Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Side 4
4 Fréttir_____________________________________________ Hafísinn úti fyrir Norðuriandi: „Sigling í myrkri er orðin stórhættuleg segir Haraldur Sigurðsson, bóndi að Núpskötlu á Melrakkasléttu, nyrsta bæ á íslandi Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyri; „Ég þekki vel til allra aðstæðna hér og eins og ástandið er orðið núna fullyrði ég að siglingar hér fyrir utan í myrkri eru stórhættulegar vegna haflssins," sagði Haraldur Sigurðs- son, bóndi að Núpskötlu á Melrakka- sléttu, nyrsta bæ á íslandi, í samtali við DV í gær. „Það hefur sett að okkur þann illa grun að það sé ipjög mikill hafís héma fyrir utan. Það er búin að vera mjög hvöss norðanátt en sjógangur hefur verið lítdll og það bendir ein- dregið til þess að svo sé. Þetta fer í sjálfu sér ekki illa í okkur en er skelfilegt ef litið er til fiskveiðanna því að það eru auðvitað öll mið að lokast," sagði Haraldur. Haraldur sagði í gær að skyggni til hafs væri slæmt. Þó hefði hann séð að stöðugt ísrek væri með landi og ísinn næði víða alveg upp í fjöru. Vík nærri Rauðanúp væri t.d. að fyllast af ís. Varðandi ísrekið sagði hann að bæði væri um að ræða ísspangir og einnig jaka innan um sem væru stór- hættulegir skipum á siglingu því þeir kæmu ekki fram á radar. Völundarlóðin sem seld verður á 77,7 milljónir króna. DV-mynd S Reykjavíkurborg selur tvær lóðir: Söluverð um 110 Kópasker: Rækjubátur ívandræðum í hafísnum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri Rækjubáturinn Ámi á Bakka, sem gerður er út frá Kópaskeri, lenti í miklum érfiðleikum á leið til lands í fyrrinótt. Báturinn var að koma úr veiöiferð og á heimleiðinni háði hafísinn mjög sighngu. Smáleki kom að bátnum eftir árekstur við ísjaka en sá leiki var þó ekki mikill og báturinn komst án frekari erfiðleika til lands. Barðastrandarsýsla: Snjómokstur eingöngu á vorin óg haustin íbúar á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal þurfa aö búa viö það að þjóðvegum er ekki haldiö opnum á vetuma. Samkvæmt snjómoksturs- reglum eru akvegir, bæöi í norður og suður, ekki mokaðir nema á vorin og haustin. Á meðan snjólétt er á vorin og haustin eru vegimir mokaðir einu sinni í viku. Hjá Vegagerðinni feng- ust þær upplýsingar að mokaö er að Bijánslæk tvisvar í viku. Þar hefur flóabáturinn Baldur viðkomu. í byggðarlögunum hefur gætt óánægju með þetta fyrirkomulag. íbúi á Patreksfirði, sem DV ræddi við, sagði að nú væri lítill snjór á veginum suður og fólki skildi ekkert í af hverju Vegagerðin mokaði ekki veginn. Vegagerðin tekur ekki undir þetta. Þar fengust þær upplýsingar að tölu- vert mikill snjór sé á vegunum og dýrt sé að moka þá. Það virðist því vera útlit fyrir að Barðstrendingar þurfi að bíða vorsins með að hafa akfæran veg til Reykjavíkur. -sme Nú er verið að ganga frá samning- um við þá aðila sem áttu hæstu tilboðin í tvær byggingarlóöir sem Reykjavíkurborg auglýsti til sölu nýlega. Það em Völundarlóðin á Klapparstíg 1 og lóðin á Laugavegi 148, þar sem timburverslun Árna Jónssonar var, samkvæmt upplýs- ingum sem DV fékk hjá Hjörleifi B. Kvaran, framkvæmdastjóra lög- fræði- og stjórnsýslusviðs Reykjavík- urborgar. Hæsta tilboðið í Völundarlóðina átti Steintak hf. sem bauð 77,7 millj- ónir i þann hluta lóðarinnar sem til sölu er. Er þar um að ræða bygging- arrétt fyrir 109 íbúðir og 775 fermetra atvinnuhúsnæði. Lágmarksverð borgarinnar var 57 milljónir sem er framreiknað kaupverð þess hluta lóðarinnar sem seldur verður. í lóðina Laugavegur 148 vora boðn- ar 32 milljónir króna og átti Dögun hf. hæsta tilboðið. Á lóðinni er heim- ilt að byggja 50 íbúðir og 525 fermetra atvinnuhúsnæði. Lágmarksverð var auglýst 20 milljónir króna en það er framreiknað lágmarksverð. Sagði Hjörleifur ljóst af þessu að borgin myndi hagnast af þessum viðskipt- um. Söluverð beggja lóðanna er því um 110 milljónir króna. Meirihluti Völundarlóðarinnar verður nú seldur en óseldur er bygg- milljónir ingarreitur á lóðarmörkum sem Reykjavíkurborg á ásamt Eimskipa- félagi íslands. Sagði Hjörleifur að samkvæmt skipulagi væri heimilt að byggja þar 46 íbúðir og aö mati Hjör- leifs á Reykjavíkurborg ekki minna en tvo þriðju hluta þeirra réttinda. Viðræður standa nú yfir á. milli Reykjavíkurborgar og Eimskips vegna þessa máls. Hjörleifur sagði ennfremur að ver- ið væri að ganga frá samningum við hæstu tilboðsgjafana, tryggingar væru í skoðun og bjóst Hjörleifur við því aö gengið yrði frá samningum í þessari viku. -ój Hollenski fisksvindlarínn sem hafði um 15 milljónir af íslenskum fyrirtæhjum: Játaði eftir handtöku í Belgíu Hollendingurinn, sem kærður var í sumar fyrir að hafa svikið fisk af íslenskum fyrirtækjum, hefur nú verið handtekinn. Hann náðist í fyrradag, þá var hann í Bragge í Belgíu. Þar er hann nú í fangelsi. Samkvæmt heimildum hefur hann játað að hafa svikið 15 til 16 milljónir af tveimur íslenskum fyrirtækjum. Hollendingurinn var í sumar kærð- ur til alþjóðalögreglunnar, Interpol. Þá hafði hann tekið fisk á flugvellin- um í Ostende. Fiskurinn átti að fara á markað í Englandi. Hann kom fiskinum hins vegar á markað í Hol- landi. Hollendingurinn mun hafa svikið með svipuðum hætti fisk af fyrir- tækjum í fleiri löndum í Evrópu. Þær íjárhæðir sem hann hefur náð til sín með þessum hætti skiþta tugum milljóna íslenskra króna, samkvæmt heimildum DV. -sme FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988. Viðtalið ívar Hauksson, fyrrum íslands meistari í vaxtarrækt og fyrrum herra Útsýn, mun keppa um titilinn herra ísland á Akureyri á morgun. „Stefni á sigur“ „Ég stefni auðvitað á sigur í keppninni um herra ísland. Maður tekur ekki þátt í keppni án þess að reyna að sigra. En maður býr sig þó undir að úr- sht geti farið á hvom veginn sem er. Það er keppnisandinn sem gildir enda er ég mikill keppnismaður og reyndar hef ég náð íslandsmeistaratith í öll- um greinum sem ég hef keppt í,“ segir ívar Hauksson sem varð Islandsmeistari í vaxtar- rækt í unglingaflokki árið 1985, herra Útsýn 1984, íslandsmeist- ari unghnga í golfi 1984 og íslandsmeistari í karate 1984 í þyngdarflokki yfir 70 kílóum. Auk þess sigraði hann í alþjóð- legri fegurðarsamkeppni karla á Italíu 1985 og hlaut þá titihnn Mister Man. ívar er l>'l sm á hæð og 94 kg. Hann er áberandi þyngri en hinir keppendurnir miöað við hæð en hefur samt létt sig um 4 kíló fyrir keppnina. - En hafa vaxtarræktarmenn eitthvað að gera í fegurðar- samkeppni? „Það eru engar reglur sem segja til um það hvort vaxtar- ræktarmenn geti tekið þátt í fegurðarsamkeppni eða ekki svo ég sé ekkert sem mælir á móti því að ég verði með. Ég geri mér samt fullkomlega grein fyrir að þetta er ekkert hkt vaxtarræktarsýningu enda er ég búinn að létta mig fyrir keppnina." Ivar vinnur sem umbrots- maður á framleiðsludeild Morgunblaðsins en hann er menntaður prentari frá Iðn- skólanum í Reykjavík. Sambýl- iskoná hans heitir Ásdís Sigurðardóttir en foreldrar hans eru Haukur Sighvatsson prentari og Valgeröur Sigurð- ardóttir meinatæknir. - Hvereruhelstuáhugamáhn? „Ég æfi vaxtarrækt á hveij- um degi, þrjá tíma í senn, og hef gert það í tæp fjögur ár. Ég ætla þó ekki að taka þátt í ís- landsmeistaramótinu í vaxtar- rækt á þessu ári heldur ætla ég að byggja líkamann upp í eitt ár og vera svo með á næsta ári. Golf er einnig eitt af mínum helstu áhugamálum en þá íþrótt hef ég æft á hverjum degi á sumrin. En kem ekki til með að spila mikið golf í sumar þar sem ég ætla mér að leggja meg- ináherslu á vaxtarræktina. Mér finnst hka mjög gaman að kar- ate en hætti að æfa markvisst fyrir þremur ámm. Ég æfi þó alltaf öðru hverju til að halda mér við. Svo hlusta ég mikið á tónhst og er melódískt þunga- rokk í mestu uppáhaldi. Þá á ég við hljómsveitir á borð viö Europe og White Snake. Nú, svo get ég nefnt að einu sinni spil- aði ég á trommur og leik mér jafnvel enn að því þegar tími gefst th.“ -JBj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.