Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
21
Iþróttir
ff
Daníel Hilmarsson skíðamaður um ólympíuleikana í Calgaiy:
Var aldrei spurður
0***J*«|«x' s ** *. >'S
hvort eg tæki þatt!
hafði hlakkað mest til að vera með í tvíkeppninni
„Mistökin í upphafi leikanna stöfuöu af því aö ég
var aldrei spuröur hvort ég ætlaði að taka þátt í tví-
keppninni. Þaö var einfaldlega ekki gert ráð fyrir því
og farseðlar festir með það fyrir augum. Ferðin var
pöntuð þann 10. janúar án þess að haft væri samráð
við mig og þegar í ljós kom að ég ætlaði í tvíkepþnina
var ekki hægt að breyta neinu þar um. Menn verða
að læra af reynslunni og reikna með því í framtíð-
inni að við eigum þátttakendur í þeim greinum sem
keppt er í,“ sagði Daníel Hilmarsson skíðamaður í
samtali við DV í gærkvöldi.
Skórnir skipta mestu máli
en ekki skíðin
Sú afsökun var gefin á því að
Daníel keppti ekki að skíöi hans
hefðu ekki skilaö sér til Calgary
með öðrum farangri. „Það er rétt
að skíðin uröu eftir. Við rétt náðum
vél í Toronto og var sagt að þau
kæmust örugglega ekki með. En
þaö skipti engu máli - ég hefði allt-
af getaö oröið mér úti um skiöi til
að keppa á í Calgary. Aöalmáliö er
að vera með skóna meö sér og þá
hafði ég í handfarangrinum. Þeir
sem halda öðru fram fara með
rangt mál," sagði Daníel.
Vegna tafa á flugi kom Daníel of
seint til Calgary og var ekki heimil-
að aö taka þátt í tvíkeppninni sem
samanstendur af svigi og bruni.
„Þetta var ákaflega leiðinlegt því
ég haíði hlakkað mest til aö vera
með í þessari grein. Hún er ný á
ólympíuleikum og keppendur til-
tölulega fáir og því ágætir mögu-
leikar á aö ná langt. Ég hafði aldrei
keppt í bruni en stefndi aö því að
sigla klakklaust í gegnum það og
ná síðan góðum tíma í sviginu."
Þurfum að ná öllum
æfingaferðum
„Þegar ég kom til Calgary var
aöeins ein æfingaferð eftir af fimm
og keppnisstjórinn heimilaði mér
því ekki að keppa. Þaö var rétt hjá
honum, ég hefði ekkert haft að gera
í keppnina nema meö a.m.k. 2-3
æfingaferðir aö baki. Við íslending-
amir þyrftum helst að ná öllum
æfmgaferðum til að eiga möguleika
á einhveijum árangri," sagöi Daní-
el.
Frétti um styrkveitinguna
í gærkvöldi!
Daníel var einn þeirra íþrótta-
manna sem fengu styrk úr afreks-
mannasjóði fyrir ólympíuleikana,
30 þúsund á mánuöi tvo fyrstu
mánuði ársins. „Ég fékk styrkveit-
ingu á árinu 1987 og heyrði það
síöan utan að mér að ég heíöi verið
áfram á lístanum en veit hins vegar
ekkert um þaö ennþá. Það hefur
enginn haft samband við mig af því
tilefni og ég hef ekki gáö í banka-
bókina! En þetta styrkjakerfi á
fullan rétt á sér og hefur mikið að
segja, það þekki ég af reynslunni.
Ég er þakklátur fyrir það sem ég
hef fengið og vil líka þakka fyrir-
tækjum á Dalvík sem studdu mig
geysilega vel.“ Daníel var síðan
ánægður með aö heyra þær fregnir
sem DV færði honum að hann væri
60 þúsund krónum ríkari!
Tveimur sek. á eftir Sten-
mark, kláraði siðan af
þrjósku
Þegar Daníel missti af tvíkeppn-
inni komst hann í risastórsvigiö í
staöinn en það hafði ekki verið á
stefnuskránni og hann aldrei keppt
í þeirri grein áöur. Hann keyrði út
úr brautinni og var þar með úr leik.
„Mér gekk síöan illa í fyrri feröinni
í stórsviginu en sú seinni var góö
og þá bætti ég mig um fjórar sek-
úndur, og varö í 42. sæti. Þegar kom
að sviginu í lokin var ég staöráöinn
• Daniel Hilmarsson.
í að standa mig. Fyrri ferðin var
slök en sú seinni gekk frábærlega
lengi vel. Þegar aö millitímanum
kom var ég aðeins tveimur sekúnd-
um á eftir Ingemar Stenmark sem
var með besta tímann. En rétt eftir
þaö lenti ég út úr brautinni og hefði
að öilu jöfnu hætt keppni. Eg var
hins vegar orðinn svo þrjóskur að
ég fór aftur inn - ég ætlaði ekki
eftir það sem á undan var gengið
að falla úr keppni," sagði Daníel
sem stóð uppi í 24. sæti af 56 sem
luku keppni og 107 sem hófu hana.
„Þaö er mikil upplifun að taka
þátt í ólympíuleikum og þaö er
mitt mat að við íslendingar eigum
alltaf aö eiga þar keppendur. Það
er draumrn- allra íþróttamanna að
komast á ólympíuleika og hvetj-
andi fyrir þá að hafa slíkt til að
keppa aö. Með árunum hlýtur okk-
ur aö takast að byggja upp betri
hóp skíðamanna, það er stutt síðan
farið var aö veita einhverja pen-
inga aö marki í íþróttina og
vonandi heldur þetta áfram á réttri
braut," sagöi Daniel Hilmarsson að
lokum. -VS
Evrópukeppnin í handknattleik:
Essen fékk spænsku
meistarana Bidasoa
an.
• Þorbergur Aðalsteinsson er kom-
inn með lið sitt í úrslitakeppnina.
Lið Islendinganna í sænsku 1.
deildinni í handknattleik töpuðu
bæði óvænt á heimavelli um síðustu
helgi. Saab, lið Þorbergs Aðalsteins-
sonar, beið lægri hlut gegn Söder,
19-22, og var Þorbergur markahæst-
Sigurður Bjömsson, DV, Þýskalandi:
--------------------------\-----------
Essen, lið Alfreðs Gíslasonar, hafði
heppnina meö sér þegar dregið var
til undanúrslita Evrópukeppni
meistaraliða í gær. Þýsku meistar-
arnir mæta Bidasoa frá Spáni sem
er án efa besti kosturinn sem var
fyrir hendi. Essen á heimaleik á und-
ur hjá Saab með 7 mörk.
IFK Malmö, sem Þorbjörn Jensson
þjálfar og Gunnar Gunnarsson leik-
ur með, tapaði fyrir Lysekil, 21-26.
Saab og IFK Malmö eru bæði í öðru
sæti í sínum riölum. í norðurriðlin-
Hin viðureignin er á milli stórlið-
anna Metaloplastica frá Júgóslavíu
og ZSKA Moskva frá Sovétríkjunum.
Þau erú bæði margfaldir Evrópu-
meistarar og Víkingar lentu í klón-
um á þeim síðarnefndu í 8-liða
úrslitunum.
um er Irsta með 34 stig, Saab og
Hellas 29 hvort og Polisen 26 stig. í
suðurriðlinum er Váxjö með 29 stig,
IFK Malmö og Vikingarna með 28
stig og Hallby 24.
Þrjú efstu liðin í hvorum riðli kom-
• Kemst Alfreð Gíslason I úrslita-
leiki Evrópukeppninnar?
tapleik
ast í úrslitakeppni um sæti í úrvals-
deildinni og Saab er þegar öruggt
þangað en Malmö þarf 2-3 stig til
viðbótar til að tryggja sig.
-VS
NBA í nótt:
Antonio
sterkara
í lokin
„Leikurinn var lengst af í jafnvægi
en á lokasprettinum reyndumst viö
sterkari og tryggðum okkur góðan
sigur. Ég lék ekkert með liðinu í
leiknum sem ég er að sjálfsögðu ekki
ánægður með eftir þokkalega
frammistöðu í síðasta leik,“ sagði
Pétur Guðmundsson hjá San An-
tonio Spurs í samtali við DV í
morgun. En í nótt sigraði San An-
tonio Spurs lið Phoenix Suns,
114-109, á heimavelli eftir 62-51 for-
ystu í hálfleik.
Walter Berry var stigahæstur liðs-
manna og skoraði 29 stig. Næsti
leikur er á fóstudag á heimavelli
gegn Sacramento Kings. San Antonio
hefur unnið 22 leiki en tapaö 31 á
keppnistímabilinu og er ennþá í ör-
uggu úrslitasæti. -JKS
HandknatUeikur - Svíþjóð
Þorbergur skoraði sjö í
Ivar Webster körfuknattleiksmaður:
Hættur með landsliðinu!
- get ekki brosað framan í þessa menn og látið eins og ekkert sé
Ivar Webster, landsliðsmiðherji
úr Haukum, hefur ákveðið að gefa
ekki framar kost á sér til land-
sleikja fyrir íslands hönd. Hann
telur sig rangindum beittan af
dómstóli KKÍ og forystumönnum
körfuknattleikshreyfingarinnar -
eftir að hafa verið dæmdur í sjö
vikna bann, frá 11. febrúar til 1.
apríl, fyrir að slá niður leikmann
Breiðabliks fyrr í vetur.
„Ég er meðhöndlaður eins og
glæpamaður fyrir mitt fyrsta brot
á þeim átta árum sem ég hef leikið
á íslandi. Auðvitað átti ég að fá
leikbann, og þaö strax, en ekki á
þennan hátt löngu seinna. Mitt brot
átti sér ekki stað inni á leikvelli,
gerðist ekki frammi fyrir dómara
og áhorfendum, enda hefði ég þá
örugglega getað haldiö aftur af
mér. Á sama tíma slær leikmaður
í öðru liði annan niður, í leiknum
sjálfum, og fær eins leiks bann,“
sagði ívar í samtali við DV i gær-
kvöldi.
„KKÍ hefur stimplað mig með
þessum dómi og þeir sem þar
stjórna geta ekki æfiast til þess að
ég gefi kost á mér í landslið eftir
þetta. Eg bara get ekki horft framan
í þessa menn, brosað og látið eins
og ekkert sé. Körfuboltinn er mitt
líf og ég hef lagt allt í hann og í
vetur hef ég unnið mikið að ungl-
ingamálum fyrir KKÍ. í dómstóli
KKÍ sitja fyrrum landsliðsmenn og
þaö gerir málsmeöferðina enn
óskiljanlegri. Þeir hafa sýnt mjög
óskipuleg vinnubrögð í þessu máli
og ekki bætir úr skák að í þeim
hópi eru menn frá félögum sem eru
að berjast við Hauka í úrvalsdeild-
inni. Eg mun einbeita mér að því
að leika með Haukum héðan í frá,“
sagði Ivar.
Hann sagöi jafnframt að ef dóm-
stóll ÍSÍ myndi fella bannið niður
kæmi til greina að breyta afstöö-
unni til landsliðsins. „Sennilega
myndi ég gera það en ég gæti aldr-
ei litið þessa menn sömu augum
aftur. Síöan hefur dómstóll ÍSÍ enn
ekki getað komið saman og það
verður fyrst í næstu viku, og á
meðan líöur einn leikurinn af öðr-
um hjá Haukum. Það er hræðilegt
að horfa á aðgerðalaus," sagði ívar.
-VS
• ívar Webster.