Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR, 25. JÚNÍ 1988.
Breiðsíðan
Adda Steina og Þórir Guðmundsson, fréttamenn á Stöð 2. Hjónaböndum
fjölgar á næstunni innan fjölmiðlastéttarinnar. DV-mynd GVA
„Viö erum þrjú hér í sumarafleysingum,“ sagöi Adda
Steina Björnsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, er Breiðsíðan
sló á þráðinn til hennar. Hún er eitt af nýju andlitunum
í fréttaþættinum 19:19 en sjálfsagt muna einhverjir eftir
röddinni af Bylgjunni þar sem hún starfaði áður. Adda
Steina er í guðfræðinámi og ætlar að ljúka því næsta
vor. Hún hefur gríðarlegan áhuga á Kýpur og það var
einmitt á þeim stað sem hún vakti fyrst athygli í sjón-
varpi. „Ég dvaldi á Kýpur einn vetur 1983-’84 og lærði
grísku. Síðan hef ég alltaf haft mikinn áhuga á staðnum.
Þegar fyrstu íslendingarnir fóru þangað í vor í hópferð
var mér boðið að vera fararstjóri. Þannig hittist á að
flugránið átti sér stað á þeim tíma og Þórir Guðmunds-
son bað mig að senda fréttir heim,“ sagði Adda Steina
ennfremur. Eftir þær fréttasendingar bauðst henni starf-
ið í sumar enda stóð Adda Steina sig mjög vel í að flytja
okkur fréttir af ráninu og gerði það nálægara okkur en
annars hefði orðið.
Þórir, sem er yfirmaður erlendu fréttanna á Stöð 2, er
sambýlismaður hennar og eiga þau „hjónin“ það sameig-
inlegt að eiga Kýpur fyrir áhugamál. Reyndar eru ferða-
lög á óskalistanum og fyrirhuguð er heimsreisa á næsta
ári. Það þykir líka dálítið sérstætt þegar væntanleg
hjónakorn vinna saman sem fréttahaukar þótt ekki
heyri það til undantekninga í fjölmiðlaheiminum. Brúð-
kaup þeirra verður að öllum líkindum í lok ágúst og
höfum við hlerað að kirkjan í Viðey verði fyrir valinu
en það látum við ekki fara lengra...
„Eg á ekki von á að ég gerist prestur þótt ég sé í guð-
fræði. Ætli ég haldi ekki áfram í fjölmiðlun eftir að ég
lýk prófi.“ Adda Steina vann um tíma á Morgunblaðinu
áður en hún hóf störf sem fréttamaður á Bylgjunni
haustið 1986. „Reyndar sendi ég greinar frá Kýpur á
meðan ég dvaldi þar og þá kviknaði áhuginn,“ sagði hún.
Að sögn Öddu Steinu eru fréttamenn Stöðvarinnar í
kringum tíu talsins sem þykir harla gott á ekki eldri
sjónvarpsstöð. Hún segist þó einungis ætla að starfa á
Stöðinni í sumar. Kannski hún fari 1 rússneskunám með
guðfræðinni. Að minnsta kosti var hún að „hóta“ því í
einum fréttatímanum... ela
Þú ert 2000 krónum ríkari!
Litli drengurinn, sem hér spilar knattleik af miklum eldmóð, er sá heppni þessa vikuna, lendir í hringnum og fær tvö
þúsund krónur. Myndin var tekin á ísafirði nýlega er Ijósmyndari DV var þar á ferð. Strákarnir voru að þjálfa sig í að
skalla bolta eins og sjá má. Ekki ber á öðru en það hafi tekist vel í þetta skipti hjá þeim stutta. Eins og myndin sýnir
eru strákarnir í einni röð og stelpurnar í annarri þarna fyrir vestan. En sá með boltann á lofti, sem nú hefur lent í hringn-
um, má vitja peninga sinna hér á ritstjórn DV, Þverholti 11.
Sú heppna í síðasta hring var 8 ára gömul stúlka, Sigrún Áslaug Guðjónsdóttir. Hún var í heimsókn hjá ömmu sinni er
henni datt í hug að fara út á leikvöll og horfa á brúðubílinn og það var einmitt þar sem myndin var tekin af henni. Heppnin
var með Sigrúnu því hún var einmitt að safna sér fyrir nýju rúmi og peningarnir komu sér vel upp í það.
-ELA/ DV-mynd GVA
LEIKKONAN Cher, sem
vakti á sér athygli á ný-
stárlegan hátt er hún tók
við óskarsverðlaunum í
apríl sL, lætur ekki að sér
hæða. Er glaumgosinn
WarrenBeattybauð
henni út að borða fyrir
skömmu setti hún á sig
snúð og sagðist ekki fara
útmeðmönnum sem
væruþrjátíuárumof
gamlir. Sennilegahefur
Beatty, sem hingað til
hefur getað vaðið í kven-
fóM, ekki sætt sig við slík
ummæli því aðeins tíu
ára aldursmunur er á
honum og Cher. Hann er
51 oghún41...
★ ★ ★
KAROLÍNA prinsessa
þykir alltaf fréttnæm og
vekur athygli hvar sem
hún kemur. Hún er
þriggja barna móðir og
hermasöguraðþað
íjórða sé á leiðinni. Sjálf
.hefur Karolína margoft
sagtaðhún vilji fylla
húsið af börnum. Yngsta
bam hennar er þó aðeins
rétt níu mánaða gamalt.
Annars mun Karólína
hafa náð þeirri virðingu
sem móðir hennar, Grace
Kelly, hafði í Mónakó.
Karólína lætur sig nefni-
lega miklu skipta allt
menningarlíf í borginni
og hefur þar fetað í fót-
spormóðursinnar.
★ ★ ★
ÞÚgeturlosaðþigvið
höfuðverk, bakverk og
aðra verki sem koma
fram af stressi með því
að hugsa alltafjákvætt.
Ef hjónabandiðer t.d.
ómögulegt getur þú hugg-
aðþigviðaðveragóð
móðir eða góður faðir,
íþróttamaður, söngvari
eðahvaðsem viðá.
Bandarískir sálfræðingar
segja nefnilega að það sé
hægt að lækna ýmsa
kvilla með jákvæðum
hugsunum. Pollýönnu-
leikurinn ætti því að
koma að góöum notum
gegn stressi...
Þaðerenginnvafíá
hversu sjálfstæðari kon-
ur eru í dag en fyrir 20
árum. Þá gengu þær allar
1 stuttum pilsum vegna
þess að þaö var tíska. Nú
eru stuttu pilsin aftur í
tísku en samt eru það
ekki nema 50% kvenna á
aldrinum 18-29 ára sem
viJja ganga í stuttu, 27%
kvenna á aldrinum 30-44
ára og aðeins 8% kvenna
sem eru á aldrinum 45-64
ára. Þessar tölur komu
fram í skoðanakönnun
sera gerð var í Bandaríkj-
unum og má aö öllum lík-
indum heimfæra tölurn-
ar á Evrópu. Af sem áður
var...