Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 25.'-JÚNÍ 1988. Þau hafa verið mörg handtökin á kosningaskrifstofum forsetaframbjóðendanna síðustu daga og vikur og vafalaust verður þar í nógu að snúast i dag, á sjálfan kosningadaginn. Myndin hér til vinstri var tekin á kosningaskrifstofu stuðningsmanna Sigrúnar Þorsteinsdóttur en myndin til hægri á skrifstofu stuðningsmanna Vigdisar Finnbogadóttur. DV-myndir JAK Forsetakosningar í dag: Fýrstu tölur koma úr sex kjördæmum fyrir miðnætti íslendingar ganga til forsetakjörs í dag. í framboði eru Sigrún Þor- steinsdóttir húsmóðir og Vigdís Finnbogadóttir forseti. Kjörstöðum verður lokað klukkan ellefu og má búast við fyrstu tölum fyrir mið- nætti úr sex kjördæmum af átta. Það er eingöngu á Vestfjörðuir og Norðurlandi eystra sem oddvitar yfirkjörstjórna búast viö að lengri bið veröi eftir tölum - líklega tii hálf- eitt og eitt þar sem tímafrekt er að safna atkvæðum saman í þessum kjördæmum. Til dæmis flýgur flug- vél frá Þórshöfn til Raufarhafnar, þaðan til Kópaskers, síðan til Húsa- víkur og endar loks á Akureyri þar sem atkvæði verða talin í Oddeyrar- skóla. Allt veltur þó á veðri hversu fljótt tölur koma til með að berast. Kosningadagskrá í Sjónvarpinu „Fréttastofur Útvarps og Sjónvarps verða með samvinnu að nokkru leyti þennan dag en sameiginleg dagskrá hefst klukkan tíu og stendur í 15 mínútur þar sem kosningasjónvarp- ið verður kynnt og kjörsókn athug- uð. Útsending hefst rétt fyrir ellefu og heldur áfram fram á nótt, allt þar til úrslit verða alveg ljós. Þá tekur bíómynd viö í Sjónvarpinu en kosn- ingaútvarp heldur áfram. Þegar sjón- varpskvikmyndinni er lokið verður fréttaþáttur í dagskrárlok, þar sem úrslit verða kynnt og niðurstöðurnar ræddar," sagði Helgi H. Jónsson, starfandi fréttastjóri Sjónvarpsins, í samtali við DV. Ekkert kosningasjónvarp verður á Stöö 2, en tölum verður skotið inn milli dagskrárliða og í lok dagskrár verður fréttaþáttur, að sögn Páls Magnússonar, fréttastjóra Stöðvar 2. Rúmlega 173 þúsund á kjörskrá Kosið er í 8 kjördæmum, eins og í alþingiskosningum, og er fjöldi kjör- deilda mismundandi. Kjósendur eru skráðir í kjördeild eftir þeim stað sem þeir áttu lögheimili þann 1. des- ember 1987. Fjöldi kjósenda á kjör- skrá mun vera 173.800 og eru flestir í Reykjavík eöa 68.500. í Reykjanes- kjördæmi eru 40.400,10.100 á Vestur- landi, 6.800 á Vestfjörðum, 7.300 á Norðurlandi vestra, 18.100 á Norður- landi eystra, 9.100 á Austurlandi og 13.600 á Suðurlandi. Utankjörstaoakosning hefur staðið yfir undanfarnar vikur og í gær höfðu rúmlega 6000 Reykvíkingar kosið utankjörstaða. Má gera ráð fyr- ir að alls hafi tæplega 10% kosiö ut- ankjörstaða í Reykjavík en það er heldur minna en var í síðustu for- setakosningum 1980, þá kusu um 12,7%. í öðrum kjördæmum hefur kjörsókn ekki verið jafndræm og í Reykjavík en þó ekki jafngóð og 1980. Kjörstaðir opnir frá 10 til 23 Kjörstaðir veröa opnir frá 10-23 á flestum stöðum landsins en stuðn- ingsmenn beggja frambjóðenda bjóða upp á akstur á kjördag ef fólk óskar þess. Þegar kjörstööum verður lokað er baráttan hins vegar yfirstaðin og ekkert eftir nema bíða úrslitanna. Stuðningsmenn Vigdisar munu ekki ætla að halda neina formlega kosn- ingavöku en stuðningsmenn Sigrún- ar muriu safnast saman í heimahúsi í Reykjavík. -JFJ Loðdýraræktin: Skuldir fóðurstöðva 320 milljónir króna - eiga 30 milljónir sem líklega innheimtast ekki hjá bændum Heildarskuldir fóðurstöðva í loð- dýraræktinni nema í dag 317 milljón- um króna. Þar af nema skuldir til Stofnlánadeildar landbúnaöarins 142 milljónum og til Byggðasjóðs 50 milljónum. Skammtímaskuldir eru um 125 milljónir, þar af mest til hrá- efnissala, sem eru útgerðafélög og kaupfélög. Að sögn Leifs Kr. Jóhannessonar, forstöðumanns Stofnlánadeildar, hefur verið samþykkt að lán fóður- stöðvanna hjá deildinni verði af- borgunarlaus næstu þrjú ár. Veröa þá aðeins greiddir vextir sem nema um 3 milljónum meöan afborganir og verðbætur bíða. Alls170milljónir frá Byggðasjóði? Byggöasjóður fékk heimild frá rík- isstjóminni í mars til að breyta hin- um 50 milljónum í hlutafé, en ekki hefur verið gengið frá því enn vegna hinnar erfiðu stöðu loðdýraræktar- innar. Eins hefur Byggðasjóður heimild til aö lána 40 milljónir til aðila er vilja kaupa hlutabréf í fóður- stöðvunum. Ef 80 milljónir verða síö- an veittar úr sjóðnum, sem lán eöa styrkir, mun heildarfjárframlag Byggðasjóðs til fóðurstöðvanna geta numið 170 milljónum. Hinum 80 milljónum er ætlað að greiða niður lausaskuldir fóðurstöðvanna og minnka þannig fjármagnskostnað þeirra. Samkvæmt lögum má heildarfjár- veiting Byggðasjóðs til stöðvanna, í formi skuldbreytinga og lána til ann- arra aðila, ekki nema meira en 70 prósentum af heildarhlutafé hverrar fóðurstöðvar. Byggöasjóður má sjálfur ekki eiga nema 40 prósent hlutafjár í hverri fóðurstöö. Getur Byggöasjóður því lánaö 30 prósent til aðila, til dæmis bænda, er vilja kaupa hlutabréf og loks er vonast til að hráefnissalar eða aörir kaupi síöustu 30 prósentin. Hlutur Byggðasjóðs í hverri fóður- stöð getur verið minni þar sem staða fóðurstöðvanna er misjöfn, og þá breytast hinir þættimir þá í sam- ræmi við þaö. Bændur hafa leyfi til að skrifa sig fyrir hlutafé sem síðan greiðist á 3 árum. Eiga 30milljónir hjá bændum „Ég reikna með að fóðustöövarnar eigi um 30 milljónir útistandandi hjá bændum, sem ekki er von til að verði greiddar. Fj ármagnskostnaður er gífurlegur. Farið var fram á fryst- ingu afborgana hjá Stofnlánasjóði í 3 ár til að fj ármagnskostnaðurinn kæmi ekki að fullu inn í fóöurverð til bænda. Er þá vonast til að kostn- aðurinn dreifist á meiri framleiöslu en í dag,“ sagði Jón R. Bjömsson hjá Sambandi íslenskra loödýrarækt- enda og Sambandi fóðurstöðva við DV. Hann sagði að 11 fóðurstöðvar væru í landinu, þar af tvær er væm reknar sem deild innan kaupfélag- anna á Homafirði og Húsavík. -hlh Þórungaverksmiðjan á Reykhólum: Auka hlutafé um 22 milljónir króna „Við erum að stefna aö því að auka hlutafé í Þörungavinnslunni um 22 milljónir króna og það er rétt að Byggðastofhun lagði fram 1750 þúsund króna hlutafé til handa vinnslunni,“ sagði Benedikt Gunnarsson, framkvæmdastjóri Þörungavinnslunnar. „Við emra enn ekki komnir á skrið meö viðræöur í sambandi viö fleiri aðila. En raargir erlendir aðil- ar hafa sýnt okkur áhuga." Benedikt sagði aö þetta væri ekki tilkomið vegna rekstrarörðugleika. „Okkur vantar lausafé til aö lag- færa ýmsa hluti og gera endurbæt- ur á verksmiðjunni, m.a eru hita- veituleiðslur sem þarf aö end- umýja og fleira í þeim dúr.“ Kaupfelagiö og sveitarstjómin eiga Þörungavinnsluna ásamt nokkmm einstaklingum. -GKr Staifsmenn Þörungaverksmiðjunnar: Vinna ekki næturvinnu „Það má vera aö við fóram út í meiri aðgerðir ef ekki verður geng- iö aö kröfum okkar,“ sagði Guöjón Gunnarsson, starfsmaöur Þör- ungaverksmiðjunnar, viö DV. „Við erum flestir sammála um að vinna ekki næturvinnu uns eitt- hvaö gerist í launamálum okkar. Við vinnum samt sem áður um- samda yíirvinnu og þeir sem era á vöktum vinna sína vinnu áfram. Mál okkar snúast aö htiu leyti um grunnkaupshækkanii*. Þaö sem viö viljum ná fram meö þessum kröf- um okkar er samræming á ýmsum þáttum samningsins við aðra hópa þjóöfélagsins.“ „Aögeröirnar verða ekki ólögleg- ar. Viö brjótum ekki bráðabirgöar- lögin,“ sagöi Guðjón. -GKr Athugasemd um í frétt í DV í gær sagði aö Ash- kenazy shti aö meðaltah einn streng á viku og var það haft eftir Guð- mundi Stefánssyni hljóðfærasmíða- meistara. Af því tilefni hafði Guðmundur slKástrengjum samband við blaðið og tók fram að hann hefði aðeins sagt að þegar Ash- kenazy æfði sem mest hér á landi hefði hann getað komistupp í að slíta streng á viku. Leiöréttist þetta hér með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.