Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988. 7 Fréttir Ósköp eðli- legar viðræður - segir Jóhannes Einaisson. forstjóri Uon Air „Ég skil ekki hvað menn geta verið viðkvæmir þarna uppi á íslandi. Þetta eru ósköp eðlilegar viðræður sem eiga sér stað,“ sagði Jóhannes Einarsson, forstjóri Lion Air, um samningaviöræður milli íslenskra stéttarfélaga og flugfélagsins um ódýrt leiguflug fyrir félagsmenn. „Ég get að sjálfsögðu ekki gefið upp hvaða verð við buðum né neitt annað sem í þessum samningi er. Það var haft samband við okkur um mögu- leika á leiguflugi og við svöruðum því. Lion Air hefur séð um leiguflug um heim allan síðan það var stofnað og hefur næg verkefni í dag. Þessi samningur skiptir ekki sköpum í okkar rekstri. Við höfum aldrei heyrt um svona fjaðrafok á öörum stöðum sem viö höfum skipt við. í gamla daga var manni kennt í skóla að einokun væri alls ekki af hinu góða,“ sagöi Jóhann- es.' Að sögn Jóhannesar er Lion Air ört vaxandi fyrirtæki sem á tvær Boeing 747-100 vélar sem taka um 500 manns. -EG Félagsmenn eiga rétt á ódýrum ferðum - segir Pétur Maack hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur autostar ÁKLÆÐI0G G0LFM0TTUR í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA Áklæóin eru hlý og teygjanleg. Fjölbreytt litaúrval. Motturnar fást í rauóum, bláum, brúnum og gráum litum. Kynnið ykkur verð og gæði. • > „Fyrir okkur er málið mjög einfalt. Við erum að vinna eftir reglum or- lofssjóðs Verslunarmannafélags Reykjavíkur," sagöi Pétur Maack hjá VR við DV um mótmæli stjórnar Starfsmannafé^gs Flugleiða við samningaviðræðum VR við Lion Air um ódýrt leiguflug fyrir félagsmenn í sumar. „Við erum að vinna eftir bestu sannfæringu að hagsmunum félaga innan VR. Við trúum því að félagar í Verslunarmannafélaginu eigi rétt á því að b'regða sér ódýrt til útlanda ef tækifæri gefst. Við erum að reyna að skapa þessi tækifæri. Okkur finnast viðbrögð stjórnar starfsfólks Flugleiða ákaflega leiðinleg og fljót- færnisleg. Það er ekki búið að skrifa undir neina samninga. Það er ákaf- lega sérkennilegt að fólk sem hefur tækifæri til að ferðast frítt vítt um veröld skuli ekki skilja útþrá félaga sinna. Það er út í hött að þessir fé- lagsmenn ætli að ákveða hvað aðrir greiði fyrir sín ferðalög. Okkur er engin launung á aö viö kysum helst að skipta við íslensku flugfélögin. Það er heldur ekkert leyndarmál að tilboðiö sem við feng- um erlendis var töluvert lægra en Flugleiða-tilboðið," sagði Pétur. „Við erum staðráðnir í því aö halda áfram þeirri viðleitni að útvega fé- lagsmönnum ódýrar ferðir þrátt fyrir svona uppþot. Það má til gam- ans geta þess að fjölmargir starfs- menn Flugleiða, sem eru í VR, hafa Við viljum halda atvinnunni - segja fulltrúar starfsfólks Flugleiða „Það hefur aldrei verið gerð at- hugasemd af okkar hálfu við að aðrir launþegar ferðist ódýrt. Við erum hins vegar að mótmæla því að stétt- arfélag, sem yfir 500 starfsmenn Flugleiða eru meðlimir í, skuli vera að skipuleggja og búa til ferðir sem geta stofnað atvinnuöryggi okkar í hættu. Það vita flestir hversu rekstur flugfélaganna er viðkvæmur og öll áfóll skila sér strax í samdrætti, meðal annars í starfsmannahaldi. Þetta er spurning um að halda at- vinnunni," segir Margrét Hauks- dóttir, sem á sæti í stjóm starfs- mannafélags Flugleiða, um ágreiningsmál félagsins og Verslun- armannafélags Reykjavíkur. Bent hefur verið á þá staðreynd að starfsmenn Flugleiða eru frífarþegar og hafa ekki efni á því að standa gegn ódýmm ferðum annarra launþega. „Þessi hlunnindi, sem starfsmenn Flugleiða hafa, eru stórlega ýkt í þessari umfjöllun," segir Steingrím- ur Guðjónsson, einn af stjómar- mönnum starfsmannafélags Flugleiða. „í fyrsta lagi komumst við í fæstum tilfellum með á þeim tímum þegar flestir vilja ferðast og svo eig- um við alltaf á hættu að verða skilin eftir einhvers staðar úti í heimi. Það' er kostnaður og óþægindi sem em ekki eftirsóknarverö. I raun er mjög algengt að starfsmenn kaupi sér pak- kaferðir eins og aðrir. Við starfsmenn viljum allt til vinna að íslendingar geti ferðast með ís- lenskum flugfélögum. Viö teljum hagsmuni almennings og hagsmuni okkar fara saman enda höfum við farið þess á leit að Flugleiðir og stétt- arfélögin reyni að ná samningum um þessar ferðir," sagði Steingrímur. Trúum á frjálsa samkeppni - segir Óli Tynes, formaður Starfsmannafélags Amarflugs „Auðvitað vildum við að þessir far- þegar skiptu við íslensk fyrirtæki," sagði Óli Tynes, formaður Starfs- mannafélags Arnarflugs, við DV. „Við kysum helst að þessir farþegar versluðu við íslensk fyrirtæki en við getum ekki sagst hafa trú á frjálsri samkeppni og fordæmt neytendur í leiðinni fyrir að velja það ódýrasta. Það er ekki búið að ganga frá þess- um samningum ennþá og því best að bíða og sjá hvað setur. Hver sem út- koman verður og sama með hveijum fólkið ferðast þá óskum við starfs- menn Arnarflugs þeim góðrar ferð- ar.“ -EG hringt til okkar og lýst stuðningi sín- um við okkur og erum viö mjög ánægðir með það.“ -EG Ibúar Laugameshverfis! heftir opnað nýtt bakarí að Hrísateigi 47 Verið velkomin!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.