Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Page 15
LAUGARDAGyB, 25. JÚf\1 1988. i 15 Brageyrað heym missir í gegnum aldirnar hefur vísnagerð, sem við köllum hagmælsku, verið vinsæl hstgrein hér á landi. Eins og í öðrum listgreinum hafa lista- mennirnir verið misjafnir, eða allt frá því að vera leirskáld og upp í það að kallast höfuðsnillingar. Bestu hagyrðingana hefur þjóðin dáð, vísur þeirra hafa flogið um landið og verið lærðar og fluttar við hin ólíkustu tækifæri. Meira að segja hér fyrr á árum flugu vís- ur um landið með svipuðum hraða og fréttir gera nú til dags á tímum hinnar miklu tækni. Síðari árin hafa menn haft af þvi áhyggjur að vísnagerð væri að leggjast af með þjóðinni. Um leið var þvi haldið fram að fólk væri hætt að kunna að meta vel gerða vísu. Sjálfsagt er eitthvað til í þessu en samt sem áður hefur komið í ljós á síðustu mánuðum áð enn blundar áhugi hjá fólki fyrir hnytt- inni stöku. Og þeir eru fleiri en margan gnmar sem hafa enn ánægju af vel gerðri vísu. Því hefur einnig verið haldið fram að flestir íslendingar geti sett saman fer- skeytlu, það sé fyrst og fremst æf- ing aö koma saman vísu. Vissulega hefur æfing nokkuð að segja, eink- um hvað það varðar að vera fljótur að yrkja. En það verður enginn höfuösnillingur meðal hagyrðinga með æfingunni einni saman. Þar verður meðfædd snilhgáfa að koma til. Dauft brageyra í spurningaþáttum Sjónvarps- ins, í vetur er leið, komu ævinlega fram hagyrðingar, einn af hveiju svæði sem átti lið í keppninni. Maður hlýtur að álykta sem svo að þama hafi komið fram bestu hagyrðingar hvers landsvæðis þótt sjálfsagt sé það umdeilanlegt eins og annað. Því miður sannaðist þama að brageyrað er farið aö missa-heyrn á Islandi. Vissulega komu þama fram góðir hagyrðing- ar, eins og til að mynda séra Hjálm- ar Jónsson á Sauðárkróki og Há- kon Aðalsteinsson af Héraði. Báðir höfuðsnillingar í gerð ferskeytlna. Einnig komu þarna fram nokkrir þokkalegir hagyrðingar eins og Guðmundur Kristjánsson frá KirKjubóli og grínarinn Flosi Ólafs- son. En það komu líka fram hag- yrðingar sem vart hefðu veriö teknir alvarlega sem slíkir fyrir nokkrum árum. í þáttunum urðu til fáeinar hnyttnar stökur. Ekki man ég þó eftir nokkurri afburðavel gerðri vísu og enga þeirra veit ég hafa flogið um landið og verið lærða af almenningi. Menn gengu jafnvel svo langt í þessum þáttum að kalla venjulega hringhendu dýrt kveðna vísu! Það segir allnokkuð um stöðu vísunnar nú um stundir. Ekki veit ég hvað þeir hefðu þá kallað sléttu- bandavísu, svo dæmi sé tekið. Hugmynd Ómars Ragnarssonar að hafa hagyrðinga með í þáttunum var snjöll, jafnvel þótt maður sé ekki ánægður með flestar vísumar sem farið var með í þáttunum. En hugmyndin var snjöll vegna þess að kveðskapurinn í spumingaþátt- unum hefur vakið fólk aftur til umhugsunar um vísnagerð. Því hefur Ómar unnið þarna þarft verk. Hitt er svo annað mál hvort þetta eitt dugir til að hagmælska og vegur vísunnar komist aftur á það stig sem var hér fyrrum hjá þjóðinni. Yrkingar af ýmsu tagi Nú er það svo að jafnvel þegar vegur vísunnar var hvað mestur á íslandi ortu margir skringilega og voru kallaðir leirskáld. Miðað við hvað nú er birt á prenti af nýjum vísum og nútíma Ijóðum þá veit ég ekki hvort rétt hefur verið að kalla þessa hagyrðinga leirskáld. Em eftirfarandi vísur nokkuö verr gerðar en margt af því sem ort er í dag og meðtekið sem góður og gildur skáldskapur? Dauður er gamli Gráni nú, gloppa kom þar í pabba hú. Nú er oss glötuð Lútherstrú og mamma elskar ei pabba nú - sem skyldi. Flosnaði þar upp fógur grein. Til Frelsarans fluttust Grána bein. Ást hans til pahba virtist hrein og vindhanagæði vora ei nein - hjá honum. Sú kemur tíð að faöir minn fer sömu leið og hann Gráni hinn. Laugardagspistíl Sigurdór Sigurdórsson Hittir þar fyrir vininn sinn og verður feginn að skríða inn - hjá þeim gamla. Eða þessi vísa sem sama skáld orti eftir misheppnað gæsaskyttirí í Bárðardal: Svo kem ég heim og sest í gamla stóhnn sem þjónað hefur pabba og líka mér. Hér hef ég lifað öll mín ævijóhn, etið marga baun og talsvert smér. Þeir sem ekki hafa farið troðnar slóðir við yrkingar nota mörg form á vísur sínar. Er næsta visa vel eöa iha ort? Ólafur í ríkiö rann á rússajeppa sínum. Helvítið ætlaði að kaupa tvær flöskur en keypti bara eina. Ég er ekki viss um nema þetta hefðu þótt hinar bestu vísur í spumingaþáttunum í vetur. Svo má líka spyrja hvað sé vel gerð vísa. Þar greinir menn eflaust á eins og um flest annað. Það er aht- af smekksatriöi hvað er vel eða iha gert. Þó er það nú svo að til em vísur í íslensku vísnasafni ahra tíma sem menn greinir yfirleitt ekki á um aö séu perlur. Sem dæmi um vísu sem er óumdeilanleg perla má nefna eftirfarandi stöku eftir Guðrúnu Ámadóttur frá Oddsstöð- um í Lundarreykjadal. Hún orti hana til eiginmanns síns á efri ámm þeirra: Þola urðum skin og skúr, skhnings þurrð og trega. Þó hefur snurðum okkar úr undist furðanlega. Önnur perla 'er th eftir þessa sömu konu. Þá kom hún í heim- sókn á æskuslóðir sínar. Allt var breytt. Aðeins landslagið var óbreytt og eftir að hafa lýst því orti hún: Annað flest er orðið breytt, öhu er best að gleyma, því hugann festir aðeins eitt, að eg er gestur heima. Það hefur verið sagt að vísa geti verið „hvöss sem byssustingur". Stysta en meitlaðasta bókmennta- gagnrýni sem ég hef lesið er vísa eftir höfuðsnilhnginn Egil Jónas- son á Húsavík. Þegar Kristján frá Djúpalæk, vinur Egils, gaf út sína fyrstu bók með órímuðum ljóðum kallaði hann hana Þrhæki. Egih hafði dálæti á ljóðum Kristjáns í hefðbundnu formi. En eftir lestur Þrhækja orti Egih þessa vísu: Gegnum landið lygn og beinn, leið á slóðum kunnum, djúpur lækur, áður einn, orðinn að þremur grunnum. Th er mikih fjöldi af iha gerðum tvíræðum eða klámvísum. En það eru líka th tvíræöar vísur sem eru perlur, eins og þessi eftir þann snjaha hagyrðing séra Helga Sveinsson, sem var prestur í Hveragerði. Vísan þarf engan formála: Margur er kátur maðurinn, og meyjan, hneigð fyrir gaman. En svo kemur helvítis heimurinn, og hneykslast á öhu saman. Annað dæmi um tvíræða vísu, sem er snihdarlega ort, er vísa eftir Þum í Garði. Hún hafði fundið tölu úr buxnaklauf í bældu grasi í Lysti- garðinum á Akureyri: Morgungolan svala svalar, syndugum hugsunum. Sínu máh talan talar, talan úr buxunum. Þær eru margar ástarvísurnar sem ortar hafa verið á íslensku. í þeim hópi eru th perlur, sumar vel þekktar en aðrar minna, þótt góðar séu. Dæmi um vel gerða vísu um ástina, sem ekki hefur verið á allra vöram, er þessi eftir Jón Berg- mann, snjallan hagyrðing úr Húna- vatnssýslu: Ástin bhnd er hfsins lind, leiftur skyndi vega. Hún er mynd af sælu og synd, samræmd yndislega. Flámæli Austfirðinga er alkunn- ugt. Til eru skemmtilegar og vel gerðar vísur sem era ortar í orða- stað þeirra. Ekki veit ég eftir hvern eftirfarandi vísa er en hef heyrt hana eignaða fleirum en einum: Hörmung aö veta, hart er flet, hér eg set óglaður. Fyrir sveta ei sofið get, svona er hetinn, maður! Önnur í sama dúr er svona: Einn í felum upp við á, eygði selung stóran. í stígvélum óðar þá, út í hehnn vóðann. Með því að lesa svona vísur ættu alhr að geta séð muninn á því sem kalla má perlur og síðan niður stig- ann th þess sem kalla má leirburð. Þau dæmi, sem ég hef hér tekið, era efnislega af öhum gerðum: al- vara, hvöss ádeila, ástarvisa, tví- ræði og gamansemi. Þær eiga það þó ahar sameiginlegt aö vera vel ortar. Það yrði óbætanlegt fyrir okkur íslendinga ef vísnagerð og hag- mælska legðist af með þjóðinni. Einnig væri það sorglegt ef vísna- gerð færi alfarið niður í leirinn eða niður undir hann, eins og ástæða er th að óttast, því miður, ef miðað er við þær yrkingar sem birtar eru á prenti. Maður lifir þó í þeirri von aö þættir Ómars Ragnarssonar frá hðnum vetri verði th þess að koma í veg fyrir það. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.