Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 4
4 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988. Fréttir________________________________py Forréttindastéttir sHja að góðum Irfeyri og vildarkjörum á lánum: Vextir almennings þrefalt hærri en bankamanna - ríkið greiðir niður vexti til starfsmanna sinna um 84 milljónir Raunvextir 1 □ raunvextir Versl.m. o.f Baenriur Aðrir 9,5% Ríkið o.fl. 8,0% 8,5% 7,0% Keykjavik o.tl. - bankarniro.fi.- 5,0% :: 3,5% - - —1“^ - B C D E Mismunandi lánakjör lífeyrissjóöanna Á þessu súluriti má sjá mismunandi lánakjör lifeyrissjóðanna. Best kjör eða 3,5 prósent vexti auk verðtryggingar veita eftirlaunasjóðir Útvegsbanka, Búnaðarbanka, Landsbanka og Seðlabanka og Lífeyrissjóður verkfræðinga (súla merkt A). Félagar i lífeyrissjóðum Reykjavíkurborgar, Neskaupstaðar og Keflavíkur og Lifeyrissjóði arkitekta (súla merkt B) fá lán með 5,0 prósent vöxtum auk verðtryggingar. Á lánum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, hjúkrunarkvenna og starfsmanna Akureyrarbæjar (súla merkt C) eru 7,0 prósent vextir. Verslunarmenn, sjómenn, starfsmenn KEA og Sláturfélags Suðurlands (súla merkt D) fá lán með 8,0 prósent vöxtum. Bændur (súla merkt E) fá sín lán með 8,5 prósent vöxtum. Félagar í 46 lifeyrissjóðum fá hins vegar sín lán með 9,5 prósent vöxtum og innan þeirra vébanda eru langflestir félagar í lífeyrissjóðum. Sjö lífeyrissjóöir veita ekki lán til sjóðfélaga; Lifeyris- sjóðir verkafólks í Grindavík, starfsmanna Gutenberg, Reykjavíkurapóteks, vörubílstjóra, leikara, verkamanna á Hvammstanga og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda. Samkvæmt athugun Sambands al- mennra lífeyrissjóða fá félagar í líf- eyrissjóðum mjög mismundandi kjör á þeim lánum sem þeir geta fengið hjá sjóðunum. Sjö lífeyrissjóðir eru hættir að lána til félaga sinna. Lang- flestir sjóðanna lána með 9,5 prósent vöxtum umfram verötryggingu. En aðrir lífeyrissjóðir lána á sannköll- uðum vildarkjörum. Þannig lána eft- irlaunasjóðir ríkisbankanna með 3,5 prósent vöxtum til sinna sjóðfélaga. Starfsmenn Reykjavíkurborgar fá lán með 5,0 prósent vöxtum og starfs- menn ríkisins með 7,0 prósent vöxt- um. Almenningur greiðir 170 prósent hærri vexti en bankamenn Mismunurinn á þessum kjörum getur verið ótrúlegur. Ef 100 þúsund króna lán er tekið til 40 ára með 9,5 prósent vöxtum verður vaxtabyrðin tæplega 195 þúsund krónur. Sá sem tekur slíkt lán greiöir það til baka og auk 195 prósent til viðbótar. Starfsmenn ríkisins geta hins veg- ar fengiö lán með 7,0 prósent vöxtum. Vaxtabyrðin af 100 þúsund króna láni til 40 ára með þeim kjörum er 143 þúsund krónur eða 52 þúsund krónum minni en lán flestra hfeyris- sjóða. Lán starfsmanna ríkisbankarna eru mun hagstæðari. Lán að upphæð 100 þúsund krónur til 40 ára með 3,5 prósent vöxtum leggur tæplega 72 þúsund króna byrðar á lántakand- ann. Það er 123 þúsund krónum tninna en þau lífeyrissjóðslán sem flestum standa til boða. Miðað við þessi lán greiðir almenn- ingur 36 prósent meira í vexti en rík- isstarfsmenn og 171 prósent meira en starfsmenn ríkisbankanna. Þetta jafngildir því að almenningur greiði hátt í þrefalt hærri ijárhæðir í vexti en bankamennirnir. Vildarkjör á lánum hjá þeim sjóðum sem greiða hæsta lífeyririnn Það er athyglisvert að flestir þeirra sjóða sem bjóða félögum sínum betri kjör en almennt gerist eru bak- tryggðir fyrir því að sjóðirnir rýrni. Þannig tryggir bæði Reykjavíkur- borg og ríkið lífeyri sinna starfs- manna hvernig svo sem til tekst með ávöxtun sjóðanna. Sömu sögu má segja um önnur sveitarfélög. Lífeyrir bankastarfsmanna sem Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson komnir eru á eftirlaun er greiddur úr sjóöum ríkisbankanna en ekki sérstökum sjóðum. Það var ekki fyrr en á síðasta ári að bönkunum var gert skylt að mynda ákveðna sjóði til að mæta þeim skuldbindingum sem þeir höfðu lofað starfsmönnum sínum. Það er líka athyghsvert að þetta eru þeir sjóðir sem tryggja félögum sín- um betri lífeyri á annan hátt. í þeim er lífeyrir miðaður við þau laun sem starfsmennimir fengu þégar þeir hættu. Maður, sem hefur unnið sig upp úr því að vera sendill og í stjóra- stöðu, fær eftirlaun sem miðuð eru við laun stjóra. í flestum öðrum líf- eyrissjóðum er lífeyririnn miöaður við þær fjárhæðir sem viðkomandi greiddi til sjóðsins. Félagarnir fá þannig nokkurs konar meðaltals- laun starfsævinnar þegar þeir fara á hfeyrisgreiðslur. Önnur forréttindi fylgja þessum sömu lífeyrissjóöum. Lífeyrisréttind- in safnast hraðar upp, til dæmis fær opinber starfsmaður 2 prósent af líf- eyrisréttindum fyrir hvert ár á með- an félagar í flestum sjóöum fá ekki nema 1,8 prósent. Ríkið greiðir niður vexti til starfsmanna sinna um 84 milljónir Eins og áður sagði greiðir ríkið uppbætur á lífeyri starfsmanna sinna. Það er gert vegna þess að Líf- eyrissjóður starfsmanna ríkisins stendur einfaldlega ekki undir þeim skuldbindingum sem félögum hans hefur verið lofað. í ár er gert ráð fyr- ir að þessar uppbætur verði 861 millj- ón. í reikningum Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins fyrir síðasta ár kem- ur fram að sjóöurinn á útistandandi 3.341 milljón í lánum til sjóðfélaga. Núgildandi vaxtakjör sjóðsins gæfu honum 233 milljónir í vaxtatekjur af þessari upphæð á þessu ári. Ef sjóð- félagar ýrðu hins vegar krafnir um sömu kjör og félagar í flestum öðrum lífeyrissjóðum yrðu tekjur sjóðsins af þessum lánum 317 milljónir. Mis- munurinn er 84 milljónir. í fyrra má gera ráð fyrir að sjóður- inn hafi tapað um 66 milljónum vegna þeirra kjara sem hann býður upp á. Það eru um 79 mihjónir á verðalagi dagsins í dag. Á árinu 1987 greiddi ríkiö um 530 milljónir í upp- bætur á lífeyri starfsmanna sinna. Þessar uppbætur eru innheimtar af öllum landsmönnum í formi skatta, jafnt þeim sem fá greiddan sanngjarnan hfeyri úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og eins þeim sem mega búa við skertan lífeyri. Ef vaxtakjör Lífeyrissjóðs starfsmanna rikisins yrðu samræmd við það sem almennt gerist mætti því lækka framlög ríkissjóðs til uppbóta á líf- eyri um 10 prósent eða 80 til 85 millj- ónir á ári hverju. Borgames: Vodki blandaður í mjólkursamlaginu? Hér má sjá húsnæðið sem notað verður undir framleiðslu á ICY-vodka hjá Mjólkursamlaginu í Borgarfirði ef samningar takast. DV-mynd JAK „Það er ekki búið að ganga frá öllum endum og samningar standa yfir. Við erum bjartsýnir en þetta gæti þess vegna allt gengið til baka,“ sagði Orri Vigfússon hjá Sprota sem fram- leiðir Icy-vodka. Samningaviðræöur standa nú yfir á mhh Sprota og Mjólkursamlags Borgfiröinga sem jafnframt mjólkur- vörum framleiöir pitsur og grauta. Talað er um að vodkinn komi sem spíri í Borgarnes en verði blandaður og tappað á í Mjólkursamlaginu. Aö sögn Indriða Albertssonar mjólkurbússtjóra á Mjólkursamlagið blöndunartæki en Sproti myndi flytja þangað önnur nauðsynleg tæki. „Þetta þýðir sennilega ein- hveija fjölgun á starfsfólki í framtíð- inni, ef til vill 10-15 manns ef um semst og vel gengur fyrsta áriö,“ sagði Indriði. Hugmyndin er sú að sögn Indriða að framleiddir verði á milli 500 þús- und og 2 milljónir htra í Mjólkursam- laginu og stefnan hefur verið sett á útflutning til Bandaríkjanna. Standa yfir viðræður á miÚi Sprota og bandaríska dreifmgarfyrirtækisins Brown-Forman sem hefur aösetur í Louisville í Kentucky. „Við stöndum í samningaviðræðum við Banda- ríkjamennina og þeim er ekki alveg lokið, hingað munu koma menn frá Bandaríkjunum í ágúst og niður- staða ætti að liggja fyrir um miöjan ágúst. Það eru alls konar hugmyndir í gangi en fyrsta árið er veriö að tala um 40 þúsund kassa en það munu vera um 300 þúsund lítrar," sagði Orri Vigfússon. - En hvers vegna Mjólkursamlagið í Borgarnesi? „Þetta er aðstaða sem hentar vel, við höfum húsnæði og tækin til aö blanda. Ef af þessu verður munum við síðan senda menn héðan til Bandaríkjanna til að læra betur um framleiðsluna, smakka, lykta og slík- ar kúnstir," sagði Indriði Albertsson. -JFJ Landsbankinn: Valur næsb bankastjóri? - vill ekkert um ,JÉg hef ekkert um máliö að ségjaÁ sagði Valur Arnþórsson við DV í gær um það hvort hann hefði áhuga á og sæktist eftir að verða næsti bankastjóri Landsbankans en Helgi Bergs, sem verið hefur Landsbankastjóri síðastliðin 18 ár, ætlar að hætta sem bankastjóri ura næstu áramót. Gert var um það sarakomulag við rayndun núverandi ríkisstjórnar að Sverrir Hermannsson tæki við bankastjórastööunni af Jónasi Haralz, Valur Arnþórsson af Helga Bergs og Kjartan Jóhannsson af Stefáni Hilmarssyni í Búnaðar- bankanum. Sverrir Hermannsson hefur þeg- ar verið ráðinn bankasijóri en spurningin er sú hvort samkomu- lagið sé ennþá í gildi og hvort Valur taki við af Helga um áramótin. Þegar Sverrir var ráðinn bland- aði Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra sér í máhð og mæltist til þess við bankaráðsmenn Sjálfstæöis- málið að segja flokksins í Landsbankanum að Sverrir yrði ráöinn. Það endaði reyndar með því að Ámi Vil- hjálmsson, prófessor og annar bankaráðsmannanna, sagöi af sér sem bankaráðsmaður. Það var síð- an Kristinn Finnbogason, banka- ráðsmaður Framsóknarflokksins, sem studdi tiliögu sjálfstæðis- manna um Sverri sem bankastjóra. En ætlar Kristinn Finnbogason aö flytja tillögu ura að Valur Am- þórsson verði bankastjóri í staö Helga Bergs? ' „Eg segi ekki annað en að ég tei að rætt verði um bankastjórastöð- una á næsta fundi bankaráösins,“ sagði Kristinn við DV í gær. Næsti fundur bankaráðs verður líklegast í þamæstu viku en bæði Pétur Sigurðsson, formaður bankaráðsins, og Kristinn Finn- bogason verða í sumarfríi í næstu viku. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.