Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Side 6
26
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 1988.
Iþróttir
Körfubolti
um helgina
Úrvalsdeild:
UMFN-HAUKAR
89-81 (52-37)
Stig UMFN: Isak Tómasson 36, Helgi
Rafnsson 15. Teitur Örlygsson 14, Valur
Ingimundarson 12, Sturla Örlygsson 6,
Hreiöar Hreiðarsson 4, Ellert Magnús-
son 2.
Stig Hauka: Henning Henningsson 32,
ívar Asgrimsson 15, Pálmar Sigurðsson
13, Ólafur Raihsson 12, Tryggvi Jónsson
5, Ingimar Jónsson 4.
Áhorfendur: 150.
ÍR-ÍBK
8(U75 (28-35) (58-58) (68-68)
Stíg ÍR: Karl Guðlaugsson 22, Jón Öm
Guðraundsson 19, Ragnar Torfason 11,
Bjöm Steffensen 10, Bragi Reynisson 6,
Vignir M. Hilmarsson 6, Jóhannes
Sveinsson 5, Haildór Hreinsson 1.
Stig ÍBK: Guöjón Skúlason 14, Axel
Nikulásson 14, Sigurður Ingimundarson
12, Faiur Harðarson 8, Hreinn Þorkels-
son 8, Jón Kr. Gíslason 7, Ólafur Gott-
skálksson 4, Magnús Guðtlnnsson 4,
Matti Stefánsson 4.
Áhorfendur: 66.
KR-ÞÓR
111-72 (47-24)
Stig KR: Guðni Guðnason 27, Birgir
Mikaelsson 21, Jóhannes KristbjOmsson
14, Simon Ólafsson '14, Ástþór Ingason
9, Láms Árnason 8, Gauti Gunnarsson
7, Matthías Einarsson 7 og Bjöm Ingi-
mundarson 4.
Stig Þórs: Jóhann Sigurðsson 16, Ei-
ríkur Sigurðsson 13, Björn Sveinsson 12,
Guðmundur Björnsson 9, Konráð
Óskarsson 8, Bjami Össurarson 7, Ágúst
Guðmundsson 4 og Einar Karlsson 3.
Áhorfendur: 40.
UMFN.....14 12
ÍBK......13 10
Valur....13 8
KR.......13 8
2 1235-1023 24
3 1018-862 20
5 1022-883 16
5 1068-923 16
UMFG........14 7 7 1024-1016 14
Haukar... ...13 7 6 964-920 14
ÍR ...13 6 7 951-977 12
Þór ... 14 1 13 1029-1361 2
UBK......... ...13 1 12 712-1058 2
1. deild karla:
Léttir-ÍA 71-70
Tindastóll n ío 1 976-740 20
UÍA n ío 1 747-602 20
ÍS 11 9 2 801-643 18
Léttir 12 5 7 752-832 10
HSK 10 4 6 640-679 8
ÍA 11 4 7 696-785 8
Reynir 11 2 9 617-747 4
Skallagr... 11 0 11 713-924 0
• Guðni Guðnason KR-ingur býr sig undir að senda knöttinn í körfu Þórsara. Guðmundur Björnsson norðan-
maður getur lítið gert til að hindra það. DV-mynd Brynjar Gauti
Einstefna í Hagaskóla:
KR-ingar
gerðu 111
gegn Þór
- mesti munur 45 stig
KR-ingar unnu auðveldan sigur á
Þórsurum í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta í Hagaskóla í gær. KR-ingar
fóru vel yfir 100 stiga múrinn, skor-
uöu 111 stig gegn 72 stigum norðan-
manna.
Stórsigur vesturbæjarliðsins kom
alls ekki á óvart gegn slöku liði Þórs-
ara. Norðanmenn byrjuðu leikinn
samt sem áður með nokkrum látum
og komust í 4-1 eftir 2 mínútur en
þá fór KR-liðið í gang og eftir það
hafði það leikinn algerlega í höndum
sér. KR komst 23 stigum yfir fyrir
leikhlé og staðan var 47-24 í hálfleik.
Yfirburðir KR
Síðari hálfleikurinn var einungis
formsatriöi og spurningin aðeins hve
stór sigurinn yrði. Guöni og Birgir
sýndu góð tilþrif og reyndar fékk allt
KR-liðið að njóta sín í sókninni enda
mótstaöan lítil. Mestur varð munur-
inn 45 stig, 110-65 þegar stutt var
eftir, en Þórsarar náðu að klóra örlít-
ið í bakkann á síðustu mínútunni og
lokatölur leiksins urðu 111-72.
KR-liöið stendur ágætlega að vígi í
deildinni og hefur góða möguleika á
að komast í úrslitakeppnina. Liðið
hefur sterka og leikreynda leikmenn
innanborðs og einnig unga og efni-
lega stráka sem fengu tækifæri í
þessum leik og stóðu sig vel.
Lið Þórs var mjög slakt og það er
staðreynd að liðið hefur ekkert að
gera í úrvalsdeildinni. Liðiö vermir
botninn ásamt Breiðabliksmönnum
og næsti leikur liðanna verður
hreinn úrslitaleikur um fall. Jóhann
Sigurðsson og gamla kempan Eirík-
ur Sigurðsson voru skástir leik-
manna liðsins að þessu sinni.
Dómarar voru þeir Sigurður Val-
geirsson og Kristján Möller og
dæmdu auðdæmdan leik meö prýði.
-RR
Tvísýnt í Seljaskóla:
Karl sökkti Keflvíkingum
- ÍR vann ÍBK, 80-75, eftir tvrframlengdan leik
Úivalsdeildarslagur á Suðurnesjum:
Haukarfóru halloka
en ísak hamförum
- Njarðvík vann Hauka, 89-81
„Þetta var stór stund. Þessi sigur
eflir sjálfstraustið, strákarnir gera
sér nú grein fyrir því hvers þeir eru
megnugir," sagði Einar Bollason,
þjálfari ÍR, en lið hans lagði Keflvik-
inga að velli í úrvalsdeildinni á
laugardag, 80-75.
„Það sem er í raun stórkostlegast
við leikinn," hélt Einar áfram, „er
að þessir óreyndu strákar skyldu
ekki brotna þrátt fyrir framlenging-
arnar. í sjálfu sér kemur þessi góði
leikur okkar ekki á óvart því það er
búin að vera mikil uppsveifla hjá lið-
inu, þetta er greinilega allt á réttri
leið og nú tökum við einn leik fyrir
hveiju sinni,“ sagði Einar.
Viðureign ÍR og ÍBK, sem fór fram
í Seljaskóla, var annars mjög tvísýn,
þótt Suðurnesjamennirnir hefðu
óneitanlega náð nokkru forskoti í
fyrri hálfleik. Ólafur Gottskálksson
hirti þá mörg varnarfráköst og Kefl-
víkingar voru eldfljótir fram og
skoruðu mörg stig sín í hraðaupp-
hlaupum.
í byrjun seinni hálfleiks var bilið
milli liðanna orðiö 15 stig og virtust
gestirnir þá hafa ráöin og sigurinn í
hendi sér.
En þá fóru Breiðhyltingar skyndi-
lega aö bíta frá sér og um miöjan
síðari hálfleik varð vörn þeirra nán-
ast höggþétt. Varð sókn Keflvíkinga
þá oft ráöalítil en ÍR-ingar nýttu sér
ófá mistök þeirra og skoruðu mörg
stig gegn fáum stigum gestanna.
Minnkaði bilið sífellt er á leið og
undir lokin náði Björn Stefíensen að
jafna rnetin, 58-58, og knýja til fram-
lengingar. í henni var allt í járnum
og kom því til annarrar framlenging-
ar. Margur ætlaði þá að reynsla
Keflvíkinga myndi færa þeim sigur
en annað kom á daginn. Lítt reyndu
strákarnir úr Breiðholtinu náðu að
hrista Keflvíkingana af sér og vinna
afar dýrmætan sigur. Réð þar mestu
sterk vöm og nánast óaðfinnanleg
hittni Karls Guðlaugssonar.
Eiga ÍR-ingar nú möguleika á að
vinna sæti í úrslitakeppni en til að
svo megi fara verða Breiöhyltingar
að vinna þá þrjá leiki sem þeir eiga
eftir í úrvalsdeildinni.
• Karl Guðlaugsson var sterkur í
liði ÍR-inga, skoraði fjölmörg stig ut-
an af velli en gerði einnig mistök og
var fullseinn í gang. Annars var lið
ÍR-inga jafnt og samvinnan í vöm-
inni réð á margan hátt úrslitum.
Hjá Keflvíkingum var Sigurður
Ingimundarson hins vegar bestur og
Ólafur Gottskálksson var traustur
meðan hans naut við. Hann meiddist
hins vegar snemma í leiknum.
-JÖG
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Það var einn maður, ísak Tómasson, sem lagði grunninn að sigri
Njarðvíkinga yfir Haukum úr Hafnarfirði í úrvalsdeildinni á fóstu-
dag. Leiknum lyktaði 89-81 fyrir heimamenn eftir aö staðan haföi
verið 52-37 í hléinu.
Þaö er skemmst frá því að segja að heimamenn í Njarðvík tóku
völdin í upphafi. Náðu þeir snemma afgerandi forystu sem þó vannst
upp að nokkru er leið á síðari hálfleikinn. Haukar gerðu þá á annan
tug stiga gegn tveimur stigum heimamanna og virtust meistararnir
ætla aö springa á endasprettinum. En annað kom á daginn. Er mest
reið á, er allt stefndi í voða, settu Suðurnesjamennirnir í þann gír
sem gaf þeim sigur í leiknum. Bihð gleikkaði á nýjan leik og Njarð-
víkingar stungu gesti sína einfaldlega af.
Yfirburðamaður á vellinum var Isak Tómasson, í liði Njarðvík-
inga. Gerði hann 36 stig og mörg þeirra úr þriggja stiga skotum -
hittni ísaks var nánast óaðfmnanleg.
Henning Henningsson var hins vegar bestur Hafnfirðinga, eld-
fljótur og gaf lítið sem ekkert eftir.
Fremur lítið bar á stjörnum beggja liða. Pálmar var óvenju rýr í
Haukaliöinu og það sama má í raun segja um Val Ingimundarson
sem oft hefur gert betur meðal Njarövíkinga.
Sólbaösstofur — Sóldýrkendur
„Superperan COSMOLUX S “ tryggir órangurinn.
COSbAOLUX®- S
CAl -12-100W
PREHEAT-BIPIN
Made in VV -Cermany
PÁLL STEFÁNSSON UMBOÐS OG HEILDVERSLUN BLIKAHÓLUM 12 111 — REYKJAVÍK S 91-7 25 30.