orðuna.
Ný snyrtistofa í
hjarta bæjarins
Opnuð hefur veriö ný snyrtistofa að Þing-
holtsstræti 6 og ber hún heitið Linda,
snyrtistofa. Þar er boðið upp á andlits-
böð, húðhreinsun, plokkun, Utun, vax,
snyrtingu (make up) og líkamsnudd (að-
eins fyrir konur) og bursta hreinsitæki á
andht. Linda Þórarinsdóttir, eigandi stof-
unnar, stundaði nám í Dangremond
skólanum í Haag í HoUandi, lærði m.a.
að vinna með þýskar lifrænar snyrtivör-
ur sem eru ekki mikið þekktar á íslandi.
Linda vekur athygU á að húðhreinsun sé
ekki síður nauðsynleg fyrir karlmenn en
kvenfólk.
Tfrnarit
leiðtoga jafnaðarmanna í Slésvík Hol-
setalandi, um hneyksUð í KU sem endaði
með sjálfsmorði Barschels forsætisráð-
herra. Sagt er frá niðurstöðum nýlegrar
könnunar á „fyrirtíðarspennu" meðal
reykvískra kvenna. Þjóðlif fjallar sér-
staklega í þema um Evrópubandalagið
með fréttaskýringum og viðtölum - ein-
stefna tU Evrópu. Forsíöuefni tímaritsins
er helgað hinu dularfuUa. Fréttatímaritið
Þjóðlíf er eina alhliöa fréttatímaritið á
íslandi sem kemur út mánaðarlega.
Pyrirlestur
Háskólafyrirlestur
Dr. MiUer Brown, prófessor í heimspeki
við Trinity Collage í Connecticut í Banda-
ríkjunum, flytur fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands og Fé-
lags áhugamanna um heimspeki sunnu-
daginn 31. janúar kl. 14.30 í stofu 101 í
Lögbergi. Fyrirlesturinn nefnist „Ageing
and Disease" og fjallar um eðli sjúkdóma
og hvort rétt sé að Uta á eUi sem ein-
hvers konar sjúkdóm. Prófessor MiUer
Brown vinnur nú um stundir að bók um
eðU sjúkdóma, einkum og sér í lagi geð-
sjúkdóma, með sérstöku tiUiti tU félags-
legrar stefnumótunar. Á undanfómum
árum hefur hann ritað ýmsar greinar um
tengd efni í fagtímarit. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku og er öUum opinn.
Leikhús
Fréttatímaritið Þjóðlíf
komið út
Janúarhefti blaðsms er komið út fjöl-
breytt að efni. M.a. er viðtal við Watson,
kaptein Sea Sepherd, í tílefni af íslands-
ferð hans. Staða ríkisstjómarinnar og
vangaveltur framsóknarmanna um
stjómarsUt em tU umfjöllunar í frétta-
skýringu. Þá'er viðtal við Bjöm Engholm,
Fundir
Samtök gegn
astma og ofnæmi
halda félagsfund að Norðurbrún 1 kl. 14
laugardaginn 30. janúar. Fundarefni:
Dayíð Gíslason læknir fjaUar um ofnæmi
gegn aukaefnum í matvælum. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
EGG-leikhúsið
.sýnir leikritið Á sama stað á veitinga-
staðnum Mandarínanum v/Tryggvagötu
á laugardag kl. 13 og þriðjudag kl. 12.
Miðapantanir teknar á Mandarínanum í
síma 23950.
Ferðlög
Aðalfundur Kvenfélags Ár-
bæjarsóknar
verður haldinn þriöjudaginn 2. febrúar
kl. 20.40 í safnaðarheimilinu. Veujuleg
aðalfundarstörf, kaffiveitingar og
skemmtiatriði.
Tapað-Fundið
Seðlaveski tapaðist
Skærblátt dömuseðlaveski tapaðist á
leiðinni Rauðarárstígur - Svarti svanur-
Um - MyndUsta- og handíðaskóUnn,
Stórholti 1. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 673494 eða 29000-615. Fundarlaun.
Happdrætti
Dregið í happdrætti
Kristilegrar skólahreyfingar
Þann 25. jan. var dregið hjá yfirborgar-
dómara í þúsund miða happdrætti KSH.
Vinningur, Daihatsu Cuore bifreið, kom
á miða nr. 893. Kristileg skólahreyfing
þakkar öUum sem stutt hafa starfið.
Alþýðuleikhúsið
sýnir tvo einþáttunga eftir Harold Pinter,
Einskonar Alaska og Kveðjuskál, í Hlað-
varpanum, Vesturgötu 3. Miðasala er
aUan sólarhringinn í síma 15185 og á
skrifstofu Alþýðuleikhússms, Vestur-
götu 3, 2. Hæð, kl. 14-16 virka daga.
Leikfélag Akureyrar
sýnir PUt og stúlku á föstudags- og laúg-
ardagskvöld kl. 20.30 og sunnudag kl. 16.
Ferðafélag Islands
Dagsferðir sunnudaginn 31. jan.
Kl. 13: SkálafeU sunnan HeUisheiðar.
SkálafeUið er létt uppgöngu en útsýnið í
björtu veðri alveg ótrúlegt. Verð kr. 600.
Skiðaganga ó HeUisheiði. Á HelUsheiði
norður af Skálafellinu er afar gott skiða-
gönguland. Verð kr. 600. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd
fuUorðinna. Klæðist hlýjum fotum og
þægUegum skóm. Munið vetrarfagnað
Ferðafélagsins á Flúðum helgina 13.-14.
febrúar. Þorramatur, gisting í smáhýsum
og rútuferö á ótrúlega lágu verði. Áætlun
fyrir árið 1988 er komin út.
Útivistarferðir
Sunnudagur 31. jan.
Kl. 10.30: Gullfoss i klakaböndum -
Geysir. Farið verður að fossinum Faxa,
Haukadal, Bergþórsleiði og víðar. Verð
1.200.
Kl. 10.30: Miðdegisganga ó skíðum. Nýj-
ung. Farið verður á gönguskíöi i BláfjöU-
um og dvalið í 3 klst. Heimkoma þaðan
kl. 15. Verð 600 kr.
Kl. 13: Gömul verleið: Skipsstígur -
Grindavík. Ferð tíl að minna á ferðir sjó-
manna á fyrri tiö í filefni af því að
vetrarvertíð á Suðurlandi hófst jafnan á
kyndilmessu sem er 2. febr. en þá áttu
sjómenn að vera komnir tU skips. Verð
800 kr. Brottfór í ferðimar er fiá BSÍ,
bensínsölu. Ferðir fyrir alla.
Þorraferð í Þórsmörk 5.-7. febr. Nú er
orðið faUegt og vetrarlegt í Mörkinni. Góð
gisting í Útivistarskálunum í Básum.
Gönguferðir við allra hæfi. Uppl. og farm.
á skrifst., Grófmni 1, símar 14606 og 23732.
Sjáumst.
Sýningar
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er opið eftir samkomulagi.
Sími 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
Safnið er opið sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13.30-16.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9 og Austurstræti 10
í GaUerí Borg, Pósthússtræti, stendur
yfir sýning á nokkrum nýlegum hesta-
myndum eftir Baltasar. Sýningin er opin
virka daga kl. 10-18 og um helgar kl.
14-18.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg
Samsýning stendur yfir. Á sýningunni
eru skúlptúrar, málverk og grafik. Þeir
sem að sýningunni standa eru Jónína
Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeigur
Bjömsson, Ragnheiður Jónsdóttir, PáU
Guðmundsson, Þorbjörg Höskuldsdóttir,
Öm Þorsteinsson, Rúna Guðjónsdóttir
og Gestur Þorgrimsson. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-18 og fiá 10-22 á
laugardag.
Gallerí List
Skipholti 50b
Þar er nú mikið úrval af gralík, oUu- og
vatnshtamyndum, einnig glerlist og
r postulini. Opiö virka daga kl. 10-18 og
kl. 10-12 á laugardögum.
Gallerí Langbrók
Bókhlöðustig 2
GaUerí Langbrók er textílgaUerí. Opið
þriðjudaga til fóstudaga kl. 12-18 og laug-
ardaga kl. 11-14.
Gallerí Nes
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
GaUerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar viö Eiðistorg, IH. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Á sunnudaginn kl. 14 verður opnuð sýn-
ing á vegum Kjarvalsstaða sem ber
yfirskriftina Sjálfsmyndir - úrval sjálfs-
mynda af íslenskum listamönnum fiá
miöri síðustu öld til okkar daga. Sýningin
veröur opin daglega kl. 14-22 til 14. febrú-
ar.