Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 1988. 23 Iþróttir Evrópukeppnin í handknatUeik: DAGVIST BARNA NYTT DAGVISTARHEIMILI „Víkingar töpuðu þessu í Höllinni“ - htill munur í seinni hálfleik er ZSKA sigraði 25-20 „Víkingsliðið lék sterkan og agaðan handkna'ttleik og hélt fyllilega sínum hlut gegn Evrópumeisturunum, ef undanskilið er fyrsta korterið sem gekk hroðalega. Það er ljóst að Vík- ingur tapaði þessari viðureign gegn ZSKA Moskva í Laugardalshöllinni fyrir viku, í seinni hálfleiknum," sagði Hallur Hallsson, formaður handknattleiksdeildar Víkings, í samtali við DV í gærkvöldi. Víkingar töpuðu öðru sinni með fimm mörkum fyrir Evrópumeistur- unum í gær, 25-20, í Moskvu. ZSKA er komið í undanúrslit Evrópu- keppni meistaraliða, samanlagt 49-39, og frægari lið en Víkingur hafa fengið mun verri útreið í leikj- um gegn þessum Sovétmönnum. Leikurinn byrjaði illa fyrir Vík- inga. Vörnin náðist ekki saman, dauðafærin fóru forgörðum og ZSKA komst í 5-1 og síðan 9-3. Stórskyttan Vasiliev, sem missti af fyrri leiknum vegna meiðsla, lék nú með og þá komu Rússarnir Víkingum í opna skjöldu með því að nota tvo línu- menn, Rymanov og risann Savko, sem er 2,20 m á hæð en lék ekkert í Höllinni. Smám saman færðist leikur Vík- inga í rétt horf og þeir minnkuðu muninn í 14-10 áður en sovéska liðið átti lokaorð hálfleiksins, 15-10. Allan seinni hálfleik munaði síðan 3-4 mörkum, staðan 17-14,20-17 og 23-20 áður en ZSKA gerði tvö síðustu mörkin í lokin. Það kom í hlut Hilmars Sigurgisla- sonar að kljást við risann Savko - náði honum í handarkrika en varð furðu mikið ágengt. Hafði m.a.s. einu sinni betur þegar báðir stukku upp til að góma boltann sem hafði borist hátt í loft! Hilmar átti stórleik i vörn og sókn, Sigurður Gunnarsson lék einnig vel og hornamennirnir Guð- mundur Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson stóðu fyrir sínu. Kristján Sigmundsson átti þokkalegan dag í markinu. • Mörk Víkings: Sigurður Gunn- arsson 5, Hilmar Sigurgíslason 4, Guðmundur Guðmundsson 4, Bjarki Sigurðsson 4, Árni Friðleifsson 1, Karl Þráinsson 1, Sigurður Ragnars- son 1. • Markahæstir hjá ZSKA: Zubjuk 5, Vasiliev 4, Manuilenko 4, Murz- akov 4. Dómarar voru júgóslavneskir og voru að sögn Halls hagstæðir heimal- iðinu. Víkingar voru reknir útaf í samtals 14 mínútur en heimamenn í flórar. -VS • Hilmar Sigurgísiason átti stórgóðan leik i Moskvu i gær og háði harða rimmu við risann Savko. DV-mynd Brynjar Gauti Thomas Cup og Uber Cup í badminton: . ?TÁra ngur okkar var framar öllum vonum“ - góðir sigrar íslands á lokadegi keppninnar Elísabet Þórðardóttir, DV, Amsterdam: ísland lauk þátttöku sinni í Thom- as Cup og Uber Cup í Amsterdam á fóstudaginn með tveimur góðum sigrum. Karlaliöið vann Finna, 3-2, og hafnaði í öðru sæti i sínum riðli en kvennaliðið vann Wales, 3-2, varð númer þrjú. • í karlaleiknum vann Broddi Kristjánsson sigur á Jántti í hörku- leik, 15-10, 11-15, 17-14, og Árni Þór Hallgrímsson smassaði Haimonen í kaf, 12-15,15-6 og 15-4. Guðmundur Adolfsson tapaði hins vegar fyrir Tuominen, 15-13, 9-15, 6-15. Broddi og Þorsteinn Páll Hængsson töpuðu í tvíliðaleik fyrir Tuomimen og Haimonen, 4-15, 15-6, 15—18, og viðureign Árna Þórs og Ármanns Þorvaldssonar við Jántti og Lindelöf réð þvi úrslitum. Yfirburðir Árna og Ármanns voru miklir, þeir unnu 15-6 og 15-8, og ísland sigraði þar með, 3-2. Svíar fengu 6 stig í riðlinum og fóru í úrslitakeppnina, íslendingar 4, Finnar 2 en Áusturríkismenn ekkert. • Kvennaleikurinn viö Wales var líka tvísýnn. Þórdís Edwald vann Wiger, 8-11, 11-7, 11-6, og Guðrún Júlíusdóttir vann Doody, 11—6 og 8V\>iD\h- ,tnu -ii 11-3, en Elísabet Þórðardóttir tapaði 11-6, 4-11, 10-12 fyrir Davies. Kristín Berglind og Kristín Magn- úsdóttir tryggðu sigurinn með því að leggja Hybart og Rees í tvíliðaleik, 15-11 og 15-8. Kristín M. fékk spaða í augað þegar staðan var 11-7 í seinni lotunni og var ráðlagt af sjúkraþjálf- ara að hætta en hún þraukaði og uppskar sigur. Staðan var þá 3-1 en þegar Elísabet og Þórdís áttu að mæta Watson og Doody kom í ljós að Þórdís var varla leikfær vegna tognaðra liöbanda. Ekki mátti gefa leikinn þvi að þá yrði öll viðureignin dæmd íslandi töpuð. Ekki mátti heldur skipta inn á fyrir Þórdísi nema að fengnum læknisúrskurði. Hún haltraði í gegn- um leikinn sem tapaðist 15-17 og 4—1.5. England fékk 6 stig í riðlinum, ír- land 4, ísland 2 en Wales ekkert. • Það urðu síðan England, Dam mörk og Svíþjóð sem urðu í þremur efstu sætunum í karlakeppninni og England, Danmörk og Holland í kvennakeppninni. Þessar þjóðir verða fulltrúar Evrópu á heims- meistarámótinu í Kuala Lumpur í Malaysiu. í Thomas Cup, karlakeppninni, nfini iii Biai’í'4 .1-8 .ðihiövjggsb ti leika í úrslitunum: Kína, Malaysía, Indónesía, Suður-Kórea, Indland, England, Danmörk og Svíþjóð. í Uber Cup, kvennakeppninni, leika: Kína, Malaysía, Indónesía, Suöur-Kórea, Japan, England, Dan- mörk og Holland. • „Árangur okkar á mótinu var framar öllum vonum," sagði Ár- mann Þorvaldsson, einn landsliðs- manna, í spjalli við DV. „Það var fyrirfram ljóst að við myndum tapa fyrir Svíum en hinir sigrarnir eru til marks um framfarir i íþróttinni heima á íslandi. Sérstak- lega var sigurinn gegn Austurríki mikilvægur en hann markaði á viss- an hátt tímamót. Við höfðum aldrei áður lagt Austurríkismenn aö velli,“ sagði Ármann. • „Við lentum í 3. sæti í riðlinum og heföum að ósekju mátt vera ofar. Okkur gekk ekki nægjanlega vel gegn írlandi en í þeim leik töpuðum við öllum leikjum mjög naumlega," sagði hins vegar Guðrún Júlíusdóttir landsliðskona í spjalli við DV. „Á góðum degi getum við hiklaust lagt Irana að velli,“ sagöi hún. -EÞ/VS/JÖG Staða forstöðumanns á nýju dagvistarheimili í Selja- hverfi er hér með auglýst laus til umsóknar. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. óskast til starfa Krabbameinslækningadeild 11E, Landspítala. Læknaritari óskast í fullt starf á krabbameinslækningadeild 11 E, nýja deild. Til greina kemur einnig að ráða tvo starfsmenn í 50% starf. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun æskileg. Upplýsingar gefur Kjartan Magnússon sérfræðingur, sími 29000-431. Geðdeild Landspítala að Kleppi. Óskum að ráða fulltrúa í fullt starf á skrifstofu geð- deildar Landspítala að Kleppi. Vinnutími frá 8.30- 16.30. Fulltrúinn sér um starfsmannabókhald og er jafnframt ritari hjúkrunarframkvæmdastjóra. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg. Nánari upplýsingar gefur Ragnheiður S. Jónsdóttir, fulltrúi hjúkrunarforstjóra, sími 38160-65. Umsóknirsendisttil skrifsofu hjúkrunarforstjóra, geð- deild Landspítala að Kleppi. Vífilsstaðir - eldhús. Óskum að ráöa ritara í 50% starf í eldhús Vífilsstað- aspítala. Vinnutími eftir hádegi. Vélritunarkunnátta og einhver reynsla af tölvuvinnslu æskileg. Nánari upplýsingar gefur yfirmatráðskona, Þuríður Hermannsdóttir, sími 42800. RÍKISSPÍTALAR ^ STARFSMANNAHALD VÉLSMIÐJUR - GATASNITTUW Vantar þig afkastamikla snittvél til skemmri eða lengri tíma? Hjá okkur geturðu leigt loftknúna snittvél sem snittar í hvaða efni sem er og er mjög auðveld í notkun. Leigjum einnig hljóólátar loftpressur til notk- unar með snittvélinni eða til leigu sér, t.d. fyrir iðnaðarmenn eða teiknistofur. Kannaðu málið! Garðsenda 21, 108 Rvík. Sími 686925 L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.