Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Qupperneq 1
31 14. TBL. LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988. Snjókarlinn Einu sinni voru Jóna, Sigga, Kalli og Bjarni úti að búa til snjóhús. Þau bjuggu líka til snjókarl með pípuhatt og skírðu hann Snæfinn snjókarl af því að þeim finnst vísan um hann svo skemmtileg. Þau sungu lagið og fóru síðan öll heim til sín að drekka. Katrín Lóa Vilhjálmsdóttir, 7 ára, Heiðarvegi 10, 800 Selfossi Snjórinn Einu sinni voru Jói, Siggi og Lóa að búa til snjókarl. Svo kom Lísa og spurði: „Má ég hjálpa ykkur að búa til snjókarlinn?“ Þá sagði Siggi: „Nei, það máttu ekki.“ Þá fór Lísa að gráta. Næsta dag voru Jói, Siggi og Lóa að búa til annan snjókarl. Lóa sá Lísu og spurði hvort hún vildi hjálpa þeim. Lísa sagði já og þau urðu öll góðir vinir. Guðrún Lára Róbertsdóttir, 8 ára, Engihlíð 22, 355 Ólafsvík Jósep skilinn útundan Einu sinni var lítill strákur sem hét Jósep. Hann langaði að búa til snjókarl með bekkj- arfélögum sínum. En Jósep var skilinn útundan. En hvers vegna? Jú, það var vegna þess að hann var ekki í eins úlpu og hinir krakkarnir. Mamma hans Jóseps hafði fár- ið með honum í kaupfélagið og keypt úlpu. En krökkunum fannst úlpan svo ljót að þeir vildu ekki leika við Jósep og meira að segja strákurinn, sem sat við hliðina á hon- um í skólanum, vildi ekki.tala við hann. En þá fór Jósep og bjó til sinn eigin snjókarl. Þetta var stór snjókarl með hatt, trefil og meira að segja kúst. Nú urðu krakkarnir öfundsjúkir og spurðu Jósep hvort hann vildi ekki leika við þá. En Jós- ep vildi það ekki. En svo sættust þau öll og fóru að leika sér samaru Þau bjuggu til marga, marga snjókarla. Þá varð Jósep glaður. Stefanía Margrét Vilbergsdóttir, 6, ára, Norðurgarði 10, 230 Keflavík Lísa litla Einu sinni var lítil stelpa sem hét Lísa. Hún var nýflutt í Breiðholtið og þekkti engan. En hvað var þetta? Það voru hvítir punktar dettandi úr skýjunum. Lísa vissi strax að þetta var snjór. Nú var sko gaman. Hún fór strax í úlpu og fór út. Þá sá hún nokkra krakka á aldur við sig vera að búa til snjókarl. Þau voru svo áköf að þau tóku ekki eftir Lísu litlu. Allt í einu datt Lísu ráð í hug. Hún fór og sótti Pésa bróður sinn og þau létu hendur standa fram úr ermum. Þau bjuggu til stærsta og fínasta snjókarl í heimi (eða það fannst Lísu). Þau létu á hann fína, brúna hattinn hans pabba og bláa trefilinn hans Pésa. Nú sáu hinir krakkarnir snjókarlinn og loksins nýju stelpuna sem hafði búið hann til. Krakkarn- ir urðu vinir og léku sér kringum snjókarl- ana sína. íris Stefánsdóttir, Blikanesi 10, 210 Garðabæ Gunnar Það var einu sinni strákur sem hét Gunn- ar. Einn daginn þegar hann vaknaði var búið að snjóa mjög mikið. Hann stökk á fætur og flýtti sér út að spyrja eftir vini sínum og vinkonu. Þau flýttu sér líká út. Svo fóru þau öll saman að búa til snjókarl. En svo kom Sigga og vildi líka hjálpa til. Það vildu hin ekki. Þá varð Sigga leið og horfði á þau. Snjókarlinn varð alltaf stærri og flottari og Sigga horfði alltaf á. Hún var komin mað tár í augun. Þá kom Gunnar til hennar og sagði að hún mætti alveg koma og leika með þeim. Svo gerðu þau öll saman tvo snjókarla og léku sér allan dag- inn. Nú var Sigga ekki lengur með tár í augunum. Magdalena Ósk Guðmundsdóttir, 8 ára, Holtagerði 45, 200 Kópavogi Jóhanna litla Jóhanna litla fékk ekki að vera með við að búa til snjókarl. Hún hafði verið að hrekkja krakkana í gær og þess vegna fékk hún ekki að vera með. Jóhanna bað fyrir- gefningar og þá vildu krakkarnir leyfa henni að vera með. Petrína K. Sigurðardóttir, 4 ára, Sóleyjargötu 1, 300 Akranesi Snjókarlinn Það var snjór úti. Allir krakkamir flýttu sér út að búa til snjókarl. Þegar Lína kom út voru krakkarnir í næsta húsi, þau Sigga, Benni og Bína, búin að búa til snjókarl. Svo fóru þau inn og sóttu fína pípuhattinn sem pabbi þeirra átti og þá var nú snjókarl- inn fínn. Sandra Guðmundsdóttir, 7 ára, Miðengi 16, 800 Selfossi Leiðinlegur dagur Það var morgunn og Gyða var að vakna. Hún leit út um gluggann og sá að það var kominn snjór og Brynja, Karen og Emil voru þegar komin út og byrjuð að búa til snjókarl. Gyða klæddi sig og hljóp niður í eldhús og borðaði í snatri. Emil, Brynja og Karen eru systkin sem búa í næsta húsi við Gyðu. Emil er elstur, hann er 10 ára, svo kemur Brynja, hún er 8 ára, og Karen er bekkjarsystir Gyðu, þær eru báðar 7 ára. Gyða hugsaði um hvað þetta yrði skemmti- legur dagur. Hún ætlaði meira að segja að búa til 10 snjókarla. Gyða fór í útifötin og hljóp út til krakk- anna. Gyða kallaði til þeirra: „Má ég vera með?“ Þá sagði Emil: „Nei, við ætlum að búa til okkar eigin snjókarl." Þá varð Gyða sár en herti sig þó upp og byrjaði að búa til snjókarl fyrir sig. Þá sagði Brynja: „Við eigum þetta pláss, þú verður að fara ann- að.“ Svo fóru krakkarnir að hlæja. Gyða fór heim og henni fannst þetta mjög leiðin- legur dagur. Guðný Hilmarsdóttir, 11 ára, Vesturási 51, 110 Reykjavík mín Sagan Skrifið sögu um þessa mynd. Sagan birtist síðan í 17. tbl. og getur að sjálf- sögðu hreppt verðlaunin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.