Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
33
DV
Hér er teikning af 38 fermetra svokölluðu Bragahúsi sem seld eru af S.G.
sumarhúsum á Selfossi. Við húsið er verönd. Verðið er á 3. stigi 966 þús. kr.
Verðið er eftirfarandi:
Gerð Stærð
Ægishús 26,Om2
Bragahús 38,3m2
Týshús 44,4 m2
Óðinshús 50,5 m2
1. byggingarstig
514.000
649.000
717.000
784.000
2. byggingarstig
603.000
766.000
852.000
933.000
3. byggingarstig
737.000
966.000
1.045.000
1.165.000
Kaupandi greiðir aukakostnað við
uppsetningu bústaðar, s.s. kostnaö
við flutning og ferðir manna.
Greiösluskilmálar eru þannig að 10%
af veröi greiðist við samning, 50% til
viðbótar á afgreiðslutíma eða við af-
hendingu og eftirstöövar síðan á 8-10
mán. frá afhendingu. Þó er hægt að
óska eftir annarri greiðslutilhögun.
Heimilið
10% við samning, 50%
við afhendingu og eftir-
stöðvar á 8 mán.
Þinur hf. við Fífuhvammsveg býð-
ur upp á 38m- og 46m- sumarhús á
tveimur byggingarstigum. Þetta fyr-
irtæki selur ekki lóðir beint en
sölumenn eru kaupendum innan
handar við að útvega land fyrir bú-
stað og fara þá gjarnan með fólki til
að skoða.
Byggingarstig þessara húsa eru
tvö. Lýsing 1. stigs er svohljóðandi:
Útveggjaeiningar eru úr timbri, ysta
klæðning er tvíbyrtur panill, heflað-
ur og fúavarinn. Gluggar í útveggja-
einingum eru smíðaöar úr furu og
opnanleg fóg eru úr oregon pine. Um
er að ræða tvöfalt gler. Sperrur eru
sýnilegar og tvöfaldar með togbandi
og þakflekar eru einangraðir og pan-
ilklæddir. Gólfbitar og lokunarplötur
milli gólfbita fylgja ásamt dregurum.
Þakkantaklæðning, litað þakstál,
rennubúnaður, kjöljárn og annar
búnaöur fylgir þessu stigi.
Á 2. stigi er búið aö einangra útveggi
og gólf með 100 mm af steinull og-
rakaverja með þolplasti. Klæðning á
útveggi og innveggi er með 13 mm
panil. Gólfklæöning er 22 mm gólf-
borð.
Veröið fyrir 38m- bústað er 718.000
kr. á 1. stigi og bætast við á öðru stigi
224.000 kr. Heildarverð er því 942.000
kr.
46m2 bústaður kostar 814.000 kr. á
fyrsta stigi en á öðru stigi kostar
hann 1.078.000 kr. Aukabúnað, eins
og 160 cm skyggni við gafl, er hægt
að fá fyrir 41.000 kr. og 15 metra pall
við gafl er einnig hægt að fá fyrir
42.000 kr. Greiðslukjör eru 10% út
við samning en við afhendingu skulu
50% andvirðis hafa verið greidd. Eft-
irstöðvar greiöast á 8 mánuðum frá
afhendingu.
Bústaður með öllu
K.R. sumarhús bjóða kaupendum
upp á hús á landi fullbúið og frágeng-
ið þannig að ekki þarf að gera annað
en að mæta á staðinn og njóta. Fé-
lagasamtök t.d. hafa notfært sér
fyrirkomulag af þessu tæi eöa aðilar
sem ekki geta gefiö sér tíma til að
vinna í eða viö bústaðina. Lóðir þær
sem fyrirtæki þetta hefur á sínum
snærum eru misjafnar í verði. Þar
getur kostnaöur, eins og reyndar í
öllum tilfellum lóða, verið á bilinu
300 þús. upp í hálfa aðra milljón. K.R.
Svona litur út inni í A-bústað frá Grundarfirði. Rýmið nýtist ekki eins vel
vegna halla veggjanna. Á móti kemur að uppi nýtist svefnloft.
VEISLUELDHUSIÐ
ÁLFHEIMUM 74
VEISLURÉTTIR
HEITIR 0G KALDIR
sendum hvert sem er - hvenær sem er
SÍMI 685660 og 686220
Lffsstfll
Þessir bústaðir tilheyra „einn með öllu pakkanum" frá K.R. sumarhúsum.
I Ej ® J ni’ | |1 | m ' -V?;
sumarhús hafa- verið með. lóðir í
Skorradal, í Grímsnesi við Laugar-
vatn eða við Apavatn. Allt eru þetta
staöir þar sem verð er í hærri kantin-
um enda eftirsóttir staðir. Húsin sjálf
sem boöið er upp á eru frá 38-50 fer-
metrar að stærð og eru í stórum
dráttum þannig að þau eru meö
grenipanil að innan og oregon pine
krossvið að utan. Bústaðirnir eru
T-laga og hafa yfirleitt stóra og allt
upp í 42m2 verönd fyrir utan. Krist-
inn Ragnarsson, eigandi fyrirtækis-
ins, sagði verðið á þessum bústöðum
geta náð allt að 2-2 'A milljón króna.
A-laga Grundarfjarðarhús
Á Grundarfirði eru nú enn fram-
leiddir svokallaðir A-bústaðir sem
draga nafn sitt af lagi sínu. Sumir
vilja meina að þessir bústaðir séu
orðnir úreltir og hafa því hætt þess-
ari framleiðslu. Bústaðir þessir hafa
hins vegar reynst prýðilega og eru
ódýrir þannig að þeir henta tnörgum.
Guðmundur Friðriksson á Sæbóli í
Grundarfirði er einn þeirra sem enn
framleiða slíka bústaði. Þeir eru um
35m2 að grunnfleti en þeir nýtast að
vísu ekki eins vel og aðrir þar sem
svo mikið er undir súð. í þessum
bústöðum nýtist hins vegar svefnloft
vegna byggingarlagsins. Bústaðir
þessir eru klæddir að utan með lit-
uðu stáli að ósk kaupanda. Eldhús-
innrétting fylgir en ekki klósett og
handlaug. Bústaðir þessir kosta
fullfrágengnir án uppsetningar um
600 þús. kr. -ÓTT.
ROTÞRÆR
Tveggja hólfa rotþrær B-2 Þriggja hólfa rotþrær B-3
Rotþræmar eru framleiddar úr Polyelhylene, sérstaklega styrktar gegn jarövegsþrýstingi. Laufléttar og með áratuga langan endingartima.
Helstu mál og stærðir.
Staölaðar rotþrær
Tegurtd: Fjó*di hóffa Vafnsrummál litrar HeildarTúm- m*l, lltrar A sm B am C am D sm E am Þyngdrof- þróar. heild
B-2/440 2 440 550" 83 78 - - oe* um25kg
B-/710 2 710 820" 127 122 - - 142*’ um35kg
B-3/1600 3 1600 2500 125 116 68 193 - um 95 kg
B-3/3000 3 3000 3900 225 218 80 305 - um 135 kg.
B-3/3600 3 3600 4500 268 261 80 348 - um 165 kg
11 Hér er átt við fjölda lítra tilheyrandi lengdinni E.
21 Endanleg hæð rotþróar fer eftir aðstfeðum m.a. jarðvegsdýpt.
Longdimar A og B eru miöjumál.
Askilinn er réttur til aö breyta málum og þyngd um J 5%.
Þrlggja hólfa rotþræmar hafa hlotlft viðurkanningu
Holluatuvamdar rlklalna.
Tveggja hólfa þræmar eru ætlaöar þar sem um litla
notkun er að ræða.
Einnig haagt aö fá sérsmlðaöar rotþrær þar sem
aðstæður eru erfiðar.
Rotþróarrörín má einnig nota sem ræsisrör, þau ryðga
ekki og þola mikinn þrýsting.
Boigaipkiif M.
Vesturvör 27, 200 Kópavogur, Sfmi 46966