Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 3
LADGARDAGUR 25: JONl 1988. Fréttir Kennarar við Ölduselsskóla: Um helmingur vill segja upp „Ef til vill mun niöurstaöan veröa sú að viö teljum okkur ekki fært aö fara út í hópuppsagnir en þá mun ákveðiö fólk hætta. Hvemig sem allt fer er ljóst að það verður lausung í skólastarfmu næsta vetur. Þaö er blekking aö halda aö þessi hópur komi til starfa aftur í haust eins og ekkert hafi í skorist," sagði Sigmar Hjartarson, talsmaöur kennara í Ölduselsskóla. Sigmar sagöi aö kennarar væru búnir aö fara vandlega yfir stöðuna og teldu sig' eiga mörg úrræöi en fá góð sem gætu boriö árangur. „Daníel fékk mikinn stuöning frá kennurum og foreldrum og þaö var enginn málamyndastuöningur. Því viljum við fylgja okkar málum eftir og erum hreinlega syngjandi óö yfir aö þaö sé gengið svona yfir okkur. Þaö er búið að lýsa vantrausti á okkar upp- byggingarstarf og okkur finnst engin ástæöa til að tefla skólastarfmu hér í Ölduselsskóla í tvísýnu. Ég vil hins vegar leiðrétta þann misskilning sem verið hefur að viö höfum ekki viljað að neinn annar sækti um. Viö höfum heyrt fólk nefnt sem hafði hugsað sér aö sækja um og viö hefðum getaö sætt okkur viö,“ sagöi Sigmar. Sigmar sagöi aö kennarar væru nú alvarlega aö velta fyrir sér aö hætta kennslu og segja upp. Þetta hafi ver- iö borið undir kennarafund, þar sem setiö hafi 30 kennarar af 44, og hafi um 23 sagt já viö hópuppsögnum. „Viö verðum aö kanna hug þeirra sem ekki komust á fundinn en sem hópaðgerð þýöir ekki minna en aö 75% kennara segi upp,“ sagði Sig- mar. Sjöfn mætir í ágúst Endanleg ákvörðun kennaranna verður ekki opinberuö fyrr en eftir 1. ágúst þegar Sjöfn Sigurbjörnsdótt- ir mætir til vinnu. Verður henni ásamt ráöherra tilkynnt fyrst um uppsagnirnar veröi þær ofan á. Varðandi samstarf kennara viö Sjöfn sagöi Sigmar: „Samstarf við Sjöfn ræðst af báöum aðilum. Að- gerðir okkar beinast ekki persónu- lega gegn Sjöfn en hún er nú orðin að eins konar fulltrúa ákveðins valds í þjóðfélaginu. Ef menn vilja tala um samstarf veröur að koma til okkar fyrst.“ JFJ Helgarpóstsdeilumar: Launakröfur nema um tíu milljónum Fyrrum starfsmenn Helgarpósts- ins og félagar í Blaðamannafélaginu hafa þegar mótmælt tveggja mánaða greiðslustöðvun eigenda Helgar- póstsins. Friörik Þór Guðmundsson, fyrrum starfsmaður Helgarpóstsins, sagöi aö með þessum aögerðum fengju þeir varla nokkurn mann til vinnu til sín ef þeir ætluðu aö hefja útkomu nýs blaös. „Lögfræöingar eru aö vinna í kröfunum og allir fyrrum starfs- menn Helgarpóstsins samanlagt eru með kröfur upp á allt að 10 milljónir króna. Meðan við erum með Blaöa- mannafélagið á bak við okkur geta þeir lítið gert,“ sagði Friðrik. Þórir Lárusson í stjóm Helgar- póstsins sagði að málin væru í endur- skoðun. „Ég geri mér grein fyrir því að við erum í erfiðri stöðu meðan fyrrum starfsmennirnir beita okkur þrýstingi. Það gæti farið svo að við greiddum ekki laun enda löbbuðu þeir út af vinnustað. Hins vegar geri ég ráð fyrir því að laun verði borguð út einhvers staðar í kringum fram- „Blöðrudagur" Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Alþjóða samtökin ITC, sem áður hétu samtök málfreyja, eru 50 ára í dag og er þess minnst með „blöðru- degi“ um allan heim. Á Akureyri eru starfandi tvær ITC-deildir, Mjöll og Rún. Félagar í deildunum munu hitt- ast við Oddeyrarskólann kl. 13.30 í dag og er ætlunin að senda fjölda af blöðrum á loft þaðan. Höfh: Líka kosið um áfengisútsölu ]ú]ia Imsland, DV, Höfru Hreppsnefnd Hafnarhrepps boðaði til borgarafundar í Sindrabæ sl. mið- vikudagskvöld. Áður höíðu verið send dreifibréf í öll hús og tilkynnt aö fram færi atkvæðagreiösla um opnun áfengisútsölu á Höfn samfara forsetakosningum í dag, 25. júní. Nokkrar umræður urðu á fundin- um og voru menn ekki ásáttir um hvort hreppsnefnd hefði tilkynnt með nægum fyrirvara hvað til stæði. Menn ræddu um og færðu sín rök með eða móti útsölu og hvort hún mundi auka víndrykkju á staðnum. Atkvæöi verða talin strax að lokinni kosningu og úrsht tilkynnt. haldsaðalfundinn sem verður 21. júlí ef hægt er aö þóknast kröfum þeirra". -GKr Einnig faanlegt með hnetum UMBOÐS- & HEILDVERZLUN BÍLDSHÖFÐA16, P.O. BOX 8016,128 REYKJAVÍK, SÍMI687550 Fyrir íulloröna, böm og ftmflpikfan lanmgiir? Nissan Prairie er lausn- • Sérstaklega lipur. • Hæð milli gólfs og lofts in fyrir fjölskylduna, • Kraftmikil2000ccvél. 1,4 m. því lipurðin og rýmið py«||||jj|M||||||| • 5 gíra beinskiptur. eru meiri en ykkur | | ^e!fur' grunar. • 3ja ányajýrgð. Ingvar Helgason hf. Sýnipgarsalurinn, Rauöagerði Sími: 91 -33560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.