Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
Spumingin
Ert þú sátt(ur) við Ijósa-
notkun ökutækja allan
sólarhringinn?
Haukur Magnússon: Ég er ósáttur
viö hana, a.m.k. yfir bjartasta tíma
sumarsins.
Loftur Ásgeirsson: Ég er mjög sáttur
við hana og tel hana skynsamlega.
Augu hinna blindu munu opnast fyr-
ir gagnseminni.
Sigurður Þór Salvarsson: Mjög sátt-
ur viö hana og tel þetta mikið
öryggisatriði - þekki þaö af eigin
raun frá því ég var í Svíþjóö.
Garðar Sigurþórsson: Alveg fullkom-
lega - búinn aö nota þetta stöðugt frá
árinu 1981.
Hjörtur Erlendsson: Já, ég er þaö,
allavega aö vetrinum.
Kolbrún Björnsdóttir: Ég er þaö eig-
inlega og ætla aö nota ljósin.
Lesendur
DV
Opið bréf til botgarráðs frá kennurum í Skóla sf.:
Athugasemd v/byggingar
ráðhúss Reykjavíkur
Vigdís Hjaltadóttir cand. real.
skrifar:
Háttvirta borgarráð!
Ráöhús byggt á þeim stað sem
valinn hefur veriö viö Tjörnina í
Reykjavík á eftir að breyta miklu
í miðborg Reykjavíkur. Byggingin
þrengir mikið að nágrenni Tjarnar-
innar og raskar jafnvægi þessa
bæjarhluta mun meira en maður
fær séð i fljótu bragði þegar líkanið
er skoðað.
Aðliggjandi götur eru þegar
þröngar og munu vart sinna þeim
umferðarþunga sem óhjákvæmi-
lega fylgir í kjölfar byggingarinnar.
Reykjavík er ekki lítil borg aö flat-
armáli og varla ætti að vera skort-
ur á rými fyrir húsið.
Skóli s.f. er til húsa við Hallveig-
arstíg en við Hallveigarstíginn
höfum við eitt gleggsa dæmið um
skipulagsmistök síðustu ára. Við
álítum að bygging ráöhúss á þeim
stað, sem því er ætlaður núna, yrði
álíka slys í skipulagningu miö-
bæjarins eins og Iðnaðarmanna-
húsið er fyrir Þingholtin.
Á sínum tíma, þegar sótt var um
að byggja Hallveigarstaði við Hall-
veigarstíg, þótti það hús of stórt
fyrir þennan stað og Hallveigar-
staðir voru síðan byggðir við
Túngötu. Seinna var staðsetningin
við Hallveigarstíg heppileg fyrir
Iðnaðarmannahúsið, sem er helm-
ingi stærri byging og fylgir því
eðlilega helmingi meiri umferö. -
Okkur er spurn, hvað ræður þess-
um vinnubrögðum?
Við erum sammála um að ráðhús
eigi heima í miðborginni. En það
eru til aðrir staðir en Tjörnin og
nágrenni hennar og ekki er ástæða
til að riðla jafnvægi í þessum bæj-
arhluta. Hvað með Skúlagötu, á
móti Seðlabanka og húsi Fiskifé-
lags íslands; hefur sá kostur verið
skoðaður og þá að byggja húsið út
í sjó? - Það myndi spara milljónir,
bara 'í byggingu á bílastæðum.
Allir hljóta að vera sammála um
að ráðhús Reykjavíkur mun njóta
sín betur þar sem rýmra er um
það, og það er ótvíræður kostur að
þaö sé greiöfært til og frá húsinu.
Á horninu, þar sem Kalkofnsvegur
mætir Skúlagötu, fær ráðhúsið
notið sín frá öllum sjónarhornum,
t.d. frá sjó og frá bænum, meö Esj-
una í baksýn.
Setjum líkanið út í sjó þar sem
þessar götur mætast og lítum á
hvernig þaö kemur út. Skoðum vel
kosti og gaíla þessarar staðsetning-
ar og höfum í huga að allur
samanburður er hollur. - Þar sem
þetta bréf er skrifað á fostu er við
hæfi að enda með nokkrum línum
eftir Hallgrím Pétursson:
„En með því mannleg vizka
í mörgu náir skammt,
á alt kann ekki að gizka,
sem er þó vandasamt,
kost þann hinn bezta kjós.“
Veikt réttarfar
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Ég vil beina nokkrum orðum til
ráðamanna og þingmanna í sam-
bandi viö réttarfar okkar íslend-
inga. Ég gæti trúað, aö við séum í
hópi þeirra þjóða, þar sem ríkir
mjög veikt réttarfar. Ég álít, að þau
lög er við búum við í dag séu orðin
úrelt og ekki nógu ströng, þannig
að Alþingi ætti að semja ný lög sem
væru mun strangari. Skal ég nú
benda á ýmislegt máli mínu til
stuðnings.
Hér á höfuðborgarsvæöinu er á
feröinni alls kyns óþjóðalýður, inn-
brotsþjófar, jafnvel morðingjar og
nauðgarar, sera leggja ungar stúlk-
ur í einelti og eyðOeggja líf þeirra
það sem eftir er. Hvar er nú
Kvennalistinn og þær konur er
sitja á þingi til að gera einhverjar
ráðstafanir til að fyrirbyggja að
þessir glæpamenn geti haldið
áfram iðju sinni?
Og það er margt fleira hægt að
benda á. Er t.d. nokkurt vit í því
að láta 17 ára krakka hafa bílpróf?
Ég hef oft hlustaö á það að þessi
ungmenni á aldrinum 17-20 ára
hafa valdið slysum með framúr
akstri og kæruleysi. Fyrir nú utan
þaö, að þeir hafa ekki vit á að haga
akstrinum í samræmi við ástand
vega.
Eg er sannfærður um, að ef aldur-
inn yrði færður upp í 21 árs myndi
slysum fækka mjög. Einnig má
benda á það, aö drukknir menn
undir stýri valda oft slysum og ég
tel, að það eigi að taka af þeim rétt-
indin ævilangt við fyrsta brot, því
þetta er sjálfskaparvíti.
Allir þessir glæpamenn, sem ég
hefi minnst á fá milda dóma,
kannski nokkrar vikur í fangelsi,
þanníg að þeir halda iðju sinni
áfram. Ég vona að dómsmálaráð-
herra skoði þessa ábendingu. Það
þýðir ekkert aö vera með neina
hálfvelgju eða vettlingatök á svona
menn.
Hringið í síma
27022
milli kL 13 og 15
eða skrifLð.
„Snjáðir Frakkar?“
7994-2146 skrifar:
Fimmtudaginn 25. febr. sl., er ég las
„rokksíðuna“ í Morgunblaðinu,
rakst ég á grein og yfirskriftin var
„Snjáðir Frakkar". Það vill nú svo
til að ég var á þessum umræddu tón-
leikum ásamt hópi af fólki. Þar kom
fyrst fram hljómsveitin Síðan skein
sól og spilaði hún þokkalega.
Þar næst kom fram hljómsveitin
Frakkarnir en í þeirri hljómsveit eru
þeir Gunnar Erlingsson, sem spilar
á trommur, Björgvin Gíslason, sem
leikur á gítar, Þorleifur Guðjónsson
sem spilar á bassa og Mike Pollock,
sem syngur.
Þeir léku góða rokktónlist allan
tímann. Samspilið var óaðfinnanlegt
og síðast en ekki síst voru öll lögin
ný af nálinni. Okkur kom saman um
að þetta hefðu verið mjög vel heppn-
aðir tónleikar og alveg frábært að
Frakkarnir skuli vera byijaðir aö
spila aftur. Gangi ykkur vel, strákar!
„Vel heppnaðir tónleikar hjá Frökk-
unum,“ segir bréfritari.
Flosi Olafsson leikari og Thor Vilhjálmsson rithöfundur. - „Menn ekki al-
mennt hrifnir af því að þeir séu notaðir sem tálbeita til þess að dubba upp
á rás 2“ segir m.a. í bréfinu.
Omakleg ummæli
Baldvin Þ. Kristjánsson skrifar:
Hér á dögunum saknar Frímann
Einarsson í DV Flosa Ólafssonar úr
morgunútvarpi rásar 2. Það gera
fleiri. En lofa má einn án þess aö
lasta annan. „Við tók maður að nafni
Thor Vilhjálmsson,“ segir Frímann,
rétt eins og þar sé um að ræða blá-
ókunnugan mann! - Svo er saknað
hressileika. - Enginn held ég þó að
þurfl að sofna undir Thor, þessum
eldhuga sem vissulega hristir upp í
svefnugum sálum í hvert eitt sinn
er hann opnar munn eða stingur nið-
ur penna.
Þá hnýtir Frímann í Thor fyrir
skort á víðsýni; hann sjái ekkert
nema Reykjavík! Leit mun þó vera á
manni meö víðari sjóndeildarhring
en Thor og skarpari sýn á menn og
málefni. Frímann er harla seinhepp-
inn í ásökunum sínum á Thor.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
menn munu almennt ekki hrifnir af
því að menn eins og Flosi og Thor
séu notaðir sem tálbeita til þess að
dubba upp á þá, frá upphafi, rándýru
og alóþörfu rás sem númer 2 er.
Það er æriö nóg pláss fyrir Flosa,
Thor og fleiri góða menn á gömlu
„Gufunni" okkar. Einnig þar er svo
margt,. sem má missa sig. En rás eitt
er nauðsynleg, og að henni á að hlúa.
Aðför að sparifjáreigendum:
Orð í tíma töluð
S.B. hringdi:
Ég vil taka heils hugar undir skrif
H.J. í lesendabréfi í DV hinn 23.
febrúar undir fyrirsögninni „Verða
mynduð samtök?“ Ég er-þess full-
viss að láti ráöamenn ekki sparifl-
áreigendur njóta þess réttar að
halda sparifé sínu óskertu með
þeim kjörum, sem nú hafa þó náðst
eftir áralangt misrétti, munu þeir
neyðast til að taka út sparifé sitt
eða stofna með sér samtök til að
verjast ágengni þeirra sem hvað
harðast ganga fram í því að rýra
verðmætin.
Einnig vil ég, úr því að ég er bú-
inn aö ná sambandi við ykkur, lýsa
mig sammála þeim er var að skrifa
um dauða bjarndýrsins fyrir norð-
an. Ég held að fólk almennt í
þéttbýlinu þekki ekki aðstæður og
skilyrði þess fólks sem býr úti á
landsbyggðinni við talsverða ein-
angrun.
Það lýsir því kannski best, er ég
heyröi einn fréttamann nýlega
segja við viömælanda sinn úti á
landsbyggðinni þar sem vetrar-
hörkur höföu ríkt: Hvaö komist þið
þá ekki milli bæja?