Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Qupperneq 30
30
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
Lífsstfll
Sýnishorn af útvegg bárujárnshúss
eins og byggingarreglugerð frá 1903
kvað á um. Til hægri er dæmigerð
skástífa.
Á þessu spjaldi eru ýmsir kostagripir sem fyrst voru notaðir fyrir meira en öld. Það merkilega er að enn i dag
eru þessir hlutir notaðir, s.s. rennubönd, lamir, gluggakrækjur og stormjárn og allt er enn hægt að kaupa. Blikk-
smiðja J.B. Péturssonar útvegar það sem hér er framleitt og Aseta útvegar þaö sem kemur frá Danmörku.
Alltaf borgar sig að gera upp:
100 ára gamalt
hús endurbætt
Ungt fólk hefur sérstaklega tileinkaö
sér þá iðju að gera gömul hús upp
og fengiö í staðinn ómælda ánægju
af hibýlum sem í senn eru gömul og
ný. Á tæknisýningu Reykjavíkur-
borgar á 200 ára afmælinu, en hún
var haldin i Borgarleikhúsinu, voru
sýndir húshlutar gamalla húsa. Hér
voru á ferð sýningargripir sem eiga
engan sinn líka. Umsjón með þessum
hlutum hafði Leifur Blumenstein
byggingafræðingur á vegum bygg-
ingardeildar borgarverkfræðings.
Hér er um að ræða rúmlega hundrað
ára gamalt hús sem tekinn er þver-
skurður af þannig að berlega kemur
í ljós húsagerð eldri tíma. Einnig má
glöggt sjá hvernig hægt er að endur-
Efst á þessari mynd sést of háttliggj-
andi hallalaus þakrenna sem hefur
safnað í sig mosa vegna þess að
staðsetning rennunnar er röng.
Gluggafrágangur er hér endurbætt-
ur og greina má sérstakan frágang
bárujárns aftan við efra vatnsbretti.
Þversnið húsgrindar sést vel og
plægða klæðningin utan og innan á
grind.
, Til eru heimildir úr bókum bæjar-
sjóðs Reykjavíkur um að ákveðið
hafi verið að leggja járnþak á Skóla-
vörðuna áriö 1871. Það mun þó ekki
hafa verið gert og var járnið selt árið
1875. Þetta mun hafa veriö fyrsti vís-
ir að tilkomu bárujárns hér á landi.
Árið 1880 mun þó vera fullvíst aö
bárujárnið var orðið aðalbyggingar-
klæðning á þök og veggi húsa í
Reykjavik. Iðgjöld brunatrygginga
lækkuöu í kjölfarið og efnið þótti
henta vel til varnar bruna.
Árið 1903 urðu tímamót í sögu hús-
bygginga. Knud Zimsen samdi
byggingasamþykkt sem varð til þess
að hús urðu líkari hvert öðru og
meira traustvekjandi hvað varðar
_efni og byggingu. Enn þann dag í dag
eru merki þessarar samþykktar að
koma í ljós þegar eigendur gamalla
húsa kanna hönnun húsa sinna. Á
utanverð húsin var bárujárn klætt
ofan á lista, pappi var klæddur bæði
að utan og innan og plægð klæðning
skyldi vera báöum megin á grind-
inni. Að innan kom.svo það sem svo
margir kannast viö; strigaklæðning
innst, þá pappír og svo var málað.
Múrsteini hafði fram til þessa verið
hlaðið í húsgrindina. Því var nú
hætt og byrjað að einangra með
**-spónum og pappalögum eða grindin
var einfaldlega höfð tóm. Þar sem
byggingarnefnd á þessum tíma gekk
hart eftir því að þessari reglugerð
yrði framfylgt voru sum hús ekki
samþykkt strax. Má þar nefna hefð-
arhúsið Höfða.
Sýnishorn af aldagömlu húsi
Mýmörg dæmi má nefna um öll þau
gömlu hús sem hafa verið gerö upp
og jafnvel flutt á milli borgarhluta
eða jafnvel á milli bæja. Þar sést
glöggt hve mikil viröing er borin fyr-
ir þessum húsum sem hafa mannlega
þáttinn fram yfir nýbyggingar, þó
svo þær geti verið mjög elskulegar.
MIGATRONIC
- RALLY
NÝ SUÐUVÉL
A GÚÐU VERÐI
1 fasa - 160 amp.
Innifalið i verði:
hjálmur, 5 kg vírrúlla
og rennslisloki.
Verð m/söluskatti 35.937
ISELCO SF.
Skeifunni 11d - sími 686466
Leifur Blumenstein stendur hér viö yfir hundrað ára gamla hurð, uppruna-
lega og viðgerða. Skrár og lamir eru upprunalegar. Hægt er að taka svona
hurð i sundur á nokkuð einfaldan hátt. Rammi og spjald (fulningar) halda
sér en nýir listar koma um gler og spjald hurðar að utan og innan. Síðan
er hurðin slipuð og máluð.
bæta húsin með byggingarefnum
sem enn er hægt að kaupa. Það má
segja að þarna séu á ferð raunveruleg
hús og húshlutir sem sýna þróun
Heimilið
bárujámshúsa á mjög einfaldan hátt.
Ásigkomulag gamalla bárujárns-
húsa, sem eru víösvegar um landið,
er mjög mismunandi. Þó er ljóst að
DV-myndir Brynjar Gauti
það virðist næstum engu skipta
suma hve illa leikin bárujárnsklædd
timburhús eru því alltaf virðast ein-
hverjir vera nógu hugrakkir til að
ráöast í að leggja bæði peninga og
tíma í að gera upp þessi hús.
í Byggingaþjónustunni við Hall-
veigarstíg em þessir gömlu húshlut-
ar nú og fólk getur komið og skoðað
þróun húsagerðar á íslandi. Hægt er
að fá ábendingar um það hvernig
best er að bera sig aö viö að byggja
upp, breyta eða bæta gömlu húsin
sín.
-ÓTT.
Borðpantanir í símum 621625 og 11340. Snyrtilegur klæðnaður.
NÝR OPNUNARTÍMI
Opið alla virka daga í hádeginu og á kvöldin.
Um helgar: Föstudaga til kl. 02
Laugardaga frá kl. 18-02
Sunnudaga frá kl. 18-23.30