Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Page 35
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988.
47
5. fl.: Víðir, A- og B-lið, Einherji, B-lið,
Leiknir F„ B-lið, og VíkingurÓI., bæði iA
og B.
2. fl. karla: Njarðvík og Grótta.
2.fl.kvenna: IBK.
6. fl.: Leiknir Fá„ B-lið.
Á elleftu stundu
Fylkir bað um frestun á leik í 4. fl. vegna
úrtökumótstil þátttöku í Knattspyrnuskóla
KSl sem háð var á Akureyri 18. og 19.
júní sl. Frestunin barst með sólarhrings
fyrirvara sem er náttúrlega engan veginn
nægilega gott. Hér þurfa að vera skýrari
línur. Aðeins tvennt kemur til greina: Ann-
aðhvort að félögin fái ekki frestun leikja
vegna þátttöku leikmanna þeirra i drengja-
landsliði nú eða Knattspyrnuskóla KSl eða
að hin leiðin að frestun komi sjálfkrafa.
Síðan ætti þaðað vera íverkahring ungl-
inganefndar KSl að koma boðum til móta-
nefndar með góðum fyrirvara.
Bikarkeppni 2. flokks:
Leiknif-Stjarnan 2-1
(Úrslit þessa leiks koma mjög á óvart.)
„Horfðu á næsta leik“
Hér er einn efnilegur. Drengurinn
heitir Haukur Gunnarsson og er leik-
maður með 5. fl. B-liðs Leiknis. Þó
svo að Leiknir tapaði 7-1 í viður-
eigninni gegn Breiðabliki sýndi
Haukur mjög mikla hæfni og mikinn
vilja fyrir því sem hann var að gera
hverju sinni. Hann skoraði eina
mark Leiknis og var það sérlega
glæsilegt, hjólhestaspyrna af bestu
gerð af 12 m færi í hornið fjær. Gjör-
samlega óverjandi. DV spurði Hauk
eftir leikinn hvort hann gæti ekki
endurtekið spyrnuna svo hægt væri
að ná mynd. Drengurinn var ekki í
vandræðum með svar: „Nei, það er
of seint núna, maður, leikurinn er
búinn. Komdu á næsta leik!“ Já,
þeir eru sko ekki í vandræðum að
svara fyrir sig, þessir fuglar.
DV-mynd HH
Leyfið bömunum
að blómstra á
Tommamótinu
Um næstu helgi verður mikið um
dýrðir í Vestmannaeyjum því þar
verða saman komin milli 700 og 800
börn á 6. flokks aldri til þátttöku í
hinu geysivinsæla Tommamóti
Týs. Auk kappleikja og keppni í
hinum ýmsu greinum knattspyrn-
unnar er margt til skemmtunar
þess á milli og kvöldvökur, svo eitt-
hvað sé nefnt. Eyjamenn leggja
mikið upp úr að alit takist sem
best og þeir sem sótt hafa þetta mót
gefa þeim mikið hrós fyrir gestrisni
og góða skipulagningu.
Ábyrgð leiðbeinenda
er mikil
Það er mikill ábyrgðarhluti sem
fylgir því að vera þjálfari og leiö-
beinandi flokks í móti sem þessu.
Málið snýst um hvað börnin mega
og hvað þau mega ekki. Það er því
mikill vandi á höndum að rata hinn
gullna meðalveg. Böm em ákaflega
opin og hreinskilin og eiga því rétt
á heiöarlegu og góðu sambandi við
leiðbeinendur sína og umfram allt
umburðarlyndi.
Leiðbeinendur, munið. Þetta er
hátíð barnanna sjálfra. Setjið ekki
einhvern fáránlegan heraga ofar
góðu sambandi við þau. Vinnið í
samráöi við þau um að gera þessa
ferð sem skemmtilegasta. Bam
undir of stífum aga er innilokaö.
Góða skemmtun!
HH
Knattspyma unglinga
Reykjavíkurmeistarar KR-inga í 2. ílokki kvenna
Reykjavíkurmeistarar KR-inga í 2. flokki kvenna 1988: Fremri röð frá vinstri: Bryndis Einarsdóttir, Margrét Grétarsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir fyrir-
liði, Sigríður Fanney Pálsdóttir', Ásta Sóley Haraldsdóttir og Berglind Guðrún Bergþórsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Kjartan Kjartansson þjálfari, Snjólaug
Birgisdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir, Hugrún Sif Símonardóttir, Guðlaug Jónsdóttir og Ásta Jónsdóttir liðsstjóri. DV-mynd HH
4. flokkur - A-riðill: ÍR-Víkingur 3-2
Um síðustu helgi lék 4. fl. IR heima-
leik gegn Víkingi. Ekki er hægt að
segja annað en ÍR-strákamir byrji
vel í Íslandsmótinu því þeir eru meö
fullt hús eftir tvo leiki, unnu Tý á
dögunum, 4-0. Öll hin liðin hafa tap-
að stigi og verður gaman að fylgjast
með framvindu mála því þeir em svo
sannarlega ekki auðunnir.
Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir ÍR
og framan af var leikurinn í nokkuð
góðu jafnvægi en við annaö markið
var eins og Víkingsliðið missti trúna
og leikur liðsins datt niður. ÍR-strák-
amir sóttu mun meir í síðari hálfleik
og uppskára þriðja markið. Undir
lokin var dæmd vítaspyma á ÍR-inga
Skot
- Þetta er í fyrsta skipti á mín-
um þjálfaraferli sem mér finnst
í raun aö ég sé með óttalegt
hækjulið! ! !
Gústi
„sweeper“:
-Eftiraðhafa
séð Englend-
inga spila í Evr-
ópukeppni
landsliða er ég
harðákveöinn í
að fara út í at-
vinnumennsk-
una! ! !
sem Helgi Sigurðsson skoraði úr af
öryggi þannig að lokatökur leiksins
urðu 3-2 fyrir ÍR. Helga, sem er einn
af máttarstólpum Víkings, var ann-
ars vel gætt af Guðjóni Guðmunds-
syni og fór því frekar lítið fyrir hon-
um að þessu sinni. Það var og baga-
legt fyrir Víkinga að missa Guömund
Gauta út af í fyrri hálfleik vegna
meiösla.
ÍR hefur á að skipa góðri liðsheild
í þessum flokki og var oft skemmti-
legt að sjá hvemig strákamir létu
boltann ganga og náðu þeir oft á tíð-
um upp góðu spili sem skapaði mikla
hættu við mark Víkings.
Maður leiksins var án efa Kjartan
Kjartansson, miðvallarleikmaður ÍR.
Litlu síðri var Amar Jónsson. Gunn-
ar Gunnarsson, Helgi Hannesson og
Arnar Jóhannsson eru og athyglis-
verðir leikmenn. Það er því fyrst og
fremst árangur liðsheildar sem skóp
þennan sigur ÍR-inga.
Víkingar byijuöu vel en duttu síð-
an niður á jafnsléttu og þá er ekki
að sökum aö spyija. Bestir Víkinga
voru Guðmundur Gauti Marteinsson
í framlínunni, meðan hans naut við,
en hann skoraði mark Víkinga í fyrri
hálfleik og Agnar Sverrisson. í vöm-
inni voru þeir Guðmundur Ásgríms-
son og Vigfús Þórsson bestir. Enginn
vafi er á að Víkingsliöið getur meira
og þá er bara að sýna þaö í næsta
leik.
Mörk ÍR-inga gerðu Helgi Hannes-
son, Kiartan Kjartansson og Amar
Jónsson. Mörk Kíartans og Arnars
vora sérlega glæsileg með langskoti
af um 18 m færi.
ÍR sigraði Val stuttu seinna, 8-3,
og er liðið efst í riðlinum með 6 stig,
taplaust. Góð frammistaða hjá strák-
unum. HH
Staðan í riðlum
Íslandsmótsíns
í 2. fl. A-riðils hafa Þórsarar forystu
með 6 stig, hafa tapað einum leik
gegn Víkingum sem eru með 4 stig
eftir 2 leiki. Öll hin hðin hafa 2 stig
og hafa öll tapað leik eða leikjum.
Nokkram hefur og verið frestað svo
staðan er óljós. Leiknar era 2 um-
ferðir í 2. flokki.
í 2. fl. B-riðils hefur ÍR forystu með
6 stig eftir 3 leiki. Ægir er í 2. sæti
með 4 stig eftir 3 leiki.
2 fl. C-riðill er skammt á veg kom-
inn en þar er KA efst með 4 stig. ÍR,
Reynir S. og Fylkir hafa og 2 st. eftir
tvo leiki.
3. fl. - A-riðill: Stjarnan, Valur og
Fram 6 st., UBK 4 st.
í 3. fl., B-, C- og E-riðli, era leikir of
fáir.
3. fl. - D-riðill: ICA og Þór hafa 4 st.
eftir 2 leiki.
4. fl. - A-riðill: ÍR hefur forystu með
6 st. Framarar hafa 5 st.
4. fl. - B-riðill: FH hefur forystu með
6 st. Selfoss og Þór V. hafa 4 st.
4. fl. - C-riðill: Reynir S. efstur með
4 st. eftir 2 leiki.
4. fl. - D-riðill: KA og Þór efst með 4
st. eftir 2 leiki.
5. fl. - A-riðill: KR efst meö 14 st.,
UBK 8 st„ Týr V. 8 og Fram 7.
5 fl. - B-riðill: Stjarnan efst með 14
st. Reynir S. 6 st.
5. fl. - C-riðill: Haukar efstir með 10
st.
5. fl. - E-riðill: Þór A. 6 st„ KA 4 st„
Völsungur 4 st.
2. fl. kvenna - A-riðill: Breiðablik 4
st„ KA 2 st.
Keppni í 3. fl. kvenna hefst í dag.
Hafa ber í huga að liðin hafa leikið
mismarga leiki, m.a. vegna þess að
leikjum hefur verið frestað.
ÍR-ingar pressa að marki Víkinga i leik 4. flokks. Jóhannes Jóhannesson,
framherji ÍR-inga, á gott skot en varnarmenn Vikinga ná að komast fyrir.
DV-mynd HH
Mark i uppsiglingu i leik Þróttar og IA i Islandsmóti 2. fl. í A-riðli. - Sá sem
hoppar hæst er Birkir Pétursson, hinn marksækni framherji Skagamanna.
Hann fékk sendingu af vinstra kanti og skallaði boltann i bláhornið hægra
megin. Þetta var fimmta mark ÍA í leiknum sem lauk með 6-4 sigri þeirra.
Birklr þessi er bróðir Péturs Péturssonar, leikmanns með 1. deildar liði KR.
DV-mynd HH.