Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 11
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988. 11 Lost Empires eða Veldi sem vár: „Enn eitt stórverkið frá Granada" „Missiö ekki af Laurence Olivier í fyrsta þættinum,“ sagöi breska blað- ið The London Standard er mynda- flokkurinn Lost Empires var frum- sýndur í Englandi haustið 1986. Önnur blöð tóku í sama streng og voru öll sammála um að þeim þrem- ur milljónum punda sem Granada- sjónvarpsstöðin eyddi í þessa þætti hefði verið vel varið. „Enn eitt stór- virkið frá Granada," sagði í The Sunday Telegraph. Gagnrýnandi hjá Daily Mirror sagðist ætla að taka breska rithöfundarins Johns Boyn- ton Priestley en hann hefur skrifað margar þekktar skáldsögur og leik- rit. Bretar endurútgáfu bókina er myndaflokkurinn var frumsýndur. Einnig var gerð plata með lögum úr myndaflokknum. Veldi sem var byggir ekki eingöngu á söng og gleði því þar koma upp ýmsar hörmungar einnig. Sjálfsvig og morð fléttast inn í leikhúslífið og þar kemur að myndaflokkurinn snýst í kringum rannsókn á morði. Revíuleikhúsin stóðu höllum fæti og brátt kemur að því að veldi þeirra hnignar. Kvikmyndin Lost Empires var gerð árið 1985 og ferðaðist sjónvarpsliðið- um allt norðanvert England og Norð- ur-Wales. Þar sem ekki var hægt að taka útitökur í Blackpool, þar sem sagan gerist, var „mixaður" inn í myndina tuminn í borginni sem þeir þekkja er þangað hafa komið. í síð- asta þætti myndaflokksins er dansat- riði á tuminum og var þaö atriði tek- ið upp í hinum raunverulega tumi. -ELA Colin Firth í hlutverki Richards í nýjum myndaflokki í Sjónvarpinu. Sir Laurence Olivier fer á kostum í fyrsta þætti myndaflokksins sem uppgjafatrúður. símann úr sambandi og fylgjast með þessum frábæru þáttum. Þættimir Lost Empires, eða Veldi sem var, eins og þættirnir heita á íslensku hefjast annaö kvöld í Sjón- varpinu kl. 21.45. Þetta er framhalds- flokkur í sjö þáttum sem gerist á ár- unum fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Þá var mikill frægðarljómi yfir rev- íuleikhúsunum og innan veggja þeirra var heill heimur út af íyrir sig. í fyrsta þætti fer Laurence Olivier með gestahlutverk og ef marka má bresku blöðin er vissara að missa ekki af þeim einstæða leik. Alhr vita hversu frábær leikari Laurence Olivier er og fer hann á kostum í hlutverki trúðs sem kitlar ekki leng- ur hláturtaugar áhorfenda. Veldi sem var fjallar annars um ungan mann, Richard Herncasle, sem býr í Yorkshire og fylgist með frænda sínum sem stjórnar ferðarev- íuleikhúsi. Frændinn Nick er leikari en lítur fremur út eins og illmenni. Með honum í leikhúsinu starfar furðulegur hópur fólks, leikarar, söngvarar og dansarar, sem lifir fyr- ir leikhúsið. Richard, sem hefur ekki mikinn áhuga á leikhúsum, lendir engu að síður í vinnu hjá frænda sín- um og brátt snýst líf hans um leik- húsið eins og annarra innan veggja þess heims. í leikhúsinu lærir Richard að ást- arsambönd eru ekki einungis í hjónaböndum. Léttlyndar konur verða á vegi hans og Richard verður margs vísari um hið tryllta leik- húslíf sem setti svip sinn á revíuleik- húsin upp úr aldamótum. Fyrir utan leikhúsið er heimurinn að taka á sig heimsstyijaraldarsvip og þúsundir ungra manna eru sendir í dauðann. Með hlutverk Richards fer Colin Firth og John Castle með hlutverk frænda hans, Nicks. Beatie Edney er í hlutverld Nancy Ellis, ástkonu Ric- hards. Aðrir leikarar eru Giflian Bevan, Brian Glover og Carmen du Sautoy, ásamt fleiri. Þættirnir gerast árið 1914. Kvik- myndað var í leikhúsum frá Viktor- íutímanum og tímum Játvarðar um norðanvert England. Má þar nefna Grand Theatre, Blackpool, The Op- era House, Buxton, Lyceum Theatre, Crewe, The Palace Theatre, Manc- hester og The New Tyne Theatre, Newcastle. Útitökur voru að mestu teknar upp í stúdíói Granada þar sem byggt var upp götulíf frá þeim tíma sem saganersögð. Myndaflokkurinn er byggður á bók toyota 3 DYRA HATCHBACK Júníverð kr. 849.000.-* Tilboðsverð kr. 749.000^=!. TOYOTA * Verð án afhendingarkostnaðar RÝMINGARSALA! Til að rýma fyrir árgerðum 1989 verða Corolla GT-i bílarnir seldir á júníverði með 100.000 kr. afslætti. Þeir sem koma fyrstir fá kaupbæti þvf þeir geta valið sér álfelgur að verðmæti 35.000 kr. eða sóllúgu að verðmæti 45.000 kr. Tilboð þetta gildir til 15. júlí. TIL AFGREIÐSLU STRAX!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.