Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988. Útlönd DV Bílþjófhaður sem tómstundagaman sem stela bílnm, stúlkurnar hafa einnig fengið fiðringinn. Ekki alls fyrir löngu slasaðist lögreglumaður sem reyndi að stöðva stúiku á stoln- um bíl en hún komst undan. Talsmaður upplýsingastofnunar um tryggingar segir fjölda bílþjófn- aða meöal annars tengjast því að unglingamir hafi uppgötvað hversu auðvelt það sé að stela bíl, auk þess sem flottum hraðakstursbílum hafi fjölgað mjög í umferðinni. Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmamiahöín; Bílþjófnaður er að verða eins konar áhugamál margra danskra unglinga, á aldrinum 15 til 20 ára. í Danmörku var 37 þúsund bílum stoliö á síðasta ári, aðeins í Kaupmannahöfn náði tala stolinna bíla 7700 sem samsvarar einxnn á hverri klukkustund. Til samanburðar má geta að tala nýskráðra bíla 1987 var 125 þúsund. Lögreglunni tekst sjaldan að ná í bílþjófana en ef það gerist eru þeir oft of ungir til að svara til saka. Fyr- ir fimm árum komust um 25 prósent bílþjófnaða upp en nú hefur hlut- fallið lækkað til muna. Orsakast það meðal annars af því að bílþjófnaðir voru fluttir frá rannsóknarlögreglu og út til lögreglustöðvanna þannig að upplýsingar um bílþjófa eru ekki lengur á einum stað. Telur lögreglan að flestir bflþjófanna séu milii 15 og 20 ára. Stal 1200 bílum Gott dæmi er 15 ára unglingspiltur sem á vafalaust metið í bílþjófnuðum þó víða væri leitað. Síðastliðin þrjú ár hefur honum tekist að stela tólf hundruð bílum. Var piltur sendur á unglingaheimili á Norður-Sjálandi og var alls ekki ekki óhress með það. Þar voru jú fleiri BMW og Porche bílar en í bænum. Þrátt fyrir margar handtökur og yfirheyrslur heldur piltur sjálfsörygginu, hann verður hvort eð er látinn laus vegna aldurs- ins - enn um sinn. En það eru ekki aðeins drengimir Launareikningur Alþýðubankans er tékkareikningur með háa nafnvexti og skapar lántökurétt. Gegn reglubundnum viðskíptum á launareikningi í a.m.k. 3 mánuði fást tvennskonar lán án milligöngu bankastjóra, að ákveðnum skílyrðum uppfylltum. Allt að kr. 50.000 á eigin víxlí til fjögurra mánaða. SEILIH Allt að kr. 150.000 á skuídabréfi til átján mánaða. Við gerum vel við okkar fólk Alþýöubankinn hf Ford vinsælastur Lögregla og tryggingafélög segja ákveðnar bíltegundir mun vinsælli en aðrar. Ford Granada og allar eldri gerðir Ford bíla eru í efsta sæti vegna einfalds lásakerfis en því hefur ný- lega verið breytt. Þar á eftir kemur Toyota, með Mözdu á hælunum í þriðja sæti. Auk þess eru BMW og GTI bílar vinsælir vegna hraðans en tilgangurinn er jú að komast út á hraðbrautirnar með bensínið í botni. Hraði og ærsl er ekki það eina sem freistar þjófanna, innbrotsþjófar nota mjög oft stolna bfla í innbrots- ferðum sínum um úthverfi Kaup- mannahafnar. Lögreglan er sannfærð um að í um það bil 75 prósentum tilfella, þar sem bfll hverfur sporlaust, standi sjálfur eigandinn að baki. Það hefur verið mikiö um nýja bfla sem hafa horfið sporlaust. Viðgerð getur sett skuld- um vafinn bíleiganda í vandræði og þá er freistandi að láta bflinn einfald- lega hverfa. Fær eigandinn nývirði bflsins frá tryggingunum ef bfllinn hverfur innan árs frá kaupdegi. Lög- reglan útilokar ekki að í mörgum tilfellum standi atvinnuþjófar að baki. Er þá vélin og allt innvols tekið úr skrokknmn eða þá að bíllinn er seldur til annarra landa og þá sér- staklega til Póllands, Júgóslavíu eða Austurlanda nær. Til að koma í veg fyrir bflþjófnaði vill lögreglan að eigendumir veiji bflana betur gegn þjófunum. Það hljómar kannski undarlega en trygg- ingafélögin eru ekki alltof hrifin af því vegna þess að þá verður bíllinn fyrir of miklum skemmdum en helstu skemmdir á stolnum bílum tengjast því að brotist er inn í þá en ekki að þeim sé ekið. Norðmenn hafha sjúkl- ingaskatti Páll Vilhjálmsson, DV, Osló: Eftir harða gagnrýni og þrýst- ing frá almenningi leggja norsk yfirvöld til hliðar áætlanir um að láta sjúklinga borga hluta af kostnaði við sjúkrahúsvist. Þingnefnd lagði fram tillögur í síðustu viku um að sjúklingar myndu borga á bilinu 350 til 450 íslenskar krónur fyrir hvem dag á sjúkrahúsi. Sjúklingaskattur- inn átti að færa ríkinu á milli 2,5 og 4 mifljarða íslenskra króna í tekjur á ári. Tillögumar sættu harðri gagn- rýni um leiö og þær komu fram. í augum margra Norðmanna var vegið að velferðarþjóðfélaginu og í fjölmiðlum var talað um að liðin væri sú tíð að allir hefðu efni á því að verða veikir. Mótbámmar urðu til þess að v heilbrigðisráðherrann, Tove Brant Gerhardsen, tók af skariö og gaf út þá yfirlýsingu að tfllögur nefndarinnar yrðu hvorki teknar til umræðu í ríkisstjóminni né í stórþinginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.