Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 22
1 • LAUGARDAGUK'25. JtJNÍ 1988. „Ég gæti alveg eins verið dáinn" Halldór Fannar tannlæknir er mörgum kunnur. Flestir muna eft- ir honum þegar hann lék og söng meö Rió tríóinu á fyrstu fimm árum þess. íþróttir hafa átt hug hans en á gohvellinum á hann fjölda vina sem minnast hans sem fjörugs og virks golffélaga. Veggjatennis, fót- bolti og hlaup hafa líka tekiö drjúg- an skerf af tíma hans. Halldór er fráskihnn, fjögurra barna faöir. Tvær stálpaðar dætur á hann frá fyrra hjónabandi og tvo litla stráka meö núverandi sambýl- iskonu sinni, Fríöi Garðarsdóttur. En einn góöan veöurdag; reyndar næstsíöasta dag síðastliðins árs er Halldóri snögglega kippt út úr hringiðunni. Hann hefur veriö keyröur niður í Lækjargötunni og liggur á milli heims og helju á gjör- gæsludeild. í fjóra daga var hann meðvitundarlaus og voru horfurn- ar nyög óljósar. En Halldór kemst til meðvitundar og við taka þrír mánuðir erfiörar baráttu fyrir því að fá að lifa. Að- gerðir á aðgerðir ofan. Á stundum mjög tvísýnt um líf hans. Hann er fómarlamb umferðar- slyss sem rekja má til óvarkámi ökumanns. Man ekkert hvað gerðist „Ég haföi boöið starfsfólkinu á stofunni hjá mér út að borða á Lækjarbrekku því þetta var síðasti starfsdagur ársins. Þegar viö erum rétt byrjuð að gæða okkur á matn- um uppgötva ég að veskið mitt hef- ur gleymst niðri á tannlæknastofu. Ég dríf í því að skjótast eftir vesk- inu og í bakaleiðinni lendi ég í slys- inu. Hvað gerðist þama, sem og meginpartur þessa dags, hefur þurrkast alveg út. Mér er bara sagt að ég hafi orðið fyrir þessu slysi. í lögregluskýrslum les ég að svo virðist sem ég hafi verið að fara yfir Lækjargötuna, ekki á gang- brautinni heldur aðeins fyrir fram- an hana. Bíll, sem ætlaði upp á gangstéttina til aö komast að sölut- uminum þarna, er stöðvaður og ökumaðurinn veifar. Líklega hefur mér skihst að hann væri að gefa mér merki um að fara yfir. í máli vitnanna kemur fram að ég hafi ahs ekki farið greitt eða skyndilega af stað út á götuna. En um leið og ég fer yfir kemur bíll aðvífandi á vinstri akreininni með þessum.af- leiðingum." Ökumaðurinn tekinn skömmu síðar á ofsa- hraða Ómögulegt er að sanna á hve miklum hraöa bíllinn, sem ók á Hahdór, hefur verið en að minnsta kosti virðist hann hafa keyrt of geyst th að koma í veg fyrir slys. Pilturinn, sem ók bhnum, hefur jafnt fyrir og eftir þennan atburð verið tekinn fyrir of hraðan akstur. Þremur vikum eftir slysið er hann svo tekinn á 189 km hraða á nýju Reykjanesbrautinni. „Ég ásaka hann nú ekki fyrir glannaakstur þama, greyið. Ég myndi ekki vhja túlka það þannig. En það er öhu aulalegra fyrir hann að lenda í jafnslæmu máli og raun bar vitni þarna rétt á eftir. Þaö virðist ekki hafa haft mikil áhrif á hann að keyra niður mann.“ Hahdór gekk í gegnum nokkrar aðgerðir næstu þrjá mánuði eftir slysið. Meiðsli hans reyndust öh innvortis, hvergi var um opið sár að ræða. Vegfaranda á götunni, sem fyrstur kom á slysstað, tókst að blása lífi í hann og annar gaf honum hjartahnoð. Þrír mánuðir á gjörgæslu „Ég var skorinn upp strax þeg- ar á spítalann var komið. Þá kemur í Ijós að annað nýrað var ónýtt, bara höggvið frá og slagæðin cpin. Mhtað var líka kramið og ekkert annað hægt en fjarlægja það. Brisið var iha marið og varð að taka af því hluta. Brisaðgerðir eru svo lengi að gróa og vætlar alltaf úr sárinu á brisinu. Það eru hreinir og tærir meltingarvökvar sem tæra og skemma umhverfið í kring. Svo kom á daginn að um talsverðar skemmdir var að ræða. Gah- blöðruna varð að taka burt, þindin hafði rifnað og annað lungað falhð saman. Því fylgdu miklar aðgerðir í kjölfarið. Þetta þýddi þrjá mánuði á gjörgæslu. Eftir eina aðgerðina var ég víst mjög hætt kominn. Þá fékk ég alvarlega blóðeitrun. Rif- beinin brotnuðu og gerðu mér erf- itt fyrir með öndun th að byrja með. En á heildina litið þá bjargaöi miklu hve ég brotnaði annars ht- ið.“ Varð ekki svekktur út í strákinn Halldór veröur alvarlegur í bragði þegar taliö berst að andlegri hðan hans á þessum tíma. „Það hvarflar auðvitað aldrei að manni að svona slys geti hent mann sjálfan. Frekar er hægt að búast við því að lenda í slysi í bíl en að vera keyrður niður á götu er eitthvað svo íjarlægt. Þetta ber svo brátt að. Á sjúkrahúsinu taldi ég auövitað tímann á sekúnduvís- inum á klukkunni. En mér fannst ég aldrei bila neitt andlega. Ég gerði mér allan tímann hugmyndir um að ég myndi eiga lengur í þessu en læknamir sögðu við mig. Þann- ig varð ég ekki fyrir meiri von- brigðum. Ég var til dæmis aldrei neitt svekktur út í þennan strák sem keyrði á mig eða þess háttar. Á meðan á þessu stóð hugsaði ég út í þaö hve ég hef verið heppinn í rauninni. Það munaði svo mjóu að verr færi. Þegar maður vissi hve hla nýrað var farið má leiða hug- ann að því hvað hefði getað gerst þar sem nýrað er svo nálægt hryggnum. Og að ég hafi ekki brotnað meira er eiginlega ótrú- legt. En læknamir hafa auövitaö unnið mikið afrek. Óneitanlega gerir maður sér grein fyrir því að ég gæti auðveldlega verið dáinn. Bhið mhli lífs og dauða er styttra núna.“ Álag á íjölskylduna „Svona lagað hefur auðvitað milul áhrif á fleiri en mann sjálfan; gífurlegt álag á fjölskylduna. Þetta var þaö tæpt, bæði um áramótin og svo einum og hálfum mánuöi siðar eftir eina aðgerðina. Konan mín var kölluð upp á spítala strax Þessi mynd var tekin af vettvangi rétt eftir að slysið átti sér stað. Dökki sportbill- inn ersásemolli siysinu. eftir þá aðgerð því þá héldu lækn- amir að ég væri að fara. Ættingjunum fannst ég á köflum vera orðinn óeðhlega þungur og eitthvað andlega skrýtinn. En ég var einfaldlega bara sljór og mátt- farinn af þessu öllu saman, sérstak- lega vegna mikihar lyfjameðferðar. Iðulega þagði ég og starði á vegginn þótt ég fengi gesti enda hafði ég ekki frá neinu að segja og varð bara að spara kraftana. Ég fann þó fyrir því að maður var mjög meyr, gat klökknað af minnsta thefni, til dæmis þegar dætumar komu í heimsókn. í veikleikanum voru það gleðitár en þetta er svo óhkt mánni að vera svo geysiviðkvæm- ur. Þótt slíkt kæmi fyrir vil ég ekki meina að ég hafi brotnaö andlega. Jafnvel htlu strákamir mínir urðu þyngri og daprari á meðan á þessu stóð þótt þeir séu bara tveggja og fjögurra ára. Sá yngri var nú svo mikhl óviti að fyrstu vikumar sjokkeraði hann fólk sem kom í heimsókn. Byrjaði sífellt á því að segja við það: „Dóri dáinn, Dóri dáinn.“ Stelpumar mínar voru mér mikill stuðningur og heimsóttu mig oft. Þær áttu vissulega erfitt þótt þær reyndu að láta það ekki í ljósi.“ Það er kraftaverki líkast hve Hahdór hefur náð sér og er orðinn brattur þótt hann eigi langt í land með að ná fuhum bata. Eftir fjög- urra mánaða dvöl á Borgarspíta- lanum hefur hann verið í endur- hæfingu á Grensásdeildinni. Hann hefur verið dagsjúkhngur þar en sér nú fram á aö útskrifast þaðan fljótlega. Næstu mánuði mun hann stunda endurhæfingu meira á eigin spýtur. Eins og áður segir hefur Hahdór verið mikið í íþróttum en líkt og gefur að skilja sér hann ekki fram- á að geta iðkað íþróttir á næstunni. Segist hann þó hafa gengið „nokkrar holur meö strák- unum á golfvellinum" um daginn. En spilaði auðvitað ekkert sjálfur. Halldór er slæmur í öxlinni og í rifbeinsbrot gæti orðið erfitt viður- eignar og því er golfið ekki á dag- skrá á næstunni. En hann er ekki að kvarta; tekur lífinu létt miðaö við aðstæður og það sem á undan er gengið. Er allur að braggast „Ég er allur að koma tíl. Vöðva- rýmunin og máttleysið var svo gíf- urlegt. Ég er farinn að þyngjast aftur og komin á mig einhver mannsmynd. Þaö tekur langan tíma að byggja sig upp, ég get enn varla lyft upp yngri stráknum mín- um. Þau líffæri sem tekin voru burt gátu fengið aö fjúka vegna þess að önnur taka við starfi þeirra. En það er erfiðast með brisið því ekkert tekur við þar. Þó er það mikið eftir af því að það fullnægir alveg mínum þörfum. Undir eðh- legum kringumstæðum á ég að geta braggast og gengið vel.“ Maður sem verður fyrir því að lenda undir bh óvarkárs öku- manns, ökumanns sem er svo tek- inn rétt eftir slysið á 189 km hraða,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.