Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988. • 31 Um helgina ber skíðalandsmót íslands hæst á sviði íþróttanna en það fer fram á Akureyri. Mótið var sett í fyrradag en það heldur sínum gangi fram á sunnudag svo framar- lega sem veður skerst ekki í leik- inn. Mikið verður um dýrðir í Hlíðarfjalli en allt fremsta skíða- fólk íslands er mætt til leiks nyrðra. I dag verður keppt í stórsvigi karla, svigi kvenna og skíöastökki. Þá verður ganga í norrænni tví- keppni. . A morgun, laugardag, hefst keppni klukkan 10 með stórsvigi kvenna. Síðan verður keppt í svigi karla, í 15 kílómetra göngu karla, 5 kílómetra göngu kvenna og 10 Skíðaíþróttina ber hæst um þessa helgi á sviði íþrótta en skíðalandsmótið verður þá í fullum gangi norðan heiða - i Hliðarfjalli á Akureyri. Hvað er að gerast í heimi íþróttanna? Mikið um dýrðir í Hlíðarfjalli - Skíðalandsmót í slands á Akureyri um helgina kílómetra göngu 17-19 ára karla. Á sunnudaginn hefst keppni einnig klukkan 10 en þá með sam- hiiða svigi karla og kvenna. Síðan tekur við 3x10 kílómetra boðganga karla. Verðlaunaafhending verður síð- an í lokahófi í Sjallanum á sunnu- dagskvöld. • Sveitaglíma íslands verður um helgina í Iþróttahúsi kennarahá- skóla íslands. Hefst keppni glímu- manna á laugardag klukkan 14. • Nú er nær dregur vori eykst hlutur knattspymunnar í heimi íþróttanna. í stóru bikarkeppninni verða til að mynda þrír leikir. Grótta mætir Aftureldingu á laugardag og á sunnudag mætast Njarðvík og Grindavík annars vegar og Selfoss og ÍK hins vegar. í litlu bikarkeppninni verða einn- ig þrír leikir. BUkar sækja ÍA heim upp á Skaga, Selfoss mætir Kefla- vík og í Hafnarfirði verður ná- grannarimma, Haukar spiia við FH. Allar þessar viðureignir fara fram á laugardag. Reykjavíkurmótið hefur sinn gang á sama hátt og hin vormótin. Valur ghmir viö Fylki í kvöld en á sunnudagskvöld mætast Fram og Ármann. • Handknattleiksvertíðin er að Keppt verður í skíðastökki í Hliðar- fjalli og má gera ráð fyrir tvisýnni keppni. baki og öfluðu Valsmenn best í karlaflokki, fengu íslandsbikarinn og sigruðu í bikarkeppni HSÍ með eftirminnilegum hætti. í kvenna- flokki varð Fram meistari en Valur varð hlutskarpastur í bikarkeppn- inni. í kvöld mun handknattleiksfólkið reyna sig á nýjum vettvangi í til- efni vertíðarlokanna, á dahsgólfinu í Broadway. Þar verður lokahóf handknattleiksmanna með nokkuð svipuðu sniði og í fyrra. • Götuboðhlaup Islands verður haldið í Borgarnesi á sunnudag og hefst keppni klukkan 13. • Evrópumót lögreglumanna í handknattleik verður formlega sett á sunnudagskvöld í Laugardalshöll klukkan 19. Leikirnir sjálfir fara síðan fram í næstu viku. • Sportvalsgangan fer fram í Bláfjöllum á laugardag. Er öflum göngumönnum, 12 ára og eldri, heimil þátttaka en gengnir verða 5 kílómetrar. Gangan hefst klukkan 14 en keppendur skrái sig til leiks fyrir klukkan 13 á laugardag. • Almennt mót í fimleikum verður haldið á sunnudag í íþrótta- húsinu Ásgarði í Garðabæ. Hefst það klukkan 13. Keppt verður eftir nýjum stiga í afinennum fimleik- um. Þátttakendur verða um 150 frá 9 félögum. KYNNINGARSTORF Við leitum að snyrtilegu og frambærilegu fólki til kynningarstarfa. Um er að ræða hlutastörf. I boði eru góð laun og gott samstarfsfólk. Upplýsingar í síma 21518 á milli kl. 2 og 5 í dag og á morgun. Vörukynning og markaðssetning SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKAÐSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvétna er DV lesiö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringír...27022 Vid birtum... Það ber árangurf Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 $ ER SMÁAUGLÝSINGABLADID Senn dregurtil úrslita í spurninakeppni sjónvarpsins, Hvað helduru? I kvöld keppa Reykvíkingarog ísfirðingar um hvort liðið keppirtil úrslita. [ helgarblaðinu segjum við frá galvöskum keppendum þessara liða og áhuga fólksá keppninni. Hermann Gunnarsson er maðursem segist eiga erfitt með að þola skít- kast. Hann hefur í vetur verið með umtalaðan sjónvarpsþátt og fengið bæði lof og gagnrýni fyrir. Hann segir frá baráttu vetrarins í viðtali við helgarblaðið. Margir trúa því að hæfileikar gangi í ættir. í helgarblaðinu hefur verið sýnt fram á að margir af sterkustu skákmönnum landsins eru af sömu ættinni. ( helgarblaðinu á morgun kemur fram að margir þekktustu söngvararnir eru einnig af þessari sömu ætt sem kennd er við Kóps- vatn. Nýjustu ættfræðirannsóknirn- areru í helgarblaðinu. rvuo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.