Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Page 4
20 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudag 17. apríl 1988 Árbæjarprestakall: Bamasam- koma í Árbæjarkirkju sunnudag kl. 10.30 árdegis. Fermingarguösþjón- usta í Árbæjarkirkju kl. 14. Organ- leikari Jón Mýrdai. Altarisgönguat- höfn fyrir fermingarbörn og vandamenn þeirra þriðjudaginn 19. aprO kl. 20.30. Sr. Guðmundur Þor- steinsson. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Fundur í safnað- arfélagi Ásprestakalls mánudags- kvöld 18. apríl kl. 20.30. Samúel Ólafsson segir frá starfi sínu í Afríku og sýnir litskyggnur. KafFiveitingar. Sumardagurinn fyrsti: Barnaguðs- þjónusta í Áskirkju kl. 11. Hrafnista: Guðsþjónusta sumardaginn fyrsta kl. 13. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns- son. Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00 (Ath. breyttan messutíma.) Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnasamkoma kl. 11.00. Elín Anna Antonsdóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Jónas Þórir. Æskulýðsfundur þriðjudagskvöld. Félagsstarf aldraöa miðvikudagseft- irmiðdag. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall: Fermingarguðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.00. Bamasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Sr. Þorberg- ur Kristjánsson. Dómkirkjan: Laugardagur: Bama- samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Egill Hallgrímsson. Sunnudagur: Messa kl. 11. Síðasta messa sr. Þóris Step- hensen fyrir ársleyfi hans. Orgelleik- ur í 20 mín. fyrir messuna. Sr. Þórir Stephensen. Landakotsspítali: Guðsþjónusta kl. 13.00. Orgelleikari Birgir Ás Guð- mundsson. Forsöngvari: Svala Nielsen ópemsöngkona. Sr. Þórir Stephensen. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Sigurbjörn Einarsson bisk- up messar. Félag fyrrverandi sókn- arpresta. Fella- og Hólakirkja: Barnasamkoma kl. 11.00. Ragnheiður Sverrisdóttir. Ferming og altarisganga kl. 14.00. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Org- anisti Guöný Margrét Magnúsdóttir. Mánudagur: Fundur í æskulýðsfé- laginu kl. 20.30. Miðvikudagur: Guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 20. Sóknarprestar. Tommy Hunt að kveðja gesti Þórscafés Bandaríkjamaðurinn Tommy Hunt, sem skemmt hefur gestum í Þórscafé og Mánaklúbb við góðar undirtektir í vetur ásamt hijómsveitinni Burgeisum, er nú á förum af landi brott. Um helgina mun Tommy koma fram í síðasta skipti á þess- um vetri í Þórscafé og Mánaklúbb. Tommy er þekktur fyrir að heilla áheyrendur sína upp úr skónum með hugýúfiim ballöðum og verður hans sjálf- sagt sárt saknað af mörgum. I verkum Soulages mynda kröftugar, dökkar línur óreglulegt munstur á björtum bakgrunni. Iistasafn íslands: Sýningáverkum Pierre Soulages A morgun kl. 15.00 veröur opnuð í Listasafni íslands sýning á verk- um franska listmálarans Pierre Soulages og mun listamaðurinn heiðra safnið með nærveru sinni við opnun sýningarinnar. Sýningin er fengin fyrir tilstilli franska sendiráðsins í Reykjavík. Á sýningunni verða 34 ætingar og spanna þær nær allan listferil hans. Sú elsta er frá 1952 en sú yngsta frá 1980. Verkin eru öll í eigu listamannsins. Soulages er fæddur árið 1919 í borginni Rodez í suð-austur Frakklandi. Eftir stríðslok settist hann að í París þar sem hann hefur verið búsettur síðan. Soulages er í hópi þeirra lista- manna sem komu fram á sjónar- sviðið eftir heimsstyijöldina síðari, þegar París var miöpunktur lista- heimsins en New York tók síðar við því hlutverki. Listamenn þessir voru kenndir við École de Paris eða Parísarskólann og er Soulages nú álitinn einn mikilvægasti fulltrúi hans. Hann hóf feril sinn sem abstrakt- málari og hefur æ síðan þróað sitt sérstæða myndmál sepi er í senn einfalt, sterkt og fágaö. í verkum hans mynda dökkar línur óreglu- legt munstur á björtum bakgrunni þar sem ljósið virðist flæða út úr sjálfri myndinni og gegnir mikil- vægu hlutverki. Soulages vinnur jafnt að mál- verkum sem grafík en yfirleitt ekki á sama tíma. í ætingunum hefur hann þróað sérstaka aðferð og stíl sem hentar þessari tækni afar vel en er sjálfstætt frá málverkunum. Verk Soulages eru í öllum helstu listasöfnum austan hafs og vestan og heíúr. hann verð fulltrúi Frakka á öllum mikilvægum alþjóðlegum sýningum og biennölum eftir stríð. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 11.00-17.00. Gallerí Svart á hvítu: Blýantsteikningar Á morgun kl. 14.00 verður opnuð í Gallerí Svart á hvítu, Laufásvegi 17, sýning á blýantsteikningum Valgerðar Bergsdóttur. Á sýning- unni verða verk, unnin á árunum 1987-88. Valgerður Bergsdóttir hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum heima og er- lendis. Hún hefur unnið að félags- málum myndlistarmanna og var formaður FÍM 1983-1985. Hún hefur kennt við Myndlista- og handíðaskóla íslands og við Myndlistarskólann í Reykjavík og var skólastjóri hans 1984-1987. Valgerður er fædd 1943. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1969-1971 og við Statens Kunstindustri- og Hándværkerskole í Osló. Mynd- menntakennari frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1973. Síðast hélt Valgerður einkasýningu í Ábo í Finnlandi 1983. En • af öðrum einkasýningum hennar má nefna sýningu í Bókasafni ísafjarðar 1983 og Gallerí Langbrók 1981. Sýningin er opin daglega nema mánudaga frá kl. 14.00-18.00. Sýn- ingunni lýkur 1. maí. í 1 i i c c 1 c c A morgun verður opnuð sýning í Norræna húsinu. Einnig verður þar dönsk I bókakynning. ] Á sýningu Elíasar B. Halldórs- sonar í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, era Iitlar og stórar oliumyndir, flestar frá síðustu tveimur árum. Elias er fæddur á Borgarfirði eystra 2.12. 1930. Elias stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla íslands 1955-1958. Síðan í'ramhaldsnám við listaakademi- una í Stuttgart og við Konungiegu Listaakademiuna i Kaupmamia- höfn. Hann hefur haldiö margar einkasýningar ogtekið þátt í sam- sýningum. Sýningunni lýkur 19. apríl og er hún opin virka daga frá kl. 10-18 og um helgar frá kl. 14-18. Austurstræti 10 Þessa dagana eru kynnt grafik- verk eftir Þórð Hall í sýningar- ' glugganum í Austurstræti 10 og ný keramikverk eftir Guðnýju Magn- úsdóttur. Kynning á verkunum varir næstu tvær vikurnar. Fríkirkjan í Reykjavík: Ferming og altarisganga kl. 11. Organisti Pavel Smid. Sr. Gunnar Bjömsson. Grensáskirkja: Messa með altaris- göngu kl. 11. (Ath. breyttan tíma.) Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. Hallgrimskirkja: Barnasamkoma og messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. - Beðið fyrir sjúkum. Sumardagurinn fyrsti: Skátamessa kl. 11.00. Landspítalinn: Messa kl. 10.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10.00. Sr. Tómas Sveinsson. Barna- guðsþjónusta kl. 11.00. Messa kl. 14.00. Sr. Amgrímur Jónsson. Org- anisti Orthulf Prunner. Hjallaprestakall í Kópavogi: Ferm- ingarguðsþjónusta kl. 10.30 í Kópa- vogskirkju: Kirkjukórar Hjallasókn- ar og Kópavogskirkju syngja. Organisti Friðrik V. Stefánsson. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson. Kársnesprestakall: Bamaguðsþjón- usta í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.00 árdegis. Foreldrar og forsvars- menn bama eru hvattir til aö koma með þeim til guðsþjónustunnar. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja: Kirkja Guöbrands biskups. Óskastund bamanna kl. 11. Söngur - sögur - myndir. Þórhallur Heimisson og Jón Stefánsson sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi á eftir. Sóknamefndin. Laugarnesprestakall: Guðsþjónusta kl. 11. Bamastarf um leið og guðs- þjónustan. Kaffi á könnunni eftir guðsþjónustu. Ath. sunnudaginn 24. apríl verður aðalsafnaðarfundur og hefst hann strax að lokinni messu rúmlega 12 á hádegi. Sóknarprestur. Neskirkja: Laugardagur: Æskulýðs- fundur fyrir 11-12 ára kl. 13. Sam- verastund aldraðra kl. ,15.00. Sýnd verður Reykjavíkurkvikmynd frá 1955 og bingó spilaö. Sunnudagur: Barnasamkoma kl. 11. Munið kirkju- bílinn. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Guðmundur Oskar Ólafsson. Mánu- dagur: Fundur hjá Kvenfélagi Neskirkju kl. 20.30. Þriðjudagur og fimmtudagur: Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Miðvikudagur: Fyrirbæna- messa kl. 18.20. Guðmundur Óskar Ólafsson. Seljakirkja: Fermipgarguðsþjónusta kl. 14. Síðasta ferming á vorinu. Org- anisti Kjartan Sigurjónsson. Ein- söngur: Steinarr Magnússon, Sr. Valgeir Ástráðsson. Seltjarnarneskirkja: Barnaguðsþjón- usta kl. 11.00. Eirný og Solveig Lára. Guðsþjónusta kl. 14.00. Kaffisopi á eftir. Mánudagur: Æskulýðsfundur kl. 20.30. Þriðjudagur: Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17.30. Sóknarprestur. Kirkja óháða safnaðarins.: Messa kl. 11.00. (Ath, breyttan messutímaO Organisti Heiömar Jónsson. Sr. Þór- steinn Ragnarsson. Eyrarbakkakirkja: Guðsþjónusta kl. 14.00. Sóknarprestur. Stokkseyrarkirkja: Barnamessa kl. 11.00. Sóknarprestur. Tilkynriingar Kvenfélag Neskirkju heldur fund mánudaginn 18. apríl kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar. Upp- lestur, söngur og fleira. Keflavíkurkirkja Guðsþjónusta kl. 14.00, aðalsafnaðar- fundur í kirkjunni eftir messu. Neskirkja Félagsstarf aldraðra. Samverustund á morgun, laugardag, kl. 15.00 í safnaðar- heimili kirkjunnar. Sýnd verður Reykja- víkurmynd frá 1955 og spilað bingó. Hafnarfjarðarkirkja Sunnudagsskóli kl. 10.30, guðsþjónusta kl. 14.00, organisti Helgi Bragason, séra Gunnþór Ingason messar. Gigtarfélag Islands fékk nýlega höfðinglega gjöf frá velunn- urum félagsins sem undanfarin ár hafa dyggilega stutt uppbyggingu Gigtlækn- ingastöðvarinnar. Þær færðu félaginu 500.000 krónur í minningu Þorbjargar Bjömsdóttur og er gjöfm stofnfé að styrktarsjóði gigtarsjúklinga. Gangleri er kominn út, fyrra hefti 62. árgangs. Það tlytur greina um andleg og heimspekileg mál. Alls em 13 greinar í heftinu auk smáefnis. Ráðsfundur III. ráðs Dagana 16. og 17. apríl verða haldnir fundir III. ráðs að Hótel Ársölum, Sel- fossi. Skráning hefst laugardag kl. 12.30, fundur settur kl. 14.00. Dagskrá: Félags- mál og ræðukeppni.' Skráning hefst sunnudag kl. 9.30, fundur settur 10.30. Dagskrá: Félagsmál, hádegiserindi. Fcmdirnir em öllum opnir. Ráðstefna um tónlistarskóla Félag tónlistarskólakennara mun gang- ast fyrir ráðstefnu í Reykjavik dagana 16. og 17.' apríl nk. og verður hún haldin í Æfmga- og tilraunaskóla Kennarahá- skóla íslands viö Háteigsveg. Tilgangur ráðstefnunnar er: 1) Að fá þá kennara sem kenna við hinar ýmsu deildir tónhstarskólanna til að bera saman hugmyndir sínar og reynslu í þeim tilgangi að styrkja starf skólanna og auka gæði kennslunnar. 2) Að skilgreina hvaða menntun tónlist- arskólakennarar þurfa að hafa ef stefnt verður að lögvemdun starfsheitisins. 3) Að gera tillögur um hvemig best verði staðið að menntun tónlistarskólakenn- ara, endurmenntun starfandi tónlistar- skólákennara og símenntun starfandi tónlistarskólakennara. Tómstundarstarfi grunnskóla Reykjavíkur er lokið Þátttaka í klúbbastarfsemi var ágæt, um 2500 börn tóku þátt í starfmu og vom viðfangsefnin fjölbreytt að vanda. Tóm- stundastarfmu lauk með vormóti grunn- skóla í Breiðholtsskóla 25. mars sl. Nýtt sendiherraembætti Steingrimur Hermannsson utanríkisráð- herra hefur ákveðið að skipa sérstakan sendiherra til að fara með afvopnunar- mál og sinna málefnum ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (Röse), en þriðji frairihaldsfundur hennar stend- ur nú yfir í Vín. Að tillögu utanríkisráð- herra hefur Forseti íslands síðan skipað Hjálmar W. Hannesson sendiherra í ut- anríkisþjónustunni frá 1. apríl að telja og mun hann fara með þessi mál. Spilakvöld íTemplarahöllinni í kvöld kl,21.00 hefst þriggja kvölda spila- keppni í Templarahöllinni. Spilað verður dágóöa stund og svo taka gömlu dansam- ir viö undir leik hljómsveitarinnar Tiglana, mun dansinn duna til um þaö bil eitt eftir miðnætti. Annað keppnis- kvöldið verður svo að viku liðinni og það þriðja föstudaginn þar á eftir. Síðasta sýningar- helgi Ráðhildar Nú fer í hönd síðasta sýningarhelgi á málverkum Ráöhildar Ingadóttur í Ný- listasafninu. Opið verður um helgina frá kl. 2-20. Tölvudágar í Félagsmála- skólanum Menningar- og fræðslusamband alþýðu býður félagsmönnum aðildarfélaga Al- þýðusambandsins að sækja svokallaða tölvudaga í Ölfusborgum 25. apríl^. maí næstkomandi. Námskeiðið skiptist í þrjá námsþætti: 1) M.S. Dos stýrikerfið, rit- vinnslu og íjárhagsbókhald. 2) Umræða um einkatölvuna, gagnagrunn og tölvu- reikni. 3) Uppbygging og notkun félags- skrár, atvinnuleysisbætur, reglur, réttíndi og tölvuvinnsla, prentun og tölvupóstur. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA í Reykjavík. Fyrirlestur Hinn 15. apríl kl. 13.00 heldur prófessor Auguste Wackenheim fyrirlestur þar sem hann lýsir þróun myndgreininga- tækni og notkun nýrra aðferða svo sem tölvusneiðmyndun og segulómun við greiningar og ákvarðanir á segulómun við greiningar og ákvarðanir á sjúk- dómum í hálshrygg. Félagsmiðstöð Geðhjálpar að Veltusundi 3b er opin á fimmtudögum kl. 20-22.30 og laugardögum og sunnu- dögum kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp opna skrifstofu alla virka daga kl. 10-14 þar sem seld eru minningarkort félagsins og veittar upplýsingar um starfsemina. Síminn er 25990.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.