Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Side 20
20 LAUGARDAGUR 25. JÚNl 1988. Erlendir feröamenn á íslandi. Reykjavík, 21. júní Kæri vin. Þá erum við búin að halda þjóð- hátíð á hefðbundinn hátt. Blóm- sveigur á Austurvelh, blöðrur og fánar item skrúðgöngur og rok og rigning. Þorsteinn Pálsson forsæt- isráðherra lét þó ekki veðrið hafa áhrif á sig og flutti skínandi góða ræðu á Austurvelli. Stundum hafa mér þótt þjóðhátíðarræður vera helst tii miMð froðusnakk en Þor- steinn talaði opinskátt um hags- munabaráttuna í þjóðfélaginu. Það rifjaöist upp fyrir mér saga af Bjarna Benediktssyni þá hann gegndi störfum forsætisráðherra. Sagt er að hann hafi mætt á fundi hjá kaupmönnum sem báru fram háværar kvartanir vegna þess að þeir töldu hag sínum ekki nógu vel borgið undir stjórn Bjarna. Þykkn- aði þá í ráðherra og hann mæltí með þunga um leið og hann yfirgaf samkvæmið: - Ég er forsætísráð- herra þjóðarinnar en ekki hags- munasamtaka kaupmanna. Eitthvað á þessa leið var mér sögð sagan á sínum tíma og hvort sem rétt er eftir haft eða ekki þá trúi ég því mætavel að Bjarni hafi látíð orð faila á þessa leið hafi honum þótt ástæða til. Manstu þegar við vorum að rífast um pólitík sem komungir menn. Daglangt gátum við þráttað um Víetnam, komma og íhald, svo ekki sé minnst á fram- sókn og krata. Vomm þó aðallega í heimsmálunum og lití heimurinn eflaust betur út í dag ef farið hefði verið að okkar ráðum. En áður en ég skil við Bjama Benediktsson má ég til með að segja þér frá því þegar ég sá hann fyrst. Þá var ég innanbúðarmaður á Akureyri eitt sumar, líklega fimmtán eða sextán ára gamall. Verslunin hafði meðal annars veiðivörur til sölu og var til húsa við Skipagötu. Morgun einn, rétt eftir opnun, kemur lág- vaxinn maður, gráhærður, inn um dymar og þekkti ég strax að þar fór þáverandi forsætisráðherra. Hann bauð góðan dag og dró seiminn. Fékk að líta á girni og sökkur og kvaðst vera á leið í veiöi í Vopnaf- irði. Mér þótti upphefð aö heim- sókninni en hef sjálfsgt ekki sýnt mikla sölumannshæfileika enda vissi ég næsta litíö um laxveiðar og bar óttablandna virðingu fyrir þessum háttsetta viðskiptavini. Eftir að hafa skoðað vömúrvalið um stund verður Bjama gengið út aö glugga og horfir út. Fyrir utan búðina stendur farkostur hans, hvítur Benz. Hreinsunarmenn gatna vom að vappa í kringum bíl- inn, vopnaðir kústum. Bjami sér þetta og snarast fram gólfið um leið og hann segir: - Ég verð að færa bílinn svo mennimir getí unnið sitt verk. Kom svo inn aftur og gekk frá sínum viðskiptum. Frá þessari stundu vissi ég að Bjami Bene- diktsson gætí ekki verið landráða- maður og óvinur almúgans eins og fullyrt var daglega í sumum flokks- málgögnum. En þjóðhátíðarhöldin gengu sem sagt samkvæmt venju og hafa lítið breyst frá því við vorum upp á okkar besta, hvenær sem það var nú. Enn er verið að rífast út af hvalveiðum en ég veit satt að segja ekki lengur hver er að rífast við Bréftilvinar Sæmundur Guðvinsson hvern. Síöustu fréttir herma aö nú séu hvalbátarnir að leggja í hann og ég vona bara að vel veiðist. Hitt er svo annað mál hvað hægt verður að gera við kjötið því nú virðist það hvarvetna vera þefað uppi á leið- inni til Japans og snúið aftur heim á leið. Þetta hlýtur að vera einhver klaufaskapur á sama tíma og þjóðir allt í kringum okkur flytja vopn út um aUar trissur án þess að nokk- ur komist að því fyrr en allt er löngu afstaðið og búið að drepa fjölda manns með þessum sömu vopnum. Svo er náttúrlega alltaf verið að ræöa um verðbólguna og fer mjög eftir fjölmiðlum hvað bólgan er mikil um þessar mundir. Fer þó ekki milli mála að bólgan hefur náð að vaxa og dafna að undanfornu. í framhaldi af því vilja menn slá nokkra milljarða að láni í útlönd- um enda er fátt betur tíl þess faUið að slá á bólguna en auka skuldir í útlöndum. Ráðherrarnir eru víst tregir til að leyfa slátt upp á meira en einn miUjarð eða svo og er ekki að spyija að nánasarhættinum á þeim bæ. Hins vegar er ég ekki hissa á því að menn vUji fá að skulda í útlöndum því það er orðið svo dýrt að skulda hérlendis að á því hefur ekki nokkur maður efni, hversu fátækur sem hann er. Svo eru forsetakosningar nokkuð í umræðu þessa dagana en þar hefur fátt borið tíl tíðinda og engar líkur á að skipt verði um þjóðhöfðingja. En alltaf er verið að gera okkur eitthvað gott og nú er rætt um heimsókn páfa tíl landsins næsta sumar. Eflaust hafa sumir gaman af því að sjá framan í páfann og bjóða hann velkominn með viöeig- andi hætti. Nokkrir landar hafa Ut- ið inn hjá páfum þá þeir hafa átt leið um Róm. Til dæmis Pétur heit- inn, bóndi í ReynihUð, sem heim- sótti Píus páfa fyrir nokkrum ára- tugum. Pétur var í stórum hópi fólks sem fékk áheym hjá hans heUagleika og þurfti að bíða drjúga stund þar til hann komst í færi við páfann. En þá rétti Pétur líka fram vinnulúna hönd sína og mæltí hátt á norðlensku: - Komdu sæU og blessaöur, Píus páfi. Þetta er Pétur Jónsson í Reynihlíð. AUa vega vUdu samferðamenn Péturs halda því fram að svona hafi Pétur heUsað páfa, en eins og þú getur ímyndað þér ætla ég ekki að fullyrða neitt um sannleiksgUd- ið. Hvorugur okkar á víst eftír að ganga fyrir páfa enda við engir stórbændur úr Mývatnssveit. Óbreyttir túristar eru farnir að streyma til landsins og horfa undr- unaraugum út í regnið og sólina sem skiptast á um að sýna þeim litadýrð náttúrunnar. Sumir ferða- langanna átta sig ekki á því fyrir- fram hvað þessi litla eyja okkar á kortínu er í rauninni stór. Einn Bandaríkjamann hitti ég á dögun- um sem sagði mér að daginn eftir ætlaði hann að teka bíl á leigu og aka hringinn í kringum landið. Ég spuröi hvað hann ætlaði sér langan tíma tíl ferðarinnar. - Ég legg af stað um níuleytíð og ætti þá að verða kominn aftur til Reykjavíkur um kvöldmat, svaraði Kaninn. Mér varð á að taka mér í munn orð Sigga Siguijóns í sjónvarpsaug- lýsingu. Horfði á ferðamanninn og sagði: - Ég skil. Bestu kveöjur. Sæmundur ERÞAÐ1EÐAXEÐA2 8 A Hann er nefndur meðal snillinga og heitir Claudio Arrau. Hann er 1: fiðluleikari X: píanóleikari 2: saxófónleikari Þetta er merki ferðaskrifstofunnar 1: Faranda X: Ferðamiðstöðvarinnar 2: Flugferða B Nýlega var flutt útvarpsleikrit eftir hinn kunna útvarps- mann Jónas Jónasson. Það heitir 1: Blokk X: Heimiliserjur 2: Blaðakona G Sergei Bubka, Sovétríkj unum, setti nýlega heimsmet í stangarstökki og stökk þá 1: 6,00 m X: 6,05 m 2: 6,10 m Hér eru átta spurningar og hverri þeirra fylgja þrír mögu- leikar á réttu svari. Þó er aðeins eitt svar rétt við hverri spurn- ingu. Skráið niður réttar lausn- ir og sendið okkur þær á svar- seðlinum. Skilafrestur er 10 dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun, öll frá Póstversluninni Primu í Hafharfirði. Þau eru: 1. Töskusett, kr. 6.250,- 2. Vasadiskó og reiknitölva, kr. 2.100,- 3. Skærasettkr. 1.560,- C Pétur Östlund, viðurkenndur trommuleikari, hefur um árabil dvahst erlendis, það er að segja í 1: Englandi X: Svíþjóð 2: Danmörku D Þettaermerki 1: Sauðárkróks X: Selfoss 2: Keflavíkur E Karvel Pálmason er einn alþingismanna Vestjarðakjör- dæmis. Hann er búsettur á 1: Bíldudal X: ísafirði 2: Bolungarvík H Geir Haflgrímsson, fyrrum ráðherra, gegnir nú embætti bankastjóraí 1: Seðlabankanum X: Landsbankanum 2: Búnaðarbankanum Sendandi Heimili ______________________________________ Rétt svar: A □ bD C □ D □ eD f□ sD hD í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en nýjar spurningar koma í næsta helgarblaði. Merkið umslagið: 1 eða x eða 2, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík. Vinningshafar fyrir 1 eða X eða 2 í sjöttu getraun reyndust vera: Ragna Svanlaugsdóttir, Sól- heimum 23,104 Reykjavík (töskusett), Magnús Orn Frið- riksson, Sigtúni 51,450 Patreks- firði (vasadiskó og reiknitölva), og Hrafnhildur Þorbergsdóttir, Kleppsvegi 48,105 Reykjavík (skærasett). Vinningar verða sendirheim. Rétt lausn var: X21 - 2X2 -IX.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.