Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.1988, Síða 10
30
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 1988.
B fl n REYKJKJÍKURBORG ö
Acuc&an Sfödun
HEIMILISHJALP
Starfsfólk óskast til starfa í hús Öryrkjabandalags
íslands í Hátúni.
Vinnutími 2-4 tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 18800.
Fr?
ÚTBOÐ - FYLLINGAR
Hafnarfjarðarhöfn leitar tilboða í fyllingar í suður-
höfn. Áætlað magn um 40.000 rúmmetrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
8, mars kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingur.
Sjúkraliðar
óskast tíl starfa
Öldrunarlækningadeild, Hátúni 10 b.
Sjúkradeildir öldrunarlækningadeildar eru sérhæfðar
í rannsókn, umönnun og meðferð aldraðra. Notaleg-
ur vinnustaóur og góður starfsandi.
Sjúkraliði óskast nú þegar. Til greina kemurfullt starf
eða hlutastarf. Vinnutími eftir samkomulagi.
Sjúkraliði óskast nú þegar á næturvaktir. Starfshlut-
fall eftir samkomulagi.
Laun sjúkraliða á öldrunardeildum eru tveimur launa-
flokkum hærri en á almennum deildum.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, sími 29000-582.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
Hjúkninar-
fræðingar
óskast tíl starfa
Öldrunarlækningadeild, Hátúni 10 b.
Sjúkradeildir öldrunarlækningadeildar eru sérhæfðar
í rannsókn, umönnun og meðferð aldraðra. Notaleg-
ur vinnustaður og góður starfsandi.
Hjúkrunarfræðingur óskast nú þegar. Til greina kem-
ur fullt starf eða hlutastarf. Vinnutími eftir samkomu-
lagi.
Einstaklingsbundin aðlögun í samráði við deildar-
stjóra.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, sími 29000-582.
Landspítalinn - kvennadeild.
Hjúkrunarfræðingur óskast til afleysinga í 80-100%
vinnu á kvenlækningadeild 21-A frá 1. apríl 1988.
Vaktavinna.
Nánari upplýsingar gefur María Björnsdóttir hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, sími 29000-509.
Umsóknir sendist til hjúkrunarframkvæmdastjóra
kvennadeildar.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN að nýrri íþróttamiðstöð Vikinga var tekin á laugardag að viðstöddu
fjölmenni. Var það Agnar Ludvigsson sem hélt um spaðann en hann hefur verið einn mestur stuðnings-
maður Hæðargarðsliðsins í áraraðir. Mannvirki Víkinga mun rísa á nýju athafnasvæði þeirra í Fossvogi
og er ætlunin að þar verði t framtíðinni miðstöð félagslifs í hverfinu. Húsiö mun risa af grunni er nær
dregur vorinu en í því verður einnig búningsaðstaða fyrir knattspyrnulið félagsins:
„Við munum taka svo á framkvæmdum að okkur auðnist að spila heimaleikina í Fossvoginum í sumar,“
sagði Jóhann Óli Guðmundsson í spjalli við DV. Jóhann er formaður Vikings.
DV-mynd-Brynjar Gauti/JÖG
Muggur á mánudegi:
• Skyldi einhver þessara
föngulegu pilta sækja um
vegabréfsáritun til Austur-
Þýskalands?
Manch. Utd
rétt komið á
gervigrasið
Það munaði litlu að enskt stórliö
kæmi hingað til lands á laugardag-
inn og léki við ólympíulandslið
íslands á gervigrasinu í Laugardal.
Ég hef það eftir áreiðanlegum
heimildum að hársbreidd hafi
munað að Manchester United
kæmi - á hádegi á fimmtudag kom
í ljós að margir leikmanna voru
bundnir við einhverja góðgerða-
starfsemi og þar með var íslands-
ferðin úr sögunni. Þá var reynt við
önnur lið sem áttu helgarfrí í ensku
knattspymunni, fyrst Norwich og
síðan Nottingham Forest, en það
tókst ekki. Varla þarf að taka fram
að Halldór Einarsson, „Henson",
átti hlut að máli.
Norðanmenn
sendir suður
á Þórsleik
Eitt af bestu dómarapörum
landsins í handboltanum, Ólafur
Haraldsson og Stefán Arnaldsson,
hefur búsetu á Akureyri. Þar af
leiðandi hafa þeir ansi oft verið
settir á heimaleiki noröanhðanna,
KA og Þórs. Þegar Þór og KR léku
í 1. deildinni á Akureyri fyrir
skömmu brá hins vegar svo við að
dómarar voru sendir að sunnan,
og sagt að Ólafur og Stefán væru
búnir að dæma svo oft hjá Þórsur-
um. Allt í lagi með það. Síðan fengu
þeir fóstbræður í hendur lista yfir
næstu verkefni - og þar var efstur
á blaði leikur Stjörnunnar og Þórs
í Digranesi! Sendir suður, til aö
dæma leik hjá Akureyrarliöi, og
það gerðu þeir með sóma eins og
við var að búast.
------------------------1
Meðfarsíma 1
ogvasaljós i
í Höllina? i
Vinnuaðstaða fyrir íþróttafrétta- ‘
menn á völlum og í íþróttahúsum I
telst enn fmmstæð hér á landi þótt
smám saman horfi til betri vegar. |
ÁLaugardalsvellinumogíHöllinni ■
hefur hún verið bætt talsvert - en I
betur má ef duga skal. í gærkvöldi ■
var gersamlega ljóslaust hjá þeim I
sem skrifuðu um handboltaieikina I
í Laugardalshöllinni og kunnu 1
starfsmenn engin ráð til úrbóta. I
Þar og á fleiri stöðum er einnig .
mikill skortur á símum þegar |
margir þurfa að ná sambandi við i
sína fjölmiðla á sama tíma - þurfa ■
þá að standa í biðröðum við tíkalla- I
símana og missa af því sem er að ■
gerast á hallarfjölunum á meðan. I
Eg sé ekki betur en íþróttafrétta-
menn verði að bæta við farteski |
sitt vasaljósi og farsíma þegar þeir ■
mæta næst í Höllina.
Katarínuæði j
á íslandi i
Hin íturvaxna Katarina Witt frá |
Austur-Þýskalandi stal á margan ,
hátt senunni á nýloknum vetrar-
ólympíuleikum. Utht, klæðaburð-
ur og fimi á ísnum - ýmist eitt I
þessara atriða eða fleiri hehluðu I
margan karlpeninginn upp úr 1
skónum og einhveijir höfðu I
áhyggjur af því að miöatriðið hefði _
miður æskileg áhrif á dómara |
keppninnar. Hér á landi eignaðist i
húnfjöldadyggraaðdáenda.flestra I
af „sterkara kyninu" - og hef ég |
heyrt menn viðra þá hugmynd í I
alvöru að flýja gegn straumnum - I
austur fyrir jámtjaldið.