Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Side 1
Hljómsveitin Pass meö smáliðsauka sér að stórum hluta um tónlistina
í sýningunni. DV-myndir GK
Sjallinn, Akureyri:
„Rokkskór
og bítlahár"
- frumsýning í kvöld
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég reyni að hafa þessa sýningu
öðruvísi en þær rokksýningar sem
settar hafa verið upp hér á landi,“
sagði Þorsteinn Eggertsson í sam-
tali við DV, en Þorsteinn er
höfundur og leikstjóri sýningar-
innar „Rokkskór og bítlahár" sem
frumsýnd verður í Sjallanum á
Akureyri í kvöld. í sýningunni
koma fram 8 söngvarar og 15
manna flokkur dansara og hljóð-
færaleikara.
Þorsteinn sagði að hér væri um
heimildasýningu að ræða og nær
hún yfir tímabilið 1955 til 1970.
„Fólk fær að kynnast mörgum
þekktum stjörnum eins og Elvis
Presley, Janis Joplin, The Beatles,
Rolhngs Stones og Little Richard
svo einhveijir séu nefndir," sagði
Þorsteinn.
- En eru til nægir skemmtikraft-
ar á Akureyri til að setja upp svona
Rokkað i anda Presley og dömurnar bráðna við fætur goðsins. Karl Örvarsson í hlutverki Presleys.
sýningu.
„Já, það er nóg til af fólki hér á
Akureyri," sagði Þorsteinn. „Ég er
alinn upp í Keflavík, sem var leið-
andi bær varðandi þessa tegund
tónlistar á sínum tíma, en ég er
ekki frá því að Akureyri hafi tekið
við því hlutverki. Hér eru Skriðjö-
klar, Stuðkompaníið og fleiri
unglingahljómsveitir og ekki má
gleyma Ingimar Eydal.“
Söngvarar í sýningunni verða
Erna Gunnarsdóttir, Ragnar
Gunnarsson, Júlíus Guðmunds-
son, Karl Örvarsson, Ólöf Sigríður
Valsdóttir, Ingvar Grétarsson, Sól-
veig Birgisdóttir og Þorsteinn
Eggertsson sjálfur. Við spurðum
hann hvort hann ætlaði sér í
„gamla Presley-gallann".
„Já, æth það bara ekki. Karl Örv-
arsson sýnir Presley ungan en ég
tek síðan við og gef smáinnsýn í
hvernig hann var orðinn undir það
síðasta,“ sagði Þorsteinn.
Boy George kemur fram á tón-
leikum í Laugardalshöltinni á
morgun.
Boy George í
Laugardals-
höllinni
Á laugardagskvöldið kemur
hinn heimsþekkti Boy George
fram í fyrsta sinn á íslandi.
Tónleikamir verða í Laugar-
dalshölhnni og heflast klukkan
21.00 með þvi aö Geiri Sæm og
Hunangstunglið koma fram og
munu þeir hita upp fyrir Boy
George næsta einn og hálfa tím-
ann. Kl. 22.30 mun Boy George
svo stiga á sviðið og ylja aðdáend-
um sínum með gömlum ognýjum
dægurflugum.
Bylgjan mun útvarpa frá fyrsta
klukkutíma tónleikanna.
Um hið dularfulla hvarf
- sjá bls. 19
Hollywood:
| Lonely Blue Boys
- ylja týndu kynslóðinni
Á fóstudags- og laugardagskvöldið kemur hljómsveitin Lonely Blue Boys
fram í Hollywood. Hljómsveitin, sem nú kemur saman efir langt hlé, hefur
staðið í ströngu við að æfa öll gömlu lögin sem hún gerði vinsæl fyrir nokkr-
um árum og gaf út á plötum, lög eins og Harðsnúna Hanna, Er ég kem heim
í Búöardal og mörg fleiri.
Hljómsveitina skipa þeir Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson, Rúnar
Júlíusson og Engilbert Jensen.
Lonely Blue Boys verða i Hollywod um helgina.
Glóðaðir kóngasniglar
- sjá bls. 18
íþróttir helgarinnar
- sjá bls. 30
Iinderman Band
- sjá bls. 20
Elías í Gallerí Borg
- sjá bls. 20