Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Síða 8
32
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988.
Ótrúlega litlar breytingar eru á
DV-listanum þessa vikuna en engin
ný mynd er nú á listanum og er
'mjög langt síðan það gerðist.
La Bamba heldur 1. sæti aöra vik-
una í röð en Robocop, sem er
nýbúin að fá óskarinn fyrir klipp-
ingu, er komin í 2. sæti eftir aðra
viku sína á lista. íslenska myndin
um hana Stellu sýnir mikið jafn-
vægi og heldur 5. sæti og virðist
síður en svo vera á útleiö þó hún
sé búin að vera lengi á leigunum.
DV-LISTINN
1. (1) La Bamba
2. (3) Robocop
3. (2) The Living Daylight
4. 0) Jumping Jack Flash
5. (5) Stella í orlofi
6. (8) Aprils Fools Day
7. (7) The Fly
8. (10) Wise Guys
9. (4) Big Easy
10. (6) Blind Date
Falin
CASSANDRA
Útgefandl: Steinar hf.
Leikstjóri: Colin Eggleston.
Aðalhlutverk: Shane Briant, Briony Be-
hets og Tessa Humphries.
Bandarísk 1987 - sýningartimi: 86 min.
Cassandra er ung stúlka sem
heldur að hún lifi ósköp venjulegu
lífi. Undantekningin er sífelldar
martraðir sem skelfa hana.
Hana dreymir konu sem drepin
er af barni sem svo kveikir í heim-
ili þeirra. Ekki fagur draumur.
Cassöndru bregður því þegar hún
sér mynd af konunni sem birtist í
draumi hennar.
Þegar hún spyr móður sína um
myndina verður fátt um svör en
móðirin viðurkennir þó að þetta sé
foðursystir hennar sem sé löngu
dáin.
Cassandra kemst á snoöir um að
faöir hennar á sér viðhald og þegar
viðhaldið er drepið á hryllilegan
hátt grunar hana að ekki sé allt
með felldu með sambúð foreldra
hennar.
Enda kemur á daginn að hið ein-
falda líf hennar er síður en svo
einfalt og hún hefur alltaf verið
blekkt um uppruna sinn. Ættingj-
um hennar íjölgar óvænt þegar
hún fréttir að hún eigi bróður á
geðveikrahæli. Morðin halda
áfram og lögreglan stendur ráð-
þrota gagnvart morðum og „fjöl-
skyldu“ sem er engin fjölskylda...
Söguþráður Cassöndru er nokk-
uð ruglingslegur á köflum. Byij-
endabragur er á flestum atriðum.
Sum spennuatriðin standa þó und-
ir nafni og bjarga þau annars
hálfdaufri mynd sem er lítt eftir-
minnileg.
HK
Seinheppnir
útlagar
THE APPLE DUMPLING GANG RIDES
AGAIN
Útgefandl: Bergvfk.
Leikstjóri: Vincent McEveety.
Aðalhlutverk: Tlm Conway, Don Knotts,
Tim Matheson og Kenneth Mars.
Bendarlsk: 1979 - sýnlngartfmi: 85 mln.
Tveir útlagar, sem hafa meira álit
á sjálfum sér en þeir hafa efni á,
eru ákveðnir að gerast heiðarlegir
menn. Með þá ætlun í huga leggja
þeir peninga sína í banka. Þeir eru
aftm1 á móti ekki heppnari en það
að í leiðinn er verið að ræna ban-
kann og peningar þeirra lenda í
höndum bankaræningjanná...
Þetta er byijunin á afþreyingu frá
Disney fyrirtækinu, The Apple
Dumpling Gang Rides Again, þar
sem Tim Conway og Don Knotts
leika þessa seinheppnu þijóta sem
ekki aðeins lenda í fangelsi heldur
það sem verra er, þeir ganga í her-
inn. Allt fer úrskeiðis hjá þeim, en
inni við beinið eru hrakfaUabálk-
amir hinir mestu sakleysingjar og
í anda Walt Disney gengur þeim
aUt í haginn í lokin.
Skarpir náungar
WISE GUYS
Útgefandi: JB myndbönd.
Leikstjóri: Brian De Palma.
Framlelðandl: Aaron Russo.
Handrit: George Gallo.
Tónllst: Ira Newborn. Aðalhlutverk:
Danny DeVito, Joe Piscopo, Harvey
Keitel og Ray Sharkey.
Bandarfsk 1986.
Síðasta ár var gott ár fyrir þá
Danny DeVito og Brian De Palma.
DeVito lék í hverri gamanmynd-
inni á fætur annarri og De Palma
komst loksins í hóp alvöruleik-
stjóra með myndinni Hinir ósnert-
anlegu. Þessi mynd er árangur
samstarfs þeirra félaga áður en
þeir stigu frægöarsporin á síðasta
ári - gerð 1986.
Það er engu líkara en De Palma
sé að æfa sig á mafiósum áður en
hann ræðst í gerð myndarinnar um
hinn eina sanna A1 Capone. De
Palma hefur hingað tíl ekki verið
þekktur fyrir húmor, en hann slak-
ar ærlega á í þessari mynd og tekst
bara bærilega upp.
Myndin segir frá tveim undir-
málskrimmum (DeVito og Piscopo)
sem eru aðeins nothæfir sem
btiss'r, rswiéy,
rmi * m íte cr«St c&íí?
sprengjuleitarar sem felst í því að
athuga hvort sprengjur séu í bíl
höfðingjans, með því að hætta tU
lífi sínu. Þá félaga dreymir þó
drauma - að græða peninga og
opna matsölustað þar sem hægt
væri aö fá gyðingamat og jafnvel
ítalska rétti. Einn daginn ákveða
þeir að taka áhættuna á veðhlaupa-
brautinni og leggja undir peninga
höfðingjans. Auðvitað tapa þeir og
eiga eftir það fótum sínum fjör að
launa.
Það er þægUegur blær yfir mynd-
inni, sem gerir góðlátlegt grín að
glæpamyndum og skrautlegt fólk í
aukahlutverkum kryddar mynd-
ina.
DeVito er skondinn náungi og er
á góðri leið með að verða einn vin-
sælasti gamanmyndaleikari
Bandaríkjanna. Hann hefur reynd-
ar einnig tekið að sér að leikstýra
og þykir standa sig vel á því sviði
í nýjustu mynd sinni, Hentu
mömmu úr lestinni. Piscopo á hins
vegar í meiri vandræðum með sitt
hlutverk en gerir þó engin meiri-
háttar mistök.
Handritið er nokkuð skothelt og
bíður úpp á smellin atriði þótt sam-
töl gætu verið hugmyndaríkari.
-SMJ
FROM THE HIP
Útgefandi: JB myndbönd
Leikstjóri: Bob Clarke. Handrit: David
Kelley og Bob Clark. Aðalhlutverk: Judd
Nelson, Elizabeth Perkins og John Hurt.
Bandarisk 1987. 97 min. öllum leyfð.
Þessi mynd segir frá Robin Weat-
hers sem er nýorðinn lögfræðingur
og dreymir stóra drauma því sam-
fara. Hann fær þó engin „aivöru-
mál“ til að fást við svo að hann
grípur tíl sinna ráða tU að tryggja
framann. Þetta gengur aUt mjög vel
og fyrr en varir er hann komin í
fréttimar fyrir sniUi sína.
Samstarfsmenn hans á lögfræði-
stofunni eru ekkert aUt of ánægðir
með pUtinn þótt þeir játi að harrn
hafi aflað margra nýrra viðskipta-
vina. Þeir úthluta honum því
vonlausu máU og reynir þá fyrst
Tlm Conwsy, Dor. IUiúHS. 11rn Mnlhevm.
Kenntrlh Mnrs, F.lysxft Dxvslo?. J«:k tlsm,
Roberf T'tne. Hany MoiCjan.
Proávtced by Hon Mliiet, Cö-pteduced by
lom-Lfietoti; -Básced or. chxntXom crenfwí by
Jack M, Bkkharn Writtcn by Dcn
Ð;m.-;ed hy Vir.wrrt McFvc:ty
Það fer ekki miUi mála hvaðan
fyrirmyndin kemur. Látbragsleik-
ur og karakterlýsing er fengin frá
Laurel og Hardy. Einn hefur vitið
fyrir öðrum þótt sá sem vitið hefur
sé lítið gáfaðri. Því miður er langt
frá þvi að Conway og Knotts nái
góðum tökum á hlutverkum sín-
um. Aftur á móti er virkUega
gaman að Kenneth Mars í hlut-
verki lögregluforingja sem á yfir-
borðinu er mikU hetja en blauður
þegar á reynir.
HK
virkUega á strákinn.
Hér er táningahetja (Nelson) sett
í hlutverk hins snjaila og útsjónar-
sama lögfræðings sem tröUríöur
öllum bandarískum lagaklækja-
myndum. Útkoman verður ungl-
ingalögfræðidrama sem er ekki
saðsamur kokteiU. Nelson er
óharðnaður leikari og hefði leik-
stjóri mátt halda betur aftur af
honum. Reyndar hverfa þau ungl-
ingasmástirni sem 1 myndinni eru
í duftið þegar Hurt birtist á skján-
um þótt karUnn sé ekki aUt of
áhugasamur.
Þótt myndin sé ákaflaga á reiki,
byijar með gríni og gamni en endar
í háalvarlegum vangaveltum, þá
bíður hún upp á þokkalega takta
og margt í henni vel þess virði að
eftir sé tekiö. -SMJ
Kobin ÍC^Xeat li
T!m- wav 1k- jýrwikt*^ bw
| >h<>uí<l W « cruiK*,
I Jmíd
f Fiuaixih IVrhmx
FrOM
THE ALLNIGHTER
Útgefandi: Laugarásbió.
Lelkstjórl: Tamar Simon Hoffs.
Aðalleikarar Susanna Holfs, Dedee
Pfeilfer og Joan Cusack.
Bandarisk 1987 - sýningartimi: 92 min.
The Allnighter fyllir óteljandi
flokk mynda sem fjaUar um ungl-
inga sem eru á leið í sumarfrí.
SkóUnn er búinn og nú skal sleppt
fram af sér beislinu. Langflestar
sUkra mynda eru nauðaómerkUeg-
ar og er The AJlnighter ein þeirra.
Þaö hefur sjálfsagt aðaUega vakið
fyrir framleiðendum myndarinnar
að koma Suzanne Hoffs á fram-
færi. Hoffs þessi er söngkona og
meðlimur hinnar vinsælu kvenna-
hljómsveitar The Bangles. Nú, til
að koma því strax að þá er hún tíl
margra hluta betur hæf en að leika
í kvikmyndum. Svo er einnig um
langflesta aðra leikara myndarinn-
ar og er pínlegt að sjá suma reyna
að sýna tílfinningar.
í stuttu máU fjaUar myndip um
þijár stúlkur. SkóUnn búinn og nú
skal aldeilis skemmta sér. Ekki fer
nú aUt eftir bókinni þvi tvær þeirra
lenda í fangelsi þegar reynt er að
bjarga þeirri þriðju úr vægast sagt
erfiðri stöðu. Eins og vænta má
leysast öU vandamál í lokin og allir
mæta ánægðir í skólaútskriftina.
The AUnighter er gerð fyrir tán-
inga og gerir sig kannski sem slík
en aðrir ættu aö leita eftir betri
afurð.
HK