Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988.
Fréttir___________________________________________________________________________________pv
Hrafh Sveinbjamarson III. strandaði við Grindavík í nótt:
„Kraftaverk ef báturinn
næst af strandstaðnum“
„Þetta er afleitur staöur og ég tel
aö það sé kraftaverk ef báturinn
næst af strandstaðnum," sagði Pétur
Guðjónsson, skipstjóri á Hrafni
Sveinbjarnarsyni þriðja.
Það var skömmu fyrir klukkan tvö
í nótt að báturinn strandaði. Hann
var þá á heimleið og átti skammt eft-
ir ófarið til Grindavíkur. Báturinn
strandaði á klettum sem ganga út frá
Hópsnesi. Pétur skipstjóri telur litlar
líkur á að takast megi að bjarga bátn-
um af strandstaðnum. „Ég þekki
þessa fjöru það vel.“
Pétur sagðist ekki vilja ræða um
tildrög slyssins fyrr en eftir sjópróf.
Hann sagðist hafa verið sofandi þeg-
ar slysið varð. „Þetta voru mannleg
mistök. Ég vaknaði við ósköpin. Það
voru menn við vinnu á dekkinu.
Engan sakaði. Það er erfitt að segja
til um hvort við vorum í hættu. Veðr-
iö var ágætt, logn og bjart. En það
var urgur við landið. Ég vil nota
tækifærið og þakka áhöfn þyrlunnar.
Áhöfn hennar er margsinnis búin að
sanna hversu hæf hún er.
Þyrla bjargaði áhöfninni
Landhelgisgæslunni barst tilkynn-
ing um strandið skömmu fyrir
Staðurinn þar sem Hrafn Sveinbjarnarson þriðji strandaði skammt út af
Hópsnesi. Skipið var á leið til Grindavíkur. Skipstjórinn telur litlar likur á
að takast megi að bjarga bátnum. DV-kort JRJ
klukkan tvö í nótt. Rúmum 30 mínút-
um síðar fór þyrlan frá Reykjavík
og hélt strax á strandstaðinn. Áhöfn-
in, alls ellefu menn, var flutt til lands
í þremur ferðum. Greiðlega gekk að
koma mönnunum til lands. Þyrlan
var lent í Reykjavik að lokimli björg-
un um klukkan fjögur í nótt.
Varðskipið Óðinn var væntanlegt
að strandstaðnum í morgun. Hrafn
Sveinbjarnarson þriðji strandaöi um
klukkan tvö. Flóð var um tveimur
klukkustundum áður en strandið
varð eða um miðnætti. Næsta flóð
verður um hádegi í dag. Það flóð
verður minna en flóðiö í nótt. Reynt
verður að draga skipið af strandstað
á hádegisflóðinu. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar verður notuð til aðstoðar,
bæði til að koma taug á milli skip-
anna og eins til að flytja menn um
borð í Hrafn Sveinbjamarson þriðja
á ný.
Hrafn Sveinbjamarson III. GK 11
er 175 lesta stálskip, smíðað í Noregi
1963. Töluverðar endurbætur hafa
verið gerðar á skipinu. Það var lengt
og byggt yfir þaö á árinu 1982. Þor-
björn h/f í Grindavík gerir skipið út.
-sme
Kuldinn í Hvatfirði vex enn:
Fiskurinn að
mestu dauður
Sjórinn í Hvalfirði heldur áfram
að kólna. Á meðan frostinu linnir
ekki má búast við að kuldinn vaxi
enn. „Ef það lygnir þá leggur fjörð-
inn,“ sagði Finnur Garöarsson,
framkvæmdastjóri Fiskeldisfélags-
ins Strandar, í samtali við DV. „Við
erum búnir að afskrifa seiðin en
munum reyna að slátra stærri fiskin-
um ef veður leyfir."
Nú er logn í Hvalfirði og munu
starfsmenn Strandar reyna að slátra
í dag. Þeir hafa náð upp 4 tonnum
af sláturfiski. í gær tókst starfs-
mönnum Strandar að ná upp einu
tonni af fiski. Aö sögn Finns voru
um tveir þriðju hlutar fisksins þegar
dauðir í kvíunum. Þessi fiskur verð-
ur frystur óslægður. Þeir fiskar, sem
vom með lífsmarki, drápust viö
minnsta hnjask.
í Hvammsvík hjá Laxalóni hefur
sú stefna verið tekin að bíða þar til
sjávarhitinn hækkar.
Á Ferstiklu er Vífill Búason bóndi
með 3 tonn af regnbogasilungi og 7,5
tonn af laxi í sláturstærð í sjókvíum.
Þar em einnig 15 þúsund seiði í fóstri
en Mánalax á Norðfirði er eigandi
þeirra. Vífill hefur enn ekki hafið
slátrun.
„Það er bæði vegna karlmennsku-
leysis, því það er ekki vinnandi vegur
að slátra við þessar aðstæður, og eins
vona ég að fiskurinn lifi þetta af.“
sagði Vífill. -gse
Hrafn Sveinbjarnarson III. á strandstað. Skipstjóri telur litlar likur á að takast megi að bjarga bátnum. Varðskipið
Óðinn reynir að ná honum út á flóðlnu í hádeginu i dag. DV-mynd GVA
Hafísinn við Norðuriand:
Jakar sigla inn á firði
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er talsvert um að jakar séu
farnir að sigla hér inn á Siglu-
f]örö,“ sagði Stefán Einarsson,
vitavörður á Siglunesi, í samtah við
DV í morgun en ástandið úti fyrir
Norðurlandi versnar nú með hveij-
um deginum sem líður.
Stefán vitavörður sagði aö í gær
hefði ís verið landfastur við Siglu-
nes og jakar í fjörunni þar, annars
hefði skyggni verið mjög slæmt en
þó hefði hann séð til jaka á leið inn
fjörðinn. Siglingar við Norðurland
em orðnar mjög. hættulegar að
sögn Stefáns.
„fsspöngin kom hér upp að eyj-
unni vestanverðri í gær og þá tóku
menn það til bragðs að flytja báta
til lands,“ sagði Bjarni Magnússon,
hreppstjóri í Grímsey, í morgun.
„Það var farið með þrjá báta til
Dalvíkur, trillur hafa verið teknar
á land og menn eru tilbúnir að fara
með hina bátana til lands ef ástand-
ið versnar enn,“ sagði Bjami.
Hann sagði að skyggni væri mjög
lélegt og því erfitt að gera sér ná-
kvæma grein fyrir ástandi íssins.
„Það hafa verið jakar á siglingu hér
við eyjuna í átt til lands undan-
fama daga,“ bætti Bjami við.
í gær sást til einstakra jaka bæði
frá Húsavík og Dalvík. Þar sem
spáð er norðanátt næstu daga mun
ísinn halda áfram að færa sig nær
landinu og má reikna með að um
helgina fari ísinn að sjást aö ein-
hverju marki í Eyjafirði.
Hafísinn færist nær landi
Hafísinn heldur áfram að færast
nær landi og er ekki von á að vind-
átt breytist fyrr en í fyrsta lagi á
mánudag eða þriðjudag samkvæmt
spá Veðurstofunnar í morgun.
Mun hafisinn því nálgast landið
enn næstu daga. Jafnmikið af hafís
hefur ekki komið að landinu síðan
veturinn 1979 og er nú veruleg
hætta á siglingaleiðir fyrir norðan
landið lokist algerlega, að sögn
Þórs Jakobssonar veðurfræðings.
Telur hann fulla ástæðu fyrir skip
og báta til aö fara að öllu með gát.
Á siglingaleiðum frá Langanesi að
Rauðanúp em víða stakir jakar og
þéttar ísrastir, sérstaklega út af
Melrakkasléttu. 20 sjómílur norður
af Sléttu er mjög stór ísspöng.
Landhelgisgæslan fór í ískönn-
unarflug í gær. Virtist meginís-
brúnin vera aö meðaltali í 60
sjómílna fjarlægð frá nyrstu odd-
um landsins en sunnan viö megin-
ísinn em þéttir ísflákar og stakir
jakar. ísinn hefur nú náö landi á
Melrakkasléttu og viö Horn auk
þess sem hann er kominn inn í
marga firði, s.s. Skagafjörð.
Almannavamir ríkisins hafa nú
komið skilaboðum til almanna-
vamanefnda á Norðurlandi að hafa
víra og belgi tilbúna ef til þess kem-
ur aö loka þurfi höfnum. Þá em
birgðir á afskekktum stöðum, sem
háðir eru flutningum á sjó, kannað-
ar og við þær bætt ef þörf er á.
Kort Landhelgisgæslunnar eftir ískönnunarflugið í gær. Jakar eru komn-
ir nálægt landi og ísspöng við Vestfirði en aöalisinn er enn langt frá
landi. Hann færist hins vegar stöðugt nær.