Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 25! JÚNÍ 1988. Nýjar bækur Fairground Attraction - The First of a Million Kisses Smælki Sæl nú!... Sykurmolamir héldu innreið sína á bandaríska vinsældalist- ann fyrir einni viku og fóra í 187. sæti listans, sem verður að teljast býsna gott hjá óþekktrí hljómsveit með sína fyrstu plötu. Og I þessari viku hafa molamir bætt betur um og klifrað upp um 20 sæti og era i hópi þeirra sem merktir eru sérstaklega sem stórstök- kvarar. Við gratúleram.. Mic- haei Jackson virðist misjafn- lega vinsæll í Evrópu, sums staíjar komast færrí að en vil ja á tónieika piltsins en annars staðar verður að aflýsa tón- leikahaldi vegna áhugaleysis áhorfenda. Það gerðist til að mynda í suðurhluta Frakklands að tónleikar með Jackson vora felldir niður vegna þess að for- sala aðgöngumiða var nánast engin!.. .Richard Branson, eig- andi Virgin hljómplötufyrirtæk- isins, er mikiíl athafnamaður á ýmsum sviðum. í fyrra flaug hann til að mynda yfir Atlants- hafið i loftbelg og nú á dögun- um setti harm á stofn nýja út- varpsstöð i Bretlandi. Radio Radio heitir stöðin og hefur Branson þegar munstrað á skútu sina marga af þekktustu plötusnúðum Breta. BBC- menn era hins vegar hvergi bangnir við samkeppnina og segja hana álika mikla við BBC Radio One og loftbelgsflug Bransons hafi verið við áætlunarf lug tii Amer- íku ... BonJoviernúákafíívinnu fyrir næstu plötu hljómsveitar- innar og herma fregnir að búið sé að taka upp 20 lög til að moða úr., .John Noram, fyrr- um gitarieikari sænsku rokk- sveitarinnar Europe, ætlar að reyna fyrir sér upp á eigin spýt- ur og hefur i þvi skyni nýlega gefið út fyrstu sólóplötu sína, Total Control .. .Geezer Butler, fyrrum bassaleikari i Black Sabbath, hefur gengið til liðs við gamlan félaga sinn, Ozzy Osboume, og plokkar strengina iliði hansánæstunni.. .Ge- orge Michaei er margt til lista lagt, hann gerði sér lítið fyrír á dögunum, er hann þurfti að bregða sér bæjarleið í þyrlu, og tók við stjóm þyrlunnar á meðan flugmaðurinn rabbaði við farþega. Ekki hefúr Michael neitt þyrlupróf uppá vasann en flugmaðurinn sagði hann vera efnilega nemanda.. .segjum þaðgott... -SþS- Rod Stewart - Out of Order Staðlaður rokkari Rod Stewart er alltaf eins. Aö minnsta kosti hef ég engar breyting- ar merkt á honum né tónsmíðum hans síðan níundi áratugurinn gekk í garð. Það sem einna helst greinir plötur hans hverja frá annarri er að umslögin eru ekki alltaf eins og svo skiptir hann öðru hverju um undir- leikara. Á nýjustu plötunni, Oút of Order, hefur Stewart verið sérlega heppinn með mannskap. Andy Taylor gítar- leikari og Tony Thompson tromm- ari, sem gerðu góða hluti saman með The Power Station, eru meðal undir- leikara Stewarts. Þar er einnig Bern- ard Edwards sem pródúseraði „orkuverið“ á sínum tíma. Meðal annarra spilara má nefna David Lindley, Michael Landau og Jim Cre- agan sem hefur umborið gamla rám lengur en nokkur annar. Þeir semja einnig saman nokkur lög plötunnar. Að megninu til er Out of Order rokkskífa með þrumandi takti. Það leynir sér aldrei hvar kjuðar Thomp- sons koma við sögu og aðrir tromm- arar, sem leika á plötunni, eru einnig ósparir á höggkraftinn. Aðrir hljóð- færaleikarar eru einnig fyrsta flokks. Ef laglínur væru ögn meira grípandi væri Out of Order fyrsta flokks. í enda plötunnar er nokkuö slegið af. Þar sannar Rod Stewart enn einu sinni að í raun og veru nýtur hann sín betur í rólegum lögum en hröð- um. Gamli slagarinn Try a Little Tenderness (hinn sami og Roof Tops tóku hér um árið og kölluðu Söknuð) nýtur sín vel og When I Was Your Man er einnig áheyrilegt. Besta lag plötunnar er þó að mínu mati rokk- arinn Forever Young, kannski vegna þess að það minnir á rokkarann úfna sem virðist helst vera að keppa við Dorian Gray. Out of Order er í hópi betri platna Stewarts á þessum áratug. Hins veg- ar virðist honum ætla að ganga frem- ur trauðlga að ná þeirri styrku stöðu sem hann hafði í rokkinu allt frá upphafi sólóferilsins fram yfir 1980. Rod Stewart eldist kannski líka eins og við hin, þrátt fyrir staðlað útlit og ungæðislegt líferni. -ÁT Bruce Homsby & The Range - Scenes from the Southside Gömul tónlist Við og við skjótast inn á vinsælda- listana lög sem eru af öðru sauða- húsi en þau lög sem oftast gista þessa lista. Á síðari árum hafa til að mynda mörg gömul lög skyndilega rokið upp listana, oft á tíðum í upprunalegum flutningi. Sjaldgæfara hefur verið að sjá ný lög í gömlum búningi á vin- sældalistunum en fyrir nokkru skaust lagið Perfect með hljómsveit- inni Fairground Attraction alla leið upp í annað sæti breska vinsældalist- ans en þetta lag er einmitt dæmi um nýtt lag í gömlum búningi. Hljómsveitin Fairground Attrac- tion er reyndar yfirhöfuð upp á gamla móðinn og skemmtileg til- breyting frá diskómenningunni sem nú gin yfir öllu. Tónlist hljómsveitar- innar er eins konar þjóðlagajass og er hljóðfæraskipan í samræmi við þaö. Lítið ber á rafmögnuðum hljóð- færum og hljóðgervlar finnast alls ekki á plötunni. Söngurinn gegnir veigamiklu hiut- verki á þessari plötu og fer þar fremst í flokki söngkonan Eddi Reader sem er aldeilis mögnuð sönkona. Lögin eru öll eftir gítarleikara hljómsveit- arinnar Mark E. Nevin en aörir liðs- menn eru Simon Edwards sem, leik- ur á mexíkanskan kontrabassa!, og Roy Dodds trommuleikari. Auk þessara fjögurra koma við sögu á þessari plötu ýmsir aöstoöar- menn sem knýja hin ýmsu sveiflu- hljófæri því hér er það sveiflan sem blífur af sannri gleði og innlifun. Og-vilji menn fá tilbreytingu frá síbylju dagsins í dag er þessi plata Fairground Attraction einmitt rétti gripurinn til að hlusta á, fyrsta flokks vara. -SþS- gædd nýju lífí Uppfyllir væntingar Eitthvert eftirminnilegasta lag síð- asta árs var án efa The Way It Is sem flutt var af Bruce Hornsby and The Range. Hornsby kom með ferskan blæ í annars staðnað léttrokk sem svo einkennir hljómsveitir vestan- hafs. Þessu lagi var fylgt eftir meö ágætri LP plötu sem bar nafn lagsins. Bruce Homsby lætur ekki bíða lengi eftir sér með aðra plötu, Scenes from the Soutside nefnist ný afurð kappans og er óhætt að mæla með henni við alla þá sem höfðu gamnan af fyrri plötunni. Það sem einkennir tónlist Hornsby er í raun að fmna í uppruna hans. Hann er Suöurríkjamaður og því er bæði að finna áhrif frá sveitatónlist og jassi. Rödd hans er greinilega á fyrrnefndu línunni en píanóleikur hans, sem er mun skarpari á Scenes from the Soutside en á The Way It Is er með greinilegum jassáhrifum. Sérstaklega er þetta áberandi í The Road not Taken. Þar er um að ræða dæmigert sveitalag sem Hornsby gjörbreytir þegar hann tekur píanó- sóló. Mörg góð lög prýða þess nýju plötu kappans. Má þar nefna rokkaðasta lagið, The Valley Road, sem einna helst hefur heyrst enn sem komið er, önnur góð eru Look out Any Window, The Show Goes on og De- fenders of the Flag sem sker sig nokkuð frá öðrum því þar er blúsinn í fyrirrúmi. 011 lögin eru samin af bræðrunum Bruce og John Hornsby og eru öll ný, utan eitt Jacob’s Ladder sem Huey Lewis kom í efstu sæti vin- sældalista á síðasta ár. Einhverja þörf hefur Hornsby fundið hjá sér að hljóðrita það sjálfur. Hann gerir samt ekki betur en Lewis og hefði að ósekju mátt sleppa því. The Scenes from Southside er í heild, þrátt fyrir smábresti, virkilega heillandi plata. Hún hefði að vísu mátt vera fjölbreyttari en gallarnir eru færri en kostirnir. HK. Poison - Open up and Say... Ahh! Glitrokkarar herða á sér Leið Poison til frægðar og frama var bæði mjó og hlykkjótt. Eftir nokkurra ára puð í heimalandinu, Bandaríkjunum, kom platan Look What the Cat Dragged in út. En það áttu eftir aö líða mánuðir á mánuöi ofan þar til platan sló almennilega í gegn. Um þaö leyti sem liðsmenn Poison fógnuðu ársafmæli skífunnar fór hún loksins að seljast almenni- lega. Nú á að fylgja sigrinum eftir. Fyrir nokkrum vikum var platan Open up and Say... Ahh! gefin út, mikil keyrsluplata eins og sú fyrri og hlaut fínar viðtökur rokkunnenda vestra. Þó reyndust einstaka plötukaup- menn ósáttir við umslag plötunnar og neituðu að selja hana. Að öðru leyti hefur róðurinn verið léttur hjá Poison í þetta skiptið. Helstu breytingar á tónlist Poison frá Look What the Cat Dragged in eru þær að hljómurinn er mun fag- mannlegri en áöur. Þá eru áhrif glamrokksins frá þvi á fyrri hluta áttunda áratugarins nokkuð að hverfa (því miöur) og hreinræktað bandarískt keyrslurokk að koma í staðinn. Með sama áframhaldi verð- ur Poison komin í léttmetalinn á næstu plötu. Liðsmenn Poison semja öll lög plöt- unnar sjálfir nema eitt, ellismellinn Your Mama Don’t Dance sem Logg- ins og Messina gerðu vinsælt ein- hvern tíma á síðustu öld. Útsetning Poison er í góðu lagi. Erfitt er að taka út einhver lög og segja að þau séu betri en önnur. Platan er nokkuð jöfn frá upphafi til enda og hún hefur fest fyrrum glitrokkhljómsveitina Poison í sessi í bandarískum dægurheimum. -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.