Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988. 19 Danshús ÁRTÚN Gömlu dansamir föstudagskvöld kl. 21-03 og laugardagskvöld kl. 22-03. IRjómsveitin Danssporiö leikur íyrir dansi bæöi kvöldin. BÍÓKJALLARINN Lækjargötu 2, sími 11340. Bigfoot sér um tóniistina um helgina. BROADWAY Álfabakka 8, Reykjavik, simi 77500. Broadway í sumarskapi með dúndr- andi diskóteki og frábærum uppá- komum. Gó-Gó búrin á fúllu. Opið föstudags- og laugardagskvöld. I CASABLANCA Skúlagötu 30. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. DUUS-HÚS Fischersundi, simi 14446. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. EVRÓPA v/Borgartún. Hljómsveitin Bjarni Ara og Búning- amir verða með tónleika og dansleik í Evrópu í kvöld. Tilefnið er að ný hljómplata hljómsveitarinnar kemur á markaðinn í dag. Diskótek laugar- dagskvöld. GLÆSIBÆR Álfheimum. Hljómsveit Andra Bachman leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Opið kl. 22.00-03.00. HOLLYWOOD Ármúla 5, Reykjavík. Sveitaballastemmning í Hollywood um helgina. mjómsveitimar Mánar, Kaktus og Karma leika fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld. HÓTELBORG Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími 82200. Dansleikir föstudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónhst. Tískusýningar öU fimmtudagskvöld. Opið frá kl. 19-01. HÓTEL ÍSLAND LónU Blú bojs og rokkband Rúnars JúUussonar leika fyrir dansi föstu- dags- og laugardagskvöld. Skemmti- dagskráin „I sumarskapi" verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Stjöm- unni á föstudagskvöld. HÓTEL SAGA, SÚLNASAL- UR v/Hagatorg, Reykjavik, sími 20221. Hljómsveitin 7-und leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld. LENNON v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. LÆKJARTUNGL Lækjargötu 2, sími 621625. BaU föstudags- og laugardagskvöld. í kvöld verða sænsku strákamir í Gu- ys’n’DoUs með sýningu. ÚTÓPÍA Suðurlandsbraut. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. VETRARBRAUTIN Brautarholti 20, sími 29098. Guðmundur Haukur leikur og syng- ur um helgina. ÞÓRSCAFÉ Brautarholti, s. 23333. Diskótek föstudagskvöld. Hljóm- sveitin Boogies leikur fyrir dansi laugardagskvöld. ÖLVER Álfheimum 74, s. 686220. Opið fimmtudags- föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Mikið um dýrðir á afmæli Hvammstangahrepps Hvammstangahreppur á 50 ára afmæli á sunnudag. Sunnudaginn 10. júlí á Hvamms- tangahreppur 50 ára afmæli. Af þessu tilefni veröa mikil hátíðar- höld á Hvammstanga. Síöasthðinn miðvikudag var opn- uð útvarpsstöð á staðnum og verð- ur hún starfrækt fram á sunnudag. Alis munu um 40 dagskrárgerðar- menn verða með þætti í útvarpinu. Fjöldi sýninga í dag, föstudag, hefst síðan hin eiginlega afmælisdagskrá. Opnað- ur veröur útimarkaöur í bænum þar sem einstaklingar og fyrirtæki standa í sölustarfseminni. Á mark- aðnum verður tónlist og aðrar uppákomur. í kvöld verða nokkrar myndhst- arsýningar opnaöar á Hvamms- tanga. I grunnskólanum verður opnuð viðamikil sýning nemenda og þar mun einnig mynlistarklúbb- urinn Litberi opna sýningu. í Fé- lagsheimilinu verður sýnd vefnað- arhst eftir Ehsabetu Harðardóttur. Orkusýning Rarik verður í bóka- safninu og á hótehnu Vertshúsinu verður málverkasýning Hjálmars Þorsteinssonar. Þar mun Megas vera með tónieika í kvöld. Syndandi þjónar Á laugardagsmorgun verður heiðursskotum skotið, einu fyrir hvern áratug. Síðan verður farið í skemmtisighngu um fjörðinn. Að því búnu verður léttur morgun- verður framreiddur í sundlaug bæjarins. Mun þetta verða óvenju- legur morgunverður með syndandi þjónum og lifandi tónhst. Síðar á laugardag verður frjáls- íþróttamót og fótboltaleikur í bæn- um. Hátíðarsvæði við Hvammsána Um kl. 16.30 verður hljómskála- tónhst leikin í Kvenfélagsgarðinum og að því búnu verður mikil skemmtun haldin á hátíðarsvæöi við Hvammsána. Skúlptúr eftir Marinó Bjömsson verður afhjúp- aður og göngubrú yfir ána vígö. Matvælakynning fyrirtækja verður í stóru tjaldi á svæðinu. Um kvöldið verður sögusýning þar sem sýnt verður hvemig bærinn Hvammstangi varð tii. Utitónleikar verða þar á eftir þar sem leika munu hhómsveitimar Baggaband- ið og Hrepparnir. Fjölskyldudans- leikur verður síðan í félagsheimii- inu. Grill og Hvalir í Hvömmum Afmæhsdagshátíðin sjálf á sunnudag hefst með því að boðið verður til grillveislu í gróðurreit rétt utan við bæinn kl. 11.00. Guðs- þjónusta verður í Hvammstanga- kirkju kl. 13.30. Þaðan verður skrúðganga að hátíðarsvæði þar sem hátíðardagskrá verður sett. Verður mikið um dýrðir í þeirri dagskrá. Meðal annars verður rev- ían Hvahr í Hvömmum sýnd, hst- flug og fallhlífarstökk. Afmæhsthátiöinni lýkur meö fallegri lokaathöfn. -gh Ný plata hljómsveltarlnnar kemur út f dag. • * * 1 t útgáfutónleikar í Evrópu Hljómsveitin Bjami Ara og búningarnir verður meö tónleika og dansleik f veitingahúsinu Evr- ópu í kvöld, föstudaginn 8. júh, kl. 22-03. Er þessi uppákoma í tilefni þess að í dag kemur á markaöinn ný hijómplata hljórasveitarinnar. Lögin af þessari nýju plötu fá örugglega aö liljóma f Evrópu í k völd ásamt fiölda annarra laga. Hljómsveitin hyggst standa fyr- ir mörgum óvæntum uppákom- um i tilefni dagsins og mun fímm- tugasti hver gestur, er keraur í húsiö, fá ókeypis eintak af plöt- unni. Aðdáendum hljómsveitar- innar er bent á að frávik veröur gert á aldurstakraarki inn í Evr- ópu þetta kvöld. Verður það miö- að við 18 ár i staö 20 eins lega. Sænskir gæjar og píur - skemmta íslenskum gæjum og píum Síðastliðinn miðvikudag kom til landsins sýningaflokkurinn Gu- ys’n’Dohs frá Svíþjóð. Flokkurinn mun halda sýningar í Lækjartungli og Bíókjallaranum frá 8. júlí th 22. júh. Verður fyrsta sýningin í kvöld á hálfs árs afmæli Lækjartungls. Guys’n’Dolls hafa ferðast meö sýningar sínar víða um heim við góðan oröstír. Meöal annars komu þau hingað til lands fyrir tveimur árum og sýndu 'nokkrum sinnum. Þau eru mjög vinsæl í heimalandi sínu og hafa meðal annars hlotið hin óopinberu verðlaun Gullhljóð- nemann. Sýningar hópsins byggjast upp á dansatriðum blönduðum mime- söng, frumlegum og nýstárlegum klæðaburði og léttri kímni. Stund- um gætir kabarett-áhrifa í sýning- um hans en mörg atriðanna sækja innihald sitt í ýmis tímabil mann- kynssögunnar. Sýningahópurinn samanstendur af atvinnudönsur- um, leikurum og aðilum sem eru Stundum gætir kabarett-áhrifa í sýningum hópsins. við nám í hinum ýmsu listaháskól- um. Búningar, hárkollur og gervi eru öll hönnuð af meðlimum hópsins og hefur mikil vinna verið lögð í undirbúning þessara sýninga. Afmæli Á morgun, laugardaginn 9. júh, eru liðin 30 frá því að Byggðasafn Þingeyinga var formlega opnað í gamla torfbænum á Grenjaðarstað í Aðaldal. í thefni þessara tímamóta verður hátíðardagskrá á Grenjaðarstað og eru allir velunnarar safnsins vel- komnir. Dagskráin hefst kl. 14 með guðsþjónustu í Grenjaðarstaðar- kirKju þar sem séra Halldór Gunn- arsson í Holti predikar. Að guðsþjónustunni lokinni verður viðstöddum boðið að skoða byggöasafnið. Klukkan 16 hefst af- mæhsdagskrá kirkjunnar með tón- hst og töluðu máli. Dagskrá stýrir Finnur Kristjánsson. Kaffiveiting- ar verða seldar á vægu verði á staönum til styrktar byggðasafn- inu. Grenjaðarstaður var höfðingja- setur th foma og eitt af bestu brauðum landsins. Var hann lagð- ur th jafns við Odda er þótti besta brauð í Sunnlendingafjórðungi. Átti staöurinn fjöldajarða, auk hjá- leigna, reka, laxveiði og önnur ítök en heimaland mikið og gagnsamt. Byggðasafiis Þingeyinga Grenjaðarstaður í Aðaldal þar sem byggðasafnið er til húsa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.