Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988. 11 Utlönd George Bush berst af hörku George Bush varaforseti berst nú af hörku í New Hampshire. Simamynd Reuter George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, berst nú af mikilli hörku í New Hampshire í þeirri von aö halda forskoti sínu meöal repúblikana þar og sigra í forkosningunum sem fara fram í næstu viku, Tahö er nauösyn- legt fyrii; varaforsetann aö vinna afgerandi sigur í forkosningum þess- um, eigi forsetaframboö hans aö eiga nokkra von, en undanfarið hefur fylgi hans í fylkinu minnkað nokkuð og Robert Dole, helsti keppinautur hans um útnefningu repúblikana, hefur dregið á hann. Bush hefur verið á ferð og flugi í New Hampshire undanfama daga. Hefur hann gripið til þess að sýna harðari afstöðu í ýmsum málum en hingað til og meðal annars hefur hann ráðist harkalega á Antonio Noriega, yfirmann hersins í Panama, og varað hann alvarlega við því að hóta Bandaríkjunum einu eða öðru. Segja þeir sem fylgjast með kosn- ingabaráttunni í New Hampshire að framboð Bush þar hafi öðlast nýtt líf með þeim ákafa sem varaforsetinn hefur sýnt af sér undanfama daga. Bush hefur til þessa yfirleitt skotið sér hjá því að deila við mótframbjóð- endur sína en nú gagnrýnir hann Robert Dole harðlega, meðal annars áætlanir hans um aö frysta ríkisút- gjöld til að minnka fjárlágahalla. Segir hann þessa afstöðu Dole merki um hugleysi og skort á leiðtogahæfi- leikum. Orðrómur er nú á kreiki um að Alexander Haig, fyrrum hershöfð- ingi og utanríkisráðherra, sem er einn af þeim er keppa um útnefningu sem forsetaefni repúblikana, hyggist hætta keppninni. Haig nýtur mjög lítils fylgis. Fékk hann nær engin atkvæði í forkosningunum í Iowa fyrr í vikunni og tahð er að hann muni einnig reka lestina meöal repú- blikana í New Hampshire. Ráðist á danskt olíuskip Ráðist var á danska olíuflutn- Þeir sem særðust vora fluttir á flóa. Ráöist var á skipiö Estelie ingaskipið Kate Maersk á suður- brott með þyrlu og dráttarbátar frá Maersk 6. desember og lést einn hluta Persaflóa í morgun. Einn Dubai héldu þegar á staöinn til aö maöur er björgunarþyrla hrapaöi áhafiiarmeðlima beið bana í árás- draga skipið til hafnar. Eldur kom á dekk skipsins. Þrettán dögum síð- inni og þrír særöust, að sögn upp í skipinu við árásina en áhöfn- ar var ráöist á.Karama Maersk en heiraildarraannaskipafélaga.Taliö inni tókst fljótlega aö ráða niður- skemmdir urðu litlar. Árásin á er að íranskir byltingarverðir á lögumhans. Karama Maersk var gerð degi eftir hraðbátum hafi staðið á bak viö Frá því í desember hafa þrjú árás á norska skipið Happy Kari árásina. dönsk skip orðið fyrir árás á Persa- enþaðvarðafturfyrirárásígær. Tæknilegt málþóf um landbúnaðarmál Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux: Eftir þrettán klukkustunda fund- arhöld í Briissel í gær virtust leið- togar Evrópubandalagsins ekki hafa fundið neina lausn sem komið gæti í veg fyrir gjaldþrot bandalagsins í sumar. Eitt af helstu vandamálunum inn- an Evrópubandalagsins er land- búnaður. Iðnvædd ríki sem hafa tiltölulega lítinn landbúnað, eins og til dæmis Bretland, greiða niður landbúnaðarframleiðslu annarra ríkja, sérstaklega í Suður-Evrópu. Þessi framleiðsla er aUt of mikil, um það eru allir sammála, en pólítískan vilja skortir til breytinga. í augum Frakka eru landbúnaðar- máUn mikilvægasti málaflokkurinn á fundi Evrópubandalagsins. Franskir bændur eru hræddir um að of mikiö verði gefið eftir á fundin- um og þeir sviknir af ríkisstjórn Jacques Chiracs. í Frakklandi eru bændur aðeins sjö prósent vinnandi manna en í landi þar sem smáir hópar geta haft lykil- áhrif á stjórnmálakerfið eru bændur sterkur hópur. Chirac vill hafa þá góða því að kosningar nálgast. í stjórnartíð sósíaUsta 1981 til 1986 var r,eynt að koma á kvótum, meðal ann- ars í rajólkurframleiðslunni, og á fundum Evrópubandalagsins voru Frakkar eftirgefanlegir. Því voru bændur ánægðir þegar Chirac tók við völdum aftur 1986 og með honum nýr landbúnaðarráöherra, Francois Guillaumne, fyrrverandi forseti verkalýösfélags bænda. Nýja stjórn- in hefur líka margt gert sem bændum Ukar vel en það verður líka að segj- ast eins og er að GuUlaumne hefur neyðst til að horfast í augu við raun- veruleikann í starfi sínu og halda áfram á braut kvóta og minni niður- greiðslna því að eitt er víst, franskur landbúnaður verður að breytast. Nýlega var búnaðarbankinn franski seldur einkaaðilum og við það misstu bændur það vald sem þeir höfðu haft og var í engu samræmi við fjármála- urasvif þeirra. Fyrir fundinn í Brussel lýsti Chirac því yfir að Frakkar hefðu þegar gefið nóg eftir í landbúnaðarmálum en væru tilbúnir að endurskoða afstöðu sína tU annarra málaflokka. Eftir árangurslausan gærdag og tæknilegt málþóf má vonast eftir að í dag verði umræöurnar málefnalegri og ákvarðanir teknar. Frakkar gætu þurft að samþykkja breytingar sem bændum heima fyrir er Ula við og það gæti aftur snert Chirac Ula. Ekki er tahð útilokað að fundinum verði haldið áfram á morgun en honum átti að ljúka í dag. Forsætisráðherra Ítalíu, Giovanni Goria, sem sagði af sér embætti í gær, ræðir við Giulio Andreotti utanríkisráðherra við upphaf fundar Evrópubanda- lagsins í Brússel I gær. Simamynd Reuter FRAMBOÐSFRESTUR Starfsmannafélagið Sókn hefur ákveðið að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um stjórn, trúnaðar- mannaráð, endurskoðendur og varamenn þeirra. Framboðslistum þarf að fylgja nöfn 100 fullgildra félaga Sóknar'og skal þeim skilað fyrir kl. 12 á há- degi föstudaginn 19. febr. 1988 á skrifstofu félagsins, Skipholti 50 A, þar sem listi stjórnar liggur frammi. Starfsmannafélagið Sókn Aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks verður haldinn í félags- heimilinu fimmtudaginn 18. febr. kl. 20.00, venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin LEÐURSMÍÐI - INNRITUN Sex vikna námskeið í leðursmíði hefst 15. febrúar nk. Kennt verður einu sinni í viku fjórar stundir í senn (mán. kl. 19.30-22.20). Helstu grunnatriði leður- smíði verða kennd og hanna nemendur sjálfir þá hluti sem þeir vilja, s.s. töskur, belti, smáhluti o.s.frv. Unnið verður með sauðskinn og nautsleður. ( Kennari er María Ragnarsdóttir, kennslustaður Mið- bæjarskóli. Kennslugjald er kr. 3000. Innritun fer fram í símum 12992 og 14106 kl. 13-19 þessa viku (til föstudagsins 12. febrúar). RF 540 Kœliskápur fyrir orlofshús - einstaklingsíbúðir - kaffistofur - dvalarheimili o.fl. Kœliskápur sem þarf lífið pláss. Vinnuborð ofaná - kœliskápur undir, sjálfvirk afþýðing. Sérhólf fyrir ávexti og grœnmeti. Henfugar hillur og rými í skáp og hurð fyrir smjör, ost, egg og flöskur. H 85 - B 55 - D 60 Vörumarkaðurinn KRINGLUNNI S. 685440

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.