Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988.
•25
Breiðsíðan
DV-myndbrot
vikiinnar
Það er rétt að fara að öllu
með gát og athuga tankinn
áður en lengra er haldið.
Að minnsta kosti ætlar þessi
ökumaður að vera við öilu
búinn. Annars er myndbrotið
okkarþessa vikuna tákn-
rænt fyrir hversu allar vega-
lengdir eru miklar á Vest-
fjörðum þar sem myndin var
tekin. Ljósmyndari DV var á
ferð frá ísafirði til Súðavíkur
á dögunum er hann rakst á
ökumanninn atarna. Merk-
ingin er sannarlega þörf á
slíkum stöðum og gott til
þess að vita að ökumenn
taki hana alvarlega. Hver
mundi svo sem vilja verða
bensínlaus á þessum slóð-
um þar sem aka þarf rúma
tvö hundruð kílómetra til að
ná sér í vökvann. Það er
ekki ósvipað og að fara inn
í eyðimörkina vatnslaus...
eða hvað finnst ykkur?
ELA/DV-mynd Gunnar V.
Andrésson
Þórdís Amljótsdóttir fjallkona:
„Táraðistnæstum
af hátíðleika"
Úr kvikmyndinni Foxtrot: „Þetta er byssu- og spennumynd," segir Valdimar Flygenring sem fer með eitt aðal-
hlutverkið. Reyndar tók hann hlutverk sitt svo alvarlega, er myndin var tekin, að hann skaut Ijósmyndarann, Lár-
us Ými, í fingurinn og þurfti að sauma nokkur spor. Valdimar gaf þá skýringu að með púðurskotunum færi silikon
sem i þetta skiptið hefði „slasað" mann. Lárus Ýmir tók ekki fleiri myndir í þetta skiptið.
Valdimar Flygenring leikari:
Geymi kvíðann til haustsins
„Ég útskrifaðist úr Leiklistarskóla
íslands vorið 1987 og það var Klem-
ens Jónsson sem kom að máli við
mig og bauð mér að lesa ljóð fjallkon-
unnar, Fylgd, eftir Guðmund Böðv-
arsson," sagði Þórdís Arnljótsdóttir,
leikkona og fjallkona þjóðhátíðar-
dagsins í Reykjavík. Þórdís sagði
ennfremur að þegar hún var í skól-
anum hefði oftsinnis verið spaugað
með að hún væri rétta manneskjan
í fjallkonuhlutverkið. Ekki sagðist
hún vita hvers vegna en óneitanlega
væri það fyndið að henni hefði síðan
boðist hlutverkið.
Unnur Eyfells hefur aðstoðað fjall-
konur að klæðast síðan 1968 og lét
hún þau orð falla um Þórdísi að hún
væri fyrsta fjallkonan sem passaði í
Þórdís Arnljótsdóttir, fjallkona þjóð-
hátíðardagsins í Reykjavík, i skaut-
búningl.
Mynd Jóhannes Long
skautbúninginn og þurfti ekkert að
breyta honum eins og venja er. „Það
má segja að hann hafi veriö eins og
sniðinn á mig,“ sagði Þórdís. „Ætli
ég sé ekki bara svona fjallkonuleg,"
sagðihúnog hló.
Þórdís sagðist ákaflega ánægð með
að hafa verið vahn í hlutverk fjall-
konunnar því hún hefði upplifað sér-
staka hátíðarstemningu. „Mér
fannst þetta ákaflega gaman og
miklu meiri upplifun en ég bjóst við.
„Þetta var hátíðlegt, fallegt og þjóð-
legt,“ sagði hún. „Mér fannst hka
undarleg tilfinning að finna aha þá
yirðingu er ég gekk úr Alþingis-
húsinu og lögreglumenn stóðu í heið-
ursstöðu. Þegar ég flutti ljóðið tárað-
ist ég næstum vegna hátíðleika. Hlut-
verk fjallkonunnar er allt öðruvísi
en hlutverk á sviði því það er per-
sónulegra og.fyrir landið. Ég hef aht-
af verið þjóðleg í mér,“ útskýrði hún
ennfremur.
„Hlutverk fjallkonunnar er síðan
að ganga til kirkju með gestum og
vísa til sætis. Ég held ég hafi sungið
alla sálmana,“ sagði Þórdís. Þegar
hlutverki hennar sem fjallkonu lauk
beið Sigrún Stefánsdóttir eftir henni
vegna kvikmyndar um konur á ís-
landi sem hún vinnur að. í þeirri
mynd kemur fjallkonan að sjálfsögðu
við sögu og skautbúningurinn ís-
lenski.
Þórdís, sem er 25 ára gömul, lék í
leikriti listahátíðar, Ef ég væri þú,
og verða sýningar á því teknar upp
í haust. Einnig hefur hún í hyggju
að setja upp nýtt íslenskt leikrit sem
lítill leikhópur vann að í samráði við
skáldkonu sl. vetur. „Við segjum
ekkért um leikritiö strax en það var
frábært að vinna við það með skáld-
konunni og mjög gefandi,11 sagði Þór-
dís. Það verður greinilega mikið um
einkaframtak hjá ungum leikurum
næsta vetur ef marka má þá tvo leik-
ara sem nú prýða Breiðsíðumar.
-ELA
„Ég bíð eftir því að komast í sum-
arfrí til Suður-Ameríku eftir mikla
vinnu undanfarin sex ár - fyrst fjög-
ur erfið ár í Leikhstarskólanum og
síðan mikla vinnu undanfarin tvö
ár,“ sagði Valdimar Flygenring leik-
ari er Breiðsíðan náði tali af honum.
í september verður frumsýnd ný ís-
lensk kvikmynd, Foxtrot, þar sem
Valdimar fer með eitt aðalhlutverk-
iö. „Við erum að klára hljóðið í Fox-
trot en einnig hef ég lánað rödd mína
fyrir Svía í kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar, í skugga hrafnsins,"
sagði Valdimar ennfremur.
Hann hefur haft nóg að gera sl.
vetur og meðal þeirra leikrita sem
hann hefur haft hlutverk í eru Ham-
let, Síldin kemur, Faðirinn eftir
Strindberg og Dagur vonar, auk þess
sem hann lék í sjónvarpsmyndinni
Djákninn á Myrká. Sú mynd er einn-
ig á lokasprettinum. „Ég hef ekki
tekið mér sumarfrí frá því ég útskrif-
aðist og er því farinn að hlakka til
að geta slakað á og legiö í sólinni.“
Valdimar, sem er 28 ára gamah,
segist ekki vera fullviss hvar hann
muni dveljast íSuður-Ameríku en
Brasilía kemur til greina. Sambýlis:
kona hans, Freyja Gylfadóttir, fer
með honum í ferðina sem á að byija
íNewYork. „Éghefáðurdvahstí
S-Ameríku enda finnst mér meira
spennandi að ferðast á eigin vegum
en í hópferðum," sagði Valdimar.
Hann segist ekki kvíða frumsýn-
ingunni á Foxtrot. „Ég nenni ekki
að hafa áhyggjur af henni strax,“
útskýrði hann. „Auðvitað er alltaf
einhver kvíði í manni en ég geymi
hann þar til nær dregur. Ég hef ein-
ungis séð myndina á myndbandi og
það er bara smánasaþefur því allt
öðruvísi er að sjá hana í kvikmynda-
húsi.“ Valdimar sagðist ekki hafa
komist til Cannes er myndin var
sýnd þar fyrir mánuöi. „Leikhús-
vinnan er bindandi," sagði hann. „Ég
vona bara það besta með myndina
þegar hún verður sýnd hér. Þetta er
spennumynd í alíslensku umhverfi
og ég á ljúfsárar minningar um
vinnu mína við hana. Það var á viss-
an hátt skemmtilegt en einnig hrika-
lega erfitt. Ég á alltaf erfitt með að
aðskilja vinnu mína frá svefninum,"
sagðiValdimar.
Hann sagði jafnframt að næsta vet-
ur væri hugsanlegt að hópur valinna
leikara tæki sig saman og fengi hing-
að leikstjóra til að setja upp leiksýn-
ingu. „Við erum enn að vinna aö
þessari hugmynd og ætlum að halda
henni leyndri þar th máhn skýrast
betur.“ Auk þess heldur Valdimar
áfram í þeim hlutverkum sem hann
var í á síðasta leikári hjá Iðnó.
Efnisþræði kvikmyndarinnar
Foxtrot hefur verið haldið leyndum
hér á landi og var Valdimar spurður
hvort honum fyndist það rétt. „Að
vissu leyti er það rétt. Frostfilm
ákvað að þannig ætti þetta að vera.
Ef ég hefði sjálfur ráöið er hugsan-
legt að ég hefði kynnt myndina öðru-
vísi þótt ég teldi ekki rétt að fara með
auglýsingaherferð í gang núna. Ég
vona bara að þessi ákvöröun þeirra
Frostfilm-stráka skih árangri."
-ELA