Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
jfl
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hiimar Karlsson
Eftir frekar litlar breytingar á vin-
sældalistanum aö undanförnu
bregður nú svo við að tvær nýjar
myndir stökkva beint í efstu sætin.
Hin ágæta sakamálamynd, No Way
Out, fer í fyrsta sætið. Þessi mynd
er nokkuð flókin og spennandi og
í aðalhlutverki er nýjasta stór-
stjarnan í Hollywood, Kevin Kostn-
er. Myndin í öðru sætinu er hin
magnaða Víetnam-mynd Stanley
Kubrick, Full Metal Jacket. Tvær
toppmyndir sem sagt á toppnum.
Aðrar breytingar eru nánast eng-
ar. Athygli vekur þó að No Mercy,
sem virtist vera á leið út af listan-
um, stekkur úr tíunda sætinu í það
sjötta, aðdáendum Richard Gere
sjálfsagt til mikillar ánægju.
DV-LISTiNN
2. (-)
3. (D
4. 2
(3)
6. (10)
(4)
8. 6
9. (5)
10. (7)
No Way Out
Full Metal Jacket
Innerspace
Dirty Dancing
Raising Arizona
No Mercy
Something Wilde
The Last
Innocent Man
Wiseguy
The Jerk
★★★
Lygiimi líkast
AMAZING STORIES
Útgefandi: Laugarásbíó.
Bandarisk, 1986. Öllum leyfð.
Hér er um að ræða þrjár myndir
en í röð hinna ótrúlegu sagna Stev-
ens Spielberg. Mun þetta vera
fjórða myndin sem hér kemur út
og hafa þær allar notið töluverðra
vinsælda. Myndirnar hér eru frem-
ur á léttari nótunum og hrollurinn,
| frnniity Dog
ksnMfty
Aaraaúm
Á götunni
CRACKERS
Útgefandi: Laugarásbió.
Leikstjóri: Louis Malle. Aðalhlutverk:
og
ÍSLENSKUÓ
rEXTl
Donald Sutherland, Jack Warden
Sean Penn.
Bandarísk, 1983. 90 min. öllum leyfð.
Hér er um að ræða endurgerð á
gamalli grínmynd sem gerði það
gott á sínum tíma, Big Deal on
Madonna Street. Hér segir frá sér-
stöku götusamfélagi þar sem allir
þekkja alla og litríkir persónuleik-
ar eiga síðan að fylla inn í myndina.
Því miður virðist enginn hafa
áhuga á að leika í endurgerðinni
og húmorinn er alveg horfinn. Eftir
10 mínútur byrjar maður að láta
sér leiðast og eftir 20 mínútur fer
maöur að undrast hvað leikaramir
eru að gera í myndinni. Síðar renn-
ur upp fyrir manni að kannski eigi
þeir ekki völ á neinu betra. Dálítið
skoplegt er að fylgjast með Penn
sem lék í þessari mynd áður en
hann hitti Madonnu. Hann hefur
elsthrattsíðan. -SMJ
sem gjarnan hefur einkennt þessa
þætti, er ekki með að þessu sinni.
Myndirnar eru stuttar þannig að
sumum þykir nóg um.
Family Dog
heitir fyrsta myndin sem er
reyndar ansi skondin teiknimynd
þar sem segir frá heimihshundi
einum sem gengur fremur iha að
sinna hlutverki sínu. Myndin er
bráðfyndin og ágætlega gerð.
Snarpur ádeilubroddur er í mynd-
inni ef fólk nennir að svipast um
eftir slíkum hlutum.
Dorothy og Ben
Önnur myndin er af væmnari
gerðinni og sú lakasta. Þar er grufl-
að lítillega viö framhaldslíf. Tvær
verur, sem hafa lent í dásvefni, ná
sérkennilegum tengslum og vekur
það undrun (og ótrú) hjá læknalið-
inu.
The Main Attraction
Hér er birtist húmorinn aftur
þegar segir frá bandarískum
stórgæja sem fær loftstein í höfuðiö
en það gerir hann meira segul-
magnaðan en gott þykir. Myndin
er talsvert fyndin og í henni má
finna ádeilu á ákveðna manngerð
í bandarísku mann- og kvikmynda-
lífl.
-SMJ
*♦ ^
Trúðurmn Steve Martin
★★
Snjall strákur
WISE GUY
Útgefandi: JB.
Leikstjóri og framleiðandi: Rod Hol-
comb. Aóalhlutverk: Ken Wahl, Ray
Sharkey, Robert Miranda, Gerald An-
tony og Jim Byrnes.
Bandarisk 1988. 95 min. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Sérþjálfaður spæjari hjá FBI er
látinn smygla sér inn í mafíuhring
til uppljóstrunar. Það tekur á taug-
arnar, sérstaklega þegar hann þarf
að gerast morðingi fyrir mafíuna.
Hér er róið á kunnug mið, lög-
reglumaöur viö erfið vinnuskilyrði
í eilífri baráttu réttvísinnar við
glæpi. Ágætlega tekst til viö per-
sónusköpun og er Sharkey góður
sem yfirglæponinn. Wahl hefur
áður sést í átakamyndum (Fort
Apache, The Bronx og The Wand-
erers) og er þokkalega efnilegur.
Útlitsins vegna ætti hann að hafa
einhveija möguleika á að feta sig
upp stjörnustigann. Atburöarásin
er ágætlega spennandi og átakaat-
riði vel úr garði gerð. Innan síns
hóps stendur.því þessi mynd vel
fyrir sínu.
Myndin endar snubbótt enda
virðist hér vera um upphafsþátt að
sjónvarpsmyndaflokki að ræða.
Myndir af þeim uppruna sjást oft á
myndbandaleigum og er ekkert við
því aö segja ef um þokkalega af-
þreyingu er að ræða. Það væri þó
sjálfsögð kurteisi að taka slíkt fram
á kápunni. -SMJ
THEJERK
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Carl Reiner.
Aðalhlutverk: Steve Martin, Bernadette
Peters og Jackie Mason.
Bandarisk, 1979. -Sýningartimi: 90 min.
Það má með sanni segja að The
Jerk sé eins manns kvikmynd. Hún
stendur og fellur með Steve Martin.
Martin, sem á þeim árum, sem The
Jerk var gerð, var aðallega þekktur
sem skemmtikraftur, fer stundum
á kostum í sundurlausri kvikmynd
sem vantar allan heildarsvip.
Martin leikur ungan mann sem'
er á förum úr heimahúsum í leit
að atvinnu. Þaö sérkennilega við
íjölskyldu hans er að allir eru
svartir nema hann. Hann telur sig
því svertingja. Vegna þess að hon-
um tekst að festa gleraugu á við-
skiptavin bensínstöðvar, sem hann
vinnur á, verður hann milljóna-
mæringur og er tahnn snjall upp-
finningamaður. En leiðin niður á
við er ekki síður hröð og að end-
ingu sjáum við Steve Martin innan
um róna.
Söguþráðurinn er ekki ýkjka
merkilegur. Myndin skiptist niður
í misgóða þætti þar sem hæfileikar
Martins sem grínista njóta sín til
fullnustu og svo sannarlega hefur
hann hæfileikana. í bestu atriðun-
um er hann óborganlegur. En af
öllu má fá nóg og það á einnig við
um Steve Martin. Ofleikur hans
verður leiðigjarn til lengdar og þeg-
ar ekki næst að tengja myndina
verður hann þreytandi, sérstaklega
í þeim atriðum þegar hann er orð-
inn ríkur.
The Jerk er þrátt fyrir marga
galla ágæt skemmtun og sá má vera
illa fúll sem ekki brosir að tiltekt-
um og tilsvörum Steve Martin.
HK
Glæpur og refsing
HANDS OF A STRANGER
Útgefandi: JB
Leikstjóri: Larry Elikann. Aóaihlutverk:
Armand Assante, Blair Brown og Be-
verly D’Angelo.
Bandarisk 1987. 2X93 min. Bönnuó
yngri en 16 ára.
í þessu tveggja spóla sjónvarps-
drama segir frá lögregluforingja
einum sem er ákaflega efnilegur
og þar að auki vel giftur. Konu
hans er nauðgað og rústast þar meö
tilvera þeirra hjóna. Hann tekur
að sér rannsókn málsins og missir
um leið tökin á starfi sínu. Inn í
máhð fléttast síðan harðskeyttur
saksóknari.
Hér er á ferðinni mikið melódr-
ama sem er fyrst og fremst unnið
á forsendum sjónvarpsins. At-
burðarásin er á köflum hæg enda
lopinn teygður í tvo þætti. Persónu-
sköpun er engan veginn fullkomin
en dugar þó til að gæða myndina
nokkru lífi. Á köflum verður þó
gremjulegt að fylgjast með vand-
ræðagangi persónanna sem engan
veginn kunna að umgangast sann-
leikann. Leikarar komast vel frá
hlutverkum sínum enda þekkt fag-
fólk í helstu hlutverkum.
-SMJ
★★★
Engin venjuleg frænka
o
Housekeeping
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Bill Forsyth.
Aðalhlutverk: Christine Lathi.
Bandarisk, 1987. - Sýningartimi: 112
min.
Bill Forsyth er sjálfsagt þekktast-
ur fyrir að hafa leikstýrt hinni
ágætu mynd Local Hero er gerist í
Skotlandi og segir á gamansaman
hátt frá bandarískum spákaup-
mönnum sem koma til skosks smá-
bæjar.
Skotland er heimkynni Forsyth
svo hann er nokkuð langt frá
heimaslóöum með nýjustu mynd
sinni, Housekeeping, sem gerist í
sveitum Bandaríkjanna.
Segir þar frá tveimur systrum,
Ruth og Lucille, sem sendar eru til
ættingja þegar móðir þeirra fremur
sjálfsmorð. Þar lifa þær tilbreyting-
arsnauðu lífi þar til svarti sauður-
inn í ættinni, Sylvie, birtist og tek-
ur þær að sér. Sylvie ert engin
venjuleg frænka, hefur sínar skoð-
anir á hlutunum og fer sínu fram,
yfirleitt í mótsögn við venjulegt
fólk. Systurnar hrífast af frænku
sinni, sérstaklega hin hægláta Ruth
sem smám saman hverfur inn í
hinn sérkennilega heim frænku
sinnar...
Housekeeping er að mörgu leyti
sérstök kvikmynd. Forsyth fer ekki
troðnar slóðir fremur en fyrr,
hvorki í myndfrásögn né sögu-
þræöi. Má geta þess aö karlhlut-
verk í myndinni er nánast ekkert.
Christine Lathi leikur Sylvie af
innlifun og hrífur áhorfandann
með sér í mynd sem í fyrstu virðist
einföld en flókinn hugsanagangur
aöalpersónanna gerir Housekeep-
ing að eftirtektarverðri og
skemmtilegri kvikmynd. HK