Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Page 41
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988.
£3
53
Lífestm
Fyrsti stopparinn var ekki árennileg-
ur. Þegar báturinn stakkst í blauta
hringiðuna var sem heimurinn
breyttist í kuldalega martröð. Gam-
an væri að fara aftur.
að fyrsta stopparanum. Sem betur
fer var áhöfnin farin að sjóast og
Stefán skipstjóri var furðurólegur
yfir þessu öllu saman. Hann ítrekaði
þá skipun sína að viö yrðum að róa
hressilega þegar komið væri í stopp-
arann þar sem annars yrði báturinn
fastur í hringiðunni.
Vatnið frussaðist og skvettist þar
sem heljarinnar neðanvatnsbjarg
stöðvaði framgang árinnar. Við nálg-
uöumst staðinn með meiri hraða en
fólur blaðamaður hefði kosið sér.
Loks var komið að því. Við komust
að því að nafngiftin „stoppari" á fylli-
lega rétt á sér. Það var sem báturinn
lenti á vegg. Það kom sér vel að hafa
hlustaö vel á Stefán í upphafi því að
viðbrögðin urðu ósjálfráð. Vanga-
veltur um lífið og óþarfan tilgang
ferðarinnar komust ekki að því allir
kraftar og hugsanir beindust að því
að róa og komast út úr þessu blauta
helvíti. Þrátt fyrir að allt gerðist á
sekúndubroti var sem heil eilífö liði
áður en báturinn komst út úr hring-
iðunni.
Jarðfræði og blautar buxur
Þrátt fyrir að seinna kæmu flúðir
sem væru svakalegri og enn stærri
stopparar en sá fyrsti vöktu þeir ekki
þær óttablöndnu tilfinningar sem
hann gerði. í raun var orðið svo að
áhöfnin var óánægð ef flúðirnar voru
of litlar og óskaði gjaman eftir meiri
loftköstum. Einn bátsverjinn kynnt-
ist Hvítá allnáið en hió að þessari
raun sinni. Þrátt fyrir að ekki væri
þurr þráður á honum þegar hann var
dreginn upp var hann hinn hress-
asti. Lýsingar af þessum nánu kynn-
um gerðu þaö að verkum að hann
var næstum öfundaður, svona eftir á.
Nægur tími var til aö skoða um-
hverfi árinnar og var mjög einkenni-
legt að sjá landslagið frá þessu sjón-
arhorni. Farið var um gljúfur sem
voru bæði sérkennileg og íogur. í
mörgum tilfella er ekki hægt að sjá
það sem bar fyrir augu nema frá
ánni. Áhugi fyrir jarðfræði vaknaði
og hjálpuðu góðar útskýringar skip-
stjórans þar til.
Það var með trega að viö yfirgáfum
hátinn að siglingu lokinni því að ferð-
in hafði verið skemmtileg og lifleg.
Þeir sem lifa blessunarlega rólegu
lífi þar sem helsta spennan er að aka
í umferðinni á föstudögum ættu að
prófa að fara eina ferð á gúmmíbát
niður jökulá. Þægilegt lífsmark er aö
finna adrenalínið flæða um æðar og
vera minntur á löngu gleymda
vöðva. Ekki spillir að gullgóð nátt-
úruskoðun fylgir í ofanálag.
Það skal tekið fram að ekki er
átakalaust að fara svona ferð þannig
að þeir sem treysta sér ekki til að
taka hressilega á ættu að sleppa
glímu við Hvítá.
-EG
Kortið sýnir ár og vötn þar sem hægt er að renna fyrir silung. Staðir þessir eru skammt frá höfuðborgarsvæðinu
þannig að hægt er að skjótast á kvöldin og um helgar í veiði.
Frá Reykjavík er örstutt til fjölda veiðisvæða:
Silungsveiði er sívinsæl
Fjöldi veiðistaða eru í nágrenni
höfuðborgarinnar. Margir af þeim
eru í skotfæri. Hægt er að komast í
silungsveiði eftir fimm mínútna
akstur frá borgarmörkunum. Þá eru
margir sem telja ekki eftir sér að aka
yfir klukkutíma til að komast í veiði.
Á síðustu árum hefur silungsveiði
orðið æ vinsælli. Algengt er að menn
skelli sér í veiði að loknum vinnu-
degi eða taki hluta af helgum til þess-
arar iðju. Hinir áhugasömu veiði-
menn sjást við flest vötn og ár og
fjölgar þeim sífellt.
Hvíld frá daglegu amstri
Fluga, maðkur, spúnn og jafnvel
síld eru það agn sem notað er. Sumir
mæta með gömlu tréstöngina sina.
Aðrir koma með rándýrar stangir
úr grafiti. með tilheyrandi útbúnaði.
Það gildir einu hvernig áhöld menn
telja sig þurfa í veiðiskapinn. Flestir
vonast eftir hinu sama. Hvíld frá
daglegu amstri og helst nokkrum
fiskum.
Verðlagning á veiðileyfum er mis-
jöfn. Hún er allt frá því aö vera nokk-
ur hundruð krónur og upp í nokkur
þúsund. En yfirleitt er silungsveiði
ekki dýrt sport miðað við margt ann-
að. Þeir aðilar sem DV talaði við og
stunda þennan veiðiskap létu mjög
vel af þessu áhugamáli. Allir töluðu
um hvíldina sem fólgin er í því að
skjótast út úr bænum og dýfa færinu
í vatn. Einnig var minnst á skemmti-
legan félagsskap sem yfirleitt væri
að finna þar sem veiðimenn hittast.
Nú, svo bætist við sú ánægja að koma
heim með glænýjan silung í soðið.
-EG
Þessi ungi sveinn er ef til vill upprennandi veiðikló. I það minnsta var einbeitingin mikil þegar hann setti í sinn
fyrsta fisk.
BÍLALEIGA ER
OKKAR FAG
Viö útvegum yður
interRent bílaleigubíl
hvar sem er erlendis,
jafnvel ódýrara en nokkur
annar getur boöið:
Dæmi: í íslenskum
krónum m/söluskatti.
Ótakmarkaður akstur
DANMÖRK:
3 dagar = 5.314,-
7 dagar = 10.626,-
Aukadagur 1.512.-
ÞÝSKALAND:
3 dagar = 5.370,-
7 dagar = 8.990,-
Aukadagur 1.285.-
LUXEMBURG:
3 dagar = 5.260,-
7 dagar = 8.020.-
Aukadagur 1.150.-
Einnig bjóðum við úrval
húsbíla og campingbíla í
Þýskalandi.
interRent er stærsta
bílaleiga Evrópu.
Við veitum fúslega allar
upplýsingar og pöntum
bílinn fyrir yður.
interRent
interRent á Islandi/
Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar
91-686915, 91-31615
Akureyri - Tryggvabr. 14 -
Símar 96-21715, 96-23515.
Telex: 2337 IR ICE IS.